Dagur - 23.09.1982, Síða 5
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSIMAR: 24166 OG 24167
SÍMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM : HERMANN SVEINBJORNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Sóun og eyðsla
verður að taka enda
Fiskiskipafloti landsmanna hefur nú leyst
landfestar á ný eftir að trúnaðarráð Lands-
sambands íslenskra útvegsmánna ákvað að
stöðva hann með vafasamri og vægast sagt
umdeildri ákvörðun. Gengið var að þeim til-
lögum sem Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra, lagði fram. Segja má að skyn-
semin hafi að lokum sigrað í þessu máli og
vafalaust hefur almenningsálitið átt þar nokk-
urn þátt.
Menn skyldu þó ekki ætla að allir okkar erf-
iðleikar séu um garð gengnir við það eitt að
fiskiskipin fara á sjó á ný. Það er öðru nær og til
þess eru ýmsar ástæður. Ein er sú að búast má
við að flotinn verði áfram rekinn með tapi og
það getur ekki gengið til lengdar þegar fjár-
magnskostnaður er svo mikill sem raun ber
vitni. Finna verður írambúðarlausn á rekstrar-
grundvelli fiskiskipaflotans. Sú lausn gæti
þurft að tengjast mjög alvarlegu áfalli sem
þjóðarbúið hefur orðið fyrir, nefnilega mikilli
aflaminnkun og jafnvel enn verri horfum á
næstu árum.
í nýrri spá þjóðhagsstofnunar er gert ráð
fyrir að samdráttur í framleiðslu sjávarafurða
verði 16—17% á þessu ári en heildaraflaminnk-
unin verði um 30% á árinu.Við þetta bættist
svo hinar kvíðvænlegu niðurstöður sem fram
komu við seiðatalningu Hafrannsóknastofn-
unarinnar. Samkvæmt þeim niðurstöðum
verður 1982 árgangurinn af þorski og ýsu
mjög lélegur og ástand annarra nytjastofna
virðist einnig ískyggilegt. Þá hefur komið í ljós
að aðeins þriðjungur af þeirri loðnu sem talið
var að myndi hrygna í ár hefur hrygnt.
Ljóst er að aflaminnkunin og hugsanlegt
áframhald þeirrar þróunar á eftir að valda út-
gerðinni og þjóðarbúinu öllu ómældum erfið-
leikum. Eina leiðin til að bregðast við þessu er
að draga úr kostnaði við fiskveiðarnar og fisk-
vinnsluna og reyna jafnframt að auka gæði út-
fluttra sjávarafurða svo sem kostur er. Við
gætum þurft að fækka í fiskiskipaflota lands-
manna. Þá er rétt að hafa hugfast hvar flotinn
hefur stækkað mest á undanförnum árum, þ.e.
á suðvesturhorni landsins. Þar stækkaði fiski-
skipaflotinn um 56% á sama tíma og hann
stækkaði um 18% samanlagt á Vestfjörðum,
Norðurlandi og Austfjörðum. Mikilvægt er
einnig að bæta meðferð hráefnis og ekki síður
að nýta þau verðmæti sem í dag er fleygt í tug-
um þúsunda tonna. í dag er fleygt 40—50 þús-
und tonnum af slógi og allt að 5 þúsund tonn-
um af grásleppu, svo eitthvað sé nefnt.
Þá er þess að geta að þær aðgerðir sem nú
þarf að gera til bjargar útgerðinni koma til með
að hafa afleit áhrif á verðbólguþróunina. Ann-
ar atvinnurekstur gæti orðið illa úti, t.a.m. iðn-
aðurinn, ef ekki verður gripið til framhaldsráð-
stafana gagnvart honum.
Sóunar- og eyðslutímabil það sem ríkt hefur
hér á landi undanfarið verður að-taka enda.
Skjaldborg gefur út
24 nýjar bækur
Bókaútgáfan Skjaldborg á Ak-
ureyri sendir frá sér á þessu ári
24 bækur og eins og fram kem-
ur í upptalningunni hér á eftir
eru þær flestar eftir íslenska
höfunda. Aðeins fimm bækur
eru þýddar. Þess má geta, að á
síðasta ári opnaði Skjaldborg
dreifingarmiðstöð fyrir bækur
sínar í Reykjavík að Ármúla 38,
2. hæð, og verður hún opin all-
an daginn meðan á bókavertíð-
inni stendur. Síminn er 3-88-50.
Fyrst skal nefna II. bindi rit-
safnsins Aldnir hafa orðið, en
það er orðið eitt stærsta og vin-
sælasta ritsafn á íslandi. Öll
bindin eru nú fáanleg. Þau sem
segja frá í 11. bindinu eru: Hall-
dór E. Sigurðsson, fyrrv. al-
þingismaður og ráðherra, Jón
Eðvarð Jónsson, rakarameist-
ari á Akureyri, Jórunn Ólafs-
dóttir, skáldkona frá Sörlastöð-
um, Lórens Halldórsson, far-
maður og verkstjóri, búsettur á
Akureyri, Margrét Thorlacius
frá Öxnafelli, skyggna konan
landskunna, Zóphónías Péturs-
son, dulspekingur í Reykjavík,
og Þorsteinn Stefánsson frá
Rauðhólum í Vopnafirði. -
Erlingur Davíðsson hefur
skráð öll bindin og búið til
prentunar.
Dagar mínir og annarra. Fjórða
bindi af ritsafni Einars Krist-
jánssonar frá Hermundarfelli.
í þessu bindi eru útvarpserindi,
ferðaminningar o.fl. - Fyrsta
bindið, Fjallabæjafólk, er á þrot
um og aðeins til örfá eintök
af því.
Erlingur Davíðsson
Með reistan makka, 2. bindi.
Erlingur Davíðsson hefur tekið
saman og búið bókina undir
prentun. Fyrsta bindið kom út í
fyrra og náði miklum vinsæld-
um, en í þeirri bók sögðu átján
manns frá hestum sínum. í þess-
ari bók segja einnig margir frá
hestum sínum, m.a.: Þorlákur
G. Ottesen, Valdimar K. Jóns-
son. form. Fáks í Reykjavík,
Vilhelh K. Jensen, prentari á
Akureyri, Páll Gunnarsson, fv.
skólastjóri á Akureyri, Jón Vig-
fússon, fv. bóndi á Arnarstöð-
um í Saurbæjarhr., Sigurlaug
Stefánsdóttir, Akureyri, Hjalti
Benediktsson, aðalvarðstj. hjá
Slökkviliðinu í Reykjavík, Kol-
brún Kristjánsdóttir, Rauðuvík
á Árskógsströnd, Sigríður
Pálmadóttir frá Núpufelli o. m.
fl. - í bókinni er fjöldi mynda og
bókarauki er svo um Landsmót
hestamanna á Vindheimamel-
um sl. sumar í máli og myndum.
Mannfellirinn mikli. Fyrsta
bindi af ritsafni Eiðs Guðmunds
sonar á Þúfnavöllum, en hann
er löngu kunnur orðinn fyrir
fræðistörf sín og margar frá-
sagnir eftir hann hafa birst í
blöðum og tímaritum. - Árni J.
Haraldsson ritar formála um
höfundinn og bjó bókina undir
prentun.
I.ífasmörk íspori. Minninga- og
fróðleiksþættir eftir Torfa Þor-
steinsson í Haga í Hornafirði,
sem löngu er kunnur af þáttum
sínum í bókum, blöðum og út-
varpi. Margar myndir eru í bók-
inni.
Fagurt er í Fjörðum - Þættir
Flateyinga og Fjörðunga - eftir
Jóhannes Bjarnason. - Árni
Bjarnarson ritar formála í bók-
ina um höfundinn. Þetta ergóð
bók, falleg og fróðleg. í bókinni
eru um 90 myndir, þar af
myndir af teikningum Gríms
Sigurðssonar frá Jökulsá af
gömlu bæjunum í Flatey, Flat-
eyjardal og Fjörðum.
Ný bók eftir Guðmund Frí-
mann: Tvær fyllibyttur að
norðan - Sannar skröksögur -
um Nóra, sem bæði var þjófur
og ekki þjófur - um furðufugl-
inn Úlfdala-Begga, sem skreið
einsog votur hundur upp á
Flóridaskagann - um Misferlið
í Rauðhúsum - um Lánsama-
Sigga í Kvisthaga, sem fann
konuefnið sitt úti á víðavangi -
um Kóngsgarðs-Möttu, sem
læknaði höfund bókarinnar af
kvenfælninni og um fleira gott
fólk. - Margar fyrri bækur Guð-
mundar eru uppseldar.
Sunnan Kaldbaks. - Ljóð -
Bragi Sigurjónsson sendir nú
frá sér nýja ljóðabók, en hann er
löngu landskunnur fyrir ljóð
sín. Þetta er 8. ljóðabók Braga.
Að leikslokum. - Ljóð - Þetta
er stór ljóðabók eftir Sverri
Haraldsson sóknarprest í Borg-
arfirði eystra, en hann sendi frá
sér 2 ljóðakver fyrr á árum. Gísli
Jónsson, menntaskólakennari,
las handritið yfir og próförk af
bókinni.
Bragi Sigurjónsson
Boðsdagar hjá þremur stór-
þjóðum. Ferðaminningar Braga
Sigurjónssonar, fyrrv. alþingis-
manns, frá Bandaríkjunum,
Kína og Rússlandi. Margirþjóð
kunnir menn voru með Braga í
heimsóknunum til Kína og
Rússlands, t.d. Ólafur Jóhann-
esson, Eysteinn Jónsson, Jör-
undur Brynjólfsson, Brynjólfur
Bjarnason, Steinþór Gestsson
og Garðar Sigurðsson. - Um 50
myndir frá heimsóknunum eru í
bókinni.
Mannleg tilbreytni. Ný skáld-
saga eftir Benedikt Pálsson.
Nafn höfundar er dulnefni og
vill hann vera ,,huldumaður“
fyrst um sinn. Sagan er byggð á
dagbókarblöðum og lýsir á
hreinskilinn hátt ástarsambandi
rúmlega áttræðs manns og
fimmtugrar konu og er þar
ekkert dregið undan ... Þettaer
bók, sem trúlega á eftir að vekja
mikið umtal.
Afbrot og ástir. Ný skáldsaga
eftir Guðbjörgu Hermanns-
dóttur. Þetta er 5. bók Guð-
bjargar. Fyrri bækur hennareru
enn fáanlegar, en sala á bókum
hennar fer ört vaxandi.
Kona vitavarðarins. Ný skáld-
saga eftir Aðalheiði Karlsdótt-
ur frá Garði. Þetta er 4. bók
Aðalheiðar. Það er eins með
bækur Aðalheiðar að lesenda-
hópur hennar stækkar ár frá ári.
Úr bók Braga Sigurjónssonar „Boðsdagar hjá þremur stórþjóðum“.
Vigtus njomsson
Þá kynnir Skjaldborg nýjan
skáldsagnahöfund, Vigfús
Björnsson. Hann hefur áður
skrifað nokkrar barnabækur,
sem hlutu miklar vinsældir. -
Skógarkofinn heitir fyrsta skáld
saga hans, sem nú kemur fyrir
almenningssjónir.
Flugsveit 507. Ný skáldsaga
eftir breska metsöluhöfundinn
David Beaty. Fyrsta bók hans á
íslensku kom út í fyrra, Hans
hágöfgi, og var henni mjög vel
tekið. Þessi bók hans, Flugsveit
507, gerist í siðari heimsstyrjöld
inni og lýsir viðureign breskrar
flugsveitar og áhafnar þýska
skipsins Groningen. Þetta er
spennandi saga. - Gissur Ó.
Erlingssson íslenskaði.
Frá konu til konu. Heimsfræg
metsölubók eftir bandaríska
kvennalæknirinn Lucienne
Lanson. Þýðinginergerðeftir4.
útgáfu í Bandaríkjunum, sem er
aukin og endurbætt. Gissur Ó.
Erlingsson íslenskaði, en Bryn-
leifur H. Steingrímsson, læknir
á Selfossi, las yfir handrit og
ritar formála. Bókineráfimmta
hundrað blaðsíður með mörg-
um skýringarmyndum. - f for-
mála sínum segir Brynleifur
m.a. svo: „Bók Lucienne Lan-
son er um margt sérstæð og góð.
Höfundur fjallar um skýrt af-
markað efni, kynfæri og kyn-
eðli konunnar. Eins um þásjúk-
dóma sem þessi líffæri og þetta
lífeðli geta átt við að stríða.
Höfundur skrifar leikandi og
einfalt um leið og hann er hisp-
urslaus. f bókinni skýrir hann
sjúkdóma um leið og hann talar
um þá valkosti sem sjúklingur-
inn á, ef sjúkdóminn ber að
höndum. Bókin er svo létt af-
lestrar að sérhverri konu og sér-
hverjum manni á hún að vera
handhæg til afnota og fróð-
leiks . .. Því ber að fagna að bók
Lucienne Lanson er komin út á
íslensku og breiðir þar með
þekkingu og skilning út til ís-
lenskra kvenna sem karla um
konuna og kveneðlið.“ - Þessi
bók hefur fengið góða dóma í
öllum löndum, ogt.d. á Norður-
löndunum hefur hún komið út í
mörgum útgáfum. Það hlýtur
því að vera mikill fengur fyrir
konur hér á landi að þessi bók
skuli nú koma á íslenskan bóka-
markað.
Landnámssaga Nýja-fslands í
Canada eftir Þorleif Jóakims-
son Jackson. í bókinni er rakin
í máli og myndum saga hins
fyrsta varanlega landnáms ís-
lendinga í Canada. Bókin er
ljósprentuð og er 450 bls. með
um 160 myndum landnáms-
manna. Hún er stórfróðleg og
vej skrifuð og hið skemmtileg-
asta lestrarefni. - Þetta er
óskabók allra þeirra sem áhuga
hafa á málefnum íslendinga í
Vesturheimi.
Að lokum gefur Skjaldborg út
aftur metsölubókina Miðils-
hendur Einars á Einarsstöðum,
sem verið hefur ófáanleg í þrjú
ár. Þá bók þarf ekki að kynna,
en hún er skráð af Erlingi
Davíðssyni og formála ritar séra
Sigurður Haukur Guðjónsson.
BARNA- OG UNGLINGA-
BÆKUR:
Afi táningur. Ný bók eftir
Indriða Ulfsson, skólastjóra.
Þetta er 15. barna- og unglinga-
bók Indriða. Nokkrar bækur
hans eru uppseldar og ófáan-
legar. Bjarni Jónsson teiknaði
kápu og myndir í bókina.
Ævintýrið við Alheimstjörnina.
Ný bók eftir Guðjón Sveinsson,
rithöfund á Breiðdalsvík. Þetta
er 12. barna- og unglingabók
Guðjóns, en fyrsta bók hans
sem Skjaldborg gefur út. Sigrún
Eldjárn myndskreytti bókina og
teiknaði kápu.
Manni litli í Sólhlíð I—II. Ný
bók eftir Marinó L. Stefánsson,
kennara í Reykjavík. Þessi saga
hefur tvisvar verið lesin í morg-
unbarnatíma útvarpsins _ og
hlaut þar góðar viðtökur. Árni
Indriðason teiknaði kápu og
myndir í bókina.
Káta í frumskóginum eftir
Hildegard Diessel. Þetta er 12.
og síðasta bókin um Kátu og
vini hennar, en Kátu-bækurnar
hafa náð miklum vinsældum
hér á landi, sem í Þýskalandi, og
eru fyrstu bækurnar uppseldar.
Frumskógardrengurinn Njagwe
eftir Karen Herold Olsen. Jó-
hanna Guðmundsdóttir frá
Lómatjörn íslenskaði. Bók þessi
hlaut miklar vinsældir í Dan-
mörku þegar hún kom þar út.
Þetta er saga um afríska frum-
skógardrenginn Njagwe, sem
braust til mennta og tók sér
nafnið Pétur.
Hanna og kærleiksgjöfin. Þýsk
metsölubók frá útgáfufyrirtæk-
inu Ravensburg. Bókin er í
stóru broti og litmyndir á
hverri síðu. Magnús Kristins-
son, menntaskólakennari, ís-
lenskaði. Þetta er sannkölluð
jólabók barnanna.
Þeir fengu viðurkenningu fyrir góðar framfarir. Guðmundur Benediktsson, Páll Gíslason, Sigurður Sigurðs-
son, Rúnar Sigtryggsson og Elmar Eiríksson. Á myndina vantar Rúnar Pálsson og Mikael Jóhannesson.
Hátíð hjá Þórsurum
Sl. laugardag var haldin knattspyrnumanna hjá Þór. kvennadeild sem að þessu
uppskeruhátíð yngstu Það var unglingaráð og stóðu. Strákarnir fengu
pylsur o.fl. og þá var einnig
ýmislegt til skemmtunar.
,Við erum sko Þórsarar.“
Kvennadeild Þórs sá um að metta svanga stráka.
Handboltinn
af stað
Um helgina byrjar keppnin í
annarri deild í handbolta. Þá fer
KA til Reykjavíkur og leikur
þar tvo leiki. Á föstudagskvöld-
ið gegn Breiðabliki og á laugar-
daginn gegn HK. Bæði þessi lið
eru úr Kópavoginum og hafa æft
vel og leikið marga æfingarleiki
undanfarið. Gaman verður að
sjá hvernig liði KA gengur í sín-
um fyrstu leikjum, en þeir hafa
aðeins leikið fjóra æfingarleiki.
Meðfylgjandi myndir eru
frá hátíðinni.
Oddur
gerir það
gott
Oddur Sigurðsson, ungur pilt-
ur úr Þór hefur gert það gott í
handknattleiknum að undan-
förnu.
Oddur flutti nýlega til
Reykjavíkur, og hóf að æfa með
2. flokki KR, en hann er aðeins
17 ára að aldri. Fljótlega var pilt-
ur látinn hefja æfingar með
meistaraflokki félagsins, og ekki
var hann búinn að vera lengi þar
þegar hann fékk boð um að
hefja æfingar með landsliði okk-
ar 21 árs og yngri.
4 - DAGUR - 23. september 1982
23. september 1982 - DAGUR - 5