Dagur - 30.09.1982, Side 3
Bjarni Ingvarsson.
af slysförum, Illur fengur og
Don Kíkóti. Auk þess hefur
hann leikið í útvarpi, sjónvarpi
og kvikmyndum.
Auk Ragnheiðar starfa tveir
nýútskrifaðir leikarar með LA í
Atómstöðinni. Pað eru þeir
Amór Benónýsson.
Amór Benónýsson frá Hömrum
í Reykjadal, fæddur 13.8.1954
og Kjartan Bjargmundsson frá
Reykjavík, fæddur 22.11.1956.
Aðrir sem nú leika í fyrsta
skipti með LA í Atómstöðinni
eru Halldór Bjömsson, Gunnar
Tveir leikarar hafa nú bæst í hóp
fastráðinna starfsmanna leikfé-
lagsins, þau Ragnheiður
Tryggvadóttir og Bjarni Ing-
varsson.
Ragnheiður Tryggvadóttir er
fædd 3.11.1958 og er uppalin á
Skrauthólum á Kjalarnesi. Hún
varð stúdent frá Menntaskólan-
um í Hamrahlíð 1977 og á skóla-
árunum tók hún virkan þátt í
leikstarfi menntaskólanema, lék
í þremur opinberum leiksýning-
um og var um tíma formaður
leilistarklúbbs MH. Hún stund-
aði nám í bókmenntasögu við
Háskóla íslands veturinn 1977-
1978, en þá hóf hún nám við
Leiklistarskóla íslands og út-
skrifaðist þaðan síðastliðið vor.
Með nemendaleikhúsinu lék
hún í eftirtöldum leikritum: Jó-
hanna frá Örk, Sorglaus kon-
ungsson, Svalirnar og Þórdís
þjófamóðir, börn, tengdabörn
og barnabörn.
Bjami Ingvarsson er fæddur
30.8.1952 og er uppalinn að Ey-
jólfsstöðum í Vatnsdal. Hann
lauk námi frá Leiklistarskóla ís-
Kjartan Bjargmundsson.
Ingi Gunnsteinsson, Halla Svav-
arsdóttir, Ingibjörg Eva Bjarna-
dóttir, Ragnar Einarsson og
Gunnlaugur Ingivaldur Grétars-
son öll búsett á Akureyri.
Leikfélagið býður allt þetta
fólk velkomið til starfa.
Ragnheiður Tryggvadóttir.
lands vorið 1977 og hefur starfað
hja Alþýðu81eikhúsinu síðan
1978. Þar hefur hann leikið í
eftirtöldum sýningum: Nornin'
Baba Jaka, Blómarósir, Heimil-
isdraugar, Við borgum ekki,
Pœldu í því, Stjórnleysingi ferst
Lyftu þér upp
í leikhúsinu
•Er langt síðan þú fórst í leikhúsið?
•Manst þú hvað það var gaman?
• Jæja, — ef það var ekki gaman síðast
var þá ekki gaman næstsíðast?
Það er ágætis upplyfting í því að
skreppa í leikhúsið eina
kvöldstund. Þú getur slegið á
þráðinn til okkar í leikhúsinu
eftir 5 og mætt hér á sýningu rétt
fyrir hálfníu. Ennþá betra væri
þó að kaupa sér áskriftarkort.
Þá er búið að taka frá fyrir þig
sæti á ákveðna sýningu hvers
verks fyrir allan veturinn. Ef þú
kaupir frumsýningarkort ertu
meira að segja með „þitt sæti“
fast á allar frumsýningar, svo þín
verður saknað, ef þú mætir ekki.
í hléinu er upplagt að fá sér
splunkunýtt konfekt í sælgætis-
sölunni. En ekki láta skrjáfa hátt
í pokanum á meðan við leikum.
Það er tilvalið að bjóða næsta
manni mola en í guðanna bæn-
um segðu ekki „plís“ þegar þú
býður eins og hún Sunna segir í
Atómstöðinni.
Við gerum verkfall, 1981.
Eftirlitsmaðurinn, 1982.
2. verkefni
3. verkefni
Barnaleikritið „Siggi var úti“
fjallar um ævintýri sem gerast úti
í hrauni á íslandi, þar sem fjöl-
skylda hefur tjaldað í útilegu. í
hrauninu leynast vísindamaður,
sem er að rannsaka íslenska
refinn, grenjaskyttur, skinna-
sölumenn, skúrkar og tófur, sem
lenda í hringrás viðburðanna.
Leikurinn berast einnig inn á
sveitasjúkrahús og tískumiðstöð
í Reykjavík. Margir söngvar eru
í leikritinu. Frumsýning á „Siggi
var úti“ verður í byrjun desemb-
er.
„Bréfberinn frá Arles“ er gam-
anleikur sem gerist á síðustu
ævinárum hollenska listmálar-
ans Vincent Van Gogh. í dag er
hann álitinn snillingur, en á sín-
um tíma var hann misskilinn og
fátækur. Árið 1888 settist hann
að í Arles í Frakklandi og þar
málaði hann margar af sínum
frægustu myndum. Arles var lít-
ið sveitaþorp þar sem „allir
þekktu alla“ og Van Gogh var
fljótlega álitinn stórskrýtinn.
Krakkarnir ofsóttu hann með
blessun bæjarbúa.
Einn viðurkenndasti leikrita-
höfundur Norðurlands, Ernst
Bruun Olsen, hefur hrifist svo af
Bréfberinn Roulin Arles 1888.
Madame Roulin Aries 1889.
sögu hans og málverkum að
hann skapaði kyngimagnaðan
gamanleik „Bréfberann frá
Arles“, þar sem hann lýsir sam-
skiptum listmálarans Van Gogh
og fyrirsætu hans: Bréfberanum
Roulin. Roulin er alþýðumaður-
inn. Það var alþýðan, lífið og
ástin, sem Vincent vildi mála og
það finnur hann hjá bréfberan-
um Roulin og konu hans. Þessi
litríka sýning var frumsýnd í
Árósum í Danmörku 1974 og
hefur síðan verið á fjölum um
tuttugu leikhúsa í Danmörku,
Svíþjóð, Noregi og Finnlandi
við fádæma vinsældir en verður
nú á íslandi í fyrsta sinn. Frum-
sýning á „Bréfberanum" verður
í byrjun febrúar.
30. september 1982- DAGUR -11