Dagur - 20.01.1983, Blaðsíða 8
LiMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAP
Dalvík, 17. janúar.
Fyrírtækið Söltunarfélag Dal-
víkur og frystihús KEA á Dal-
vík hafa tekið saman gæða-
skiptingu á mótteknum þorski
1982 hjá þeim fjórum togurum
sem gerðir eru út frá Dalvík.
Björgúlfur, nýi togari Útgerð-
arfélags Dalvíkur, er með hæsta
hlutfall í 1. gæðaflokk eða92,3%.
Pá kemur Baldur sem er eign
Ufsastrandar hf. með 91,9%,
Dalborg, togari Söltunarfélags
Dalvíkur, er með 91,4% og rest-
ina rekur svo Björgvin, eldri tog->
ari Útgerðarfélags Dalvíkur með
85,5% í fyrsta gæðaflokk.
í 2. gæðaflokk eru allir togar-
arnir nema Björgvin með mjög
svipað hlutfall eða rúmlega 7% en
Björgvin er með tæp 12%. í 3.
gæðaflokk er einnig svipað hjá
öllum nema Björgvin sem er með
2,8% í 3. gæðaflokk.
Afli þessara skipa var misjafn.
Björgúlfur aflaði um 3.500 tonn
og var þorskur um 2.200 tonn eða
tæp 63%. Björgvin aflaði um
3.200 tonn og var þorskur um
1.700 tonn eða 54%. Dalborg
aflaði um 1.750 tonn og var þorsk-
ur tæp 1.400 tonn eða 88%. Bald-
ur aflaði rúmlega 1.500 tonn og
var þorskur því til vinnslu á Dal-
vík tæp lOjþúsund tonn.
Pað er mat undirritaðs að meira
þurfi að fjalla um gæðaniðurstöð-
ur og verðmæti fengins afla en
magn. Nú á tímum fullnýttra og
jafnvel ofnýttra fiskistofna skiptir
mestu að verðmæti afla og afurðir
síðar meir færi þjóðarbúinu sem
mestar tekjur. Við síðustu fisk-
verðsákvörðun hækkaði fyrsti
gæðaflokkur um 21% en verri
fiskur aðeins um tæp 10%. Ætti
þetta að stuðla að meiri gæðum.
Að sögn Jóns Helgasonar, yfir-
fiskmatsmanns á Norðurlandi
eystra, virðist skilningur fyrir
auknum gæðum vera að aukast,
bæði hjá sjómönnum og þeim sem
vinna við aflann. í jólastoppi tog-
aranna á Dalvík var t.d. endur-
bætt fiskþvottaaðstaða í togaran-
um Björgvin þannig að nú ætti
hlutfall í 1. gæðaflokk þar að
aukast. Við skulum vona að það
verði í heild um aukin gæði og þar
með verðmæti að ræða í íslensk-
um sjávarútvegi. . „
Togarínn Björgúlfur.
Annað mesta framleiðslu-
ár sjávarafurðadeildar
Á síðastliðnu ári framleiddu
Sambandsfrystihúsin 36 þús-
und tonn af frystum sjávaraf-
urðum og er það um 15% meira
en árið 1981, en þá var fram-
leiðslan 31.300 tonn. Þrátt fyrir
mikinn samdrátt í þorskafla,
sem óhjákvæmilega leiddi til
minni frystingar þorskafurða,
varð árið 1982 annað mesta
framleiðsluár í sögu sjávaraf-
urðadeildar.
Samdráttur í frystum þorsk-
afurðum nam um 11% frá árinu á
undan, en þess ber að geta að
samdráttur í þorskafla er talinn
nema um 20%. Fryst voru 13.200
tonn af þorski, 4.140 tonn af ýsu,
sem er 31% aukning, 780 tonn af
steinbít sem er 77% aukning,
6.760 tonn af karfa og er aukning-
in 32%, 3.270 tonn af ufsa sem er
40% aukning, 470 tonn af skar-
kola og er aukningin 38% og
2.720 tonn af grálúðu og nemur
aukningin þar 88%. Samtals varð
aukningin í frystingu botnfisk-
afurða 13% og nam samtals
31.660 tonnum.
Mest aukning varð í frystingu
síldarflaka, eða 227%, og voru
fryst 980 tonn. Þá varð einnig
aukning í frystingu humars og
rækju og á heilfrystri síld. Um
50% samdráttur varð hins vegar í
frystingu hrogna og 45% sam-
dráttur í frystingu loðnu.
Eins og áður sagði varð 1982
annað mesta framleiðsluárið í
sögu sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins, en metárið var 1979
þegar framleidd voru 36.400
tonn.
DALVÍK:
Björgúlfur
með
besta matið
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Öll skreiðin
enn óseld
Mjólkursamlag KP:
2.8%
mjólkur-
aukning
Innvegin mjólk hjá Mjólkur-
samlagi K.Þ. var 6.666.654 lítr-
ar á árinu 1982, sem er um 2,8%
aukning frá árinu 1981. Á ný-
liðnu ári seldiu samlagið um 1,1
millj. lítra af nýmjólk, 33 tonn
af léttmjólk, 37 tonn af rjóma,
107 tonn af sýrðri mjólk, 36
tonn af undanrennu, 27 tonn af
jógúrt og 13 tonn af skyrmysu.
Þá voru framleidd um 45 tonn
af skyri og um 75 tonn af smjöri.
Skyrframleiðslan minnkaði lítil-
lega á kostnað jógurtsins, en árið
1982 er fyrsta heila árið sem
mjólkursamlagið framleiðir
jógurt.
Ostaframleiðslan nam rúmlega
470 tonnum, eða um 3,5% meiri
en árið 1981. Samlagið framleiðir
sjö tegundir osta. Mest var fram-
leitt af Gouda með 28% fitu, um
165 tonn. Mikið var framleitt af
Búra, sem margir þekkja fyrir
mikið hnossgæti. Búri er mjög
feitur ostur (39%). Framleiðslan
á honum nam réttum 75 tonnum
sem er aukning frá árinu 1981 um
28%.
Húsavík 18. janúar.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur tók
á móti 11.577 tonnum af fiski á
árinu 1982 sem er um 10%
minni afli en á árinu þar áður.
Að langmestu leyti er aflinn
þorskur en inn í þessari tölu eru
420 tonn af sfld og 177 tonn af
rækju.
Á sl. ári framleiddi Fiskiðju-
samlagið um 3.200 lestir af fryst-
um flökum, 900 lestir af saltfiski
og um 200 lestir af skreið. Freð-
fisk- og saltfiskframleiðsla var
svipuð og árið á undan en helm-
ingi minna var framleitt af skreið.
Einnig var lítilsháttar samdráttur
í síldveiðum.
Þetta kom fram í samtali við
Tryggva Finnsson, framkvæmda-
stjóra Fiskiðjusamlags Húsavík-
ur. Tryggvi sagði að birgðir væru
eðlilegar hjá fyrirtækinu, nema í
skreiðinni, en öll framleiðsla síð-
asta árs í skreið væri enn óseld svo
og hluti framleiðslunnar frá 1981.
Hann sagði að of miklir fjármunir
væru bundnir í þessum birgðum
sem hefðu gert það að verkum að
lausafjárstaða fyrirtækisins hefði
verið erfið allt síðasta ár.
Vinna í Fiskiðjusamlaginu það
sem af er árinu? „Fólk hefur verið
að smátínast inn,“ eins ogTryggvi
orðaði það og það var fyrst í byrj-
un þessarar viku sem allir starfs-
menn voru komnir til starfa. Kol-
beinsey kom á mánudag með 80
tonn, Júlíus er búinn að landa
tvisvar frá áramótum, um 80
tonnum. Gæftaleysi hefur hamlað
veiðum minni báta frá áramótum.
Á síðasta ári fékk Kolbeinsey
tæplega 3.500 tonn og Júlíus Haf-
stein 2.040 tonn.
Þ.B.
Sveitastjórnatal
á Norðurlandi
Fjórðungssamband Norðlend-
inga hefur gefið út Sveitar-
stjórnarmanntal á Norðurlandi
1982-1986.
í sveitarstjórnarmanntalinu er
getið um aðalmenn og varamenn í
bæjarstjórnum og hreppsnefnd-
um, sýslumenn, bæjarstjóra,
bæjarritara, sveitarstjóra,
oddvita og sýslunefndarmenn.
Mikill fengur er í þessu uppslátt-
arriti Fjórðungssambandsins.
# Listitil
framdráttar
Nú standa prófkjör stjórn-
málaflokkanna yfir og úrslitin
birtast jafnóðum og þeim
lýkur. Hjá íhaldinu í Vestur-
landskjördæmi var búist við
mikilli baráttu vegna stöðu
Friðjóns Þórðarsonar í stjórn-
málunum undanfarið og setu
hans í ríkisstjórninni og var
jafnvel haft á orði að hart yrði
saumað að honum í efsta
sætinu. En úrslitin urðu á
annan veg. Friðjón vann yfir-
burðasigur og ( næstu tveim-
ur sætum urðu yfirlýstir
stuðningsmenn Friðjóns. Það
var ekki fyrr en í 4. sætinu að
stuðningsmaður „Geirsarms-
ins“ komstað. Og hvað skyldf
svo Geir sjálfur hafa haft um
úrslitin að segja: „Ég vonast
til þess að listi flokksins í
Vesturlandskjördæmi verðl
sterkur og Sjálfstæðisflokkn-
um til framdráttar11. - Skyldí
hann hafa verið ánægður með
að sá stuðningsmaður hans
sem lengst náði komst í 4.
sætið? Hver veit, enda unir
hann sjálfur vel í sínu sæti í
Reykjavík eins og alþjóð veit.
# Menngeta
andað léttar
Það kom mörgum á óvart er
það fréttist að Ólafur Ragnar
Grfmsson alþingismaður
allaballa hefði orðið í 6. sæti (
fyrri umferð forvals A.bl. (
Norðurlandskjördæmi eystra,
því hann situr á þingi sem
þingmaður Reykvíklnga sem
kunnugt er. Óaði margan við
að fá Ólaf (slaginn hér nyrðra,
en nú hefur Ólafur upplýst að
sá ótti sé ástæðulaus. Hann
túlkar að vísu úrslitin sem
mikinn sigur fyrir sig, en lýsir
því jafnframt yfir að hann ætli
ekki í framboð hér. Nú er eins
víst að margir andi léttar, ekkf
síst allaballar hér nyrðra, en
aumingja Reykvíkingarnir
mega sitja uppi með hann
a.m.k. fram að kosningum.
# Vilmundurá
þingflokks-
fundi
Hann var bara býsna góður
„dropinn“ (Tímanum þarsem
skýrt var frá því að Vilmundur
Gylfason hefði verið upptek-
inn á þingflokksfundi hjá
„Bandalagi jafnaðarmanna“
er blaðamaður Tímans vildl
ná sambandi við hann á Al-
þingi. Ýmsar vangaveltur
hljóta að skjótast fram vegna
þessa, eins og t.d. sú hvort
„þingflokkurinn Vilmundur“
hafi átt ( hörðum deilum á
fundinum, eða þá hvort at-
kvæðagreiðslur á fundinum
hafi verið leynilegar. Annars
er það mjög líklegt að þing-
flokksfundir „Bandalags jafn-
aðarmanna" taki ekki mikið
pláss í sölum Alþingis. Þess-
ar vangaveltur verða svo
ósjálfrátt til þess að hugurinn
hvarfll að fundahöldum Al-
þýðuflokksmanna á Dalvík,
sem sagðir eru hittast reglu-
lega ( almenningssímaklefa
staðarins.