Dagur - 01.02.1985, Page 12

Dagur - 01.02.1985, Page 12
12 - DAGUR - 1. febrúar 1985 Að mínum dómi eru ekki mörg hlutverk í okkar lífi sem krefjast meiri athygli, samfara mikilli ábyrgð og eru í alla staði vanda- samari en uppeldisstarfið, enda mikið í húfi, því framtíðin veltur á þessum ungu einstaklingum. En gera allir foreldrar sér grein fyrir þessu erfiði, þegar þeir leggja út í þetta krefjandi starf? Oft virðist sem alveg gleymist að ætla börnun- um tíma í daglegu amstri. Báðir foreldrar vinna tíðum meira og minna utan heimilis, börnin verða hálfgert vandamál, alltaf þarf að koma þeim einhvers staðar fyrir á meðan. Eftir vinnutíma bíða einnig ótal verkefni, nauðsynleg og ónauðsyn- leg, svo og heimilisverkin sem ekki er hægt að komast hjá að vinna og oft endist ekki dagurinn til alls, sem átti að gera. Ég er hrædd um að þá verði börnin helst fyrir barðinu á tímaleysinu og hver kannast ekki við þetta eilífa mínútukapphlaup þegar alltaf er rekið á eftir börnun- um, fyrst að heiman og síðan aftur heim, jafnvel oft á dag. Oft er það svo, að einmitt á með- an börnin eru lítil og þurfa mesta umönnun, eru foreldrar að reyna að eignast húsnæði sem ekki er bara tímafrekt, heldur orsakar líka mikið álag og streitu. Seinna meir er um hægist og fólk getur farið að anda rólegar eru börnin orðin of gömul til að vera móttækileg fyrir góðum og hollum heilræðum. Þau hafa þá þegar orðið fyrir margs konar áhrifum víða að úr umhverf- Bömin í nútímamm Hvað með framtíðma? inu s.s. félagsskap kunningja og vina, dagvista, skóla, fjölmiðla auk eigin heimilis. Manni virðist sem tilviljanir einar geti ráðið um, hvaða utanaðkom- andi þættir skilja mest eftir sig í vit- und barnsins. Éf upp koma vanda- mál í skólum er ósköp auðvelt að skella skuldinni á ómögulegan kennara eða óæskilega vini, en ef til vill má leita orsakanna í eigin barmi. Feður, hvað hugsa þeir? Stað- reyndin er sú að þeir vinna oftast 10-12 klst. utan heimilis á dag og jafnvel lengur. Eru þeir ekki að missa af stóra tækifærinu í lífi sínu, með því að ná raunverulega ekki að kynnast börnum sínum á vissu aldursskeiði og eiga hlutdeild í upp- eldinu? Verst er þó þetta myndbanda- æði, þegar hægt er að eyða helgun- um meira og minna í sjónvarps- gláp, þeim tíma sem börnin eiga siðferðilegan rétt á hjá foreldrum sínum eftir annasama viku. Börnin sjálf gera ekki svo miklar kröfur á sínum fyrstu árum, því þau vita ekki af hverju þau missa. Auðvitað er oft á tíðum ekki hægt að koma hlutunum við eins og maður helst vildi, en þetta algenga vinnuálag á foreldrum verður að skoðast sem neyðarúrræði og í mörgum tilfell- um er það ekki nauðsynlegt. Kannski mætti endurskoða kröfurnar, eða raunverulegt gildi hlutanna. Foreldrar eiga tæpast annað dýrmætara en börnin þegar öllu er á botninn hvolft. Margsinnis hef ég orðið vör við að gert er lítið úr starfi húsmæðra- feðra. Heyrist þá sem svo að slíkt starf sé ósköp þægilegt og rólegt, að heimavinnandi fólk beri ekki þung- ar byrðar, vegna þess að það er ekki að standa undir rekstri heimil- isins eða „skaffa". Allir vita að þetta eru aðallega konur, en hvað er þetta fólk að gera? Jú, það sinnir þessu fyrrgreinda, vandmeðfarna uppeldi og séu börnin fleiri en eitt er það ærinn starfi. Én þó er hægt að vanmeta það og taka ótal önnur verkefni fram yfir. Grun hef ég um að til séu heima- vinnandi mæður, sem gleyma stundum börnunum og gefa þeim ekki meiri tíma en þær hefðu gert ef þær ynnu úti 8 klst. á dag. Það sem máli skiptir er hvernig fólk nýt- ir tímann með börnunum, það þarf ekkert að bitna á þeim þótt foreldr- ar vinni skikkanlegan tíma utan heimilisins. Þau börn sem alast upp í sveit eru að mínum dómi ákaflega heppin, því þar eru báðir foreldrar oftast nær til staðar og börnin geta tiltölulega fljótt fengið að starfa með að einhverju leyti eða fylgt eftir. Fyrir börnunum er leikurinn ekki annað en starf og þau þurfa góðan starfsgrundvöll. Einnig finnst mér lífsmáti þar að mörgu leyti hollari börnunum, minni hraði og ýmsir ósiðir sem spinnast út af lífsgæðakapphlaupinu í þéttbýlinu ná ekki eins út í sveitirnar. Börn þurfa mikinn tíma og það er hlutverk foreldranna að leið- beina og vera þeirra stoð og stytta í lífinu, aðrir geta tæpast uppfyllt þá stöðu. En hafið það hugfast að sér- hvert bam er aðeins einu sinni barn og þegar á allt er litið er það tímabil ákaflega stutt. ...02 er þrýturþessa skel þa er litií veiði... Með reistan makka Sögur af hestum Erlingur Davíðsson skráði Útg. Skjaldborg Þetta er fjórða bindið í þessum flokki og segja nú 14 manns frá gæðingum sínum. Pálmi Jónsson, fyrrv. landbún- aðarráðherra, skrifar formála, en hann er mikill hestavinur svo sem byrjar Húnvetningi. Það er raunar merkilega oft í frá- sögnum þessum að fram kemur rétt- mæti málsháttarins góða og gamla: Oft verður góður hestur úr göldum fola. Furðu margur kostagripurinn, kominn í gagn, var gallagripur í æsku, baldinn og hrekkvís. En kannski á einum degi, einni ferð, breyttist allt; sá sem hrekkti varð ljúfur, letinginn hófst úr sleni sínu og reisti makkann, tók lifandi fjörorku er aldrei dvínaði. Hastur foli fann dansspor töltsins og steig síðan þann þýða vals eiganda sínum til yndis. (Má ég lýsa andúð minni á beygingu sagnarinnar að hrekkja: Ég vandist sterkri beygingu; hrekkja, hrekkti, hrekkt, Erlingur og fleiri nota veika; hrekkjaði. Ég kann því miður.) En þetta er smámunasemi viðvíkjandi jafnmjúklátum stíl og hér finnst á bók. Einn er höfuðkostur þessara frá- sagna: Pað kemur mjög víða fram að hranaleg framkoma og fljóthuga við- brögð manna gagnvart ungu hrossi getur spillt því ævilangt. Það er með góðhestinn eins og listamanninn, hann er viðkvæmur. Og kannski er fleira skylt með þeim. Maður og hestur eru báðir af guðaættum! Þetta er læsileg bók og ekki hægt í fljótu bragði að nefna eina frásögn annarri betri. Og ekki má svo gleyma myndunum: Hér má margan glæstan gæðing sjá. Eigendur fá líka mynd af sér en jóar þeirra vekja meiri athygli. Ég vona að bækur eins og þessar frásagnir af makkareistum fákum verði til að vekja umhyggju manna fyrir hinum göfugu vinum Vorum; hrossunum. Og ekki aðeins gæð- ingunum! Bókin er nær 250 bls. Falleg gjöf hestavini. SKILYRÐI Þau krefjast réttra viðbragða ökumanna. Þeir sem að jafnaði aka á vegum með bundnu slit- lagi þurfa tima til þess að venjast malarvegum og eiga því að aka á hæfilegum hraða. Skilin þar sem malarvegur tekur við af bundnu slitlagi hafa reynst mörgum hættuleg. UUMFERÐAR RÁÐ Halldór Gunnlaugsson lögreglu- þjónn á Dalvík kvað er hann sá vit- ann á Gjögurtá leiftra í fyrsta sinn: Nú í leiftrum Ijós má sjá er lýsir og bætir sjómanns haginn, er hún gamla Gjögurtá geislum hellir yfir sæinn. Halldór mun einnig hafa kveðið þessa vísu er hann sat við færi í tregum fiski og hafði skelfisk að beitu: Upp hann lítur ekki vel, ekkert bítur seiði. Og er þrýtur þessa skel þá er lítil veiði. Sigtryggur Símonarson kvað svo á fögru haustkvöldi: Dulúðin sveipar dal og fjörð er dagurinn mætir nótt - á jörð. Stjarnleiftrin brosa blítt til mín og blessaður máninn fullur skín. Pétur Jónsson kvað: Mætti ég fegurð meiri sjá myndi ég reyna að vaka meðan loga ljósin á lífsins vonastjaka. Fjar og máttur fjarar brátt, feigð í gáttum kvikar. Lyftum hátt við lokaþátt lífsins sáttabikar. Helgarblað Dags, 30. nóvember sl. var að miklu leyti helgað Jóni G. Sólnes, bæði í myndum og máli. Jón þarf ekki frekar að kynna. Þá urðu þessar meinlausu vísur til: Stöðugt uppvekjast undur ný í okkar leitandi heimi. Oft sækir maður menntun í margvíslegt blaða streymi. Nú er það orðið upplýst mál að engan vill Sólnes mala. Hann er svo góð og göfug sál sem gaman er við að tala. Ég get ekki séð það geri neitt þótt Gísla sé hlýtt til kallsins og máski fær það ei miklu breytt þótt Múhameð leiti fjallsins. Jón Bjarnason.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.