Dagur - 24.09.1982, Síða 3

Dagur - 24.09.1982, Síða 3
Lengsta,, golfhola6 4 á Islandi ____Óvenjuleg golfkeppní_ Vegfarendur víð Eyjafjarðará sl. sunnudag ráku upp stór augu er þeir óku þar fram á Þorbergur býr sig undir að slá yfir Eyjafjarðará. hóp manna sem voru að spila golf. Lái þeim hver sem vill, því hingað til hafa kylfingar Einar Pálmi líka. Hver höndin upp á móti annarri í skóginum. Einn sagði að kúlan vœri við þetta tré, annar að hún væri við annað tré og svo framvegis. haldið sig inn á golfvöllum sínum, en ekki þeyst um með kúlurnar sínar á almannafæri. En það er til skýring á þessu. Sex kylfingar ákváðu að spila lengstu golfholu sem spiluð hef- ur verið á íslandi og eftir miklar vangaveltur var ákveðið að spila frá Eyjafjarðará og upp á efstu holuna á golfvellinum að Jaðri. Þeir sem tóku þátt í þessu voru Gunnar Gunnarsson, Einar Pálmi Árnason og Einar Gunn- arsson sem skipuðu annað liðið (hér eftir nefndir EGE-flokkur- inn), og Þorbergur Ólafsson, Jöggvan Garðarsson og undirrit- aður sem skipuðu hitt liðið (hér eftir nefndir Jöggvanar). Þrír og þrír léku saman sem fyrr sagði, og spilaði hvort lið einum bolta sem sleginn var til skiptis af þátttakendum. Var hafður með fullur kassi af golf- boltum ef mikið myndi týnast af þeim á leiðinni, og annar nauð- synlegur útbúnaður. Fyrstu höggin voru slegin yfir Eyjafjarðará og svifu boltar þar fallega yfir í léttum bogum. EGE-flokkurinn náði strax for- skoti nokkru því Jöggvanar lentu í miklum vandræðum utan vegar. Kom fyrir ekki þótt Jögg- van sjálfur fengi lánuð klofstíg- vél hjá vegfaranda einum og væði í þeim eftir kúlunni í mýri eina mikla. Þegar upp á hæðina ofan Drottningarbrautar var komið hafði EGE-flokkurinn náð 20 höggum í forskót. En það var vitað mál að Jögg- vanar hefðu betra liði á að skipa þótt þeir væru heldur seinir í gagn. Enda fór svo að norðan Kjarnaskógar fóru Jöggvanar að sækja á. Voru þeir sérstaklega beittir eftir að hafa farið í út- reiðartúr Þorbergur og Jöggvan og léku á als oddi. Ofan vegarins norðan Kjarna skiptust Ieiðir nokkuð og hélt EGE-flokkurinn til fjalls á með- an Jöggvanar fóru beint af aug- um í norður í átt að golfvellin- um. Fór líka svo að þegar fund- um liðanna bar aftur saman hafði forskot EGE-flokksins minnkað í 6 högg og voru þeir greinilega að brotna. En þá tóku sig upp meiðsl sem Þorbergur hafði hlotið í útreið- unum fyrr um daginn og má segja að hann hafi slegið með Málin rædd í upphafi ferðar við Eyjafjarðará. Frá vinstri eru Guðmundur „Gulli“ sem er aðdáandi EGE- flokksins, Einar Pálmi, Gunnar, Jöggvan og Þorbergur. Einar Gunnarsson sést bak við Gulla lengst til vinstri. annarri hendi það sem eftir var. Kvartaði hann mikið undan því að geta ekki beitt átökum við kylfuna eins og hann er vanur. Haldið var sem leið lá út að golfvelli og komið þar inn á 17. braut. Hún var spiluð en farið af henni og yfir á 7. braut. Sú braut var spiluð „öfugt“ og púttað út á 6. flöt. Þegar upp var staðið hafði EGE-flokkurinn spilað á 72 höggum en Jöggvanar tóku ósigrinum vel með sín 80 högg. Vissu þeir að hefði Þorbergur sleppt útreiðunum og geta tekið á kylfunni hefðu þeir unnið og tími hefndarinnar á eftir að renna upp. Þetta er lengsta „golfhola" sem spiluð hefur verið á íslandi og er um 5 km á lengd. Voru menn orðnir nokkuð lúnir í lok- in enda hafa þeir sennilega geng- ið 7-8 km. En samt sem áður er ákveðið að slá þetta met ein- hvern tíma en ekki hefur verið ákveðið hvaða leið verður þá farið. gk.- Jöggvan slær í klofháu stigvélunum í mýrinni. Einar Gunnarsson hætti við að fara fram á Hrafnagil. 24. september 1982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.