Dagur - 08.02.1983, Qupperneq 6
„Maðurinn
er lista-
maður“
(Van Gogh)
Leikfélag Akureyrar/Bréfberinn
frá Arles
Höfundur: Ernst Braun Olsen
Þýðing: Úlfur Hjörvar
Leikstjóri: Haukur Gunnarsson
Leikmynd: Svein Lund-Roland
Leikhljóð: Þórarinn Ágústsson
Aðalhlutverk:
Bréfberinn: Þráinn Karlsson
Van Gogh: Viðar Eggertsson
Frú Roulin (kona bréfberans):
Sunna Borg
Lýsing: Viðar Garðarsson
Leikhlóð: Þórarinn Ágústsson
Sýning Leikfélags Akureyrar á
leikritinu „Bréfberinn frá Arles“
eftir danska rithöfundinn Ernst
Braun Olsen, er sennilega eitt
allra erfiðasta verkefni sem leik-
félagið hefur tekist á við allt frá
upphafi. Þrátt fyrir einfaldleikann
á yfirborðinu, er verkið marg-
slungið og ekki á færi nema
mikilla leikara að gera því við-
hlýtandi skil. En það er ekki nóg
að vera góður leikari. Viðkom-
andi þurfa að vera barmafullir af
mannlegum tilfinningum og mér
segir svo hugur að leikararnir hjá
Leikfélagi Akureyrar hafi þurft
að gefa mikið af sjálfum sér til
þess að gera þessa sýningu mögu-
lega.
„Bréfberinn frá Arles“ lýsir
síðustu tveim æviárum hollenska
stórmálarans, Vincent van Gogh
og samskiptum hans við bæjarbúa
í suður franska smábænum Arles.
Van Gogh kemur til bæjarins til
að mála og draumur hans er að
setja á fót vinnustofu og sambýli
listamanna í bænum. Hann hrífst
mjög af litadýrðinni og birtunni í
Arles, en þrátt fyrir góðan vilja er
honum tekið með tortryggni af
bæjarbúum og verður flótlega
nokkurs konar utangarðsmaður
(eða Sölvi Helgason þeirra slóða
eins og einhver hefur orðað það
svo snilldarlega). Það er aðeins
bréfberinn Roulin og fjölskylda
hans sem taka van Gogh opnum
örmum,en leikritið lýsir síðan
samskiptum þeirra og annara
bæjarbúa. Um þá sögu verður
ekki fjölyrt hér, enda er sjón sögu
ríkari.
Það er mín skoðum að með
þessari sýningu hafi Leikfélag
Akureyrar unnið sannkallaðan
leiksigur og Akureyringar hafa
fulla ástæðu til að vera stoltir af
leikhúsi sínu. Þetta er jafnframt
persónusigur nokkurra einstak-
linga og mér er reyndar til efs að
menn hafi í langan tíma leikið
betur en t.a.m. Þráinn Karlsson,
sem leikur bréfberann Roulin.
Meðferð hans á þessu erfiða hlut-
verki er ákaflega trúverðug og
stórkostleg í senn. Viðar Eggerts-
son, sem leikur van Gogh, stend-
ur Þráni ekki langt að baki og sér-
staklega tekst honum meistara-
lega upp í þeim atriðum sem
reyna á látbragð og svipbrigði.
Má reyndar segja að Viðar sé á
köflum óhugnarlega sannfærandi,
en vonandi kemst hann heill á eyr-
um og æði frá þessum sýningum.
Þriðja aðalhlutverkið er leikið af
Sunnu Borg, en hún leikur konu
bréfberans. Þetta er krefjandi
hlutverk sem Sunna gerir góð skil
og ég er sannfærður um að sér-
staklega senurnar þar sem hún og
bóndi hennar ræða málin eiga
Frá æfingu á „Bréfberanum“. Haukur Gunnarsson, leikstjóri, leggur á ráðin.
Á sviðinu eru Viðar Eggertsson, Þráinn Karlsson og Kjartan Bergmundsson.
eftir að kæta marga. Hlutverk
Sunnu er að mörgu leyti eitt það
allra erfiðasta í sýningunni og
stafar það meðal annars af því að
hún stendur nokkuð í skugga
bréfberans og listamannsins á
sviðinu og þarf því með svipbrigð-
um að túlka miklar og ríkar til-
finningar. í þessu efni er vandrat-
aður hinn gullni meðalvegur, en
þegar á allt er litið, gerir Sunna
hlutverki sínu ágæt skil.
Þó að aðrir leikendur verði ekki
tíundaðir hér, þá er ekki þar með
sagt að þeir eigi ekki hrós skilið
fyrir frammistöðuna. Það eiga
þeir fyllilega, því að „Bréfberinn
frá Arles“ er ekki síst sigur sterkr-
ar leikheildar og lýsing og leik-
hljóð auka enn frekar á áhrifa-
máttinn.
Það þarf sem sagt ekki mikinn
sérfræðing til að sjá að Leikfélag
Akureyrar hefur „billerað“ mcð
Mynd: ESE
þessari sýningu, en mér segir svo
hugur um að sérfræðiþekkingu
þurfi til að skýra hlut leikstjórans
Hauks Gunnarssonar. Þó er ég
ekki í vafa um að þarna hefur
Haukur bætt enn einni skraut-
fjöðrinni í hatt sinn á glæsilegum
ferli og höfuðborgarbúar eiga svo
sannarlega gott í vændum ef
Hauki tekst jafnvel upp hjá Leik-
félagi Reykjavíkur, þar sem hann
leikstýrir næst, og raunin hefur
orðið á hjá Leikfélagi Akureyrar.
Leikmynd Norðmannsins
Svein Lund-Roland mælir með sér
sjálf, enda er ég langt í frá sá eini
sem hrifist hefur af henni. Það
þarf dirfsku til að breyta út af því
hefðbundna, en ekki þætti mér
ólíklegt að leikmyndin sem Svein
Lund-Roland hefur gert fyrir
L.A., yrði notuð víðar í framtíð-
inni.
Eiríkur St. Eiríksson
I þágu franiþróunur verður jafnvel steinsteypan að gefa undan, en forgengl-
legri efni eins og tréð standa óhögguð.
Bita fyrir bita hverfur húsið við Geislagötu í vélkjaftinn.
6 - DAGUR - 8. febrúar 1983
Samvinnuhreyfingin undirbýr aðgerðir
vegna aðsteðjandi efnahagsvanda
|ill
i
Samband ísl. samvinnufélaga
og kaupfélögin innan vébanda
þess hafa ákveðið að grípa til
aðhaldsaðgerða í rekstri sínum
vegna þeirra efnahagserfið-
leika sem nú steðja að í þjóðar-
búinu. Meðal annars verða
hafnar víðtækar aðgerðir til
sparnaðar og hagræðingar í
samvinnurekstrinum, tekin
verður upp útlánastefna sem
beinist að því að minnka fjár-
bindingu í útlánum, leitast
verður við eftir megni að
minnka fjárbindingu í vöru-
birgðum og dregið verður eins
og frekast er unnt úr fjárfest-
ingum.
Þetta voru niðurstöður sam-
starfsfundar með kaupfélagsstjór-
um og stjórnarformönnum kaup-
félaganna sem haldinn var í
Holtagörðum í Reykjavík sl.
föstudag, 28. janúar. Þar kom
fram að íslenska þjóðin stendur
nú frammi fyrir alvarlegum efna-
hagsvanda og atvinnulífi þjóðar-
innar er nú stefnt í mikla hættu
vegna hins stórfellda samdráttar
þjóðartekna samfara vaxandi
verðbólgu og hættulegri erlendri
skuldasöfnun.
Hættumerki á síðast ári
Þessi mál eiga sér nokkurn að-
draganda, en þegar líða tók á árið
1982 varð ljóst að efnahagsþróun-
in var farin að raska verulega fjár-
málakerfi þjóðarinnar. Flestir
viðskiptabankar höfðu lent í
miklum skuldum við Seðlabank-
ann, gjaldeyrisstaðan fór hríð-
versnandi og frjáls viðskipti við
útlönd voru brúuð með auknum
lántökum erlendis. Lausafjár-
staða margra fyrirtækja fór þá
versnandi og var orðin þannig að
augljóslega gat verið stutt í
greiðsluþrot ef þessi þróun héldi
óheft áfram.
Það var fyrir forgöngu Erlendar
Einarssonar, forstjóra, sem þessi
mál voru tekin til umræðu í fram-
kvæmdastjórn Sambandsins þeg-
i ar á síðasta hausti. Þá var orðið
- ljóst að samvinnuhreyfingin yrði
að taka sem fyrst á hinum alvar-
legu vandamálum í fjármálum og
rekstri og finna leiðir til úrbóta.
Fyrsta skrefið var svo stigið á
fundi í framkvæmdastjórninni
hinn 5. október en þá var kosin
þriggja manna nefnd sem falið var
að gera úttekt á fjármálastöðunni
og síðan að leita nýrra leiða til úr-
bóta fyrir Sambandið, kaupfélög-
in og samstarfsfyrirtækin. í nefnd-
ina voru kosnir Geir Magnússon,
framkvæmdastjóri, Axel Gísla-
son, framkævmdstjóri og Eggert
Á. Sverrisson, viðskipta-
fræðingur. Nefndin skyldi leggja
tillögur sínar fyrir fram-
kvæmdastjórnina eins fljótt og
kostur væri. Fjármálanefndin tók
strax til starfa og með henni starf-
aði Sigurður Gils Björgvinsson,
hagfræðingur.
Fjármálanefndin hefur unnið
síðan að úttekt á núverandi fjár-
hagsstöðu samvinnuhreyfingar-
innar og jafnframt að tillögum til
úrbóta. Talið var æskilegt að
stjórn Sambandsins gæti fylgst
með störfum nefndarinnar og því
tilnefndi Sambandsstjórn á fundi
sínum í nóvember þá Val Arn-
, þórsson, stjórnarformann, og
Gunnar Sveinsson, kaupfélags-
stjóra, til að vera nefndinni til
ráðuneytisins.
Þessi mál voru tekin til umræðu
og umfjöllunar á kaupfélags-
stjórafundi í nóvember og kom
þar fram að fjármálanefndin hafði
; þá þegar unnið mikið starf. í um-
ræðum þar lögðu fundarmenn
j mikla áherslu á að nauðsyn væri á
að fram kæmu tillögur um að-
haldsaðgerðir eins fljótt og kostur
i væri. Þessar tillögur um aðhalds-
aðgerðir í rekstri vann fjármála-
nefndin síðan og þær voru lagðar
fyrir séstakan samstarfsfund með
kaupfélagsstjórum og stjórnar-
formönnum kaupfélaganna sem
haldinn var 28. janúar.
Tillögur
um aðhaldsaðgerðir
í rekstri
Tillögur fjármálanefndarinnar
eru gerðar með það fyrir augum
að finna svar við spurningunni um
það hvernig samvinnuhreyfingin
eigi að mæta afleiðingum af efna-
hagserfiðleikum þjóðarbúsins.
Það hefur komið skýrt fram
undanfarið að fjármagnsmyndun
í rekstri samvinnuhreyfingarinnar
er ófullnægjandi. Þegar að herðir
í efnahagslífi þjóðarinnar kemur
þessi veikleiki skýrar fram en ella
en forsenda þess að samvinnu-
starf í landinu geti eflst er aukin
fjármagnsmyndun rekstrar. Vörn
samvinnuhreyfingarinnar gegn
aðsteðjandi efnahagsvanda verð-
ur sterkust ef hún vinnur saman
sem ein heild til að ná settu marki.
Eftirfarandi staðreyndir blasa
þegar við í efnahagslífi þjóðarinn-
ar:
- Eyðslaþjóðarinnarásíðastaári
umfram það sem hún aflaði
nam yfir 10% af þjóðartekjum.
- Á þessu ári verður ekki um bata
að ræða heldur má búast við
áframhaldandi samdrætti.
- Botnfiskafli mun dragast
saman á þesu ári og enn eru erf-
iðleikar við skreiðarsölu.
- Atvinnuleysi virðist vera vax-
andi þótt enn sé of snemmt að
spá um framvinduna.
- Innlán hafa dregist hlutfallslega
saman og möguleikar banka-
kerfisins til að fjármagna fyrir-
tækjarekstur hafa minnkað.
- Verðbólgan í landinu er að
magnast og fjármagnsþörf
fyrirtækja mun aukast ef þau
eiga að geta haldið í við verð-
þróunina.
- Fjármagnskostnaður er vax-
andi þar sem stærri og stærri
hluti rekstrarins er fjármagn-
aður með verðtryggðum lánum
en útlán hins vegar lánuð á
lægri vöxtum.
- Áburður mun hækka verulega
umfram verðbólgu næsta vor
sem getur haft mikil áhrif á
greiðslustöðu bænda.
Við skoðun undanfarið á fjár-
málastöðu samvinnuhreyfingar-
innar hefur komið í ljós að nauð-
synlegt er að hefja strax víðtækar
aðhaldsaðgerðir- í rekstrinum til
að auka fjármagnsmyndunina.
Ljóst er að lánsfjármagn verður
hlutfallslega minna á þessu ári en
hinu síðasta. Því verður að finna
leiðir til að auka fjármagnsmynd-
unina með sparnaði og hagræð-
ingu í rekstrinum og með því að
leita leiða til að auka tekjurnar.
Jafnhliða því verður að minnka
fjárbindingu á öllum eignareikn-
ingum til að mæta minnkandi
fyrirgreiðslu lánastofnana og
lækka um leið fjármagnskostnað.
'Forsenda þess að takast megi að
framkvæma samræmdar aðhalds-
aðgerðir innan samvinnuhreyf-
ingarinnar er að til komi sameig-
inlegt átak allra samvinnumanna
og jafnframt að öllum aðgerðum
verði fylgt fast eftir.
Þær aðgerðir sem fyrirhugaðar
eru á næstunni innan samvinnu-
hreyfingarinnar felast í meginat-
riðum í eftirfarandi sex þáttum:
1. Hafnar verða víðtækar að-
gerðir til sparnaðar og hagræð-
ingar í öllum samvinnurekstr-
inum. Þessar aðgerðir munu
fyrst og fremst beinast að því
að lækka fjármagnskostnað og
að koma við sparnaði og hag-
ræðingu hvarvetna þar sem
kostur er. Þá verða kannaðar
sérstaklega rekstrareiningar
sem skila tapi og ef rekstrar-
grundvöllur er lítill eða vafa-
samur og áhrif þeirra á rekst-
urinn óverulegur verði starf-
semi þeirra hætt.
2. Lögð verður áhersla á tekju-
aukandi aðgerðir og á aukin
viðskipti innbyrðis innan
hreyfingarinnar.
3. Að mörkuð verði útlánastefna
sem beinist að því markmiði
að minnka fjárbindingu í út-
lánum og þar með fjármagns-
kostnað.
4. Unnar verða leiðbeiningar til
að leitast við eins og mögulegt
er að auka veltuhraða vöru-
birgða. Einnig verði fylgst
reglulega með fjárbindingu í
birgðum.
5. Ekki verður efnt til fjárfest-
inga á árinu 1983 nema í al-
gjörum undantekningartilvik-
um og að undangengnu
ströngu arðsemismati jafn-
framt því að fjármögnun sé
tryggð. Fjárfestingar sem þeg-
ar eru hafnar framkvæmdir við
verða teknar til gagngerðrar
endurskoðunar og kannað
hvort hagkvæmara sé að
stöðva þær eða halda áfram
framkvæmd. Ef framkvæmd-
um verður haldið áfram þá
munu þær miðast við hag-
kvæmustu áfangaskiptingu.
6. Myndaður verður sérstakur
vinnuhópur sem hefur það
hlutverk að heimsækja kaup-
félögin, aðstoða við þessar að-
gerðir og fylgjast með fram-
kvæmdinni. I vinnuhópnum
eiga sæti þeir Sigurður Gils
Björgvinsson, hagfræðingur,
Jörgen Þór Halldórsson, for-
stöðumaður Hagdeildar, og
Magnús Ásgeirsson, við-
skiptafræðingur hjá Fjármál-
adeild.
Samþykkt
samstarfsfundaríns
Á samstarfsfundinum urðu mikl-
ar umræður um þessi mál og voru
ræðumenn á einu máli um nauð-
syn þess að grípa nú þegar til að-
gerða í samræmi við þessar tillög-
ur. Að umræðu lokinni samþykkti
fundurinn eftirfarandi ályktun um
málið:
„íslenska þjóðin stendur nú
frammi fyrir alvarlegum efna-
hagsvanda. Vegna stórfellds
samdráttar þjóðartekna, sam-
fara vaxandi verðbólgu og
hættulegri erlendri skulda-
söfnun er atvinnulífi þjóðar-
innar stefnt í mikla hættu.
Því er nauðsynlegt að grípa
til róttækra aðgerða ef hindra
á stöðvun atvinnuveganna og
tryggja atvinnuöryggi enda
getur bankakerfið ekki lengur
fjármagnað áframhaldandi
verðbólgu og halla í atvinnu-
rekstri. Samvinnuhreyfing-
unni er ljóst að hún, fyrir sitt
leyti, verður að framkvæma
nauðsynlegar aðhaldsaðgerð-
ir í samvinnufyrirtækjunum
þannig að reksturinn geti
haldið áfram óhindraður og
hagsmunir félagsmanna verði
sem best tryggðir svo og
atvinnuöryggi starfsmanna.
Jafnframt leggur fundurinn
áherslu á að brýna nauðsyn
beri til þess að stjórnvöld grípi
tafarlaust til nauðsynlegra að-
gerða sem dragi verulega úr
þeirri óðaverðbólgu sem nú er
að sliga atvinnuvegi þjóðar-
innar.
Fundurinn lýsir yfir ánægju
sinni með þá athugun á að-
steðjandi vandamálum sem
unnið hefur verið að undan-
fama mánuði á vegum Sam-
bandsins. Hvetur fundurinn
til fullrar samstöðu innan sam-
vinnuhreyfingarinnar um
framkvæmd þeirra tillagna
sem fram hafa komið um
nauðsynlegar aðhaldsaðgerð-
ir í rekstri."
Stálbcntur kjaftur yfir veiði hlakkar, eða eru þetta verur frá öðrum hnöttum?
Hrun hússins og jafttvel glerið brotnar.
Hrörnar þöll sú er stcndur þorpi á, hlýrat henni börkur né barr. Eða var ein-
hver að tala um húsaskjól? Myndir: ESE
8. febrúar 1983 - DAGUR - 7