Dagur - 01.02.1985, Page 11

Dagur - 01.02.1985, Page 11
1. febrúar 1985 - DAGUR - 11 Það er vafamál hvort ég eða bömin hafa lœrt meira - segir Sigríður Pétursdóttir, sem er við æfíngakennslu á Húsavík - Komdu sæl og blessud Sigríður, hvað ert þú að gera á Húsavík? - Komdu sæl sjálf. Ég er nú búin að vera hér í æfinga- kennslu frá því skólinn hófst eftir jólafrí.“ - Hvernig líkar þér kennslan? - Bara alveg ljómandi vel. Ég er búin að kynnast fullt af skemmtilegum krökkum og kennurum. Skólinn er mjög jákvæður. Það er nýbyrjuð tilraun hér með sveigjanlegt skólastarf. í því felst að ábyrgðin er dálítið lögð á herðar barnanna, þau gera sér sjálf áætlun um vinnuna og vinna svo eftir henni. Það er stuðst við svipað kerfi og er í Lundarskólanum á Ak- ureyri og krakkarnir virðast vera mjög ánægð í þessu. Þau vinna vel og ég held að kennararnir séu almennt ánægðir með að kenna í þessu kerfi. Krakkarnir hafa tekið mér mjög vel og það er spurning hvort ég eða þau hafa lært meira. Ég hef lært hvað með- limir hljómsveitanna Duran Duran og Wham heita, hver spilar á hvaða hljóðfæri og brot af ævisögum þeirra. Þau hafa verið dugleg að fræða mig um þetta áhugasvið sitt. Um helgina fara þau flest inn á Akureyri á sérstaka Duran Duran hátíð sem þar á að halda og mér skilst að há- punkturinn í hátíðinni verði sá að allir fá bláar nærbuxur eins og Simon le Bon, söngv- ari Duran Duran gengur í. Sjálf er ég nú ekki hrifin af bláum nærbuxum, svo ég held að ég sleppi þessari hátíð. Krakkarnir hérna eru ákaflega hress og dugleg. Félagsstarfið er með miklum blóma, það er félagsvist, þau eru að fara að setja upp leikrit fyrir skólaskemmtun- ina og eru að fara að vinna skólablað. Við erum líka búin að fara eina skautaferð. - Fórst þú á skauta? - Hm, nei, við skulum bara segja að ég eigi enga skauta. - Nú er þetta gamli skól- inn þinn, hefur hann breyst mikið? - Já, mér finnst skólakerf- ið hafa breyst til batnaðar. Ég er núna hjá kennara sem kenndi mér og það er mjög gaman. Það eru mjög margir kennarar hér ennþá sem kenndu mér á sínum tíma. Mér finnst mjög gaman að sjá hvað þeir hafa fylgst vel með breytingum í skóla- starfi. - Þeir hafa ekki staðnað í þumalputtayddurum ? - Ha, ha, nei, það eru engir þumalputtayddarar. - Ertu að kenna meira en handmenntir? - Já, ég er nú aðallega að kenna annað. Ég er með al- menna kennslu í 2. og 6. bekk og svo kenni ég hand- menntir með. Þau eru öll að verða búin að gera eyrna- lokka eins og ég var að selja Akureyringum í göngugöt- unni sl. sumar og það eru jafnt strákar sem stelpur sem gera sér eyrnalokka. Við höfum líka verið að vefa svo- lítið og þrykkja og svo leyfði ég þeim sem vildu að prjóna vesti úr bómullarræmum. - En þú ert að gera fleira en kenna þarna þessa köldu, dimmu janúardaga, er ekki svo? - Jú, ég er að vinna loka- ritgerðina mína í Kennara- háskólanum og það gengur mjög vel. Ég kenni til kl. 4 á daginn og fer þá á bókasafn- ið hérna og vinn þar að rit- gerðinni til kl. 7. - Og um hvað ertu að skrifa ? - Ég er að gera úttekt á ís- lenskum smásögum sem kon- ur hafa skrifað vegna þess að ég komst að því að það var ekki mikið um það í náms- efni fyrir grunnskóla. Ég er að leita að smásögum sem hentað gætu við kennslu í bókmenntum við grunn- skóla. Ég leita í öllum tíma- ritum, dagblöðum og bókum. Ég er þegar búin að lesa og þemagreina 200 smá- sögur eftir 60 skáldkonur og það á mikið eftir að bætast við. Þetta er mikil vinna, en alveg bráðskemmtileg. - Þú tókst mikinn þátt í karnivölum þeim sem haldin voru hér í bæ sl. sumar, ætlar þú að taka þátt í sumarhátíð- inni sem væntanlega verður haldin hér í sumar? - Já, ég hef hugsað mér að dvelja þarna norðan heiða í sumar og halda áfram að sauma á Akureyringa svo fremi þeir vilji láta mig sauma á sig. Ég hef litla trú á öðru en að ég fái nóg að gera, þegar ég hætti í haust var ég með margar pantanir sem ég hafði ekki getað sinnt og því kvíði ég ekki verk- efnaskorti. Varðandi sumar- hátíðina, ef hún verður haldin, tel ég líklegt að ég verði með námskeið, svo fólk geti nú verið fínt á há- tíðinni. Ef það fæst næg þátt- taka myndi ég sennilega halda 3 námskeið og þau myndu hefjast um miðjan júní. Ég ætla ekki að kenna fólki að festa í rennilása eða gera vasa. Þetta er frekar hugsað þannig að fólk vinni úr sínum eigin hugmyndum en hafi einhvern til að hjálpa sér við það. - Jæja, þá held ég að ég þakki þér bara fyrir spjallið og ég vona að þú fáir ein- hverja á námskeiðin þín. - Sömuleiðis, takk. HJS Þorramatur Eins og undanfarin ár er þorramatur okkar í sérflokki hvað verkun og gæði snertir. Hver skammtur inniheldur: Hangikjöt, nýtt kjöt, saltkjöt, súra sviöasultu, súran hval, súr eistu, súrt pressað kjöt (lundabagga), hákarl, uppstúf, kartöflur, rófustöppu, harðfisk, flatbrauð, laufabrauð, smjör. Verð kr. 395,- Afsláttur fyrir hópa. Afgreitt alla daga á Súlnabergi. Opið kl. 08.00-20.00. Dansleikur laugardagskvöldið 2. febrúar. Hljómsveitin Porto leikur fyrir dansi. Ath. Húsið opnað kl. 23.00 vegna einkasamkvæmis. HOTEL KEA AKUREYRI V erkfræðistofan Rafael sf. Höfum opnað teiknistofu að Oseyri 2 Akureyri. Önnumst raflagnateikningar í allar gerðir húsa. Hönnum álags- og stýrikerfi. Önnumst gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlana. Rafael sf. Sími 26122. Geymsluhúsnæði Óska eftir geymsluhúsnæði á Akureyri. 100-300 fm, helst nálægt höfninni. Flóabáturinn Drangur hf. Sími 24088. Uiicmspftnr o thunift l nudiikcuui d Hrossasaltkjöt uiuyiu kr. 75 kg Hrossabjúgu brytjuð ... kr. 130 kg Hrossagúllash ... kr. 160 kg Hrossabuff ... kr. 180 kg Reykt folaldakjöt ... kr. 120 kg Hrossakjöt í heilum og hálfum skrokkum af nýslátruðu Nautahakk 1. fl ... kr. 200 kg Nautagúllash ... kr. 320 kg Nautahamborgarar ... kr. 240 kg Kálfahakk ... kr. 140 kg Svínahakk ... kr. 140 kg Kjötfars ... kr. 115 kg Geríð verðsamanburð. Sláturhús Benny Jensen Lóni, sími 21541.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.