Dagur - 07.01.1985, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 7. janúar 1985
Bréf til íþróttasíðunnar:
Engin umfjöllun
um næstu leiki
Íþróttasíðunni hefur borist
bréf frá Ragnari Eiríkssyni á
Hofsósi, þar sem hann gerir
umfjöllun Dags um ensku
knattspyrnuna að umræðuefni.
Ragnar þakkar fyrir umfjöllun
um leiki helgarinnar í mánudags-
blaðinu og vekur athygli á því að
Dagur berist sér t.d. fyrr í hendur
en önnur blöð er fjalla um ensku
knattspyrnuna eftir helgarleik-
ina.
Hann lýsir hins vegar óánægju
sinni með að engin umfjöllun
skuli vera í blaðinu um leiki
næstu helgar, og á hann þá við að
ekki skuli reynt að gera „úttekt“
á leikjum þeim er þá fari fram.
Ragnar segir að „spámaður vik-
unnar“ sem sé „hörmulega út-
færð og óréttlát keppni" sé það
eina í blaðinu er varðar leikina
sem framundan eru.
Þessu er til að svara að get-
raunaleikurinn er ekki hugsaður
sem nein tæmandi úttekt á þeim
leikjum sem framundan eru, og
enn síður er um það að ræða að
hann sé alvörukeppni þeirra er
þar spá fyrir um úrslit leikja. Pað
vita allir sem fylgjast með ensku
knattspyrnun.ti að seðlarnir eru
svo misjafnir (a.m.k. fyrirfram)
að sú keppni getur ekki verið
réttlát. Blaðið tók hins vegar þá
stefnu í haust að fá einn stuðn-
ingsmann hvers liðs í 1. deild til
að spá, og efna svo til úrslita-
keppni í lokin. Þetta er einungis
gert til skemmtunar en að sjálf-
sögðu fengnir til menn sem vitað
er að fylgjast vel með.
Að mati undirritaðs hefur sér-
stakur þáttur þar sem fjallað er
um hvern einstaka leik á get-
raunaseðli komandi helgar afar
takmarkað gildi. Það sýnir sig að
þegar enska knattspyrnan er ann-
ars vegar er ekkert öruggt, jafn-
vel ekki sigur efsta liðsins á heim-
avelli gegn því neðsta. Ef menn
vilja hafa eitthvað til að styðjast
við er þeir fylla út getraunaseðla
sína er beinast að áætla að staðan
hverju sinni sé besta „hjálpartæk-
ið“ og hana birtum við á mánu-
dögum.
Undir eitt í bréfi Ragnars vil ég
taka, og það er hið óréttláta fyrir-
komulag hjá íslenskum Getraun-
um. Ragnar bendir á að hann
þurfi að skila sínum seðlum fyrir
kl. 10 á miðvikudagsmorgnum. I
framhaldi af því getur hann þess
að í 18. leikviku hafi verið til-
kynnt um það síðdegis á miðvik-
udaginn fyrir umræddan leikdag
að einn leikurinn hafi verið felld-
ur af seðlinum. Hann hafi þá
staðið uppi með þá staðreynd að
vera búinn að eyða mörgum
röðum í að hálftryggja umrædd-
an leik.
Ragnar kemur hér inn á hlut
sem er furðulegt að félögin úti
um land sem selja getraunaseðla
skuli ekki hafa íátið til sín taka
fyrr. í Reykjavík geta menn t.d.
komið með seðla í höfuðstöðvar
Getrauna fram yfir hádegi á laug-
ardögum, og auðvitað notfæra
þeir sér það. Nú þegar sá árstími
rennur upp að fresta þarf leikjum
vegna veðurs er hægt að komast
að slíku t.d. með því að hlusta á
BBC um hádegi á laugardögum
og gera síðan ráðstafanir á get-
raunaseðlum sínum samkvæmt
því.
En á meðan þarf Ragnar að
skila sínum seðlum fyrir hádegi
á miðvikudag, og t.d. á Akureyri
þarf að skila fyrir hádegi á
fimmtudögum. Þarna er þeim er
taka þátt í getraunum mismunað
stórlega og furðulegt að félögin
skuli ekki láta þetta mál til sín
taka.
gk'-
Staðan
Staðan í 2. deild íslandsmótsins í
handknattleik eftir leiki helgarinn-
ar:
KA-Þór
Haukar-Fylkir
HK-Ármann
Fram-Grótta
KA 9
Fram 9
HK 9
Haukar 9
Grótta 10
Ármann 8
Fylkir 9
Þór 9
30:16
27:25
21:23
26:18
8 0 1 213:175 16
7 1 1 217:178 15
5 1 3 186:183 11
4 0 5 204:214 8.
235 209:225 7
3 0 5 176:176 6
2 2 5 172:192 6
1 1 7 188:222 3
Logi Már Einarsson svífur hér inn í teiginn og blakar boltanum að Þórsmarkinu. En Daví
fjær má sjá Erling Kristjánsson.
Það var bikardagur hjá ensk-
um á laugardaginn, sannkall-
aöur „karnivaldagur“ spark-
unnenda. Þetta er sá dagur
þegar litlu liðin fá tækifæri til
að velta þeim stóru og oft hafa
mikil undur og stórmerki
gerst. Á laugardaginn urðu
líka nokkur óvænt úrslit og
leikmenn sumra liða hypjuðu
sig heim skömmustulegir.
1. deildarlið QPR mátti þola
ósigur gegn 4. deildarliði Donc-
aster. í þeim leik sá David Hurle
til þess að nafn Doncaster komst
í fyrirsagnir ensku blaðanna.
Þess má geta að framkvæmda-
stjóri Doncaster er enginn annar
en Billy Bremner sem um langt
skeið var „primus motor" Leeds
United er það lið var og hét.
WBA gleymir sennilega seint
viðureigninni við lið Orient sem
hingað til hefur ekki riðið feitum
klárum í knattspyrnuheiminum.
Orient vann 2:1 með mörkum
Barry Silkman og Richard
Cadett. Mark Albion skoraði
David Cross.
Önnur lið í 1. deild áttu í hinu
mesta basli með andstæðinga
sína. Arsenal heimsótti 4. deild-
arlið Hereford og mátti sætta sig
við 1:1 jafntefli. Tony Woodcock
skoraði á 22. mínútu með skoti af
20 metra færi. Hereford barðist
af krafti og bakvörður þeirra
Chris Price jafnaði og tryggði liði
sínu leik á Highbury, þeim fræga
velli í London.
í London áttust við grannarnir
Tottenham og Charlton og var
reiknað með öruggum sigri 1.
deildarliðsins. En það fór á aðra
leið. Garth Croks skoraði fyrir
Tottenham á 6. mínútu, en Mark
Aizelwood jafnaði úr vítaspyrnu.
En lítum þá á úrslitin í 4. umferð
ensku bikarkeppninnar:
Fulham-Sheff. Wed. 2:3 2
N. County-Grimsby 2:2 x
Coventry-Man. City 2:1 1
Bristol R.-Ipswich 1:2 2
Wolves-Huddersfield 1:1 x
Chelsea-Wigan 2:2
Hereford-Arsenal 1:1
Liverpool-A.Villa 3:0 1
Burton-Leicester 1:6
Man. Utd.-Bornmouth 3:0
N. Forest-Newcastle 1:1 x
Tottenham-Charlton 1:1
Barnsley-Reading 4:3
Birmingham-Norwich 0:0 x
Carlisle-Dagenham 1:0
Oldham-Brentford 2:1
Portsmouth-Blackpool 0:0 x
Southampt.-Sunderland 4:0 1
Watford-Sheff. Utd. 5:0
West Ham-Port Vale 4:1
York-Walshall 3:0
Orient-WBA 2:1
Schrewsbury-Oxford 0:2 2
Teleford-Bradford 2:1
Doncaster-QPR 1:0
Luton-Stoke 1:1 x
Millwall-C. Palace 1:1
Wimbleton-Burnley 3:1
Brighton-Hull 1:0
Middlesb.-Darlington 0:0
Leeds-Everton 0:2
Chelsea lenti í miklum
ógöngum með Wigan sem leikur í 4. deild en leikið var á heima-
velli Chelsea. Gestirnir komust í
2:0 með mörkum Paul Duell og
Mike Newille. í síðari hálfleik
hresstust leikmenn Chelsea og
jafnaði Chelsea með mörkum
David Speedie og Pat Neven.
Botnliðin í 1. deild, Luton og
Stoke skildu jöfn 1:1. Leit þó
lengi út fyrir að Stoke ætlaði að
ganga með sigur af hólmi. Ian
Painter kom Stoke yfir en á síð-
ustu mínútu jafnaði Steve Foster
og tryggði liði sínu annan leik.
En það voru ekki öll liðin úr 1.
deild sem áttu í basli með sína
andstæðinga. Liverpool,
Manchester United, Leicester,
Watford og Southampton unnu
öll sína leiki auðveldlega.
Aston Villa sá aldrei til sólar í
ieik sínum gegn Liverpool. Ian
Russ skoraði tvívegis fyrir Liver-
pool og John Wark það þriðja. -
Manchester United fékk Born-
mouth í heimsókn á Old
Trafford, en í síðuslu viðureign
þessara liða steinlá United. Slíkt
kom aldrei til tals að þessu sinni
og mörk Gordon Strachan,
Gordon McQuuen og Frank
Stapleton sáu til bess.
Utandeildarliðið Burton
Albion tók á móti Leicester og
kom á óvart lengi vel. En þegar
flautað var til leiksloka var stað-
an orðin 6:1 fyrir Leicester. Gary
Lineker skoraði þrennu, Alan
Smith 2 og Steve Lynex það
sjötta.
Watford rúllaði Sheffield Unit-
ed upp eins og gólfteppi og vann
5:0. Luther Blissett hefur heldur
betur tekið fram gömlu Iðunnar-
skóna og gerði 4 mörk og Taylor
bætti við því fimmta.
Leikur Southampton og Sund-
erland var ójafnari en gert var
ráð fyrir og Southampton vann
4:0. Steve Moran skoraði tvö,
Alan Curtis og Joe Jordan sitt
markið hvor.
Sjónvarpsleikurinn bauð upp
á fimm mörk og það kunnu gláp-
endur vel að meta. Fulham, isem
að undanförnu hefur verið í
mikilli sókn í 2. deild átti skilið
jafntefli í þeim leik. Ray Houg-
ton skoraði bæði mörk Fulham
en Mel Stirland og Lee Chapman
skoruðu mörk Wednesday.
Coventry sló Manchester City
út og dugðu tvö mörk Terry Gib-
son gegn marki Paul Power. Ips-
wich komst áfram á kostnað
Bristol Rovers og það á ævintýra-
legan hátt. Mark Brennan
skoraði sigurmarkið með skoti af
30 metra færi, boltinn fór í þver-
slána og þaðan niður á marklínu,
í tærnar á markverði Rovers og
inn!
Paul Goddard skoraði þrennu
og Alan Dickens það fjórða í
sigri West Ham gegn Port Vale.
Oxford komst áfram á mörkum
John Aldridge og Brian McDer-
mott gegn Schrewsbury. - A.B.