Dagur - 23.11.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 23.11.1982, Blaðsíða 12
Rúmt ár liðið frá síðasta Kröflugosi S.l. fímmtudag var eitt ár liðið frá því eldgos varð síðast við Kröflu, og hljótt hefur verið um jarðhræringar þar síðustu mánuði. Við slógum á þráðinn til Eysteins Tryggvasonar jarð- fræðings sem fylgst hefur náið með ástandinu við Kröflu og spurðum hann hvað væri að frétta frá Kröflusvæðinu. „Ég vildi gjarnan vita sjálfur hver þróunin verður. Annars virðist ekkert teljandi vera að ger- ast um þessar mundir. Landið rís að öllum líkindum aðeins, en risið hætti alveg í sumar, byrjaði síðan í haust aftur og er örlítið núna. Annars eru hitabreytingar farnar að hafa truflandi áhrif á mælingar eins og ávallt er þegar fer að frjósa, og gerir það að verkum að okkar mælingar eru ekki alveg jafn nákvæmar.“ -Ert þú þá nokkuð að búast við gosi á næstunni? „Ekkert frekar. Pað kom dálítil skjálftavirkni í haust um tíma en svo dró úr því. Þó eru nokkrir smáskjálftar á dag núna. Við erum að gæla við þá hugmynd að ekki sé allt búið enn og að við eig- um eftir að fá gos. Hins vegar er ég hræddur um að það standist ef til vill ekki.“ -Langar þig til þess að fá gos? „Að sjálfsögðu, það er miklu skemmtilegra heldur en illviðri á veturna. Hvers vegna ættu menn ekki að vilja fá gos? Sumum finnst þetta sjálfsagt óguðleg hugsun en ég get ekki séð neitt á móti því að hafa skemmtileg gos öðru hverju." -Já ef þau valda ekki hættu. -Við erum alltaf að stofna einu og öðru í hættu? -En hvað er þá skemmtilegt við það að fá gos? „Þau eru falleg og það er spenn- andi að vita hvað verður af þeim og svo framvegis. Pau setja lit á tilveruna og ef maður væri aldrei í hættu með nokkurn skapaðan hlut þá held ég að lífið væri ekki þess virði að lifa því.“ -Þegar síðast gaus við Kröflu 18. nóvember 1981 voru 9 mánuð- ir liðnir frá því þar hafði gosið síð- ast og nú er liðið ár síðan. Og eins og Eysteinn sagði bendir ekkert til goss nú þótt auðvitað geti það skollið á með stuttum fyrirvara. Kröflueldar. Enn eitt bana- — ■' —ferðinni hún lenti framan á annarri bifreið sem kom á móti og skullu bílarnir saman af miklu afli. Unga stúlkan sem lést var 10 ára gömul og sat í framsæti en annað barn og öku- maður sluppu með minniháttar meiðsli. Ökumaður hinnar bif- reiðarinnar slapp án meiðsla.' Stúlkan hét Þórunn Lilja Krist- jánsdóttir, Stapasíðu 20. Banaslys í umferðinni hér á landi það sem af er þessu ári eru nú orðin 24 talsins, og tvö þeirra hafa orðið á Akureyri. Að sögn Ólafs Ásgeirssonar aðstoðaryfir- lögregluþjóns á Akureyri varð eitt banaslys í bænum á sl. ári, í september. Þá upplýsti Ólafur einnig að fyrstu 9 mánuði ársins hafi orðið 31 árekstur á Akureyri að meðaltali í mánuði. Hinsvegar urðu þeir 40 í október og nóvem- bermánuður ætlar einnig að verða slæmur. „Þetta er því miður allt á niðurleið hjá okkur, en vonandi tekst að spyrna við fótum,“ sagði Ólafur. Hörmulegt banaslys varð á Hörgárbraut á laugardags- kvöld er þar skullu saman tveir fólksbflar. Stúlka sem var far- þegi í öðrum bflnum lést er áreksturinn átti sér stað, en það var sem fyrr sagði á Hörgár- braut, á hæðinni við Skúta. Lada fólksbifreið var ekið í suðurátt. Skyndilega missti öku- maðurinn vald á bifreiðinni vegna hálku og skipti engum togum að Áreksturinn var mjög harður eins og sjá má á myndinni. Ljósmynd: KGA. Fjölbýlishúsið við Keilusíðu. 12 íbúðir af- hentar á næstunni „íbúðirnar eru ekki alveg til- búnar ennþá, það er verið að ganga frá hlutum í þeim sem gerðar voru athugasemdir við,“ sagði Helgi Bergs bæjar- stjóri á Akureyri er Dagur spurði hann um ástæðu þess að ekki hafí verið flutt inn í íbúðir þær sem leiguíbúðanefnd bæjarins lét byggja í fjölbýlis- húsi við Keilusíðu. „Híbýli hf. átti eftir að ganga frá örfáum atriðum og síðast þeg- ar ég vissi voru þeir ekki tilbúnir. Auk þess erum við ekki alveg búnir að ganga frá því að gera upp verkið við þá. Það eru ýmis áhorfsmál í því sambandi." - Hefur komið til tals að beita Híbýli dagsektum? „Það er auðvitað eitt af því sem rætt hefur verið um en á móti því koma ýmis aukaverk sem þurft hefur að vinna í húsinu. Það er ekki búið að ganga frá þessu en það er búið að auglýsa íbúðirnar og við gerum ráð fyrir því að 12 þeirra fari í útleigu hjá Félags- málaráði alveg á næstunni." - Er það þá rangt sem við höf- um heyrt að íbúðirnar hafi verið tilbúnar fyrir nokkrum vikum? „Það fer auðvitað eftir því við hvað menn eiga þegar þeir segja að þær hafi verið tilbúnar. Loka- úttekt fór fram fyrir nokkru síðan, ég skal ekki segja hvort það eru þrjár eða fjórar vikur og þá voru gerðar athugasemdir við nokkra hluti. Þeir áttu eftir að setja upp hillur og ganga frá póst- kössum og þvíumlíku. Þeir hafa verið að ganga frá því og við höf- um verið að reyna að ganga frá uppgjöri á þessu.“ # Músinvarðað rottufaraldri Sú saga lagði af stað, Ijósum logum, um bæinn að á sjúkra- húsinu ættu menn í harðvít- ugrí baráttu við litlar svartar rottur sem ofan á allt annað hefðu sogskálar á fótunum og væru hlaupandi upp um alla veggi. Óneitanlega setti óhug að mörgum, því alltaf var jú hætt við að faraldurinn breiddist út um bæinn. Ein- hverjum datt í hug að athuga málið nánar, og hafði sam- band við framkvæmdastjóra sjúkrahússins. Hann vildi lítt kannast við rottur með sog- skálar, en viðurkenndi hins- vegar að þar á bæ hef ðu menn verið að eltast við músargrey sem hefði laumast inn í ný- bygginguna í fyrstu frostum. Og samkvæmt áreiðanlegum heimildum lét músin sér gólf- íð nægja og lagði ekki af stað upp veggi. # Dreymdifyrir falli ríkis- stjórnarinnar Umræður verða á Alþingi í kvöld um vantrauststillögu Alþýðuflokksins á ríkisstjórn- ina. Útvarpað verður og sjón- varpað frá umræðunum og er mikið við haft. Einhvernveg- inn finnst mönnum nú að ann- ar ríkisfjölmiðiilinn hefði dug- að til að flytja landsmönnum þessar umræður-og þó. Þeir eru nefnilega til sem telja að þetta verði söguleg stund eða með öðrum orðum, ríkis- stjórnin verði felld í atkvæða- greiðslu um tillöguna. Hvern- ig má það vera? Jú, draum- spakur maður hefur séð fyrir að einn þingmanna Alþýðu- bandalagsins muni hlaupast undan merkjum og greiða vantrauststillögunni atkvæði sitt. Segir sagan að þessi um- ræddi þingmaður sítji á þingi fyrir Norðurlandskjördæmi eystra og heiti Stefán Jónsson. Nú er að sjá hversu draumspakur maðurinn reyn- ist. # Bærinnokkar Akureyri Ný hljómplata er að sjá dags- ins Ijós. Þetta er tveggja laga plata með lögunum „Bærinn okkar Akureyri" sem er mars eftir Karl Jónatansson og „Bóndavalsinum“. Sumir ætla að lagið um Akureyri eigi eftir að verða eins konar þjóðsöngur (búanna við Pollinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.