Dagur - 02.07.1984, Qupperneq 7
6-DAGUR-2. júlí 1984
2. júlí 1984-DAGUR-7
KA tapaði
fyrir Fram
— og er neðst ásamt Breiðabliki
„Þetta var heldur dapurt hjá
okkur á móti Fram og það er
óhætt að segja að við höfum
ekki átt möguleika á að jafna
við þá eftir að hafa fengið á
okkur mikið óheppnismark
strax á 6. mínútu leiksins,“
sagði Gústaf Baldvinsson er
við ræddum við hann um leik
Fram og KA sem fram fór á
Laugardalsvelli í gærkvöld.
Úrslitin 2:0 fyrir Fram, og KA
Gúslav Baldvinsson.
Gústaf
brotinn!
Gústaf Baldvinsson þjálfari KA
varð fyrir því óhappi í luik KA og
Breiðabliks á dögununi að vera
„keyrður niður“ af einum leik-
nianna Breiðabliks. Gústaf hark-
aði af sér og lék leikinn til enda, en
fór svo lieim sárþjáður.
Hann lá fyrir í nokkra daga, og
það var ekki fyrr en 4 dögum síðar
að hann fór til læknis og þá kom í
Ijós að hann var fótbrotinn. Gústaf
gengur nú um í gifsi og er liinn
vígalegasti, en hans er varla að
vænta í K A-búninginn fyrr en und-
ir lok keppnistímabilsins. Áfall
fyrir KA-liðið svo ekki sé mcira
sagt að missa þjálfarann og annan
miðvörðinn í þeirri miklu baráttu
sem framundan er.
vermir nú botnsæti deildarinn-
ar ásamt Breiðablik.
Framararnir skoruðu sem fyrr
sagði strax á 6. mínútu. Birkir
Kristinsson markvörður rann til
þegar hann ætlaði að handsama
boltann sem barst til hans og
boltinn fór yfir hann. Óheppni
því Birkir hefði ekki verið í nein-
um vandræðum með að hirða
boltann undir venjulegum kring-
umstæðum.
KA-menn voru mun meira
með boltann nær allan leikinn, en
það vantaði allan brodd í sóknar-
aðgerðir liðsins. Eðlilegt, því
Mark Duffield varð að leika sem
miðvörður með Bjarna Jónssyni
þar sem Erlingur Kristjánsson
var í banni og Gústaf er fótbrot-
inn eins og fram kemur í frétt hér
til hliðar.
Njáll Eiðsson barðist hins veg-
ar vel á miðjunni og var besti
maður vallarins. en það nægði
ekki, KA skapaði sér ekki færi.
Framararnir voru hins vegar
hættulegir þegar þeir fengu bolt-
ann og sóttu á og á 35. mínútu
bættu þeir öðru marki við.
Þar við sat, og staða KA er nú
orðin alvarleg eins og sést á stiga-
töflu 1. deildarinnar hér á síð-
unni.
Njáll ekki með
gegn Þór
A.-.I
Njáll Eiösson.
Njáll Eiðsson fyrirliði KA mun
ekki leika með liðinu þegar
það mætir Þór á sunnudags-
kvöldið. Njáll sem var kominn
með 9 refsistig fékk að sjá gula
spjaldið í leiknum við Fram í
gærkvöld og mun því fara í
eins leiks bann á hádegi n.k.
laugardag.
Ekki þarf að fjölyrða um hvað
þetta kemur sér illa fyrir KA. Er-
lingur Kristjánsson verður að
vísu með í þeim leik, kominn úr
banni, en Njáll sem lék mjög vel
gegn Fram í gærkvöld og er mað-
urinn sem drífur spilið áfram á
miðjunni hjá KA verður illa
fjarri góðu gamni í slag „erki-
fjendanna" á sunnudagskvöld.
33
Tígerinn“ hafði það!
- sigraði í Coca Cola mótinu á Akureyri
Sverrir „Tiger“ Þorvaldsson
varð sigurvegari í opna Coca
Cola golfmótinu sem fram fór
hjá Golfklúbbi Akureyrar um
helgina, en þar mættu um 40
kylfingar til leiks.
Jón Þór Gunnarsson tók for-
ustuna eftir 9 holur, en Sverrir
lék síðari 9 holurnar fyrri daginn
á 36 höggum vann upp forskot
hans og hafði einu höggi betur er
keppnin var hálfnuð, var á 79
höggum, Jón Þór á 80.
Sverrir var ekkert á því að láta
þetta forskot af hendi síðari dag
inn og hann skilaði 36 holunum
á 159 höggum. Jón Þór Gunnars-
son og Sigurður H. Ringsted
voru í 2.-3. sæti á 162 höggum og
hafði Jón Þór betur eftir tvítekna
aukakeppni.
Með forgjöf urðu jöfn Sverrir
Þorvaldsson og Jónína Pálsdóttir
og sigraði Jónína eftir aukakepp-
ni. Þau léku á 143 höggum nettó,
en þriðji varð Jóhann Pétur
Andersen á 144 höggum.
Verksmiðjan Vífilfell sem gaf
verðlaun í mótið veitti einnig
fjölda aukaverðlauna, og fóru
margir keppenda klyfjaðir coca-
cola heim. Jón Sæmundsson var
með lengsta upphafshögg á 9.
braut, Baldur Sveinbjörnsson á
17. braut, knattspyrnukappinn
Jónas Róbertsson púttaði best
allra fyrri daginn eða 27 sinnum,
en síðari daginn „hagræddi"
Smári Garðarsson hlutunum
þannig að hann fékk verðlaun
fyrir fæst pútt eða 30 og Jónína
Páisson, Þórður Svanbergsson og
Sigurður Stefánsson púttuðu
einnig 30 sinnum.
Jóhann P. Andersen var næst-
ur holu á 4. braut, Sverrir Þor-
valdsson á 11. braut, Sigurlaug
Geirsdóttir á 18. braut fyrri dag,
Jón Sæmundsson síðari dag, Jón
Bjarni Stefánsson GOS næstur á
14. braut og Jón Þór Gunnarsson
á 6. braut. Aukaverðlaun fyrir
besta árangur konu með forgjöf
fyrri dag hlaut Jónína Pálsdóttir,
en karlaverðlaunin tók Jóhann
Pétur Andersen.
Sem fyrr sagði gaf verksmiðjan
Vífilfell öll verðlaun í mótið -
COCA COLA á íslandi - og
voru þau sérlega glæsileg.
Mynd: KGA.
Júlíus Tryggvason - sést ekki á myndinni - jafnar fyrir Þór 1:110 mínútum fyrir lcikslok, en það dugði skammt.
Er heimavöllurinn
enginn heimavöllur?
Þór - Valur 2:3
Þórsarar geta engin handarbök
nagað önnur en sín eigin fyrir
að hafa tapað fyrir Val á föstu-
dagskvöldið í 1. deildinni.
Lengst af sýndu Þórsarar
óhressum áhorfendum hversu
neðarlega þeir geta komist, og
þetta annars skemmtilega lið
sýndi ekkert umtalsvert fyrr en
líða tók á síðari hálfleik.
Valsmenn fengur óskabyrjun,
mark strax á 4. mínútu sem var
ekkert nema rangstöðumark þótt
hvorki línuvörður eða dómari
gerðu athugasemd. Vera má að
þetta áfall hafi brotið Þórs-liðið
niður, a.m.k. verður að reyna að
finna einhverja skýringu á af-
spyrnuslökum fyrri hálfleik
liðsins:
Þórsarar hertu sóknina og
náðu nokkrum tökum á leiknum
er líða tók á síðari hálfleik, en
sköpuðu sér varla umtalsverð
tækifæri fyrr en á 70. mínútu er
varnarmaður Vals bjargaði með
skalla á marklínu, hornspyrnu
Kristjáns Kristjánssonar. 10
mínútum síðar var Júlíus
Tryggvason kominn inn á, og það
var hann sem jafnaði metin eftir
góðan undirbúning Halldórs
Áskelssonar.
En Adam var ekki lengi ... -
Varla höfðu menn snúið sér við
er boltinn lá í marki Þórs, Hilmar
Sighvatsson skoraði með skalla
frá markteig og rétt á eftir bætti
Valur Valsson þriðja markinu -
og rothögginu á Þórsara - við.
Þótt Bjarni Sveinbjörnsson skor-
aði gott mark á síðustu mínútu
kom allt fyrir ekki, ánægðir Vals-
menn flugu heim með óverð-
skulduð 3 stig í pokahorninu.
Jafntefli hefði e.t.v. verði sann-
gjörnust úrslit, en þó var betri
aðilinn ef eitthvað var þegar á
heildina er litið.
En Þór getur betur, og hvers
vegna nær liðið ekki að sýna þá
knattspyrnu á heimavelli sem það
gerir hvað eftir annað á úti-
völlum? 6 af 10 stigum liðsins
hafa komið á útivöllum og sumir
leikmanna liðsins hafa haft á orði
að þeir fái meiri stuðning frá
áhorfendapöllunum í Laugar-
dalnum en á Akureyri. Umhugs-
unarefni fyrir áhangendur Þórs á
Akureyri.
Leiftur að
stinga af
Mikið fjör á Sigló!
Leiftur frá Ólafsfirði sem vann
sér sæti í 3. deild sl. haust virð-
ist vera að stinga af í b-riðli
deildarinnar. Liðið hefur ekki
tapað leik, unnið fjóra og gert
tvö jafntefli og markatala liðs-
ins er 14:5.
Um helgina voru það leikmenn
Hugins frá Seyðisfirði sem voru
fórnarlömb Leiftursmanna. Þeir
héldu til Ólafsfjarðar hressir og
kátir, en máttu halda heim á leið
með 2:6 ósigur á bakinu.
Friðgeir Sigurðsson skoraði
tvö fyrir Leiftur, Hafsteinn
Jakobsson 1, Jóhann Örlygsson
1, Stefán Jakobsson 1 og Halldór
Guðmundsson 1.
Önnur úrslit í riðlinum urður
þau að Austri vann Þrótt N. 2:1
en leik Vals og HSÞ-b var
frestað.
Lið Iðnaðardeildar Sambandsins sigraði í firmakeppni KA sem háð var um helgina en i henni tóku þátt fjölmörg lið.
Þetta lið hefur verið nær ósigrandi í firmakeppnum undanfarin misseri enda eru margir snjallir leikmenn sem starfa
hjá Iðnaðardeildinni. Mynd:KGA
Erkifjendurnir KS og Tinda-
stóll háðu harða rimmu í 2.
deildinni um hclgina á Siglu-
firði og lauk henni þannig að
KS vann 2:1 sigur í skemmti-
legum leik.
Fjöldi Sauðkrækinga fylgdi
sínum mönnum til Sigló og fagn-
aði ákaft er Sigurfinnur Sigur-
jónsson skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Tindastól 4 mín-
útum fyrir leikhlé. En fagnaðar-
lætin voru ekki hljóðnuð er KS
hafði jafnað og var Hörður Júl-
íusson þar að verki.
Hörður kom svo aftur við sögu
í síðari hálfleik er hann skoraði
sigurmark KS og 3 dýrmæt stig
voru í húsi hjá KS.
Sem fyrr sagði var leikurinn
skemmtilegur og fjörugur. KS
átti meira í leiknum, sérstaklega
í síðari hálfleik og oft skall hurð
nærri hælum við mark Tinda-
stóls. Þar var hins vegar fyrir
hinn ungi markvörður Gísli Sig-
urðsson og varði eins og berserk-
ur. Hins vegar voru Tindastóls-
menn óhressir með hvernig stað-
ið var að mörkum KS í leiknum,
vildu meina að dæma hefði átt
hendi á sóknarmann KS er fyrra
markið kom og einnig fannst þeim
„rangstöðufnykur“ af síðara
markinu. En hvað um það, menn
voru víst sammála um að betra
liðið hefði sigrað í þessum
skemmtilega leik.
Þór með fullt hús
Þórsstúlkurnar standa orðið vel
að vígi í 1. deild kvenna, Norður-
Austurlandsriðli. Þær unnu lið
Súlunnar á útivelli um helgina
2:0, en á sama tíma gerðu hin Iið-
in í riðlinum KA og Höttur jafn-
tefli 1:1 og voru KA-stelpurnar
óheppnar að ná ekki að knýja
fram sigur.
Þór hefur fullt hús stiga, liðið
hefur ekki tapað einu einasta
stigi og það sem meira er, liðið
hefur ekki fengið á sig mark enn
sem komið er. En það er enn eft-
ir ein umferð þannig að ýmislegt
getur enn gerst.
Staðan
1. deild
Staðan í 1. deild
spyrnu er nú þessi
Þróttur-KR
Þór-Valur
UBK-Akranes
ÍBK-Víkingur
Fram-KA
Akranes
ÍBK
Fram
Þróttur
Víkingur
Þór
KR
Valur
UBK
KA
Islandsmótsins í knatt-
el'tir leiki helgarinnur:
0:0
2:3
1:2
3:1
2:0
9 7 1 1 16:5 22
9 5 3 1 11:6 18
9 3 2 4 11:11 11
9 2 5 2 9:8 10
9 2 5 2 12:15 10
9 3 15 11:14 10
9 2 4 3 9:14 10
9 2 4 3 8:9 10
9 2 4 3 7:9 9
9 2 3 4 11:14 9
2!h deild
Staöan í 2. dcild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu eftir leiki helgarinnar:
ÍBV-KS
UMFS-Völsungur
FH-Njarövík
KS-TindastóIl
ÍBV-ÍBÍ
Víðir-Einherji
FH
Völsungur
UMFN
LIMIS
Víðir
ÍBV
ÍBÍ
Tindastóll
Einherji
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
2 6
17:
14:
8:
11:
12:
11:
10:
12
9
6:16
2:0
3:0
2:1
2:1
1:1
3:1
6 19
10 16
6 13
11 11
8 11
14 11
8 11
:13 9
:18 7
3. deild B
Staðan í b-riðli 3. deiidar ísiandsmótsins í
knattspymu eftir leiki helgarinnar:
Austri-Þróttur
Leiftur-Huginn
Valur-HSÞ-b
Leiftur
Þróttur N.
Austri
HSÞ-b
Magni
Huginn
Valur
4 2 0
2 3 1
2 3 1
2 1
2
2 2 2
0 3 3
0 1 4
14:4
12:9
8:7
6:5
8:7
10:18
6:14
2:1
6:1
fr.
14
9
9
8
8
3
1
4. deild D
Aðeins einn leikur var í d-riðli 4. deiidar,
leikur Geislans og Svarfdæla, en leikur
Skyttanna og Geislans sem vera átti á sama
tíma var frestað af skiljanlegum ástæðum.
RReynir
Skytturnar
Geislinn
Svarfdælir
Hvöt
3 10
1 0 2
1 0 2
1 1 1
10 2
16:3
8:9
3:5
7:9
3:11
10
3
3
4
4.
Staðan í c-riðli 4. deildar eftir Ieiki vik-
unnar er þessi:
Vaskur-Vorboðinn 4:2
Tjömes-Vaskur 2:0
Árroðinn-Æskan fr.
Vaskur
Tjörnes
Árroðinn
Vorboðinn
Æskan
3 0 1
3 0 1
1 1 1
1 1 2
0 0 3
11:7
7:2
4:5
8:8
9
9
4
4
2:10 0
Leikur Árroðans og Æskunnar verður
leikinn í kvöld.
1. deild kvenna
Súlan-Þór
KA-Höttur
Þór
KA
Súlan
Höttur
0:2
1:1
3 3 0 0 6:0 9
3 111 3:2 4
3 10 2 1:4 3
3 0 12 1:5 1