Dagur - 09.12.1982, Side 1
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 9. desember 1982
137. tölublað
Sjúkrabíll Dalvíkinga:
Eyðilagðist
í flutningi
„Þetta er stóráfall. Bfllinn er
mjög mikið skemmdur og
sennilega ónýtur,“ sagði Rögn-
valdur Skiði Friðbjömsson,
gjaldkeri Rauða kross deildar-
innar á Dalvík, en sjúkrabfll
sem deildin var að fá til landsins
stórskemmdist er brotsjór kom
á skipið sem hann var í og stórt
stykki, líklega gámur, þeyttist á
hann auk þess sem festingar
slitnuðu.
„Það er búið að taka okkur 13
mánuði að fá þennan bíl. Hann
kostaði 300 þúsund þegar við
pöntuðum hann, en kostar á milli
6 og 7 hundruð þúsund krónur í
dag. Við getum líklega ekki feng-
ið annan bíl fyrr en eftir hálft ár og
ég sé ekki að það verði hægt að
fjármagna þá hækkun sem verður
á nýjum bíl. Mér skilst að trygg-
ingar borgi verð bílsins eins og
það er í dag, en ekki nýjan bíl á
því verði sem hann verður á þegar
hann loks getur komið til
landsins. Annars eru þessi mál
ekki komin á hreint ennþá.
Við höfum verið með tvo bíla,
sumarbíl og jeppa til vetrarakst-
urs. Við ákváðum að selja báða
bílana og fá einn góðan sérútbú-
inn bíl í staðinn og erum þegar
búnir að selja jeppann. Eins og ég
sagði áðan átti bíllinn að kosta
300 þúsund og bíllinn sem er
óseldur var metinn á 150 þúsund.
Þetta átti því ekki að vera neitt
mál því Rauði kross íslands tekur
þátt í helmingi stofnkostnaðar.
Bíllinn sem við keyptum hækkaði
síðan um meira en 100% en gamli
bíllinn erennásamaverði. Vegna
þessa áfalls má búast við að bilið
verði ennþá stærra og eins víst að
við ráðum ekkert við að fara út í
þessa endurnýjun," sagði Rögn-
valdur að lokum.
Hafnarstræti:
Takmörkuð umferð
Umferðarnefnd hefur sam-
þykkt að öll umferð ökutækja
um göngugötu í Hafnarstræti
verði bönnuð, nema takmörk-
uð umferð vegna vörulosunar
og flutnings á sjúklingum og
hreyfíhömluðum að og frá
heilsugæslustofnunum.
Einnig var samþykkt að
akstursstefna verði frá suðri til
norðurs og til austurs sunnan
Ráðhústorgs. Allar bifreiðastöð-
ur verða bannaðar í göngugöt-
unni, nema fyrir hreyfihamlaða.
Hámarkshraði var ákveðinn 10
km. Akstur verður óbreyttur um-
hverfis Ráðhústorg, en bílastöður
við stöðumæla leyfðar í Brekku-
götu vestan Ráðhústorgs.
Stöðugt er unnið við uppfyllinguna yfir Torfunefsbryggjuna. Á dögunum var
grafínn firnamikill skurður í uppfyllinguna, en þar átti síðan að leggja rör. I
bakgrunni myndarinnar má sjá togarann Sólbak sem bíður þess að örlög hans
verði endanlega ákveðin. Mynd: áþ.
I I I I I I I I I
Ekkert fékkst
frá Þin og
íbúðinni
Samkvæmt upplýsingum frá
Hreini Pálssyni, bæjarlögmanni,
hefur verið tilkynnt um skiptalok
í þrotabúum íbúðarinnar hf. og
Pins hf. án þess að greiðsla fengist
upp í kröfur til Akureyrarbæjar.
Því verður að afskrifa skuldir
þessara aðila við Akureyrarbæ -
vegna íbúðarinnar kr. 36. 830 og
vegna Þins kr. 39.506.
Minjasafnið:
Vilja
stærri
lóð
Fyrir skömmu barst skipulags-
nefnd bréf frá Páli Helgasyni,
þar sem hann fyrir hönd stjórn-
ar Minjasafnsins á Akureyri,
fór þess á Ieit við skipulags-
nefnd að athugað verði um
stækkun lóðar Minjasafnsins í
Innbænum.
Umleitan þessi er til komin
vegna þess að svonefnt „Rauða
hús“ á að víkja úr miðbæ Akur-
eyrar vegna skipulags, og stjórn
Minjasafnsins hefur áhuga á að fá
hús þetta til varðveislu og nota, en
ekki er rými á lóðinni fyrir húsið.
Ekkert fast skipulag mun enn til
fyrir þann bæjarhluta sem hér um
ræðir.
Innflutningur á skipshlutum:
„Þaö er ekki verið að
taka vinnu frá neinum“
Fer Jón
Sólnes
í próf-
kjör?
„Það kemur í Ijós. Framboðs-
frestur er nú til 19. desember“,
sagði Jón G. Sólnes, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins og
fyrrverandi þingmaður, þegar
hann var spurður að því hvort
hann hygðist taka þátt í próf-
kjöri sjálfstæðismanna vegna
Alþingiskosninga á Akureyri.
Orðrómur gengur um það í
bænum að Jón hyggist gefa kost
á sér í prófkjörið, sem fram fer í
janúar. Hann hvorki neitar
þessu néjátaði.
Eins og fram hefur komið
hyggst Björn Dagbjartsson, for-
stjóri, taka þátt í prófkjörinu.
Látið hefur verið að því liggja
að Jón Sólnes og hans stuðn-
ingsmenn myndu styðja Björn,
þar til sögusagnir komust á
kreik um að Jón ætlaði sjálfur í
slaginn.
Á fundi í Félagi málmiðnaðar-
manna á Akureyri fyrir nokkru
var gerð samþykkt þar sem
mótmælt er harðlega innflutn-
ingi á skipshlutum sem tíðkast
hefur, svo og öðrum iðnvarn-
ingi sem hægt er að smíða
innanlands og er samkeppnis-
fær hvað varðar gæði. Þá var-
aði fundurinn mjög alvarlega
við slíku áframhaldi þar sem
yfírvofandi væri atvinnuleysi í
vissum iðngeinum. Samkvæmt
upplýsingum Dags snýst þessi
ályktun ekki síst um innflutning
Slippstöðvarinnar á Akureyri á
skipshlutum og var staðhæft að
búið væri að panta skipshluta
frá Danmörku í skip sem verið
er að smíða fyrir Grænhöfða-
eyjar.
Dagur sneri sér til Gunnars
Ragnars, forstjóra Slippstöðvar-
innar, og innti hann eftir því hvað
hæft væri í þessu. Gunnar stað-
festi að búið væri að panta hluta í
umrætt skip. Um væri að ræða
vélarundirstöðu og botnhluta.
„Það er ekki verið að taka
vinnu frá neinum með þessu held-
ur er verið að skapa vinnu fyrir
aðra starfshópa en járniðnaðar-
mennina. Stálsmíðin hefur alltaf
verið flöskuháls hjá okkur og ef
við hefðum ekki gert slíkt í gegn
um árin hefðum við jafnvel þurft
að segja upp t.d. trésmiðum og
rafvirkjum og jafnvel vélvirkjum
líka.
Við stóðum frammi fyrir því að
smíða bát fyrir Grænhöfðaeyjar
sem skila þarf næsta sumar. Þegar
við síðan fengum það verkefni að
endurbyggja skuttogarann
Hegranes frá Sauðárkróki, þar
-sem er mikil stálvinna auk tré-
smíða- og raflagnavinnu, urðum
við annað hvort að sleppa því
verkefni eða setja mannskap í
stálsmíðina í Hegranesinu og fá
hluta af stálsmíði í Grænhöfða-
eyjaskipið annars staðar frá. Við
leituðum til skipasmíðastöðvar-
innar á Akranesi en þeir gátu ekki
byrjað á verkefninu fyrr en um
það leyti sem það hefði þurft að
klárast, þ.e. í lok janúar," sagði
Gunnar Ragnars. Hann sagðist
vera búinn að útskýra þetta
hundrað sinnum en menn virtust
aldrei skilja.