Dagur - 23.09.1982, Side 8
Akureyri, fimmtudagur 23. september 1982
Pakkningaefni
korkur, skinn og hercules.
sími 96-22700
Náttúruverndarnefnd Akureyrar:
Leggur til
að Glerá og
Glerárdalur
verði
friðlýst
Náttúruverndarnefnd Akur-
eyrar hefur beint því til bæjar-
stjórnar Akureyrar og Náttúru-
verndarráðs að Glerá og Gler-
árgil verði friðlýst.
Gert er ráð fyrir að á svæðinu
gildi þær reglur m.a. aö almenn-
ingi sé heimil för um svæðið og
dvöl í lögmætum tilgangi, reglur
verði settar um umferö fölks og
heimil lagning göngustíga, mann-
virkjagerð, jarðrask og hvers
konar breytingar á landi verði
óheimilar ncma með leyfi
Náttúruverndarráðs og umsjón-
araðila svæðisins. Þá verði óheim-
ilt aö veita hvers konar úrgangs-
efnum í Glerá og Glerárgil eða
ryðja ofan í það. Reynt skal að
bæta úr spjölium sem þegar hafa
verið unnin og stefna að því að
flytja óþrifalegan iðnað o.fl. frá
þeim, t.d. malbikunarstöð og
sorphauga eða ganga svo frá að
ekki spilli. Þá er gert ráð fyrir að
óheimilt verði að valda skemmd-
um á gróðri, dýralífi, jarðmynd-
um eða öðrum minjum og að bú-
árbeit verði ekki heimil.
í náttúruverndarnefnd Akur-
eyrar eiga sæti Erlingur Sigurðar-
son, formaðurog HólmfríðurSig-
urðardóttir, Pétur Brynjólfsson,
Gunnar Arason og Lilja Hall-
grímsdóttir.
Nýjar vélar f rá Ferguson
Sölumenn frá Dráttarvélum
voru á ferð á Akureyri á dögun-
um, en að sögn Vilhjálms
Pálmasonar voru þetta tvær
nýjar tegundir sem hann nefndi
600 og 200 línuna. Þar að auki
mátti sjá litla dráttarvél, með
16 hestafla vél, frá Iseki, sem er
japanskt fyrirtæki. „Við erum
líka með rúllubindivél frá
Claas. Þessi vél er merk
nýjung. Við bindum miklar
vonir við þessa vél,“ sagði Vil-
hjálmur.
Pessi nýju tæki vöktu mikla at-
hygli viðstaddra og sagði Vil-
hjálmur að mjög margir hefðu
lagt leið sína á sýninguna, sem var
haldin við húsnæði Véladeildar
KEA á Gleráreyrum. Sömu sögu
var að segja um þá staði sem sölu-
mennirnir höfðu heimsótt, en þeir
fóru frá Reykjavík austur fyrir
land og ætluðu frá Akureyri
vestur um land. „Svona sýningar
hafa mikið gildi, hér fá menn
tækifæri til að þreyfa á hlutun-
um.“
Rúllubindivélin frá Claas er fá-
anleg í þremur stærðum. Enn sem
komið er hafa aðeins tvær vélar
verið fluttar inn til landsins, þ.e.
minnsta gerðin. Vilhjálmur sagði
að hún gæti t.d. gert það að verk-
um að bændur þyrftu ekki lengur
að byggja dýrar flatgryfjur og
hann bætti því við að stærri teg-
undirnar væru mjög heppilegar
þegar binda ætti hey til útflutn-
ings, auk þess sem þær gætu kom-
ið sér vel að öðru leyti fyrir
bændur, því baggarnir sem þær
binda eru stórir eða um 500 til 600
kíló.
Hrafnagilsstræti — Þórunnarstræti:
Breyting á biðskyldu
Frá og með morgundeginum
giida breyttar umferðarreglur á
gatnamótum Hrafnagilsstrætis
og Þórunnarstrætis, en á þess-
um gatnamótum hafa orðið
mörg umferðaróhöpp.
Hrafnagilsstræti hefur haft um-
ferðarrétt gagnvart Pórunnar-
stræti. Með breytingunni verður
biðskylda hjá þeim sem aka
Hrafnagilsstræti gagnvart þeim
sem koma eftir Þórunnarstræti.
Biðskyldumerkjum verður komið
upp og auk þess hafa verið settar
upp miðeyjar í Pórunnarstrætinu.
Petta er meðal annars gert
vegna þess að umferð um Pórunn-
arstræti hefur aukist mjög og það
er nú aðalaðkeyrsluleið að sjúkra-
húsinu, auk þess sem búast má við
aukinni umferð þegar verk-
menntaskólinn kemst í gagnið.
Eftir sem áður hvetur lögreglan
ökumenn til að sýna ýtrustu að-
gætni á þessum gatnamótum.
Hafnargerð á Blönduósi:
Peningarnir búnir
sem fara átfu í
framkvæmdir í ár
grjótnám að Uppsölum en þaðan
fáum við mjög gott grjót. Nú er
byrjað að undirbúa gerð líkans af
höfninni og ætlunin er að vinna
líkansrannsóknir í vetur. í fram-
haldi af því kæmi svo hin endan-
lega hönnun á höfninni og við ger-
um okkur vonir um að hönnun-
inni verði lokið síðari hluta
vetrar.“
- Til þessa hefur verið óvarinn
bryggjukantur á Blönduósi. Nú er
unnið að byggingu skjólgarðs og
um leið fæst rými fyrir báta.
„Okkur hefur vantað það rými til-
finnanlega fyrir þá báta sem hér
eru geröir út. Það er ekkert í dag,
og menn hvorki geta skilið báta
sína eftir hér eða landað úr
þeim,“ sagði Eyþór.
„Við erum búnir að vinna fyrir sagði Eyþór Elíasson sveitar-
þær 1,2 milljónir króna sem við stjóri á Blönduósi í stuttu
höfðum úr að spila varðandi spjalli við Dag.
hafnarmannvirkin á þessu ári,“ „Það var farið í það að opna
Hafnaraðstaðan á Blönduósi var ekki burðug áður en framkvæmdir hófust.
# Samtök
aldraðra
stofnuð
Um nokkurt skeið hefur verið
í undirbúningi að stofna sam-
tök aldraðra á Akureyri. Líður
nú senn að því að samtökin
verði formlega stofnuð og
hefur verið rætt um sunnu-
daginn 3. október í því sam-
bandi. Er það vei til fallið að
stofna slík samtök á þessu ári
aldraðra. Fáir vita betur en
aldraðir hvað þeim kemur
best og er vonandi að þessi
samtök geti orðið til þess að
aldrað fólk fari að hafa meiri
áhrif en verlð hefur á eigin
mál. Hagsmunahópar hvers
konar hafa risið upp á undan-
förnum árum og komið ýmsu
til leiðar fyrir sjálfa sig. Ekki
hefur þar allt verið af hinu
góða, en ef einhver hags-
munahópur er réttlætanlegur
til að knýja á um úrbætur eigin
mála, þá er það hagsmuna-
hópur aldraðra. Aldraðir eiga
sjálfir að ráða stefnumálum
sinna samtaka, en ekki sakar
þó aðrir iiðsinni síðan við að
koma þeim í framkvæmd.
# Málefni
hitaveitunnar
Nokkuð er nú um liðið síðan
Dagur birti fréttir af tæringu
ofna og lagna vegna súrefnis
í hitaveituvatni ( vissum
hverfum á Akureyri. Unnið
hefur verið að þessum málum
hjá hitaveitunni, en frekari
upplýsingar hefur ekki verið
hægt að fá, þegar leitað hefur
verið eftir. Raunar má geta
þess að fréttirnar af tæring-
unni komu ekki frá hitaveit-
unni sjálfri heldur aðila sem
fyrir tjóni varð. Mikið hefur
verið spurt um þessi mál en
svo fátt hefur verið um svör
að jafnvel jaðrar við að tor-
tryggni sé farið að gæta út í
þetta annars ágæta þjóðþrifa-
fyrirtæki. Hitaveita Akureyrar
svo og önnur bæjarfyrirtæki
og reyndar stjórnvöld al-
mennt hafa upplýsingaskyldu
gagnvart þeim sem greiða
fyrir og neyta þjónustu þeirra.
Hvað er að gerast í tæring-
armálum?
# Auknar radar-
mælingar
Deila nokkurra íbúa við Odd-
eyrargötu og Umferðarnefnd-
ar hefur vakið töluverða at-
hygli. Skiltagerðin vakti svo
mikla athygli að íbúi á Brekk-
unni var næstum þvi kominn
Enn í garð þegar hann ók eftir
götunni og var að lesa skiltín.
Það skal ekki dregið í efa að
umferð um Oddeyrargötuna
er hröð, en þó mega menn
ekki gera of lítið úr hraðamæl-
ingum lögreglunnar, sem
sýndu Ijóslega að umferðin er
ekki hraðari á umræddri götu
en víða annars staðar í
bænum. Kjarni málsins er
e.t.v. sá að umferðarmenn-
ingin á Akureyri erfyrir neðan
allar hellur, að það þurfi að
stórauka radarmæiingar.