Dagur - 30.09.1982, Qupperneq 7
Verkefni
leikársins
1982-1983
1. Atómstöðin eftir Halldór Laxness, ný leikgerð eftir
Bríeti Héðinsdóttur.
Frumsýning: 7. október 1982.
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir.
Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson.
Lýsing: IngvarBjörnsson.
Leikhljóð: Viðar Garðarsson.
2. Siggi var úti. Barnaleikrit eftir Signýju Pálsdóttur.
Frumsýning: 4. desember 1982.
Leikstjóri: Signý Pálsdóttir.
Leimkmynd: Þráinn Karlsson.
Leikbúningar: Freygerður Magnúsdóttir.
Lýsing og leikhljóð: Viðar Garðarsson.
3. Bréfberinn frá Aries eftir Ernst Bruun Olsen.
Frumsýning: 5. febrúar 1983.
Leikstjóri: Haukur Gunnarsson.
Leikmynd og búningar: Svein Lund Roland.
Stuldir ocf skemmdar-
verk hrjá
SamkomuhúsiB
4. Nýtt íslenskt verk skrifað sérstaklega fyrir
Leikfélag Akureyrar.
MIÐASALA
Aðgöngumiðasala Leikfélags Akureyrar verður opin alla virka daga
nema mánudaga frá kl. 17-19.
Sýningardaga frá kl. 17-20.30.
Verð aðgöngumiða kr. 110.
Verð leikskrár kr. 15.
Frumsýningarkort sem gildir á 4 frumsýningar kr. 440.
Áskriftarkort sem gildir á 4 sýningar (2., 3. eða 4. sýningu) kr. 400.
Sala á aðgangs og frumsýningarkortum hefst þriðjudaginn 5. október
kl. 17.
Miðasölustjóri er Guðrún Stefánsdóttir.
Sala aðgöngumiða: Hafnarstræti 57, norðurdyr, sími 24073.
Á meðan Leikfélag Akureyrar
notaði Gamla Bamaskólann,
sem er í næsta húsi, sem bún-
ingageymslu voru innbrot í hús-
ið og stuldur á verðmætum,
Ofnasmiðja Norðurlands
Kaldbaksgötu 5, sími (96)-21860 Akureyri.
gömlum leikbúningum, orðinn
daglegur viðburður. Einkum
kvað rammt að þessum óleik
síðastliðinn vetur, er gömul föt
voru orðin eftirsótt tískuvara
hjá unga fólkinu. Hurfu þá dýr-
indis tjullkjólar, kjólföt, vesti,
smókingar, hattar og margt
fleira, sem er óbætanlegt tjón
fyrir búningsdeildina að missa.
Er leikhússtjórinn mætti til
vinnu sinnar einn mánudags-
morguninn í september var
ófagurt um að litast á nýupp-
gerðri skrifstofunni. Höfðu ein-
hverjir skotglaðir náungar sent
grjóthnullunga inn um báðar
rúður skrifstofunnar svo að
brotin og glersallinn voru vand-
lega dreifð yfir öll húsgögn,
bækur, teppi og tæki skrifstof-
unnar.
Um daginn var vinnusamur leik-
ari að ryksuga „drapperingar“
leikhússins og dundaði við það á
gólfi fatageymslunnar. Hann
brá sér aðeins í kaffi, en er hann
mætti aftur til starfa brá honum
heldur í brún. Þá hafði enn ein
skyttan sent stærðar grjót ofan
úr brekkunni fyrir ofan leikhús-
ið, gegnum glugga kvennasnyrt-
ingar, inn um næstu dyr og á
þann sað er ryksugan lá og beið
þess að halda verkinu áfram. Má
nærri geta hvort leikarinn varð
ekki kaffitárinu feginn eftir á.
Fjárvana leikhúsið reynir að
bæta ástand sitt með gælgætis-
sölu í hléum og vonast til að sæt-
indin gleðji líka leikhúsgesti. En
fleiri girnast góðmetið en boðnir
gestir. Ókunnir sælkerar hafa
verið iðnir við að brjótast inn í
sælgætissöluna á ólíklegustu
tímum og verið stöku sinnum
svo stórtækir að allur lagerinn er
horfinn þegarsölustjórinn mætir
til starfa. Fyrirtæki þetta er því
rekið með tapi sum leikárin á
meðan tannlæknar græða.
Finnst nú aðstandendum leik-
hússins kominn tími til að þess-
um ólátum linni, en sökudólg-
arnir sjái að ség og mæti frekar á
leiksýningar.
i\Tú er að
halda áfram
á sömu Jbraut
Á fjárlögum þessa árs veitti Ak-
ureyrarbær nokkurt fé til sér-
legra endurbóta á Samkomu-
húsinu og í sumar hefur verið
unnið að þeim framkvæmdum.
Skipt var að mestu um járn á
þaki hússins, þakrennur og
niðurföll endurnýjuð og þar í
settur hitakapall. Þá var einnig
allt loft hússins einangrað.
Nokkuð var unnið að endurnýj-
un raflagna, tengdum leiksviðs-
lýsingu og útbúin var ný
geymsluaðstaða fyrir hljóðfæri
hússins. Þetta hljóðfæri, sem er
flygill af C. Bechstein gerð, hef-
ur verið á endalausum hrakhól-
um og hlotið mjög slæma með-
ferð í gegnum tíðina. Hljóðfær-
ið er eini flygillinn í eigu Akur-
eyrarbæjar og þyrfti hið bráð-
asta að taka hann til gagngerrar
endurnýjunar. Að mati færustu
manna er þetta upprunalega
mjög vandað hljóðfæri og til-
tölulega auðvelt að hefja glæsi-
leik þess til vegs á ný. Nú, svo er
að nefna það sem allir sjá, að
húsið hefur verið málað að utan.
Allar endurbætur og lagfær-
ingar á Samkomuhúsinu, þessu
gamla og glæsilega húsi, þökk-
um við sem hér störfum, og
einnig þeim þúsundum bæjar-
búa sem sækja hingað leiksýn-
ingar og aðrar samkomur.
Og nú er að halda áfram á
sömu braut, enda er það sið-
ferðileg skylda okkar að láta
ekki tímans tönn naga sundur
uppistöður þessa gamla og góða
húss.
Teiknistofa húsameistara hef-
ur yfirumsjón með öllum fram-
kvæmdum varðandi samkomu-
húsið, en núverandi hússtjórn
skipa: Húsameistari Akureyrar-
bæjar, Ágúst Berg, Svanur Eir-
íksson, arkitekt, tilnefndur af
Akureyrarbæ og Þráinn
Karlsson, leikari og húsvörður
f.h. Leikfélags Akureyrar.
30. september 1982 - DAGUR -15