Dagur - 13.07.1982, Page 11
Tún voru sums staðar
fárin að brenna
„Héðan er sömu sögu að segja
og víða annarsstaðar af
Norðurlandi. Sprettan hefur
verið heldur hæg enda voru
þurrkarnir svo geysilegir að tún
voru sum staðar farin að
brenna en nú er hann farinn að
rigna og hefur gróðurinn tekið
dável við sér. Það er þó vika til
hálfur mánuður þar til byrjað
verður að slá.“
Bílasala
Bílaskipti.
Stór og bjartur
sýningasalur.
Bílasalan Ós,
Akureyri sími 21430.
Þetta sagði séra Pétur Þórarins-
son prestur á Hálsi í Fnjóskadal í
samtali við Dag s.l. fimmtudag."
Bændur eru bjartsýnir hér þó
vissulega mætti rigna meira.
Aðaláhyggjuefni manna er
ástandið í landbúnaðarmálunum
og eru allir meðvitaðir um að eitt-
hvað verður að gera í þeim
málum. Þegar er kominn vísir að
einu refabúi hér í Fnjóskadal og
flestir búast við að þurfa að draga
saman seglin. Er það mjög baga-
legt þar sem bú hér eru flest undir
vísitölubúi og menn mega tæpast
við því að minnka við sig. Hér í
hreppnum hefur verið starfandi
atvinnumálanefnd á annað ár og
hefur hún það hlutverk að leita að
nýjum verkefnum fyrir sveitafólk-
ið að starfa við jafnhliða bústörf-
unum. Við höfum hér skógrækt-
ina sem vissulega er mikil búbót
og mætti e.t.v. nýta hana betur.
Nefndin hefur kannað möguleika
á fiskirækt hér. Hér er heitt vatn á
tveim stöðum og á nú að reyna að
Bústjóri
Einangrunarstöð holdanauta í Hrísey óskar að
ráða bústjóra sem fyrst. Upplýsingar um aldur og
fyrri störf sendist til Einangrunarstöðvar holda-
nauta, 630 Hrísey.
Upplýsingar í síma 96-61781.
Okkur vantar
bílstjóra
nú þegar til afleysinga
M^Matvörudei Id
^ Birgðastöð
bora á Draflastöðum. Hér er
dálítil ferðamannaþjónusta, t.d. í
sambandi við orlofsheimilin en
ferðamálin hafa þó ekki verið tek-
in traustum tökum og mætti ör-
ugglega auka umsvif þeirrar þjón-
ustu. Vaglaskógur er t.d. geysi-
vinsæll af ferðafólki og oft fjöldi
fólks þar um helgar."
Á veturna er hér ekki mikil
atvinna fyrir þá sem ekki stunda
búskapinn og hafa menn þurft að
sækja vinnu sína til Akureyrar.
Það hefur að vonum ekki verið
auðvelt enda samgöngurnar ekki
eins og best er á kosið. Það lagast
þó vonandi þegar Víkurskarðs-
vegur verður gerður ökufær í
haust.
Sveitastjórnarkosningarnar
fóru fram með friði og spekt og
urðu ekki breytingar á í hrepps-
nefnd utan þær að kona kom inn í
nefndina í fyrsta skipti í manna
minnum og leysti með því af
hólmi gamalreyndan hrepps-
nefndarmann hér og var sá feginn
að losna,“ sagði Pétur að lokum.
Þess má að lokum geta að Pétur
hefur nú verið kjörinn prestur a
Möðruvöllum í Hörgárdal og
Hálsprestakall verður auglýst til
umsóknar síðar í sumar.
Umboðsmenn Dags
Siglufjörður: Matthías Jóhannsson Aðalgötu 5, sími 71489.
Blönduós: Olga Bjarnadóttir Árbraut 10, sími 4178.
Sauðárkrókur: Gunnar Pétursson Raftahlíð 13, sími 5638.
Ólafsfjörður: Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Hrísey: Heimir Áslaugsson Norðurvégi 10, sími 61747
Dalvík: Gerður Jónsdóttir Miðtúni, sími 61247.
Grenivík: Kjartan H. Pálmarsson, sími 33112.
Húsavík: Hafliði Jósteinsson Garðarsbraut 53, sími 41765.
Mývatnssveit: Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Kópasker: Sigurrós Tryggvadóttir Akurgerði5,sími52145.
Raufarhöfn: Friðmundur H. Guðmundsson , sími 51225
■ ■
FYRIR BÓRN 9-16 ARA
15. júlí-3. ágúst nk.
Námskeiðið er hvort tveggja í senn, leikur og nám.
ins BASIC og geta að loknu námskeiði skrifað einföld
forrit. Þeim er kynnt bygging og eiginleikar tölva og
tölvukerfa.
Á kvöldin eru leik- og æfingatímar.
Námskeiðið stendur yfir 2 stundir á dag í 7 daga auk
frjálsra tíma að kyöldinu.
Við kennsluna eru notaðar vandaðar einkatölvur frá
ATARI, sem eru með lit og hljóði.
Námskeiðið verður ekki endurtekið á Akureyri.
Notfærið ykkur þetta einstaka tækifæri.
NÁMSKEIÐSKYNNING
miðvikudaginn 14. júlí kl. 18-22 í húsnæði
Trésmiðafélags Akureyrar, Ráðhústorgi 3.
Innritun og upplysingar:
Akureyri: Sími 22890 eða 24558
Reykjavík: Sími 25400.
10%
afsláttur
af allri metravöru næstu
3 daga, miðvikudag,
fimmtudag og föstudag.
Hlaðin borð af bútum.
Handklæði í mörgum litum
á niðursettu verði.
Opið á laugardögum
frá kl. 10-12.
alttílsawna
Sfs
Is
__L
FNR. 8164-5760
Aemman
SK1PAGATA 14 B - SlMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI
Barnastóll
á reiðhjól
Mjög traustur
barnastóll frá Svíþjóð.
Festingar bæði í
bögglabera og
hjólagrind. Hátt
stólbak og hlíf fyrir
fæturna.
Verð: 390 kr.
Skíðaþjónustan
Reiðhjóladeild,
Kambagerðf 2,
sími 24393.
AUGLÝSIÐ í DEGI
KOKA
BORGARAR
... OG
KEMUR MEÐ
TIL OKKAR
FÆRÐU
AFSLÁTT,
KAUPIRÐU MAT.