Dagur - 02.07.1984, Qupperneq 1
MIKIÐ ÚRVAL
GULLSMIDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
FILMUhúsib akureyri
' ' ■ f----------
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 2. júlí 1984
74. tölublað
Norður-Þingeyjarsýsla:
Tals-
vert
kalið
„Það er kalið hjá okkur er ég
hræddur um,“ sagði Grímur
Jónsson búnaðarráðunautur í
Norður-Þingeyjarsýslu er Dag-
ur forvitnaðist um ástand mála
þar í sýslu.
„Það er langmest á Hóls-
fjöllum, í Svalbarðshreppi og
Sauðaneshreppi og á þeim
stöðum er um allverulegt kal að
ræða. Einnig er talsvert kalið í
Kelduhverfi, en ég hef ekki farið
nægilega vel yfir í Öxarfirði og
Presthólahreppi til að geta fullyrt
um kal þar. Þetta hefur nú gengið
svona ár eftir ár og það eru sömu
bændurnir sem verða fyrir þessu.
Þeir grípa til þess ráðs að rækta
grænfóður, bygg og hafra og
eitthvað verka þeir í vothey.
Sláttur er eitthvað byrjaður, en
almennt hefst hann ekki fyrr en
Upp úr mánaðamótum. Mér sýn-
ist í fljótu bragði að gras sé ekki
mjög mikið,“ sagði Grímur.
Áskell Einarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga:
Heimamenn taki frumkvæðið
og gæti þess að samkeppnisaðstöðu Eyjafjarðar verði ekki spillt
varðandi nýtt stóriðjuver á íslandi.
Áskell Einarsson, fram-
kvæmdastjórí Fjórðungssam-
bands Norðlendinga, hefur
kynnt tillögu sem hann hyggst
leggja fyrir Fjórðungsráð,
verði henni ekki hrínt í fram-
kvæmd án þess að til þess þurfi
að koma. í þessari tillögu, sem
send hefur verið ýmsum aðil-
um til kynningar, leggur
Áskell til að sveitarstjórnar-
menn og aðrir aðilar sem hags-
muna eigi að gæta varðandi at-
vinnuuppbyggingu við Eyja-
fjörð og á Norðurlandi bindist
samtökum um að ekki verði
spillt samkeppnisaðstöðu
Eyjafjarðar, þegar samið verð-
ur við erlenda aðila um nýtt
stóriðjuver á íslandi.
Tillagan sem Áskell hyggst
leggja fram og hann hefur sent
fjórðungsráðsmönnum, sveitar-
stjórnarmönnum, verkalýðsfé-
lögum og Iðnþróunarfélagi
Eyjafjarðar, sem jafnframt fær
þar smá ádrepu, er svohljóðandi:
„Um álver við Eyjafjörð:
Fjórðungsráð Norðlendinga
bendir á að uppbygging stóriðju
við Eyjafjörð er, jafnframt því að
vera grundvallaratvinnuuppbygg-
ing fyrir byggðir Eyjafjarðar, hafi
hún áhrif á heildarþróun Norður-
lands og marki stefnuna í orku-
málum næstu ára öðru fremur
m.a. tryggi að til staðar verði
utan Þjórsársvæðanna orkuver,
sem geti lagt grundvöll að meiri-
háttar iðnaði bæði á Norðurlandi
og líka á Austurlandi.
Því skorar fjórðungsráð á
sveitarstjórnarmenn og aðra
hagsmunaaðila við Eyjafjörð að
gæta þess þegar að ekki sé spillt
samkeppnisaðstöðu Eyjafjarðar
í vali á milli staða, þegar samið
verður við erlenda aðila um nýtt
stóriðjuver á íslandi. Leggur
fjórðungsráð til að þessir aðilar
bindist samtökum um þetta verk-
efni ellegar hlutist til um, að sam-
starfsaðili um iðnþróun, eins og
Iðnþróunarféiag Eyjafjarðar,
gegni í þessu efni hlutverki sínu
að efla stærri iðnþróun á svæðinu
þ.m.t. álver við Eyjafjörð. Jafn-
framt leggur fjórðungsráð
áherslu á að hinir erlendu aðilar
fái í hendur hinar gleggstu upp-
lýsingar um afstöðu réttbærra að-
ila heima fyrir með beinum
tengslum við hina erlendu aðila.
Sökum grundvallar byggðahags-
muna á Norðurlandi áskilur
fjórðungsráð sér rétt til frum-
kvæðis í þessum efnum ýmist eitt
sér eða í samstarfi við aðra aðila,
eftir því sem þykir vænlegast til
árangurs.
Sjá nánar viðtal við Áskel Ein-
arsson á bls. 8.