Dagur - 01.02.1985, Síða 3

Dagur - 01.02.1985, Síða 3
1. febrúar 1985 - DAGUR - 3 Sigurður Gestsson við vatnsdamminn Að skera hrúía Lambhrútur Sigurðar Gestssonar er sennilega orðinn með frægari lamb- hrútum norðan fjalla. Þessi hrútur hlaut ömurlegan dauðdaga, því hann lenti í óvörðum drulludammi, sem Hitaveita Akureyrar skildi eftir sig að loknum borunartilraunum í gil- dragi norðvestan við Fálkafell á Glerárdal. Þarna lauk hrúturinn stuttu lífshlaupi sínu. Sigurði sárnaði þetta eðlilega og fór fram á það við Hitaveituna, að þessir vatnsdammar yrðu a.m.k. girtir af, en eðlilegast væri að fylla þá með jarðvegi aftur, þannig að þeir yrðu ekki fleiri skepnum að fjörtjóni. Þessu var tekið líklega hjá Hitaveit- unni til að byrja með, en síðan huns- uðu stjórnendur hennar óskir Sigurð- ar. Þá fauk í ljúfmennið og eftir þessi viðbrögð ráðamanna Hitaveitunnar ákvað Sigurður að krefjast bóta fyrir hrútinn, og ef þær fengjust ekki með góðu, þá ætlaði hann að sækja þær með lögum. Ekkert geftö ejtir sem hrútur hans drukknaði í. 2.400 krónur fyrir hrútinn og slík ógnarupphæð gat hreinlega unnar gegn sókn Sigurðar. Málið fór síðan fyrir hæstvirta stjórn veitunn- ar, en þar náðist ekki samstaða um málið. Meirihluti stjórnar samþykkti að vísa kröfu Sigurðar frá. Nú, síðan fór samþykkt stjórnarinnar fyrir bæjarstjórn. Þar var þingað um hrút- inn hans Sigurðar, en málinu síðan vísað til bæjarráðs. Þar fékkst loks sú niðurstaða, að fela bæjarlögmanni að ná samkomulagi við Sigurð um bætur fyrir hrútinn. Vonandi verður Hitaveitunni einnig gert að fylla í vatnsdammana að vori. Svona geta lítil mál orðið að snjóboltum í kerf- inu. Þetta mál kom á sínum tíma fram í fundargögnum bæjarstjórnar og hefur því ekki farið framhjá fjölmiðl- um; það hefur verið tíundað í útvarpi og blöðum. Slíkt verður til þess að veikja traust veitunnar meðal bæjar- búa og má hún þó varla við slíku, fyrirtæki sem í upphafi var „óska- ibarn" bæjarbúa. Hjá öllu þessu þófi hefðu stjórnendur Hitaveitunnar get- að komist, ef þeir hefðu borið gæfu til að bregðast ljúfmannlega við upp- haflegum óskum Sigurðar, um að fylla í vatnsdammana. En vonandi heyrir þetta dæmi til undantekninga, þannig að um komandi ár verði ekki annað en „hlýja" í samskiptum Hita- veitunnar og bæjarbúa. En stjórnendur Hitaveitu Akureyrar voru nú ekki á því að gefa eftir. Ljóst var að Sigurður þyrfti að fá einar P.OLISH C/fCULATðR MEMORt * /MAItAQU IH IfFTOftNíltr Þetta tækniundur á tölvuöld er framleitt í Póilandi, ætlað Pólverjum, en hent; einnig fyrir Hafnfirðinga og Húsvíkinga. Hér er um að ræða vasatölvu, og eins og sjá má er hún með minni. Það skal tekið fram, að samkvæmt staðfest- um heimildum er einnig hægt að fá þessa stórkostlegu tölvu fyrir hægri hönd- ina. spara Nú standa yfir miklar sparnaðarráð- stafanir í kerfinu. Öllum er gert að spara, m.a. löggæslunni, og öllum sveitum hennar er gert að fylla út mikla doðranta, sem eiga síðan að leiða í ljós hvar hægt er að spara mest. Er þetta eðlilega torfærasta leiðin til sparnaðar, því það veldur miklu aukaálagi og aukavinnu, að fylla út allar þessar bækur sem þessir háu herrar í Reykjavík senda vítt og breitt um landið. Einn þátturinn í þessum færslum er að færa inn í bækur mælastöðu bifreiðar áður en lagt er af stað - síðan þarf að til- greina hvert er farið - og loks þarf að færa inn mælastöðuna þegar ferðinni er lokið. Þetta styttir sem sé ekki biðina eftir lögreglunni og getur komið sér vel fyrir lögbrjóta, sem þarf að elta og góma í flýti. Hann gæti hæglega sloppið á meðan lög- regluþjónarnir eru að færa bækurn- ar! Um þetta allt saman kvað yfirlög- regluþjónninn á Akureyri; Erlingur Pálmason: Hagræðingin hefst nú senn hysja skal upp brækur. Fastráda þarf fjóra menn að færa þessar bækur. Bjórkrár og ajtur bjórkrár Ýmislegt er á döfinni í viðskiptalíf- inu hér á Akureyri, þótt atvinnulífið mætti vera líflegra. Bjórkrár spretta upp eins og gorkúlur á haug, þótt enn sé ekki leyft að selja „al- vöru“bjór. Nokkuð er síðan H-100 og Sjallinn opnuðu sínar krár og nú eru Sjallamenn byrjaðir að innrétta nýja krá í kjallaranum, sem verður ólíkt huggulegri en sú sem nú er við lýði. Einnig hefur Ásgeir Flóvents- son áhuga á að innrétta bjórkrá í kjallaranum á Hafnarstræti 88, þar sem Bjarni Sveinsson hefur að undanförnu verið með skóbúð sína. Og í þriðja lagi hefur heyrst að ein- hverjir sunnanmenn hyggist innrétta krá í Kaupvangsstræti, þar sem Ás- prent var til húsa. Einnig ný herrafata- verslun En það eru fleiri nýjungar á döfinni. Innan skamms mun Erling Aðal- steinsson, klæðskeri og málari með meiru, ætla að opna herrafataverslun í Bautahúsinu, þar sem Dyngjan var áður til húsa. Erling rak eitt sinn Herratískuna í Reykjavík og kom síðan norður og tók við herradeild KEA. Þar gerði hann góða hluti, enda er Erling pottþéttur fagmaður, sem kann að klæða menn svo lag sé á. Það er því nokkuð víst, að góður grundvöllur ætti að vera fyrir herra- fataverslun undir hans stjórn. Að minnsta kosti er óhætt að bóka, að margir af hans gömlu kúnnum koma til með að leggja leið sína í nýju búð- ina. Þessu til viðbótar get ég nefnt þá óstaðfestu slúðursögu úr viðskipta- heiminum, að Bergur Lárusson vilji selja skóbúð sína, M.H.Lyngdal. Jafnvel er talið að frá þeim kaupum hafi verið gengið og kaupandinn sé Viðar Þorsteinsson. VIUU SPARA 100 til 200 þúsund krónur? Vegna hagstæðra innkaupa okkar, þá er MAZDA 626 GLX miklu ódýrari en sambærilegir bílar í sama gæðaflokki. Eftirfarandi búnaöur fylgir MAZDA 626 GLX: Framdrif • 2000cc vél 102 hö DIN • Sjálfskipting • Vökvastýri • Veltistýri • Aflhemlar • Rafknúnar rúður á öllum huröum • Rafknúnar hurðarlæsingar • Snúningshraöamælir • Ferðamælir • Aðvörunartölva • Viðvörun vegna hurða, Ijósa og ræsislykils • Tölvuklukka • Stillanleg mælaborðslýsing • Bólstrað stýrishjól • Lýsing í vindlakveikjara og öskubakka • Lýsing í hurðarskrá og ræsi • Læst hanskahólf með Ijósi • Inniljós með leslömpum • Hanskahólf við ökumannssæti • Spegill í sólskyggni hægra megin • Handgrip ofan við hurðir • Barnaöryggislæsingar á afturhurðum • Ökumannssæti stillanlegt á 10 vegu • Niðurfellanlegt aftursætisbak 40/60% • Niðurfellanlegur armpúði í aftursæti • Öflug 4 hraða miðstöð • Hitablástur aftur í • Vandað slitsterkt plussáklæði á sætum • Geymslu- vasar á framsætisbökum • Baksýnisspegill með næturstillingu • Útispeglar stillanlegir innan frá beggja vegna • Lokuð geymsluhólf i framhurðum • Öryggisgler í framrúðu • Lit- að gler í rúðum • Rafmagnshituð afturrúða • Ljós í farangursgeymslu • Pakkabönd í far- angursgeymslu • Halogen aðalljós • Rúðuþurrkur með 5 sek. rofa • Rúðusprauta og þurrka á afturrúðu (Hatchback) • Sportrendur á hliðum • Farangursgeymsla opnuð innan frá • Bensínlok opnað innan frá • Þokuljós að aftan • Hjólbarðar 185/70 HR 14 • Heilir hjólkoppar • Aurhlífar við fram- og afturhjól • WAXOYL ryðvörn og 6 ára ryðvarnarábyrgð. Opiö laugardaga frá kl. 10—4 MEST FYRIR PENINGANA ID3SD3 BÍLASALAN HF. Strandgötu 53, simi 96-21666 og Skála v/Kaldbaksgötu Akureyri, slmi 96-26301.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.