Dagur - 09.12.1982, Side 8

Dagur - 09.12.1982, Side 8
Akureyri, fímmtudagur 9. desember 1982 RAFGEYMAR í BfLINN. BÁTINN, VINNUVÉUNA VEUIÐ RÉTT MERKI Deild fyrir áfengis- sjúklinga bíður full- búin í Kristnesi! — en rekstrarheimild vantar „Okkur vantar heimild til að ráða starfslið. Ég er nokkuð bjartsýnn á að við fáum heimild til að hefja rekstur í vor,“ sagðr Bjarni Arthursson, fram- kvæmdastjóri Kristneshælis, um deild fyrir áfengissjúklinga sem bíður nær tilbúin í Krist- nesi. Þar verða 10 rúm. „Þetta er svokölluð móttökudeild fyrir áfengissjúklinga og þjónar á sama hátt og t.d. Silungapoll- ur.“ Bjarni sagði að þetta væri fyrsta deildin sinnar tegundar á Norður- landi. „Það erenginn vafi á að það er gífurleg þörf fyrir deild af þessu tagi. Við erum undir miklum þrýstingi að opna frá aðstandend- um áfengissjúklinga sem og frá óvirkum alkóhólistum." Á sínum tíma var hægt að taka á móti ein- um og einum alkólólista í Krist- nesi, en vegna breyttra aðstæðna er það ekki lengur hægt. Af þeim sökum m.a. er meiri þörf á að deildin sem Bjarni ræddi um kom- ist í notkun sem fyrst. Deildin er í nýlegu húsnæði og hefur að sögn Bjarna ekki verið notuð áður í „læknisfræðilegum tilgangi“. Hún verður útaf fyrir sig en mun fá alla þjónustu svo sem mat og þ.h. úr aðalbygging- unni. Ekki er hægt að koma fleiri rúmum fyrir í húsinu. „Ætlunin er að við útskrifum þessa sjúklinga, en þá eiga þeir að fara á aðrar stofnanir svo sem að Sogni eða Vífilstöðum. Að lokum eiga menn þess kost að fara að Staðarfelli í Dölum. Bjarni sagði að deild eins og sú sem ætlunin er að taki til starfa í Kristnesi kallaði á stofnun hér fyrir norðan, sem gæti tekið við þeim sem útskrifuð- ust frá Kristnesi. „Það má segja að ef er full nýting á þessum rúm- um hjá okkur þá þurfi a.m.k. 40 rúma framhaldsdeild,“ sagði Bjarni. Forval hjá Alþýðu banda lagi Ákveðið hefur verið að viðhafa forval í tveimur umferðum til ákvörðunar lista Alþýðu- bandalagsins í komandi kosn- ingum. í fyrri umferð, sem lýkur 15. janúar, á að tilnefna fjóra menn án röðunar. í seinni umferð taka þátt átta efstu úr fyrri umferð en uppstillinganefnd hefur heimild til að bæta við tveimur nöfnum. Númerað verður í fyrstu fjögur sætin og lýkur þessari síðari um- ferð 5. febrúar nk. Forvalið er bundið við flokks- félaga í Alþýðubandalaginu. Formaður uppstillinganefndar er Páll Hlöðversson á Akureyri. Jólin eru komin í glúgga kaupmanna Stöovast bátafloti Húsvíkinga um helgina? Utgerðarmenn á Húsavík sam- þykktu á fundi sl. sunnudag að leggja skipum sínum um næstu helgi verði ekki búið að fínna lausn á vanda útgerðarinnar fyrir þann tíma. Nú er svo kom- ið að olíusöludeild KÞ getur ekki lengur afgreitt olíu til bátanna og þeirra tveggja tog- ara sem héðan eru gerðir út nema gegn staðgreiðslu. Skuld- ir útgerðarinnar við olíusöluna nema á milli 5 og 6 milljónum króna. í viðtali við Dag sagði Bjarni Aðalgeirsson, bæjarstjóri og út- gerðarmaður, að með þessari samþykkt útgerðarmanna væri einungis verið að fara fram á það við stjórnvöld að þau stæðu við gefið fyrirheit um að iausaskuld- um útgerðarinnar yrði breytt í föst lán. Á Húsavík stæðu mál þannig að útgerðin skuldaði við- skiptabönkunum sáralítið fé. Aðalskuldirnar eru hins vegar við kaupfélagið og sér í lagi olfusölu- deildina. Bjarni sagði að mönnum fynd- ist það eðlilegt að stjórnvöld tækju olíuskuldirnar með þegar verið væri að gefa fyrirheit um skuldbreytingu þar sem greiðslu- vandi Húsvíkinga væri í veruleg- um mæli tengdur þessu eina fyrir- tæki, sem augljóslega gæti ekki lánað endalaust. Hann sagði að það væru ekki allir útgerðaraðilar sem skulduðu olíu. Hins vegar væri staðan þannig í dag að margir þeirra gætu ekki staðgreitt olíuna. Aflabrögð hefðu verið með ein- dæmum léleg um langt skeið og bátarnir þurft að róa mun lengra en oft áður. Það þýddi auðvitað mun meiri olíukostnað sem svo leiddi það af sér að útgerðarmenn ættu erfitt með að sinna launa- greiðslum og öðrum tilfallandi greiðslum. Bjarni sagði að lokum að hann tryði því ekki að til þess þyrfti að koma að útgerðarmenn neyddust til þess að leggja skipum sínum. „Það hlýtur að vera hægt að ieysa þetta mál fyrir helgi," sagði Bjarni. Þ.B. Húsavík. Tölvustofan í GA er hin vistlegasta. T.v. eru tveir nemendur að vinna á tölv- urnar en þá kemur Baldvin Bjarnason, Bernharð Haraldsson, Magnús Aðal- bjömsson og Ólafur Búi Gunnlaugsson. Mynd: á.þ. Vilja halda örtölvu- námskeið Ef næg þátttaka fæst verður haldið tölvunámskeið fyrir al- menning í Gagnfræðaskólan- um. Tölvukennarar framhalds- skóla bæjarins hafa lýst sig reiðubúna til að standa fyrir námskeiðum eftir áramótin eða jafnvel milli jóla og nýjárs ef nægur áhugi er fyrir hendi. Það kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá GA að í fyrstu eru fyrir- huguð tvenns konar námskeið, þ.e. kynning á tölvum (grunn- námskeið) og forritun (BASIC). Ef áhugi er nægur og vel tekst til er ekkert því til fyrirstöðu að halda framhaldsnámskeið, svo sem í meiri forritun, ritvinnslu, áætlanagerð, ýmis konar bók- haldi og jafnvel hafa barnanám- skeið næsta sumar. Gagnfræða- skólinn hefur ákveðið að hafa sýningu á örtölvun og tölvubún- aði helgina 11. til 12. desember nk. 13.30 til 16.00 til að gefa al- menningi tækifæri til að vega og meta þessi nýju tæki. Þessi sýning er mikils virði fyrir bæjarbúa, enda gerast örtölvur æ algengari. Þeim sem hafa áhuga á þessu máli er bent á auglýsingu frá Gagn- fræðaskólanum í blaðinu í dag. # Tölvur Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að tölvur og tölvu- tækni hafa rutt sér til rúms á mörgum sviðum. Opinberar stofnanir, bankar, sjúkrahús og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum hafa tekið þetta galdratæki í þjónustu sína. Bæjarstjórn Akureyrar veitti Gagnfræðaskóia Akureyrar ríflega upphæð sumarið 1981 til kaupa á tölvum og tölvu- búnaði. Ein kennslustofa var sérstaklega innréttuð fyrir tölvurnar um áramótin 1981/ 82. Verslunardeild GA og 9. bekkur grunnskóla njóta þar fræðslu í tölvufræðum. # Viljakennaá tölvurnar Eins og kemur fram annars staðar í blaðinu hafa tölvu- kennarar framhaldsskóla bæjarins lýst því yfir að þeir séu tilbúnir að kenna bæjar- búum á þessi tæki - ef næg þátttaka fæst. Ailmargir ein- stakiingar og stjórnendur fyrirtækja hafa látið í Ijós áhuga á slíku námskeiði og ef að líkum lætur verða kennar- arnir að halda mörg námskeið áður en bæjarbúar hafa feng- ið sig fullsadda. Örtölvur hafa þegar haldið innreið sfna á heimili landsmanna, en Akur- eyringum gefst tækifæri á að sjá sýnishorn af þessum grip- um í GA um næstu helgi. # Ekkiverður þverfótað fyrir lögfræðingum Oft geta „smá“ mál dregið dilk á eftir sér. Dagur sagði frá því ekki alls fyrir löngu að nú væri deilt um brauð í Sunnuhlíð og væri búið að setja á fót gerð- ardóm í málinu. Gerðardóm- urinn tók til starfa en fljótt kom í Ijós að málið var um- fangsmeira en menn höfðu gert ráð fyrir í upphafi. Nú eru alls fimm lögfræðingar komn- ir í málið. Eftir því sem S&S kemst næst er þetta helming- ur starfandi lögfræðinga í bænum.... # Bílastyrkur óskast í Kjaranefnd Akureyrarbæjar voru á síðasta fundi lögð inn erindi, þar sem óskað var eftir að ákvarðaður væri bílastyrk- ur fyrir: Amtsbókavörð, hér- aðsskjalavörð og húsvörð hjá Félagsmálastofnun (eftirlitsm. með leiguíbúðum). Málinu var vísað til undirnefndar til könnunar en í henni sitja þeir Erlingur Aðalsteinsson og Björn Jósef Arnviðarson, og munu þeir kalla fyrir sig of- angreinda aðila. Kjaranefnd ákvað þó að til bráðabirgða skuli húsvörður hjá Félags- málstofnun fá greitt fyrir 700 km. akstur á mánuði.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.