Dagur - 11.11.1982, Page 7
„Með kveðju
frá Kölska“
Bókaútgáfan
Salt gefur út
Bókaútgáfan Salt hefur gefið út
bókina „Með kveðju frá Kölska“,
en hún er eftir enska rithöfundinn
C.S. Lewis og heitir á frummálinu
Screwtape letters. Þýðandi er sr.
Gunnar Björnsson. Formála ritar
dr. Sigurbjörn Einarsson biskup
og gríski listamaðurinn Papas
myndskreytti bókina.
Clive S. Lewis var prófessor í
enskum bókmenntum við há-
skólann í Oxford og var framan af
ævi fráhverfur kristinni trú, en
sannfærðist síðar um sanngildi
hennar og varð ljóst að Guð teflir
ekki til úrslita á skákborði heilans
heldur hjartans, ritar dr. Sigur-
björn Einarsson m.a. í formála
sínum. „Með glettnum glampa í
augum flytur hann hinn alvarleg-
asta boðskap. í hjúpi hrjúflegs
skáldskapar boðar hann fagnað-
arerindið", segir ennfremur í for-
mála dr. Sigurbjörns.
Bréf þessi birtust fyrst almenn-
ingi í Bretlandi árið 1941 og voru
þau oft gefin út á ný á næstu árum.
Pá hefur þessi metsölubók verið
þýdd á fjölmörg tungumál.
Bókin er að öllu leyti unnin hjá
Prentsmiðju Hafnarfjarðar hf.
Spennum beltin |
ALLTAF
- ekki stundum |
lar*"
Videoleiga
CESAR
Höfum úrval af mynd-
um með íslenskum,
dönskum og sænskum
texta.
Mikið af nýju efni.
CEgfiR
Nýkomið:
Rautt og hvítt flónel
Filtbútar
í öllum litum
Vatt og rósótt
bómullarefni
í bútasaum
Nú er rétti tíminn til að
huga að jólafötunum.
Efni, snið og tillegg í all-
an fatnað.
Opið á laugardögum.
Is
____11
allttilsauma
FNR. 8164-5760
vemman
SKIPAGATA 14 B - SlMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI
Allar
tryggingar!
umboðið hf.
Rádhústorgi 1 (2. hæð),
simi 21844, Akureyri.
AKUREYRARBÆR
Hundaeigendur Akureyri
Hundahreinsun fer fram á Akureyri föstudaginn
12. nóvember kl. 13.00-16.00 og laugardaginn
13. nóvember kl. 10.00-12.00 í áhaldahúsi Gróör-
arstöðvarinnar.
Hundaeigendum ber aö færa hunda sína til
hreinsunar annan hvorn þessara daga og greiða
jafnframt leyfisgjald fyrir 1982, kr. 600,00 og sýna
kvittun fyrir greiðslu iðgjalds af ábyrgðartryggingu.
Athugið að hafa hundana fastandi svo lyfið
virki betur.
Heilbrigðisfulltrúinn Akureyri.
Plötukynning
Föstudaginn 12. nóv. ’82 verður Bergþóra
Ámadóttir í Vöruhúsi KEA - Hljómdeild og
áritar plötu sína Bergmái milli kl. 11.00 og
17.00.
Hljómdeild KEA.
Kökubasar
Geðverndarfélag Akureyrar verður með kökubas-
ar í Færeyingasalnum í Kaupangi laugardaginn
13. nóv.
Húsið opnað kl. 2. e.h.
Félagar vinsamlegast gefið kökur á basarinn.
Brauðum veitt móttaka frá kl. 11 f.h. sama dag.
Nefndin.
Námskeið
fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði á
vinnustöðum á Eyjafjarðarsvæðinu verður haldið
að Hótel KEA dagana 17., 18. og 19. nóvember
nk. og hefst kl. 9.00 miðvikudaginn 17. nóvember.
Námskeið þetta er haldið skv. lögum um vinnu-
vernd sem tóku gildi 1. janúar 1981.
öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir halda
launum á meðan námskeiðið stendur yfir.
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir eru hvattir
til að mæta og eru vinsamlega beðnir að tilkynna
þátttöku sína til Alþýðusambands Norðurlands í
síma 21881, milli kl. 14.00 og 17.00 fyrir 16. nóv-
ember. nk.
Alþýðusamband Norðurlands.
Vinnueftirlit ríkisins.
Aukinn afsláttur
til félagsmanna
Ákveðið hefur verið að gefa félags-
mönnum KEA kost á að fá afslátt af
staðgreiddri vöruúttekt sinni í öllum
deildum Vöruhúss KEA, í Vöruhús-
inu Hrísalundi 5, neðri hæð, í Raf-
lagnadeild og af sérstaklega til-
greindum vörum í Byggingavöru-
deild og Véladeild dagana 12.-26.
nóvember nk., gegn afhendingu af-
sláttarkorta.
Veittur verður 10% afsláttur af
öllum vörum deildanna nema hús-
gögnum, stærri rafmagnstækjum til
heimilisnota og gólfteppum. Á þeim
vörum verður afslátturinn 5%. í
Byggingavörudeild verður veittur
10% afsláttur á veggdúk allskonar og
5% afsláttur af Gustavsberg hrein-
lætistækjum. Þessi kjör gilda einnig á
sömu vöruflokkum í öllum verslun-
um KEA utan Akureyrar.
Afhending afsláttarkortanna hefst
fimmtudaginn 11. nóvember á aðal-
skrifstofu KEA, Hafnarstræti 91,
Akureyri, og verður hverjum félags-
manni afhent fjögur kort. Félags-
menn í deildum á Dalvík og Svarfað-
ardal fá afsláttarkortin afhent á skrif-
stofu útibús KEA, Dalvík, en félags-
menn í deildum í Siglufirði, Ólafs-
firði, Árskógshreppi, Hrísey,
Höfðahreppi og Grímsey fá afslátt-
arkortin afhent í verslunum félagsins
á þessum stöðum.
Gerist
félagsmenn
Afsláttarkortin gilda einnig fyrir
nýja félagsmenn í Kaupfélagi
Eyfirðinga.
Þeir sem ekki eru félagsmenn
eru hvattir til að ganga í félagið.
Eyðublöð fyrir inngöngu-
beiðnir í félagið liggja frammi á
aðalskrifstofunni Hafnarstræti
91, Akureyri, og í öllum verslun-
um KEA utan Akureyrar.
Félagsmenn Kaupfélags Eyfirð-
inga, nýtið ykkur þetta einstaka
tækifæri til hagstæðra innkaupa á
góðum og tjölbreyttum vörum.
11. nóvember 1982 -DAGUR-7