Dagur - 30.09.1982, Qupperneq 4
Sjálfstætt fólk“ 1979.
Kristnihald undir Jökli" 1976.
Fastráðnir starfsmenn
Leikfélags Akureyrar
1982-1983
Nú eru 10 manns fastráðnir hjá
Leikféiagi Akureyrar, þar af 4
nýliðar. Frá síðasta leikári halda
áfram: Sunna Borg, leikkona,
Thecdór Júlíusson, leikari,
Marinó Þorsteinsson , leikari,
Þórey Aðalsteinsdóttir, leik-
kona og gjaldkeri, Þráinn Karls
son, leikari, húsvörður og yfir-
maður smíðadeildar og Frey-
gerður Magnúsdóttir, bún ings-
meistari.
Þeir sem nú eru fastráðnir í
fyrsta sinn eru: Ragnheiður
Tryggvadóttir, leikkona, og
Bjarni Ingvarsson, leikari, en
þau eru kynnt annars staðar í
blaðinu.
Viðar Garðarsson, tæknimað-
ur. Hann er búinn að starfa laus-
ráðinn hjáleikfélaginu í 3 ár, en
varði sumrinu í námskeið á veg-
um Nordiska Teaterkommitt-
éen. Annað námskeiðið var
„Ljós og hljóð, sem listrænt
tjániangarform" á Intimiteatteri
í Finnlandi, kennarar Robert
Ornbo, Ijósahönnuður og David
Collison, hljóðhönnuður. Hitt
námskeiðið hét „Myndvörpu-
tækni og gerð slidesmynda" á
Intimiteatteri, Finnlandi, leið-
beinandi Robert Ornbo frá The-
atre Projects Services ltd. Eng-
landi.
Signý Pálsdóttir, leikhús-
stjóri, er Ieikhúsfræðingur frá
Kaupmannahafnarháskóla, en
þar stundaði hún nám 1970-
1975. Síðan hefur hún starfað
sem tuangumálakennari í Stykk-
ishólmi og fengist við leikstjórn,
leikritaþýðjngar, leik og leið-
beinendastörf í leiklist jafnhliða
kennslunni.
Námskeið á vegum
Leikfélags Akureyrar
Leikfélag Akureyrar verður
með ýmiss konar námskeið
fyrir áhugafólk leiklistarinnar
í vetur. Fyrstu námskeiðin
verða helgina 15.-17. október
og eru einkum ætluð fólki frá
áhugaleikfélögunum á
Norðurlandi.
Þátttakendum gefst kostur á
að sjá syningu á Atómstöðinni
föstudagskvöldið 15. októberkl.
20.30 og verður komið saman
eftir sýninguna og rætt um til-
högun námskeiðanna. Á laugar-
dagsmorgun kl. 10 hefjast nám-
skeiðin aftur en þau verða 4 í
gangi í einu og munu standa til
kl. 5 á laugardag og aftur frá kl.
10 til 5 á sunnudag. Eftirtalin
námskeið standa til boða:
Grímugerð og leiktjalda-
smíði. Leiðbeinandi: Þráinn
Karlsson. Ljósabeiting og ljósa-
tækni. Leiðbeinandi: Viðar
Garðarsson. Leikræn tjáning.
Leiðbeinendur Theodór Júlíus-
son og Sunna Borg. Framsögn.
Leiðbeinandi: Signý Pálsdóttir.
Leikfélagið sér þeim fyrir svefn-
pokaplássi sem vilja. Nám-
skeiðsgjald verður 300 krónur
fyrir leikhúsmiða, efniskostnaði
og kennslu.
Nánari upplýsingar og skrán-
ing á námskeiðin fer fram á
skrifstofu Leikfélags Akureyr-
ar, Hafnarstræti 57, sími 96-
24073, opið frá kl. 10-4 alla
virka daga. Umsóknarfrestur
um þátttöku í námskeiðunum
rennur út mánudaginn 11.
október.
Hendið ekki
Guðbjörg Thoroddsen í hlutverki Norðanlandsstúlkunnar Uglu í
„Atómstöðinni" Ljósm.: Þengill.
ölluá
haugana!
Oft sárvantar leikhúsið gömul við í Samkomuhúsinu eftir stór-
föt, skótau og höfuðföt, jafnvel hreingerningar og bæru undir
gleraugu og gamla tanngóma, okkur þau gögn, sem af má sjá.
semerfitteríaðná. Þaðværiþví Ekki væri síðra að áskotnast
vel þegið ef hugulsamir þegnar húsgögn og aðra muni, sem
allsnægtarþj óðfélagsins kæmu muna kannski fífil sinn fegri.
Leikhúsráð
Stjórn Leikfélags Akureyrar
myndar, ásamt einum fulltrúa
tilnefndum af bæjarstjóm Akur-
eyrar og einum tilnefndum af
starfsfólki, leikhúsráð. Formað-
ur félagsins er formaður leikhús-
ráðs.
Hlutverk leikhúsráðs er að
hafa umsjón með allri starfsemi
og rekstri leikhússins. Það tekur
allar meiriháttar ákvarðanir er
stofnuna varðar, ræður leik-
hússtjóra, leikara og aðra starfs-
menn að leikhúsinu.
Fundir leikhúsráðs eru nú
fyrsta og þriðja miðvikudag
hvers mánaðar.
Leikhússtjóri, Signý Pálsdótt-
ir, situr fundi ráðsins. í leikhús-
ráði eru nú: Guðmundur Magn-
ússon, formaður, (LA), Val-
garður Baldvinsson, ritari, (full-
trúi Akureyrarbæjar), Þórey
Aðalsteinsdóttir (LA), Frey-
gerður Magnúsdóttir (LA),
Sunna Borg (fulltrúi
starfsfólks). Varaformaður LA,
Theodór Júlíusson, situr einnig
fundi ráðsins.
Viðar Garðaraaon tseknimaður, Marlnó Þorstelnsson og Briet Hóðinsdóttir leikstjóri.
,Þrjár systur" 1982.
*' ÍjíS * jlrá t Jb'
wL /s8w’JÚr CfBT ^'Sæ yWSwftu ÆS
H§ Jflyk > j©J|3|
Jm U |t ^ ||K.
Myndirnar þrjár hér I
rammanum eru frá liönum
árum í sögu Leikfélags Ak-
ureyrar. A efstu myndinni
sést troðfullt hús áhorfenda
í sal og á svölum hússins, og
er greinilegt að uppselt hef-
ur veirð er sú mynd var
tekin.
Á myndinni í miðið er
SvanhildurJóhannesdóttir í
hlutverki Ástu í „Sjálfstætt
fólk“, en það verk var sýnt
árið 1979.
Á neðstu myndinni eru
þau Sigurveig Jónsdóttir og
Aðalsteinn Bergdal í hlut-
verkum sínum í „Stalín er
ekki hér“ sem sýnt var árið
1980.
12- DAGUR - 30. september 1982
30. september 1982 - DAGUR -13