Dagur - 01.02.1985, Síða 4

Dagur - 01.02.1985, Síða 4
4 - DAGUR - 1. febrúar 1985 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 25 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÓRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON BLAÐAMENN: EIRÍKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Vaxtarbroddur í ferðaþjónustu Það þarf að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf. Um það er ekki deilt. Menn greinir hins vegar á um leiðir. Einn sá vaxtarbroddur sem Dag- ur hefur bent á, er í ferða- þjónustu. Þar eru ónýttir möguleikar, ekki hvað síst fyrir Norðlendinga. Heimir Hannesson skrif- aði í vikunni athyglisverðar greinar um ferðamál í NT. Hann þekkir þessi mál grannt og skrifar því af þekkingu. Heimir dregur fram í greinum sínum eftir- farandi atriði: • Ferðaþjónusta hefur ver- ið vaxandi atvinnugrein, sem hefur skilað auknum gjaldeyristekjum til þjóð- arinnar. • Ferðaþjónusta er í raun vaxandi útflutnings- grein, sem hefur góða möguleika til að verða einn af vaxtarbroddun- um í íslensku atvinnulífi, sé að henni hlúð og vaxt- arskilyrði sköpuð. • 5% íslendinga störfuðu við ferðaþjónustu á síð- asta ári, beint eða óbeint, og ferðaþjónusta skapaði 8% af heildar- verðmæti vöruútflutn- ings í gjaldeyristekjur. • Ferðaþjónusta er for- senda núverandi sam- göngukerfis, hvort sem litið er til millilandaflugs eða fjölmargra þátta í samgöngukerfinu innan- lands. • Vegna þeirrar fjárfest- ingar sem þegar hefur verið lagt í varðandi ferðaþjónustu, m.a. í auknu hótelrými, er hægt að auka verulega umsvif í þessari atvinnugrein, án verulegra fjárfest- inga. • Undantekningalítið kem- ur fjárfesting í ferðamál- um ölíum landsmönnum til góða, þó með mismun- andi hætti sé. Til dæmis bætir fjárfesting í hótel- um og samkomustöðum víðs vegar um landið alla aðstöðu til félagslífs á viðkomandi stöðum og auðgar og bætir mannlíf- ið. Framangreind atriði leiða að því sterk rök, að ónýttir möguleikar felist í ferða- þjónustu, ekki bara við út- lendinga, heldur einnig við landann, sem í vaxandi mæli hefur nýtt sér batn- andi ferðaþjónustu innan- lands. Til skamms tíma var litið á ferðaþjónustu sem eins konar tómstundagaman hugsjónamanna. En sem betur fer hefur þessum sömu mönnum tekist að opna augu landsmanna fyr- ir þeim möguleikum, sem ferðaþjónusta býður upp á atvinnulega séð. Þessari þróun þarf að fylgja eftir. Á næstu árum þarf að vinna skipulega að þróun ferða- þjónustunnar á íslandi. Vonandi tekst Norðlend- ingum að sameinast í slíku átaki, í stað þess að láta hreppapólitíkina ráða. - GS Játvarður Jökull Júlíusson: ,J>að er vandi að leika fifl“ Áréttað um Ástar-Brand Var Guðbrandur Jónsson geðbilaður, eða var hann cinungis að leika fifl? I Degi 21. des. 1984 er margt sagt frá Guðbrandi Jónssyni, Ástar-Brandi, viðað að eftir mörgum heimildum, yfirleitt fróðlegt og greinargott. Þar var þó ein mjög tilfinnanleg villa, sem verður að leiðrétta til að fá sanna mynd af afrekum Guð- brandar. Hann fæddist 1883, ekki 1896 eins og í blaðinu er sagt, 27. desember er rétt. Hann var því á 47. árinu þegar hann hljóp Þingvallahlaupið á Alþingishátíðinni 1930 og sprengdi gersamlega ramma þáverandi íþróttastjórnar, svo hinir opinberu og viðurkenndu íþróttamenn (hlaupararnir) urðu að athlægi og viðundri. Hann var á 60. árinu í þrek- rauninni miklu þegar hann kól. Það var í vetrarferð milli Kinn- arstaða og Hólmavíkur 1943, ef rétt er munað. Hann hreppti byl á leiðinni, reglulega stórhríð. Har.n hafði hrapað á leiðinni og misst skó og fatnað og staf sem fannst seinna og sýndi hvar hann hrapaði. En sleðann með því sem á honum hafði verið trúað fyrir, varðveitti hann. Vermaður og smali Guðmundur G. Hagalín minn- ist á Brand snemma í ævisögu sinni. Brandur var þá við róðra við Arnarfjörð, en Guðmundur enn í Lokinhömrum. Ég innti Guðmund Hagalín nánar eftir þessu 1983, er við vorum sam- tíða á Reykjalundi. Má ég segja að þeir voru ekki saman í skip- rúmi, heldur sá og heyrði Guð- mundur skringilegheit hans og skræki þegar hann var að hrópa: Blíða! Blíða! , Einhvern tíma á búskaparár- um Hákonar Magnússonar á Reykhólum frá aldamótum og til 1920, var Brandur þar smali á sumrin. Þá var setið hjá kvíaán- um uppi á Heyárdal. Rekstur- inn er langur, bratt upp á Reykjanesfjallið, ekki um aðra leið að ræða en Grundargötu. Kvíaærnar voru margar á stór- býlinu Reykhólum. Smalanum var því trúað fyrir miklu. Þetta átti vel við Brand og fór gott orð af honum við starfann. Er mér í barnsminni hve inni- lega Jóhanna Hákonardóttir frá Reykhólum fagnaði honum og minntist gamalla daga. Þá var hún húsfreyja hér á Miðja- nesi, en hann nýkominn á stjá 1928 eftir þögnina löngu. Og Jóhanna var ekki ein um að fagna honum. Þjóðsagnapersónan Mörg ummæli Kristbjargar Torfadóttur um Brand bera henni gott vitni. Líka að hann átti athvarf hjá henni. Hún var svilkona Jóns oddvita í Mýrar- tungu, húsbónda Brandar á þagnarárunum. Aldrei held ég að Jón hafi gert hreppnum reikning vegna Brandar. Ohætt mun að árétta það, að ekki tók Brandur hluti þannig að hann hnuplaði. Hitt var hans aðferð, að fela eitthvað fyrir þeim sem gerðu honum í móti. Ekki dæmalaust að hann eyði- legði, þættist hann eiga mikils í að hefna. Þannig ganga víðar en á Ak- ureyri sögur um snögglegan endi tugthúsa, hvað sem satt er. Líklegt er að hægt væri að spyrja uppi eitt og annað á ísa- firði, ekki síður, væri jafn vel eftir leitað. Væri Brandi gert á móti, reyndi hann að jafna þá reikninga svo eftir væri tekið. Hvað frægust er sú saga þegar honum var meinað far með strandferðaskipi. Það launaði hann þannig, að hann gerði sér lítið fyrir, spretti úr spori og tók á móti skipinu á hverri höfn sem það kom á og heilsaði með við- eigandi (lítils)-virðingu. Vinur vina sinna Brandur „átti“ vissa bæi en sniðgekk aðra alveg. Hans um- dæmi voru tveir austustu hreppar Barðastrandarsýslu og þeir norðan heiða sem næst liggja Reykhólasveit. Akranes var „vinabær" hans, en í Reykjavík hafði honum verið mest misboðið. Þar var „Hel- víti“ en á Akranesi var „Himna- ríki“. Líklega hefur mér ekki hlýn- að meira um hjartarætur út af Brandi frænda en þegar hús- móðir frá Hreðavatni fræddi mig um hann 1972. Milli þeirra óskyldra og alókunnugra knýtt- ust bönd trúnaðar og vináttu. Hann fór vart svo um Borgar- fjörð að ekki sleppti hann rút- unni og stoppaði á Hreðavatni. Þá hringdi hann og lét vita af sér. Hún hellti kaffi á flösku og sendi börnin með út á veg á móti honum. Þar og þá breidd- ist út það bros sem gat „dimmu í dagsljós breytt“. Vandinn mikli Ekki treystist ég til að bera til baka orð Kristbjargar, að Brandur hafi verið geðbilaður. Svo sérstæðir voru hættir hans. Þó er það haft eftir honum: „Það er enginn vandi að vera fífl, en það er vandi að leika fífl.“ Glímdi hann við þann erf- iða vanda lengst af sinni löngu ævi?

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.