Dagur - 29.10.1982, Blaðsíða 11

Dagur - 29.10.1982, Blaðsíða 11
Góð aðsókn að , ,Atómstööinni‘ ‘ Leikfélag Akureyrar hefur nú sýnt „Atómstöðina“ eftir Halldór Laxness í 10 skipti og þrjár sýningar verða um helg- ina. Sýningar hafa jafnan verið fyrir fullu húsi og hafa undirtekt- ir áhorfenda verið mjög góðar og gagnrýnendur hafa farið já- kvæðum orðum um þessa upp- færslu. Um helgina verða sýn- ingarnar þrjár eins og fyrr sagði, í kvöld, annað kvöld og á sunnu- dagskvöld. Aðgöngumiðasala er opin alla virka daga kl. 17-19 og sýningardagana kl. 17-20.30. Nú hefur verið ákveðið að halda með sýninguna suður til Reykjavíkur og verður hún sýnd í Þjóðleikhúsinu þann 23. nóv- ember. Þá er næsta verk LA komið vel á veg í æfingu en það heitir „Siggi var úti“ og er eftir Signýju Pálsdóttur leikhússtjóra sem jafnframt verður leikstjóri. Nánar verður fjallað um það sem efst er á baugi hj á LA í blað- inu nk. þriðjudag. Utsýnarkvöld í SiaUanum Útibú Ferðaskrifstofunnar Útsýn á Akureyri flytur í dag í nýtt húsnæði að Hafnarstræti 98, og I tilefni af því verður „Utsýnarkvöld“ í Sjallanum annað kvöld. Hátíðin hefst með gjafahapp- drætti kl. 20, síðan er portu- galskur hátíðarkvöldverður undir umsjá portugalska mat- reiðslumeistarans Antonio Cerqueira, lauflétt getraun verður um Portugal, spilað verð- ur bingó og að lokum dansað til kl. 3 á þessari portugölsku hátíð. Miðaverð er 250 krónur + rúllu- gjald. Það eru Útsýn, portu- galska flugfélagið TAP og ferða- málaráðuneyti Portugals sem gangast fyrir hátíðinni. ■■■^ónlist iyrir matargesti Paula Parker píanóleikari og Jónatan Bager flautuleikari munu um helgina skemmta matargestum í Smiðjunni á Akureyri, en þau munu koma þar fram föstudagskvöld og laugardagskvöld og leika létta tónlist á hljóðfæri sín. Vegna þess að margir urðu frá að hverfa er Smiðjan bauð á dögunum upp á annað slíkt í hádeginu n.k. sunnudag. Á borðinu verður úrval kaldra rétta og heitur matur að auki, en allt framreitt að hætti frænda okkar Dana, sem þykja snilling- ar í matargerðarlistinni eins og alkunna er. Verði danska há- degisverðarborðsins er mjög í hófstillt. Bæjarmála- fundur Nk. mánudagskvöld kl. 8verður bæjarmálafundur Framsóknar- flokksins á Akureyri haldinn í húsnæði flokksins að Strandgötu 31. Framsóknarmenn og aðrir stuðningsmenn flokksins eru hvattir til að mæta. Á fundinum verður m.a. fjallað um mál sem koma til kasta bæjarstjórnar á fundi hennar nk. þriðjudag. Kaffiveitingar. Bamaskop Pabbi, hvaða dýr er það sem er gult og grænröndótt, hefur sex loðnar lappir og stór augu sem standa á stilkum? Ég veit það ekki, hvers vegna spyrðu? Vegna þess að rétt í þessu var það að skríða upp undir buxnaskálmina þína. ☆ ☆☆ Mamman: Ef þú ert búinn að borða matinn þinn, Jói, farðu þá með þakkar- bæn. Jói: Allt í lagi, mamma. Takk fyrir matinn, Guð! Mamman: Þetta var nú ekki merkileg bæn. Jói: Þetta var nú ekki heldur neitt merkilegur matur... „Pabbi, getum við ekki fengið hund um jólin?" „Nei, ætli við höfum ekki rjúpur eins og venjulega." „Hvað hét mamma þín áður en hún giftist?" „Ég átti enga mömmu áður en hún giftist." ☆ ☆☆ Dag nokkurn kom Stella heim og sagði við mömmu sína: - Mamma, ég þarf ekki að fara oftar í matreiðslu. - Nú, af hverju ekki? - Vegnaþessaðégbrenndisvolítið! - Og hvað brenndir þú, vænamín? - Skólaeldhúsið... Brandarar Það var svo mikil ös hjá happdrætt- inu, að ég stakk vinningnum mínum í vasann hjá einhverjum öðrum. acv\es - Er ég að fara á fætur eða að hátta? * Hvaða stúlka er þetta, sem ég sé þig með annað kvöld? Hugsaðu þér! Rúgbrauðið hefur hækkað um þrjár krónur! Halló elskan, hvað er í kvöldmat- inn: 29: okt«?er 1$62 ^PAGU.R -p í 1

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.