Dagur


Dagur - 28.10.1982, Qupperneq 8

Dagur - 28.10.1982, Qupperneq 8
Staða atvinnulífsins og atvinnuhorfur á Dalvík: Næg verkefni í bygglngar- iðnaði fram eftir vetri Biynjar í Gilhaga átti þyngsta 1 dilkinn 1 Kópaskeri 26. október Sauðfjárslátrun lauk á Kópa- skeri 12. október og hafði þá staöið í fjórar vikur. Slátrað var liðlega 24.900 dilkum, sem er um það bil 1000 dilkum færra en í fyrra. Meðalþyngd dilk- anna var um 300 grömmum lak- ari en á síðasta ári, var nú 14,6 kg. Hæsta meðalvigin var hjá Brynjari Halldórssyni, Gilhaga í Öxarfirði, 16,8 kg. Á tveimur bæjum var allt sauð- fé skorið niður. Það gerðist í Kelduhverfi, á bæjunum Lyngási og Keldunesi. Bændurnir á um- ræddum bæjum hafa í hyggju að snúa sér alfarið að öðrum bú- greinum. Það má segja að slátur- tíð hafi gengið að óskum á Kópa- skeri og má það m.a. þakka hinu góða tíðarfari sem hefur verið í haust. Undanfarin þrjú ár hefur slát- urhús KNÞ á Kópaskeri verið endurbyggt og er því verki að mestu lokið. Frystirými hefur ver- ið aukið, vinnslurými bætt svo og öll aðstaða í húsinu. Hafin er bygging nýs verslunar- húss hjá KNÞ á Kópaskeri. Ný- byggingin er u.þ.b. 310 fermetrar og er sambyggð við núverandi Dalvík 26. október. Að tilhlutan atvinnumála- nefndar Dalvíkur var haldinn fundur sl. sunnudag með for- ráðamönnum atvinnufyrir- tækja, bæjarstjórn og atvinnu- málanefnd. Umræðuefnið var staða atvinnulífsins og atvinnu- horfur í náinni framtíð. Formaður atvinnumálanefnd- ar, Þorsteinn Már Aðalsteinsson, settti fundinn og gerði grein fyrir tilgangi hans. Bað hann síðan fundarmenn að gera grein fyrir þeim atvinnugreinum er þeir væru fulltrúar fyrir, núverandi mann- afla og horfum. í máli manna kom m.a. fram að í sjávarútvegi gerir erfið birgðastaða reksturinn erf- iðan í landi og útgerð á við ýmsa erfiðleika að etja. Fundarmenn voru nokkuð uggandi um lausnir. Eins og stendur er næg atvinna í sjávarútvegi, nokkuð er um að- komumenn á togurunum og verkafólk vantar til dæmis í frysti- húsið. Þegar menn fjölluðu um fram- tíðina kom það helst fram að möguleiki er á aukinni hlutdeild frystingar og eru því samfara þó- nokkuð mörg atvinnutækifæri. Einnig að atvinnutækifæri gætu leynst í frekari fullvinnslu og verðmætasköpun sjávarafla. Tal- ið var að nóg verkefni væru í byggingariðnaði fram eftir vetri, en eftir það væri óvíst um atvinnu. Síðustu ár hafa byggingar heilsu- gæslustöðvar, dvalarheimilis og ráðhúss skapað mikla atvinnu. Fundarmenn inntu forráðamenn bæjarfélagsins eftir hvað væri framundan í opinberum fram- kvæmdum og svaraði forseti bæjarstjórnar, Kristján Óiafsson, því til að áframhaldandi uppbygg- ing skólamannvirkja og sundlaug- arbygging væri m.a. á dagskrá. Kristján sagði að bæjaryfirvöld myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að fyrirbyggja samdrátt í byggingariðnaði. Þá kom fram að þjónustustarf- semi fylgir öðrum atvinnurekstri á hverjum tíma, sé hann blómlegur þarf engu að kvíða hvað varðar hana. Á fundinum voru ræddir ýmsir möguleikar s.s. stóriðja og hvernig ætti að standa að henni. Spurt var um ferðamannaiðnað, skinnaiðnað, hvaða áhrif virkjun við Blöndu hefði á atvinnulíf á Dalvík og hvaða möguleikar væru í smáiðnaði. Atvinnumálanefnd hefur í hyggju að leita eftir samstarfi við Dalvíkurskóla um könnun á sam- setningu atvinnulífs og fleira í því sambandi. Fundarmenn voru um 30 að tölu. AG. Frá Dalvfk. verslunarhús. Þessi stækkun kem- ur til með að bæta mjög mikið verslunaraðstöðuna. Stefnt er að því að taka húsið í notkun næsta vor. P.Þ. Létu ekki veðrið aftra sér Fimm konur úr Fljótum, sem istunda nám við öldungadeild Fjöibrautarskólans á Sauðárkróki létu veðurhaminn ekki aftra sinni för og héldu til Sauðárkróks um miðjan dag í gær og komu heim aftur skömmu eftir miðnætti eftir erfiða ferð. Leiðin til Sauðár- króks er um 80 km. og sýnir þetta glöggt hvað margur strjálbýlis- maðurinn má leggja á sig til að öðlast menntun á við aðra landsmenn. Borað í 1 fp 'MT fir- T1 'P (^r 111 Tfrp lu lM 111 1 SL I s * m og Glerárdal Um þessar mundir er borað á tveimur stöðum á vegum Hita- veitu Akureyrar. Borinn Ýmir er að bora á Glerárdal, en Glaumur í Fnjóskadal. Ætlunin er að bora þrjár rannsóknarholur á Glerár- dal og nú er lokið að bora eina. Þegar búið er að bora holurnar iverður tekin ákvörðun um hvort ráðist verður í frekari boranir á Glerárdal. í Fnjóskadal verður boruð ein hola og eru starfsmenn Orkustofnunar hálfnaðir með hana. Áætlað er að holan í Fnjóskadal verði um 500 m djúp en holurnar á Glerárdal verða mun grynnri. Glerárþorp: Verslunarmiðstöðin opnuð í næstu viku — Tel að brotið sé blað í íslenskri verslunarsögu segir Brjánn Guðjónsson Nýja versliinarmiðstöðin við Sunnuhlíð verður opnuð þann 4. nóvember n.k. Þann dag munu 14 -15 verslanir opna, en fleiri fylgja í kjölfarið. Nýja verslunarmiðstöðin hefur hlot- ið nafnið Sunnuhlíð. „Ég fullyrði að með þessari verslunarmiðstöð sé brotið blað í íslenskri verslunarsögu", sagði Brjánn Guðjónsson, deildarstjóri matvörudeildar KEA, en KEA verður með dagvöruverslun í Sunnuhlíð. „Þarna verða verslan- ir á tveimur hæðum og fallegt blómatorg. Ég trúi því að það verði gaman að versla í þessu húsnæði." Brjánn sagði að í dagvöruversl- un KEA væri bryddað uppá ný- ung í verslun á Akureyri. I versl- uninni verður grænmetistorg og munu viðskiptavinirnir velja þær vörur er þeir girnast og vigta þær sjálfir á vog sem prentar á miða þyngd grænmetisins ogverð. „Við munum reyna að hafa sem fjöl- breytilegast úrval grænmetis hverju sinni,“ sagði Brjánn „en að öðru leyti mun þessari verslun svipa til þeirra sem kaupfélagið rekur á Akureyri." Grænmetistorg með sjálfsaf- greiðslu eins og að framan greinir er í verslun á Selfossi svo segja má að Selfyssingar og Akureyringar hafi skotið höfuðborgarbúum ref fyrir rass hvað þetta snertir. # Málum togarann Það er kunnara en frá þurfi að segja að Sólbakur liggur bundinn við Torfunes- bryggjuna. Hann er sfður en svo nokkuð augnayndi - skip- ið er ryðgað og Ijótt. Ef það er ætlun forráðamanna Ú.A. að geyma skipið á umræddum stað næstu árin, eða þar til viðunandi verð fæst fyrir það, væri ekki úr vegi að mála sklp- ið svo bæjarbúar og ferða- menn þurfi ekki að líta í aðra átt þegar þeir eiga leið um miðbæinn. Eflaust kostar slíkt verk þó nokkra upphæð en það er vel þess virði. • Kaffihús um borð? S&S á sér marga góða og bjartsýna kunningja. Einn þeirra stakk upp á því að ef skipið ætti eftir að liggja við bryggjuna næsta sumar ætti einhver athafnamaðurinn að taka það á leigu og opna kaffi- hús á dekkinu. Það má vel vera að Gfsli og Vilhelm brosi breitt þegar þeir sjá þessa hugmynd bjartsýnismanns- ins á prenti, en ef einhver kemur til þeirra og vill reyna þá gætu þeir a.m.k. boðið manninum í kaffi. # Stefánvill fram á nýjan leik Alþýðubandalagsmaður stakk því að S&S að Stefán Jónsson, alþingismaður Al- þýðubandalagsins ætlaði sfður en svo að draga sig í hlé - hann stefndi ótrauður á fyrsta sætið á lista Alþýð- ubandalagsins f næstu kosn- ingum. # Jólafötin á börnin Fataverslun í Reykjavfk er farin að auglýsa í sjónvarpinu að hún seiji jólafötin á börnin. Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið. Með sama áframhaldi verður jólakauptfðin allt árið - og kaupmenn taka varla niður jólaskrautið. Þess eru reynd- ar dæmi að kaupmenn hafi ekki séð ástæðu til þess arna. Starfsmaður Dags minntist þess t.d. að hafa séð jóla- Ijósaperur hjá verslun nokk- urri f september - og það logaði á perunum! # Sebrahestur Sú saga gengur Ijósum logum um bæinn að Hafnfirðingur nokkur (eða var það Ólafsfirð- ingur?) hafi keypt sér sebra- hest. Að sjálfsögðu skírði hann skepnuna Depil. L

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.