Dagur - 13.07.1982, Síða 12

Dagur - 13.07.1982, Síða 12
Vandræðaástand í símamálum Myvetninga Mikil óánægja ríkir nú í Mý- vatnssveit vegna ástands síma- mála þar. Gunnar Ingi Gunn- arsson staðartækni- fræðingur við Kröfluvirkjun sagði í samtali við Dag að í vet- ur hefði símstöðin verið stækk- uð og við það hefði sjálfvirkum númerum fjölg- að. Áður hefði ástandið ekki verið gott en nú keyrði það um þverbak og væri málum nú svo komið að menn þyrftu að bíða í fleiri mínútur áður en sónn fengist úr símanum. „Hér er þessu þannig fyrir kom- ið að mismunandi sónn er fyrir innansveitarsímtöl annarsvegar, og són út af svæðinu hinsvegar. í hvert skipti sem maður hringir þarf maður að bíða í fleiri mínút- ur eftir réttum són. Þetta er afar hvimleitt sérstaklega fyrir fyrir- tæki eins og Kröfluvirkjun sem mikið þarf að hringja til Reykja- víkur.“ Dagur hafði samband við Ársæl Magnússon svæðisstjóra Pósts og síma og spurðist fyrir um orsök þessa., „Orsökin er tvíþætt," sagði Ársæll. „Bæði er það að með stækkun stöðvarinnar í Reykja- hlíð í vetur og fjölgun sjálfvirkra númera hefur álagið aukist og geta þá þær fáu línur sem liggja til stöðvarinnar ekki annað því. Eins er það að með lækkun taxtans í vetur hefur álagið aukist enn meira. Við höfum fengið kvartan- ir víðar að og staðreyndin er sú að taxtalækkunin í vetur hefur alls staðar aukið álagið og það er að verða of lítið af línum. í haust eða byrjun vetrar stendur fyrir dyrum hjá okkur að fjölga línum til stöðvarinnar í Reykjahlíð þannig að úrbóta er að vænta á því sviði að öllu forfallalausu." Ársæll sagði ennfremur að nú stæðu yfir álagsmælingar á svæðinu og gæfu niðurstöður þeirra mælinga möguleika á að færa til línur -með tilliti til hvar álagið væri mest og hvar mætti fækka línum. HM-getraunin: A sunnudag hélt séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur i Glerárprestakalli, helgistund í trjálundinum í Glerárþorpi. Tölu verður fjöldi fólks tók þátt í þessari helgistund og á eftir var skenkt kaffi og með því. Við athöfnina söng kirkjukór Lögmannshlíðarsóknar undir röskri Stjórn Áskels Jónssonar. Mynd:H.Sv. Skáborað við Kröflu Nú stendur fyrir dyrum að hefja borun á holu 20 við Kröflu. Að sögn Gunnars Inga Gunnarssonar staðarverkfræðings við Kröflu verður borun þessi með nokkuð sérstökum hætti, þ.e. skáborun, sem ekki hefur verið reynd áður hérlendis. Fyrst er borað 250 m lóðrétt niður í jörðina, en síðan settur bormótor niður í holuna, sem skekkir stefnu borsins. Er þetta gert til þess að meiri líkur séu á, að borinn hitti á lóðréttar sprungur. Nýlokið er borun á holu nr. 19 og hola nr. 9 hefur ný- lega verið hreinsuð. Þá eru 7-8 holur inni á kerfinu. Land hefur hvorki risið né sigið við Kröflu upp á síðkastið. Enginn spáði Ítalíu sigri Þeir sem tóku þátt í HM-get- raun Dags, Sporthússins og Adidas áttu ekki von á því, J>eg- ar riðlakeppninni lauk, að Italir myndu fara með sigur af hólmi. Reyndar er það ekkert furðu- legt, því ítalir voru mjög - ósannfærandi í leikjum sínum í í riðlakeppninni. Langflestir þeirra, sem tóku þátt í getrauninni, spáðu því, að Brasilía myndi fara með sigur af hólmi í keppninni, enda léku þeir mjög skemmtilega knattspyrnu. Önnur lönd, sem voru „á blaði“ hjá spámönnum, voru Argentína, V.-Pýskaland, England og Belg- ía. En það voru sem sagt ítalir, sem komu allra liða mest á óvart. Þegar þeir rétt skriðu áfram úrriðlakeppninni, bjuggust engir við því, að þeir myndu gera stóra hluti, en þeir „þræddu stór- þjóðirnar upp“ hverja af annarri, Argentínu, Brasilíu, Pólland og loks V.-Þýskaland í úrslitunum, eins og menn hafa sjálfsagt séð í sjónvarpinu á sunnudaginn. Lögreglan á Akureyri hefur að undanförnu klippt númerin af rúmlega 100 bifreiðum, sem ekki höfðu verið færðar til skoðunar á réttum tíma. Að sögn Sigurðar Indriða- sonar, forstöðumanns Bifreiða- eftirlits Akureyrar, voru heimtur í aðalskoðun nú mjög svipaðar því, sem þær hafa verið undanfar- in ár, og sömu sögu er að segja um ástand bifreiðanna almennt. Sig- urður sagði, að skoðunin væri nú langt komin, en mikið annríki hefur verið í Bifreiðaeftirlitinu undanfarna daga. Lagning vídeokapla heldur áfram í Lundarhverfi — Leyfi enn ekki fengið frá bæjaryfirvöldum Vídeolundur - samtök vídeo- áhugafólks í Lundahverfi - ákvað á fundi sínum sl. fímmtu- dag að halda áfram lagningu vídeokapla í Eikarlund, Heið- arlund og Furulund. Að þeim framkvæmdum loknum verða um 500 íbúðir tengdar vídeo- kerfinu. Að sögn Péturs Pét- urssonar, formanns samtak- anna, hafa leyfi til þessa ekki fengist hjá bæjaryfirvöldum. „Mér skilst, að málið sé ennþá í nefndinni blessuðu, sem átti ekki að skila áliti fyrr en í haust. Ég vona bara, að sem minnst við- brögð verði af þeirra hálfu —“ Pét- ur sagði ennfremur, að reynt yrði að vera sem mest á lóðum, en ekki yrði hjá því komist að grafa í landi bæjarins. „Ég er í raun dálítið hissa á því, hvað þessu hefur verið tekið vel. Ég átti von á meiri óá- nægju með það efni, sem sýnt er. Uppistaðan í þessum blessuðum vídeoleigum okkar er að verða mest ofbeldi og klám og það er einmittþaðsem ekki átti að sýna í þessu kerfi. Við höfum ekki sýnt eina einustu klámspólu ennþá, en hins vegar hafa verið sýndar vafa- samar myndir. Þær hafa yfirleitt verið merktar og fólki sagt frá þeim.“ Það er Vídeoleigan á Ak- ureyri, sem leigir Vídeolundi spólurnar og mun svo verða áfram. Vídeolundur sótti um á sínum tíma til bæjaryfirvalda að fá leyfi til að leggja kapla í gegnum bæjarlandið og var þeirri umsókn hafnað. Skipuð var nefnd, sem gera átti tillögur til bæjarstjórnar um lagningu sjónvarpskapla og var Frey Ófeigssyni falið að kalla hana saman. Freyr sagði í samtali við Dag, að nefndin hefði ekki enn verið kölluð saman, og ekki væri ljóst, hvort nefnd þessi væri álitin enn við lýði eftir kosningar. BSMM Úr kvikmynda- eyrar, ef sönn reynast, að til ... standi endurbætur í þessu neiminum aldna kvikmyndahúsi. S&S hefur fregnað að til standi að gera miklar endur- bætur á Nýja bíói, jafnt að utan sem innan. Eins og flest- ir hafa eflaust tekið eftir, hefur þegar verið ráðist í að mála húsið að utanverðu, og hefur þetta uppátæki ráðamanna þar á bæ breytt svip miðbæj- arins stórlega til hins betra. Það eru sannarlega ekki slæm tíðindi, að einnig standi til endurbætur að innanverðu, og má jafnvel vænta þess, að mögulegt verði að sitja þar í nýjum sætum heila kvöld- stund og njóta góðrar kvik- myndar, án þess að vera sí- fellt truflaður af stirðu baki og sárum botni. # Áhverfanda hveli Tíðindamaður S&S man til dæmis ekki eftir að hafa átt jafn erfiða stund í bíói og þeg- ar hann á sínum tíma sá Á hverfanda hveli - sem að vísu er óvenjulega löng mynd - fyrir eins og einu ári, í téðu bíói. Og tíðindamaður var um daginn spurður eftir því, hvort hann hefði tekið eftir því, að myndirnar væru óvenju dökkar á tjaldinu. Til- fellið væri nefnilega, að tjald- ið væri svo skítugt orðið, að það væri hætt að endurvarpa myndinni fullkomlega. Það eru svo sannarlega stórtíð- indi úr kvikmyndaheimi Akur- # Sparkaðog spriklað Fregnir herma að um tveir milljarðar manna muni hafa fylgst með úrslitaleik heims- meistarakeppninnar í knatt- spyrnu, og sýnist sitt hverjum um úrslitin. Tíðindamaður S&S þekkir einn ákaflega hamingjusaman aðdáanda ítala og stafar hamingjusemi hans ekki nema óbeint af sigr- inum. Svo var nefnilega mál með vexti að sá hafði veðjað vískiflösku að ítaiir ynnu keppnina. • Fulltrúi Vídeóson Ákaflega skemmtilegar um- ræður spruttu upp í blöðum í Reykjavík vegna fyrirætlana Vídeóson í Reykjavík að sýna leiki heimsmeistarakeppn- innar ( knattspyrnu, sem einkaaðili var fenginn til að taka upp ólöglega á mynd- band úr danska sjónvarpinu. Dagbl. & Vísir fjallaði ítarlega um málið og áféllst ríkis- útvarpið harðlega fyrir þá ómynd að stöðva þetta fram- tak með lögbanni. Fróðlegt verður að heyra rökstuðning og málflutning Ellerts B. Schram, annars ritstjóra D&V og jafnframt einn eiganda Vídeóson, þegar hann fer að verja hagsmuni útvarpsins sem útvarpsráðsmaður.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.