Dagur - 16.07.1982, Side 3

Dagur - 16.07.1982, Side 3
 . zzœ ■■ |(h Ms. ASTOR A5 njóta lífsfns norður I Ballarhafi Akureyri er hvað mest heillandi þegar sólin skín á logn- kyrran Pollinn, skemmtiferðaskip liggja við legufæri eða bryggju, erlend tungumál hljóma á hverju götuhorni, segl- skútur líða fyrir hægum andvara og „svertingjar“ með gúmmíhúð og hvít andlit (skýr: ungir Akureyringar í frosk- kafarabúningum) þjóta á sjóskíðum í kjölfar hraðskreiðra báta. Maður fær á tilfínninguna að bærínn sé á allt annarrí og suðlægari breiddargráðu en raun ber vitni og líklega hef- ur hvern Islending einhvern tíma dreymt um að landið væri örlítið sunnar á hnettinum. Hvað allt værí þá fullkomið, að því tilskyldu að við hefðum tæra loftið, hreinu lindarnar, bergvatnsárnar með spriklandi físki og gnægð sjávarfangs í ómenguðum sjónum umhverfís - að sjálfsögðu. Þannig var tilfínningin á föstudag fyrír viku. Þá lá V-þýska skemmti- ferðaskipið Ms Astor (eine Klasse fúr sich, eins og stendur í glansmyndabæklingnum) við Sigöldu, ferðamenn streymdu í land og starfsfólk í verslun Sigurðar Guðmundssonar voru með útimarkað á bryggjunni. En okkur lék forvitni á að kanna þann heim sem ferðafólk- ið yfirgaf, þegar það gekk út í sólskinið á Akureyri, nefnilega glæsiskipið Ms Astor. Slógumst við í för með Böðvari Valgeirs- syni, framkvæmdarstjóra ferða- skrifstofunnar Atlantik, sem annast afgreiðslu skipsins hér á landi og nutum velviljaðrar leið- sagnar starfsmannastjórans um borð (staff captain), sem heitir Werner Wolkersdorfer. Hann sýndi okur „hina fögru Ham- borgarstúlku", eins og þeir kalla skipið, hátt og lágt og vakti athygli okkar á arkitektúr þess til að byrja með. Það höfðum við ekki fyrr heyrt um skip, að þau hefðu arkitektúr. Hér koma svo nokkrar upp- lýsingar um herlegheitin: Skipið flytur 600 farþega og hefur 220 manna áhöfn. Farþegarnir búa í 300 tveggja manna rúmgóðum klefum (Hvað skyldu hótelher- bergi vera mörg á Akureyri, samanlagt?). Þarna er 600 manna matsalur og annar 300 manna hátíðarsalur, svolítið fínni en hinn og heitir „ Waldorf- Astoria“ og þótti sumum nóg borið í aðalsalinn. Þar er dansað á hverju kvöldi við hljómsveitar- undirleik og þar eru skemmti- atriði á hverju kvöldi. Vilji far- þegar heldur horfa á þau úr her- bergjum sínum er bara kveikt á litasjónvarpstækjunum - innan- hússvídeóið (innanskips) sér um að koma öllu til skila í klefana. í skipinu er sérstakt fréttastúdíó og þó að kerfið sé ekki í beinu sambandi við sjónvarpsgervi- hnött, er skipið ekki alveg úr tengslum við svipuð fyribæri, því allar staðarákvarðanir eru gerðar samkvæmt upplýsingum frá gervihnetti. Skipið er eins og sjálfstæður heimur. Þar er bakarí og að ■ i. • - :»a ■iCiKt I © sss t Astor er nýtt skip, aðeins árs gamalt, og 19000 brúttórúmlestir að stserð. Stærra skip mun ekki hafa lagst að bryggju við „Sigöldu“. sjálfsögðu fullkomnasta eldhús, þar er sjúkrahús í smækkaðri mynd, bókasafn (skipt er um bækur eftir því, hverra þjóða farþegarnir eru), snyrtistofa, inni- og útisundlaug og sú fyrr- nefnda í tengslum við sauna- og sólbaðsaðstöðu, lítill leik- fimissalur með fullkomnum tækjum til líkamsræktar, nudd- stofa, fundarsalur, lítiðspilavíti, ljósmyndaþjónusta og í gesta- móttökunni er rekinn banki. Fjölmargir barir eru í skipinu, hver með sínu sniði, þar er verslun, þar sem meðal annars er hægt að kaupa dýrindis pelsa. í fáum orðum; það er næsta ótrúleg fjölbreytni sem boðið er upp á um borð í þessari fleytu sem er 19 þúsund brúttórúmlest- ir að stærð og var sjósett í des- ember 1981. Þegar skipið kom til Akureyr- ar var það á leið til Spitzbergen, meiningin var m.a. að fara norður undir ísröndina og ein- hvers staðar á stórum jaka þarna norður frá átti að halda grill- veislu. Síðan var förinni heitið suður með Noregi og komið við á nokkrum stöðum. Þó það sem er norðan við okkur freisti okk- ur e.t.v. minna en suðlægar slóð- ir með hita og sól, er ekki vafi á að það er minnsti vandi í heimi að njóta lífsins í ríkum mæli norður í Ballarhafi þegar undir flýtur skip á borð við Ms Astor. Myndir og texti: H.Sv. Böðvar Valgeirsson og Wemer Wolkersdorfer á sóldekki skipsins. Þar er að sjálfsögðu útisundlaug og svo önnur inni í tengslum við heilsuræktar- miðstöð. Innréttingar skipsins eru stórglæsilegar. Þessi mynd sýnir hluta stærsta salarins, sem rúmar 600 manns í sæti. Þar eru skemmtiatriði og dans á hverju kvöldi. Starfsfólk í verslun Sigurðar Guðmundssonar setti upp markað bryggjunni, sem virtist hafa töluvert aðdráttarafl fyrir V-Þjóðverjana, s« voru farþegar á skipinu. 16. júli Í9Ó2 - DAGUR - 3

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.