Dagur - 03.09.1982, Blaðsíða 11
Myndlistarsýning
á Siglufirði
— Helgi Jósefsson Vopni sýnir þar í Ráðhúsinu
Helgi Jósefsson Vopni, opnar
málverkasýningu í Ráðhúsi
Siglufjarðar í dag, en þar sýnir
hann olíumálverk, olíupast-
elmyndir og leirlistarverk, og
eru alls 30 verk á sýningunni.
Helgi Jósefsson Vopni stund-
aði nám við Myndlistarskólann í
Reykjavík 1967-1968 og við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1970-1974. Hann hefur
haldið fjórar einkasýningar, í
Stóru-Tjarnaskóla 1979, á
Vopnafirði 1980, í Eden í
Hveragerði 1981 og á Vopna-
firði fyrr á þessu ári.
Sýningin stendur til sunnu-
dagskvölds og er opin frá kl. 16
til 22.
Iþróttir uiii helgina
Mesti íþróttaviðburður helgar-
innar í íþróttalífinu hér á Akur-
eyri er tvímælalaust viðureign
KA og Víkings í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu sem fram
fer á morgun kl. 14.
Leikurinn er geysilega mikil-
vægur fyrir bæði liðin. KA þarf
nauðsynlega að krækja sér í stig-
in tvö sem í boði eru til að verj-
ast falli í 2. deild, og íslands-
meistarar Víkings sem eru í
efsta sæti deildarinnar gætu allt
að því gulltryggt sér fslands-
meistaratitilinn með sigri. Sem
sagt: Mjög mikilvægur leikur
fyrir bæði liðin.
Þróttur R. - Þór
Þróttarar hafa þegar tryggt sér
sigur í 2. deild, og sæti í 1. deild-
inni að ári. Þeir leika því af-
slappaðir ef að líkum lætur og
pressan verður öll á Þórsurum.
Væntanlega spila Þórsarar upp á
það að ná öðru stiginu, en það
myndi gulltryggja liðinu 2. sætið
í deildinni og um leið 1. deiidar
sæti 1983. Þessi leikur verður
leikinn í Reykjavík um helgina.
Þá leika Völsungar og Fylkir á
Húsavík kl. 14 í 2. deildinni.
Golf
Opna Volvo-mótið verður háð
hjá Golfklúbbi Sauðárkróks.
Þetta er 18 holu mót með og án
forgjafar, og verður keppt í
karlaflokki. Hjá Golfklúbbi Ak-
ureyrar verður keppt um „Nafn-
lausa bikarinn" og leiknar 18
holur. Og loks má geta um
firmakeppni hjá Golfklúbbi
Ólafsfjarðar.
Leikmenn KA og Þórs verða í eldh'nunni um helgina.
Passíukórinn að
hefja starfsemi
Ellefta starfsár Passíukórsins er
nú að hefjast og eru mörg og
fjölbreytt verkefni á efnis-
skránni að vanda. Á síðasta
starfsári voru meðlimir kórsins
um 40, nokkrir þeirra hafa flutt
úr bænum eða sjá sér ekki fært
að starfa með í vetur og vantar
því nokkuð af söngfólki, einkum
karlmönnum. Meðal verkefna
síðasta vetrar má nefna Messías
og African Sanctus, en hið síðar-
nefnda var flutt fyrir fullu húsi í
íþróttaskemmunni og síðan í ís-
lensku óperunni sem liður í
Listahátíð í Reykjavík. Flutn-
ingur kórsins á þessu verki vakti
mikla athygli enda verkið okkur
íslendingum framandi. Verk-
efnaval á því starfsári sem nú fer
í hönd verður ekki síður fjöl-
breytt og spennandi fyrir unga
sem aldna. Fyrstu tónleikar eru
fyrirhugaðir í byrjun desember
en þá verður flutt Petite Messe
Solenelle eftir G. Rossini hér á
Akureyri og væntanlega einnig í
nágrannabyggðum. Þetta er
verk fyrir einsöngvara og hljóm-
sveit. f febrúar er fyrirhuguð
sjónvarpsupptaka á Via Crucise
eftir F. Liszt, það er verk fyrir
kór, einsöngvara og orgel og
verður einnig flutt á Akureyri
fyrir páska og e.t. v. víðar. Loka-
verkefni starfsársins verður
væntanlega Mass eftir L. Bern-
stein. Þetta verk hefur aldrei
verið flutt utan Bandaríkjanna
svo okkur sé kunnugt, en það
var frumflutt við opnun menn-
ingarmiðstöðvarinnar í Wash-
ington (Kennedy Center) 1971
undir stjórn höfundar. Þetta er
allviðamikið verk sem hægt er
að fly t j a á tvo-þrj á vegu þ. e. sem
kórverk eða sviðsett fyrir tvo
kóra og dansara með tilheyrandi
hljóðfæraleik og ljósadýrð.
Hvernig uppfærslan verður hér
er ekki afráðið en öruggt má
telja að mikið líf verður á svið-
inu.
Stjórnandi Passíukórsins er
sem fyrr Roar Kvam og æfingar
munu fara fram í Tónlistarskól-
anum á miðvikudögum kl. 20.00
og á laugardögum kl. 5.00 (hæfi-
legt að fara heim úr Fjallinu þá).
Sem fyrr segir vantar nokkuð af
söngfólki og eru þeir sem áhuga
hafa velkomnir að mæta á
æfingu og kynnast starfseminni
en upplýsingar má einnig fá í
símum 25244 , 23297 og 24769
og hjá kórfélögum um allan bæ.
Stjórnin.
Leikfelag Akureyrar hefur í
hyggju að styrkja og auka
tengslin við áhugaleikfélögin á
Norðurlandi.
Um miðjan október ætlar LA
að gangast fyrir námskeiðum sem
haldin verða í Samkomuhúsinu
yfir eina helgi, 15.-17. október.
Þáttakendur geta valið um fram-
sagnarnámskeið, ieiktúlkunar-
námskeið, námskeið í grímugerð
og leiktjaldasmíði og námskeið í
ljósabeitingu og Ijósatækni. Leið-
beinendur á námskeiðunum
verða nokkrir fastir starfsmenn
leikhússins.
í upphafi námskeiðsins gefst
þátttakendum kostur á að sjá sýn-
ingu á Atómsstöðinni eftir Hall-
dór Laxness í leikgerð og leik-
stjórn Bríetar Héðinsdóttur.
Það er einnig von leikfélagsins
að áhugaleikfélög í nágranna-
byggðum hiki ekkivið að leita til
LA eftir leiðbeinendum og ann-
arri aðstoð sem leikfélagið gæti
veitt þeim.
LA með
námskeið
Nunnur
í heimsókn
Næstkomandi þriðjudagskvöld árið 1944, er fjöldi fólks lét lífið.
klukkan 20,30 verða lútherskar Víðtæk ferðalög einkenna m.a.
nunnur sem tilheyra reglu starfsemi systranna. Þær heim-
svokallaðra Maríusystra með sækjasöfnuðiogkirkjursemóska
almenna samkomu í Akureyr- eftir samkomum, helgarsamver-
arkirkju, en frá föstudegi tilum eöa kyrrðardögum með
sunnudags verða þær í Löngu- biblíutímum eða öðrum samver-
mýri í Skagafirði. um- Þar eru ,m a; sy,ndar sku8ga-
myndir og eigtn kvikmyndir sem
Systrafélag þetta á rætur að boða fagnaðarerindið á lifandi og
rekja til vakningar í biblíuhópum markvissan hátt.
meðal unglinga á tímum loftárás- Samkomur systranna eru öllum
anna áDarmstadt í V.-Þýskalandi heimilar.
Sigfós Halldórs-
son á Grenivík
Um helgina gengst Lionsklúbb-
urinn Þengill fyrir menningar-
viðburði á Grenivík. Sigfús
Halldórsson sýnir 30 vatnslita-
myndir frá Grenivík og Höfða-
hverfi, og verður sýningin í
skólahúsinu. Sýningin verður
opnuð klukkan hálf níu á föstu-
dagskvöld og verður opin laug-
ardag og sunnudag klukkan 14-
22, sýningargestir munu eiga
kost á kaffiveitingum á
staðnum, og sér kvenfélagið
Hlín um þá hlið. Klukkan tvö á
laugardaginn verður samkoma
þar sem Friðbjörn G. Jónsson
syngur lög Sigfúsar við hans
undirleik. Þar verður einnig les-
ið úr bókinni Sigfús Halldórsson
opnar hug sinn, eftir Jóhannes
Helga. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
NÝJA BÍÓ
Um þessar mundir standa yfir
sýningar í Nýja bíó á Akureyri
á hinni frægu mynd „Byssurn-
ar frá Navarone“, en þetta er
heimsfræg verðlaunamynd í
litum og fjallar um afrek
skemmdarverkahóps í síðari
heimsstyrjöldinni. Myndin er
gerð eftir samnefndri met-
sölubók Alistair McLean.
Fjöldi frægra leikara fer með
hlutverk í þessari miklu mynd,
og nægir að nefna nöfn eins og
Gregory Peck, David Niven og
Anthony Quinn í því sambandi.
Sem fyrr sagði fjallar myndin
um afrek skemmdarverkahóps í
síðari heimsstyrjöldinni. Byss-
urnar í Navarone varna því að
sund nokkurt í Grikklandshafi
sé notað af bandamönnum.
Byssurnar eru grafnar djúpt í
kletta og ómögulegt að gera árás
á þær úr lofti eða af sjó. En þess-
ar þýsku byssur verður að eyði-
leggja hvað sem það kostar
og . . .
3. september 1982 - DAGUR -11
„wi'. >u ~ ií