Dagur - 27.04.1982, Blaðsíða 6
Félags- og
heilbrígðismál
Stefna framsóknarmanna á Akureyri
er að félagslega aðstoð eigi fyrst og
fremst að veita til að styðja fólk til
sjálfshjálpar og jafna aðstöðu manna
til eðlilegrar þátttöku í félags- og
atvinnulífi.
Vegna breyttra þjóðfélagshátta
hefur dagvistun barna færst í vöxt.
Framsóknarmenn á Akureyritelja að
fjöldi dagvistarrýma eigi að vera í
samræmi við raunverulegar þarfir.
Beita verður aðhaldi í rekstri og ætl-
ast til þess að notendur þessarar
þjónustu taki aukinn þátt í kostnaði
við rekstur dagvistarstofnana.
Framsóknarmenn á Akureyri álíta
vænlegra að koma upp athvörfum við
grunnskóla bæjarins, fremur en að
byggja upp sérstök skóladagheimili.
Framsóknarmenn á Akureyri telja
að koma eigi í ríkara mæli til móts við
aldrað fólk, sem hætta verður starfi
vegna aldurs en ekki sökum skorts á
starfsþreki. Stuðla þarf að því að aldr-
aðir hafi verkefni við hæfi og að þeim
verði gefið rýmra val um hvernig þeir
eyða ævikvöldinu. Lýst er yfir stuðn-
ingi við áform um stækkun dvalar-
heimila aldraðra og byggingu sér-
stakra íbúða fyrir þá.
Framsóknarmenn á Akureyri vilja
að bæjarfélagið stuðli að því að öldr-
uðu fólki sé gert auðveldara að selja
stórt og óhentugt húsnæði og kaupa
minna sem betur hentar minnkandi
heimilishaldi. Auk þess sem þörfum
aldraðra verði sinnt með þessum
hætti getur slík fyrirgreiðsla ýtt undir
endurnýjun og meiri aldursdreifingu í
eldri hverfum bæjarins. Stuðla ber að
því að aldraðir geti sem lengst verið í
eigin húsnæði, óski þeir þess, með því
að efla heimilishjálp.
Félagsaðstöðu þarf að koma upp
fyrir aldraða á þann veg að hún nýtist
jafnt þeim sem heima búa og þeim
sem búa á dvalarheimilum. Hafa ber í
huga við skipulagningu og starfsemi
félagsmiðstöðva, að þær nýtist öllum
aldurshópum.
Leiguhúsnæði á vegum bæjarins
hefur verið mikið endurbætt síðustu
ár. Framsóknarmenn á Akureyri vilja
að útleiga þess verði í samræmi við
það sem gerist á hinum almenna
leigumarkaði enda sé svo litið á að um
skammtímalausn sé að ræða. Þeir
vilja að bæjarfélagið beiti sér fyrir
byggingu ódýrra kaupleiguíbúða.
Framsóknarmenn á Akureyri munu
styðja alla þætti sem miða að eflingu
heilsugæslu fyrir unga sem aldna.
Heilsugæslu aldraðra skal sinnt með
heimahjúkrun fyrir þá sem vilja og
geta dvalið á heimilum sínum. Brýnt
er að sjúkradeild fyrir aldraða verði
hið fyrsta tekin í notkun. Lýst er yfir
stuðningi við frjáls félagasamtök sem
vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum í
heilbrigðismálum og endurhæfingu.
Framsóknarmenn á Akureyri leggja
áherslu á eflingu fræðslu um skað-
semi vímugjafa og styðja almenn-
ingssamtök til varnar í þeim efnum.
Leggja verður áherslu á að ljúka
frágangi á þeim áfanga sjúkrahússins
sem nú er unnið að og knýja skal á um
frekari framkvæmdir.