Dagur - 19.08.1982, Side 4
ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Hvað er á örbylgjunni?
í ávarpi sem Andrés Björnsson, útvarpsstjóri,
flutti í tilefni fastrar starfsemi útvarpsins á
Norðurlandi með föstu starfsliði, sem nú er
hafin, vék hann að þeirri „samgöngubót" sem
bættur útvarpsrekstur hefði í för með sér. Út-
varpsstóri sagði meðal annars:
„ Samgöngur eru annað og meira en farvegir
lofts, láðs og lagar, með flugvélum, bílum eða
skipum. Þær eiga ekki síður við um sendingar
á tali, tónum og myndum. Þessar nýju flutn-
ingaleiðir þjappa saman fólki, minnka veröld-
ina ef svo mætti segja.
Margt er rætt um vegakerfi landsins, um
fullkomnun þess og endurbætur. Vafalaust
verður áður en langt um líður unnt að aka bif-
reiðum um landið á langtum skemmri tíma en
nú gerist og með hagkvæmari og ódýrari
hætti. En enginn skyldi gleyma í þessum
miklu umræðum að tafarlausar og auðveldar
samgöngur af hverju tagi sem er eru ekki al-
gjört og einhliða takmark í sjálfu sér. Þær bera
með sér möguleika til margs konar breytinga á
lífi manna og lífsviðhorfum en meginatriði
málsins er lítið rætt. Hver er flutningurinn?
Hvað er á örbylgjunni?"
Þetta sjónarmið um gæði flutningsins sem
meginatriði samgangna þ.á.m. um gæði send-
inga á tali, tónum og myndum hefur gleymst
að verulegu leyti í allri umræðunni um svokall-
aða „frjálsa fjölmiðlun“ og „frjálsar útvarps-
stöðvar". Það vill líka gleymast í þeirri um-
ræðu að útvarpsstöðvar um allan heim verða
að starfa eftir ströngum reglum um meðferð
efnis og efnisval, burtséð frá því hvort þær eru
í eigu viðkomandi ríkja eða annarra aðila.
Raunar vill það líka gleymast æði oft að Ríkis-
útvarpið íslenska er mjög frjáls fjölmiðill að því
leyti að allir eiga að geta viðrað þar skoðanir
sínar. Einhverjar kröfur verður að gera um
gæði flutnings efnisins en meira að segja það
atriði hefur ekki staðið mönnum fyrir þrifum
að koma fram í Ríkisútvarpinu.
Tilkoma deildar Ríkisútvarpsins á Norður-
landi mun vafalaust auka aðild almennings að
útvarpsrekstri. Norðurland mun einnig verða
skýrar markað á landabréfi ljósvakafjölmiðl-
unar og sjónarmið Norðlendinga munu eiga
greiðari aðgang að hlustum þjóðarinnar. Þeg-
ar tímar líða er ekki minnsti vafi á því að sama
mun verða um fólk í öðrum landshlutum. Til-
koma Norðurlandsdeildar hlýtur að leiða til
aukins rekstrar útvarpsins í öðrum landshlut-
um.
Þess mun heldur ekki langt að bíða að Ríkis-
útvarpið hefji starfrækslu staðbundinna út-
varpsstöðva sem verða óbundnar dagskrá út-
varpsins að öðru leyti, en fylgja að sjálfsögðu
þeim efnislegu gæðakröfum sem gera verður
til útvarpsrekstrar. Þetta er vænlegra frelsi en
það sem boðberar frjálshyggjunnar boða í út-
varpsrekstri.
Þrjár nýjung
fiskiðnað frá vé
Odda hf. á A
Á undanförnum mánuðum
hefur verið unnið af kappi að
endurbótum á kassaklónni
sem Yélsmiðjan Oddi hf.
hefur framleitt um tveggja
ára skeið. Það var helst fund-
ið gömlu klónni til foráttu að
notkun hennar var bundin
við flutning á 70 og 90 lítra
fiskikössum eingöngu og sáu
minni fiskverkunarstöðarnar
sér ekki fært að binda lyftara
eingöngu við flutning á þess-
um kössum þar sem jafn-
framt þarf að flytja til bretti
og fískikör.
„Tæknideild Odda hf. hefur nú
leyst þetta vandamál með því að
endurhanna klóna þannig að nú
má breyta henni með einu hand-
fangi í stjórnborði lyftarans þann-
ig að hún notist við flutning á
brettum og körum eins og um væri
að ræða venjulegan gaffallyft-
ara,“ sagði Torfi í>. Guðmunds-
son forstjóri Odda er hann sýndi
okkur þessa nýju framleiðslu og
kynnti auk þess aðrar nýjungar í
framleiðslu fyrirtækisins.
Þessi breyting úr kassakló í lyft-
aragaffal eða öfugt tekur aðeins
eina sekúndu og er nýja kassakló-
in jafnframt mun sterkbyggðari
en sú eldri. Nýja klóin hefur verið
í notkun hjá Utgerðarfélagi Ak-
ureyringa um nokkurt skeið og
reynst vel. Áætlað er að hún verði
til afgreiðslu hjá Odda hf. í októ-
ber á þessu ári.
Sigurður Þ. Guðmundsson við íshúðunarvél sem er í framleiðslu í fyrírtækinu.
Kassalosari
Torfi sýndi okkur einnig annað
nýtt tæki sem er í framleiðslu hjá
fyrirtækinu. Það er kassalosari en
það tæki var hannað hjá Odda hf.
á sl. vetri. „Kassalosarinn var
sýndur á sýningunni „Fiskiðn ’82“
í vor, en þá var hann nýr. Nú er
komin nokkurra mánaðar reynsla
á losarann og er skemmst frá því
að segja að hann hefur reynst
mjög vel. Notkun kassalosarans
byggist á notkun kassaklóarinnar
og er með tilkomu þessara tækja
úr sögunni að snerta þurfi kassana
með höndum frá því þeir eru hífð-
ir upp úr lest skipsins og þar til
eftir þvott,“ sagði Torfi.
Kassalosarinn er ótrúlega ein-
falt tæki í notkun. Eftir að lyftar-
inn með kassaklónni hefur lyft
fiskikassanum upp á kassalosar-
ann rennur kassin sjálfkrafa í
gegn um losarann, hann hvolfist á
leið sinni í losaranum og tekur
þetta örskamma stund. Afköst í
fiskmóttöku aukast til muna og
meðferð kassanna batnar veru-
lega við notkun þessara tækja.
„Við höfum þegar hafið út-
flutning á þessum tækjum. Ein
kló hefur þegar verið afgreidd til
Nýfundnalands og tvær til viðbót-
ar ásamt kassalosara hafa verið
pöntuð af sama fyrirtæki. Þá hef-
ur pöntun einnig borist frá Græn-
landi. Við erum mjög bjartsýnir á
4 - DAGUR -19. ágúst 1982