Dagur - 30.09.1982, Page 1
Starfsfólk Lelkfélags Akureyrar. — Ljósmynd: Þengill
ATOMSTÖÐIN
Fimmtudagskvöldið 7. októ-
ber frumsýnir Leikfélag Aur-
eyrar Atómstöðina eftir Hall-
dór Laxness í nýrri leikgerð
Bríetar Héðinsdóttur.
í Atómstöðinni segir Norðan-
stúlkan Ugla (Guðbjörg Thor-
oddsen) sögu sína. Hún kemur
norðan úr Eystridal til Reykja-
víkur haustið 1945 til að læra á
orgel og ræðst í vist hjá Árlands-
hjónunum (Theodór Júlíusson
og Sunna Borg). Þar kynnist hún
reykvískri yfirstétt þess tíma og
gestum heimilisins eins og for-
sætisráðherranum (Þráinn
Karlsson), amerískum hers-
höfðingjum (Jónsteinn Aðal-
steinsson og Þórður Rist), og
ekki síður börnunum (Ragn-
heiður Tryggvadóttir, Bjarni
Arngrímsson og Gunnar Ingi
Gunnsteinsson).
Hún lærir á orgelið sitt hjá
organistanum (Marinó Þor-
steinsson), sem býr með aldraðri
móður sinni (Þórey Aðalsteins-
dóttir) og hýsir einnig gleðikon-
una Kleópötru (Halla Svavars-
dóttir). A heimili organistans
mætist undarlegasti söfnuður
fólks: skækjur, þjófar, lögreglu-
menn, skáld og listamenn
(Kjartan Bjargmundsson, Arnór
Benónýsson, Gestur E. Jónas-
son og Þráinn Karlsson).
Þriðja veröldin sem Ugla
kynnist í Reykjavík er veröld
hinna snauðu, veröld alþýðunn-
ar sem vinnur í brauðsölu og
geymir barn sitt í kulda vindsins
bak við hús í leyfisleysi og hittist
á sellufundi til að rýja sig fyrir
málgagn sitt (Þóra Aðalsteins-
dóttir, Halldór Björnsson).
Annað fólk leikur Ingibjörg Eva
Bjarnadóttir, Ragnar Einarsson
og Gunnlaugur Ingivaldur Grét-
arsson. Á milli þessara þriggja
heima sögunnar ferðast Ugla, og
áhrofendur fá óminn af sam-
tímaviðburðum þessa tíma, en
leiknum lýkur á útfarardegi Jón-
asar Hallgrímssonar í nóvember
1946.
Atómstöðin var mjög umdeilt
verk á sínum tíma og er enn.
Hún var viðbrögð mikils skálds
við samtímaviðburðum eins og
Keflavíkursamningnum 1946,
meðferðinni á jarðneskum leif-
um Jónasar Hallgrímssonar,
bardaga við lögreglustöðina á
gamlárskvöld, spillingu, sonar,
ástmagar þjóðarinnar, minka-
þjófnaði, hugmyndum manna á
þeim tíma um listir, siðferði,
trúmál og sjálfstæði þjóðar. En
síðast og ekki síst er Átómstöðin
saga stúlkunnar Uglu, sem segir
í upphafi leiks: „Er nokkuð til
hlægilegra en peníngalaus stelpa
norðanúr landi sem segist ætla
að verða að manni?“
Leikstjóri Atómstöðvarinnar
er Bríet Héðinsdóttir, hönnuður
leikmynda og búninga Sigurjón
Jóhannsson, ljósahönnuður
Ingvar Björnsson, um leikhljóð
og ljósabeitingu sjá Viðar Garð-
arson og Þórarinn Ágústsson og
búningameistari er Freygerður
Magnúsdóttir.
Iar róstur é gamtárskvöld
j.ögn'glnn varil o\l ai> be,ta kyU«>»
II/ '' /
Jónasar tíalUrútt«so*ar
flatt heim eltir 101 ar j
.... , ... j
Sigurjóu Pctursson fór mci) hchnn no^.n- ■ ' ()xv< I
dnl. cn juiiiun voru jnnt ''
tyvottío* Dal vilt í dansar
t * ÍÁ aí»ot aí ^ « l>.'‘'ðska(l
Bandaí-Ílttn , tfl/a U ðsetja þæi (I
samningut fa-\l inin tckin
Au AU>»ng» sampy samnings' 1 \ iik'’
““ rikisSll° .„„laníörnUJÍÍÍkB—^^
.3.0, sepíemherl 9B2-DAGUB-9