Dagur - 13.01.1983, Síða 7
Stórleikur
í körfunni!
Stórleikur verður í íþrótta-
skemmunni á Iaugardag kl.
15, en þá leika þar Þór og
Haukar í l.deild íslandsmóts-
ins í körfuknattleik. Segja má
að þessi leikur sé geysilega
mikilvægur báðum liðunum
og þá ekki síður Þórsurum
sem hreinlega verða að sigra
til þess að vera með í barátt-
unni um sæti í Úrvalsdeild að
ári.
Liðin hafa leikið einn leik, og
þá sigruðu Haukar með þriggja
stiga mun 74:71 eftir geysilega
baráttu. Haukarnir hafa ekki
tapað leik í mótinu sem af er, en
Þór er með tvö töp, gegn Hauk-
um og ÍS. Af því sést hversu
mikilvægur leikurinn er fyrir
Þór.
Þessi leikur verður sem fyrr
segir í Skemmunni kl. 15 á laug-
ardag. Ástæðan fyrir því að
hann verður ekki í nýju íþrótta-
höllinni er sú að þar eru ekki
kommnar upp körfur og eru
körfuknattleiksmenn mjög
óhressir með að svo skuli ekki
vera. Enn verður gamla Skemm-
an því vettvangur stórleiks í
körfuknattleik.
Full ástæða er til að hvetja
fólk til að fjölmenna á þessa
viðureign Þórs og Hauka, von er
á mjög jöfnum og spennandi leik
og stuðningur áhorfenda getur
haft mikið að segja fyrir Þórs-
ara.
Rúnar Þór Bjömsson „Íþróttamaður ársins“ hjá Íþróttafélagi fatlaðra á
Akureyri.
Iþróttamaður ársins hjá IFA:
Aðalsteinn
fer
til Eyja
Aðalsteinn Jóhannsson, mark-
maður hjá KA, hefur nú óskað
eftir félagaskiptum úr KA yfir til
Vestmannaeyja og hyggst hann
leika þar með ÍBV næsta
keppnistímabil.
Formaður knattspyrnudeildar
KA staðfesti þetta við blaða-
mann íþróttasíðunnar.
Adidasmóti
frestað
Adidasmótinu í handknattleik,
sem vera átti í íþróttahöllinni nú
um helgina, hefur nú verið frest-
að um sinn. Reykjavíkurfélögin
sem koma ætluðu norður ósk-
uðu eftir frestuninni þar eð þau
áttu áríðandi leiki strax eftir
helgina í fyrstu deild.
Rúnar Þór
var kjörinn
Hið árlega „Desembermót“
íþróttafélags fatlaðra á Akur-
eyri var haldið í síðasta mán-
uði. Keppt var í eftirtöldum
greinum: Boccia, borðtennis
og bogfimi. Helstu úrslit urðu
þessi:
Boccia:
1. Björn Magnússon
2. Sigurrós Karlsdóttir
3. Þorsteinn Williamsson
4. Tryggvi Gunnarsson
Yngri flokkur:
1. Stefán Thorarensen
2. Magnús Þórhallsson
3. Elvar Thorarensen
í hófi er haldið var 30. des-
eir.ber var íþróttamaður ársins
hjá félaginu kynntur. Það sæmd-
arheiti hlaut Rúnar Þór
Björnsson.
Rúnar Þór er vel að þessum
titli kominn, hann stóð sig mjög
vel á íþróttamótum á síðasta ári
og var m.a. valinn til að keppa
fyrir íslands hönd á Stoke-
Mandeville leikunum sem er al-
þjóðlegt íþróttamót fatlaðra í
Englandi.
Um miðjan mars mun íþrótta-
félag fatlaðra standa fyrir opnu
íþróttamóti fyrir fatlaða á Ak-
ureyri og búist er við þátttöku
víðsvegar að af landinu.
Gunnar
fékk
mokka-
jakka
Á 55 ára afmælishátíð KA í
Sjallanum á laugardagskvöldið
var happdrætti meðal gesta
Sjallans á vegum handknatt-
leiksdeildarinnar.
Stjórn deildarinnar óskar eftir
að koma því á framfæri að vinn-
ingsnúmerið 255, sem svo mjög
var auglýst þá um kvöldið, sé
komið í leitirnar.
Eigandi þess hafði farið
snemma af hátíðinni en það var
Gunnar Níelsson, starfsmaður
íþróttahallarinnar.
Hann fékk í vinning mokka-
jakka frá Iðnaðardeild Sam-
bandsins.
Skíðamót
Borðtennis:
1. Hafdís Gunnarsdóttir
2. Sigurrós Karlsdóttir
Yngri flokkur:
1. Stefán Thorarensen
2. Elvar Thorarensen
3. Magnús Þorvaldsson
Bogfimi:
1. Hafliði Guðmundsson
2. Aðalbjörg Sigurðardóttir
3. Magnús Asgeirsson
Fyrstu skíðamót vetrarins
verða haldin í Hlíðarfjalli um
helgina.
A laugardag hefst Stórsvigs-
mót Þórs í karla-og kvenna-
flokki kl. 11.30ogklukkustundu
síðar fyrir 9 ára og yngri.
Á sunnudag hefst Svigmót
KA fyrir konur og karla kl.
11,30 og kl. 12 Stórsvigsmót
Þórs fyrir 10-12 ára. Skráning fer
fram í Strýtu klukkustund fyrir
keppni.
Jazzdansstudio Alice
Glerárgötu 26 (áður Pallas)
10 vikna námskeið hefjast mánudaginn
17. janúar (20tímar).
★ Unglingar, framhaldsflokkar.
★ Konur, byrjendur, framhald.
★ Sturtur.
★ Sauna.
★ Vigtun og mæling fyrir þá sem vilja.
★ Jane Fonda prógram.
Upplýsingar og innritun í síma 25590 frá ki. 6-8 e.h.
Ath.: Afhending skírteina fer fram sunnudag-
inn 16. janúar frá kl. 4-6 e.h.
Aðalfundur
Skautafélags Akureyrar
verður haldinn fimmtudaginn
20. janúar kl. 20.00 í
kaffistofu Garðræktarinnar.
Venjuleg aðalfundarstörf.
önnurmál.
Stjórnin.
Frá Pósti og
síma Akureyri
Þar sem stækkun sjálfvirku símstöðvarinnar á Ak-
ureyri verður lokið um miðjan febrúar, eru þeir sem
ekki hafa látið skrá sig fyrir síma beðnir að hafa
samband við skrifstofu stöðvarstjóra, Hafnarstræti
102, á annarri hæð, sem fyrst.
Allar breytingar í næstu símaskrá þurfa að ber-
ast skrifstofunni fyrir næstu mánaðamót.
Stöðvarstjóri.
Skrifstofustarf
Laust er til umsóknar starf á skrifstofu Dalvíkur-
bæjar. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar nk. Um-
sóknum skal skila til undirritaðs sem, ásamt
bæjarritara, veitir allar nánari upplýsingar.
Bæjarstjórinn á Dalvík.
Háseta vantar á netabát
Aðeins vanir menn koma til greina. Upplýsingar í
síma 61149.
Tannsmíði!
Rúmlega þrítug laghent kona óskar eftir að kom-
ast í tannsmíðanám á Akureyri, helst sem fyrst.
Þeir sem áhuga hafa á því að taka nema í tann-
smíði vinsamlegast leggið nöfn yðar í pósthólf
861, Akureyri.
Vantar stýrimann
og háseta á netabát
sem fer suður á vertíð.
Upplýsingar í síma 63152.
13. janúar 1983 - DAGUR - 7