Dagur - 23.11.1982, Blaðsíða 9
KA er í efsta sætinu
Fyrsta umferð af þremur í ís-
landsmóti 2. flokks í handbolta
var leikin hér á Akureyri um
helgina.
Sjö lið mættu til leiks, en
keppt er í þremur riðlum. Alls
var leikinn hér í íþróttaskemm-
unni 21 leikur, en sjaldan eða
aldrei hafa jafn margir leikir far-
ið þar fram á einni helgi.
Akureyrarliðin Þór og KA
voru í þessum riðli og náðu bæði
frábærum árangri. Fyrir mótið
voru félögin af Reykjavíkur-
svæðinu talin sigurstranglegri,
þar eð þau geta leikið þar í
mörgum mótum. Fyrir þessa
leiki munu Þór og KA aðeins
hafa leikið einn leik.
KA lék sinn fyrsta leik á föstu-
dagskvöldið og þá gegn Þór.
KA-strákarnir voru sterkari og
sigruðu með 16 mörkum gegn
10. KA átti síðan fyrsta leik á
laugardagsmorguninn gegn
Aftureldingu. Þar sigraði KA
auðveldlega með 19 mörkum
gegn 10.
Þá léku þeir við Hauka um
hádegið á laugardag og sigruðu
einnig með 14 mörkum gegn 10.
Þriðji leikurinn á laugardaginn
var gegn Víkingi. Þar var greini-
lega komin þreyta í strákana og
þeir töpuðu með 19 mörkum
gegn 15. Á sunnudaginn átti KA
svo tvo leiki, en það var gegn
þeim félögum sem talin voru
sterkust.
Fyrst léku þeir gegn Stjörn-
unni úr Garðabæ. Þar léku
strákarnir ágætlega og veittu
Garðbæingum góða keppni og
voru síðan sterkari á endasprett-
inum og sigruðu með 15 mörk-
um gegn 10. Síðari leikurinn var
svo gegn Fylki. Þessi leikur var
mjög spennandi en Fylkir komst
yfir og náði þriggja marka for-
ustu í fyrri hálfleik. KA náði að
minnka muninn rétt fyrir lok
hálfleiksins og í leikhléi var stað-
an 10 gegn 9 Fylki í hag. Strax í
byrjun síðari hálfleiks jafnaði
Stefán Ólafsson fyrir KA, og
Sæmundur kom þeim síðan yfir.
Þá jafnaði Fylkir og komst síðan
í 12 gegn 11.
Þá jafnaði Kobbi úr víti og
Óskar minnsti en snaggaraleg-
asti KA-maðurinn kom KA yfir
með góðu marki úr hægra horn-
inu. Þá jafnaði Fylkir en síðan
komu tvö mörk frá Jóni Krist-
jánssyni. Fylkir minnkaði síðan
muninn í eitt mark, en Kobbi
lagaði aftur stöðuna með marki
út víti. Fylkir komst í 15 gegn 16
en síðan koma tvö KA-mörk,
annað frá Boga Einarssyni og
hitt frá Kobba og þriggja marka
forusta. Fylkir gerði síðan síð-
asta markið og lokastaðan varð
18 gegn 16 KA í vil. Þarna
tryggði KA sér sigur í fimmta
leiknum og sigur í þessari
umferð.
Leikir Þórs voru oft á tíðum
mjög spennandi. Þeir léku fvrst
gegn KA, en töpuðu eins og
áður sagði. Næsti leikur var á
laugardagsmorguninn og þá
gegn Haukum. Þórsarar unnu
stórsigur með 26 mörkum gegn
17. í þessum leik gerði Sigurður
Pálsson 13 mörk fyrir Þór eða
helming marka þeirra.
Næsti leikur varð gegn Stjörn-
unni en þeir urðu Þórsurum of-
viða og þeir töpuðu með 22
mörkum gegn 16.
Þór átti síðan fyrsta leikinn á
sunnudagsmorguninn gegn
Aftureldingu. Þar unnu þeir
nokkuð auðveldlega með 15
mörkum gegn 13. Þá léku þeir
um miðjan daginn gegn Víkingi
og þar tóku Þórsarar þá í
kennslustund og sigruðu með 19
mörkum gegn 13. I þessum leik
varði markvörður Þórs Júlíus
Tryggvason mjög vel og skoraði
m.a. eitt mark hjá kollega sínum
í Víkingsmarkinu. Síðasti leikur
þeirra og jafnframt þriðji á
sunnudaginn var gegri Fylki. Þar
var engin þreyta í Þórsurum því
þeir unnu stórsigur 18 gegn 13.
Það byrjaði ekki vel fyrir Þór í
þessum leik því Fylkir hafði
fimm marka forustu í hálfleik.
Með stórgóðum síðari hálfleik
náðu þeir að minnka muninn og
vinna þann hálfleik rrieð 14
mörkum gegn 4.
Það var mikil stemmning í
Skemmunni og Þórsarar hvattir
vel bæði af sínum félögum og
öðrum sem kunnu vel að meta
stórleik þeirra.
Allir leikmenn þessara liða
eru framtíðarmenn sinna félaga
og ekkert er til sparað að þjálfa
þá. T.d. þjálfar Bodan Val,
Rússi Hauka, Jón Karlsson fv.
landsliðsmaður Fylki, Ólafur
Lárusson Stjörnuna og Jan Lar-
sen KA. Allt eru þetta þekktir
þjálfarar.
Markahæsti leikmaður móts-
ins var Sigurður Pálsson úr Þór
með 54 mörk og næstur kom
Jakob Jónsson KA með 45
mörk. Jakob sýndi mikið öryggi
í vítaköstunum, en hann tók 16
víti og skoraði úr 15. Þrátt fyrir
allan þennan fjölda marka voru
þessir menn teknir úr umferð
nánast alla leiki.
Mjög góð dómgæsla var í
þessum leikjum en þeir sem
flautuðu voru Árni Sverrisson,
Ólafur Haraldsson, Stefán Arn-
aldsson, Guðmundur Lárusson,
Oddur Halldórsson, Kristján
Óskarsson og Birgir Björnsson.
Handknattleiksráð Akureyr-
ar sá um þessa keppni sem fór
mjög vel fram og t.d. stóðust all-
ar tímaáætlanir alla dagana.
1. KA
2. Stjarnan
3. Þór
4. Fylkir
5. Víkingur
6. Haukar
7. UMFA
6 5 0 0
6 4 11
6 4 0 2
6 3 12
6 3 0 3
6 10 5
6 0 0 6
97- 75
108-86
104-94
98- 88
101-100
99- 121
75-105
lOstig
9 stig
8 stig
7 stig
6 stig
2 stig
Ostig
Bjarmi tap-
aði tvívegis
Umf. Bjarmi úr Fnjóskadal lék
tvo leiki í fyrstu deild um helgina
og var leikið fyrir sunnan.
Þeir töpuðu bæði fyrir Þrótti
og ÍS með þremur hrinum gegn
Sigurður Pálsson Þór sem sést hér í vöm var markahæsti leikmaður t keppni um helgina.
Leikreynsluleysi
áberandi hjá
Þórsurunum
— en þeim tókst þó að sigra Tindastól og
Val í 3. flokki í körfuknattleik
engri. Kvennalið KA lék einnig
tvo leiki um helgina og tapaði
bæði fyrir Breiðabliki og Þrótti
með þremur hrinum gegn engri.
3. flokkur körfuknattleiks-
deildar Þórs hélt suður til
Hafnarfjarðar um helgina og
lék þar flmm leiki í sínum riðli
í íslandsmótinu. Voru leikirn-
ir háðir á laugardag og sunnu-
dag og dagskráin því mjög
erfið.
Þór lék fyrstu leiki sína gegn
ÍR og Haukum, tveimur sterk-
ustu liðum landsins í þessum
flokki og tapaði Þór báðum,
fyrir ÍR 72-44 og Haukum 61-
32. Voru strákarnir greinilega
mjög taugaóstyrkir enda allir
nema tveir að leika sína fyrstu
leiki í vetur.
Síðan kom leikur gegn Val og
þá sýndu strákarnir hvers þeir
eru megnugir. Stórvel leiknum
leik af hálfu Þórsara lauk með
sigri þeirra 73—43. Allir þessir
leikir Þórs voru háðir á laugar-
dag.
Á sunnudaginn átti Þór leiki
kl. 10 um morguninn og aftur kl.
12.30 og voru mótherjarnir nú
Tindastóll og ÍBK. Þór vann 10
stiga sigur gegn Tindastól 69-59
og lék síðan hörkuspennandi
leik gegn ÍBK. Leiddi Þór lengst
af en undir lokin var greinilegt
að sumir þoldu ekki álagið og
ÍBK breytti stöðunni úr 43-43 í
49-43 og sigraði með 50 stigum
gegn 45.
Það var áberandi í þessum
leikjum Þórsara að þá vantar
leikreynslu, enda hafa þeir ekki
leikið nema 3-5 leiki undanfarin
ár. Tveir þeirra, Konráð Ósk-
arsson og Guðmundur Björns-
son eru þó í nokkrum sérflokki
hvað þetta snertir, þeir eru báðir
leikmenn m.fl. og þeir báru
Þórsliðið uppi. Konráð var
stigahæstur leikmanna liðsins
með 105 stig í leikjunum fimm
og Guðmundur skoraði 81.
■ r"lT“ '
Konráð Óskarsson.
Guðmundur Bjömsson.
23. nóvember 1982-DAGUR-9