Dagur - 30.09.1982, Síða 8
Upphaf
Leikfélags
Akureyrar
Upphaf leiksýninga á Akur-
eyri má rekja aftur til ársins
1860, þegar danska kómedían
„Intrigerne“ eftir Hostrup
var sýnd hér í Öjfjords Hand-
elsted í vöruskemmu í inn-
bænum og var helsti for-
göngumaður þeirrar sýningar
Bernhard Steincke kaup-
maður. Síðan hefur leiklist-
argyðjan Thalía svifið hér yfir
vötnum og oft á eftirminnileg-
an hátt.
Má nefna sýningu á Útilegu-
mönnunum eftir séra Matthías
Jochumson 1877, en þærsýning-
ar voru auglýstar þannig að skot-
ið var úr fallbyssum í innbænum
þegar sýningar skyldu hefjast.
Hátíðasýningin árið 1890, vegna
1000 ára afmælis Helga magra,
var einhver merkasta sýningin
fyrir aldamót, en þá var sýndur
sjónleikurinn Heigi magri eftir
Matthías með Pál Árdal í aðal-
hlutverkinu. Leikið var í vöru-
skemmu á Oddeyrartanga og
þótti ýmsum áhorfendum það
ganga göldrum næst að sjá skip
Helga magra sigla inn Eyjafjörð
(á skemmugólfinu!).
Fram til þessa höfðu menn
gert sér að góðu að leika í vöru-
skemmum, salthúsi, skólastofu,
veitingasal eða sláturhúsi, en
með vaxandi kröfum og aukinni
getu var reist leikhús, sem vígt
var í ársbyrjun 1897.
Leikstarfsemin jókst enn til
muna og einnig störf templara,
sem áttu nær helming hússins og
var því ráðist í aðra og mun
stærri leikhússbyggingu og reist
Samkomuhúsið, sém leikið er í
enn í dag. Það var vígt 23. janú-
ar 1907 með miklu samkvæmi og
sýningu á Ævintýrí á gönguför.
Leikfélag Akureyrar (hið eldra)
var stofnað 1907 og starfaði af
miklum krafti til 1911, en var þá
slitið.
Úr „Mýs og menn" sem sýnt var 1954-1955. Frá vinstri eru Vignir Guðmundsson, Guðmundur
Magnússon, Elías Kristjánsson, Jón Kristinsson og Guðmundur Gunnarsson.
„Skugga-sveinn" 1935-1936.
„Þrettándakvöld" 1963-1964. Brynhildur Steingrímsdóttir, Jóhann Ögmundsson og Jón Kristinsson
i hlutverkum sínum.
„Brúðuheimilið" 1944-1946. Alda Möller í hlutverki Nóru.
Leikarar á sýningu LA á Fjalla-Eyvindi 1922. Haraldur Björnsson lengst til vinstrí.
„Þið munið hann Jörund'* 1969-1970. Þráinn Karlsson, Arnar Jóns-
son og Sigmundur Örn Arngrímsson.
um sögu Leikfélags Akureyrar
er bent á fróðlega og skemmti-
lega grein eftir Harald Sigurðs-
son „Stiklað á stóru í sögu LA“ í
afmælisriti LA frá 1977.
En það Leikfélag Akureyrar,
sem starfar enn í dag var stofnað
sumardaginn fyrsta 1917, en
kjarninn úr þeim hópi hafði
staðið að sýningu á Skugga
Sveini sama vor. Fyrstu stjóm
félagsins skipuðu: Júlíus Hav-
steen, Hallgrímur Valdimarsson
og Sigurður E. Hlíðar, en gjald-
keri utan stjórnar var kosinn
Jóhannes Jónasson.
Þeim sem vilja fræðast nánar
J6 19§2