Dagur - 27.04.1982, Qupperneq 7
Iþrótta- og
æskulýðsmál
Framsóknarmenn á Akureyri telja að
fólki á öllum aldri skuli gefinn kostur á
að stunda íþróttir og útivist við sitt
hæfi, bæði til heilsubótar og til undir-
búnings þátttöku í keppni. Þeir vilja
stuðla að því að komið verði upp að-
stöðu fyrir sem flestar íþróttagreinar.
Vegna þess hve íþróttir og útivist eru
mikilvægir þættir í uppeldi og mótun
ungs fólks vilja framsóknarmenn á
Akureyri að bæjarfélagið styrki frjálst
starf íþróttafélaganna í bænum og að
þeim verði gert kleift að ljúka frá-
gangi íþróttasvæða sinna. Þeir vilja
að sem mestur hluti framlaga bæjar-
ins til íþróttamála nýtist til nýrra
framkvæmda.
Framsóknarmenn telja eðlilegt að
aðaláhersla verði lögð á að ljúka
byggingu íþróttahallarinnar. Akur-
eyri er miðstöð vetraríþrótta og þarf
að vinna að alhliða uppbyggingu á
því sviði. Nú er brýnt að bæta lyftu-
kost í Hlíðarfjalli og koma upp vél-
frystu skautasvelli. Jafnframt verði
hugað að skíða- og sleðaaðstöðu fyrir
yngstu bæjarbúana í íbúðahverfum.
Áhorfendasvæði á íþróttavelli bæjar-
ins þarf að koma í viðunandi horf.
Framsóknarmenn á Akureyri leggja á
það áherslu að sem fyrst verði komið
upp kennslusundlaug í Glerárhverfi,
sem einnig nýtist almenningi. Þeir
telja að aðtaða fyrir íþróttakennslu
þurfi að rísa við alla skólana.
Framsóknarmenn á Akureyri vilja
stuðla að aukinni útivist almennings
og að áfram verði haldið skipulagn-
ingu og lagfæringu útivistarsvæða í
þeim tilgangi.
Frjálsu félaga- og æskulýðsstarfi
þarf að skapa skilyrði til að þróast
þannig að allir geti fundið þar eitt-
hvað við sitt hæfi. Þá vilja framsókn-
armenn styðja æskulýðs- og safnað-
arstarf innan þjóðkirkjunnar. Bent er
á að safnaðarheimili og kirkja þurfi að
rísa sem fyrst í Glerárhverfi.
í skólahverfum verði gert ráð fyrir
húsnæði fyrir hvers konar tóm-
stundastörf og sköpuð góð félags- og
menningaraðstaða, ekki aðeins fyrir
unglingana, heldur fjölskylduna alla.
Gefa skal unglingum kost á að
starfa sem mest í beinum tengslum
við atvinnulífið í sumarleyfum sínum.
Markmið vinnuskólans skal vera að
þroska unglingana og undirbúa þá til
þátttöku í atvinnulífinu með raunhæf-
um verkefnum, góðri verkkennslu og
verkstjórn.
Lokaorð
Framsóknarmenn á Akureyri
ganga bjartsýnir til þessara kosn-
inga. Þeir treysta því að bæjarbú-
ar meti mikils þá stefnu sem hef-
ur gert Akureyri að traustu og
góðu samfélagi. Framsóknar-
menn á Akureyri hvetja bæjarbúa
til þátttöku og starfa að þeirri
stefnu, þar sem samvinna, fól-
agshyggja og öryggi skipa veg-
legan sess og sem verið hefur
kjölfesta Akureyrar og eyfirskra
byggða.