Dagur


Dagur - 01.02.1985, Qupperneq 15

Dagur - 01.02.1985, Qupperneq 15
1. febrúar 1985 - DAGUR - 15 Vertíðin hafin í Hlíðarfjalli Fyrsti opnunardagur í Hlíðar- fjalli var sl. laugardagur. Að vísu er óvenju lítill snjór í Fjallinu, þrátt fyrir það var fjöldi fólks á skíðum, og stóla- og Stromplyftan í gangi. Með- an ekki snjóar meira er ekki mögulegt að hafa opið nema kl. 13-17 virka daga þar sem eina flóðlýsta brautin við stólalyftuna er snjólaus. Um Friðarhreyfing Pingeyinga heldur héraðsfundi Friðarhreyfing Þingeyinga gengst um næstu helgi fyrir al- mennum héraðsfundum á Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri um áhrif ratsjár- stöðvar á Norðausturlandi. Fundirnir eru undirbúnir í samráði við friðarhópa og áhugafólk um friðarmál á við- komandi stöðum. Héraðsfundirnir verða á eftirtöldum stöðum: ÞÓRSHÖFN: Félagsheimilinu Þórsveri laugardaginn 2. febrúar kl. 14. Fundarstjóri Óli Gunnarsson bóndi, Gunn- arsstöðum. RAUFARHÖFN: Félagsheimilinu Hnitbjörgum, sunnudaginn 3. febrúar kl. 15. Ræðumaður Pétur Þorsteins- son, skólastjóri. Fundarstjóri Gunnar Hilmarsson, sveitar- stjóri. KÓPASKER: f barna- skólanum, sunnudagskvöld 3. febrúar kl. 20.30. Ræðumaður Sveinn Rúnar Hauksson læknir. Fundarstjóri Kristján Ármannsson oddviti. Karlakórinn Geysir og Málm- blásarakvintett Tónlistarskól- ans á Akureyri’ halda tónleika í Akureyrarkirkju nk. sunnu- dag kl. 17 og 20.30. Karlakórinn Geysir og Málmblásarakvintettinn munu koma fram hvor í sínu lagi og eins mun kvintettinn leika undir með kórnum. Á efnis- Þá er Duran Duran-æðið á leiðinni til Akureyrar og allir litlu og stóru Duran Duran- grísirnir í Eyjafirði og ná- grenni ættu að vera saman- helgar verður opiö kl. _10—17.30. Ekki er heldur hægt að byrja námskeið í skíðaskól- anum vegna snjóleysis. Talsverðar umræður hafa verið um sölufyrirkomulag í lyfturnar. Því er þannig háttað að seld eru dagkort, hálfsdags- kort og vetrarkort. Hálfsdags- kortin gilda frá kl. 10-13.30 eða kl. 13.30-18. Gestir geta því keypt hálfsdagskort bæði fyrir og eftir hádegi. Seld eru kort fyrir 15 ára og yngri og 16 ára og eldri. Þeir sem verða 16 ára á árinu borga fullorðinsgjald. Daggjald fyrir yngri hópinn er 100 kr., hálfur dagur 65 kr. og vetrarkort kostar 1.430. Fyrir eldri ald- urshópinn er verðið á dagkort- um 200 kr., hálfsdagskortin kosta 150 kr. og vetrarkortin 2.860 kr. Ástæður fyrir því að ekki eru seldar stakar ferðir í allar lyftur er sú að þá þyrfti að fjölga starfsmönnum við lyft- urnar um a.m.k. 3 þ.e. 1 mann við hverja lyftu til miðaeftir- Iits. Gert er ráð fyrir að 4 lyft- ur verði í gangi og er ókeypis í neðstu lyftuna „Hólabraut". Um helgar verður lögð göngubraut í Hrappsstaða- skál. Þeir krakkar eða unglingar sem hafa áhuga á keppnis- þjálfun á vegum SRA snúi sér til Karls Frímannssonar sími 26361. Börn 9 ára og yngri sem áhuga hafa á skíðakeppni snúi sér til Valþórs Þorgeirssonar sími 22708. í ár er 10 ára afmæli Andr- ésar Andar-leikanna og verður af því tilefni mikið um dýrðir í vor þegar mótið fer fram 24.-27. apríl. skránni eru íslensk og erlend lög. Stjórnandi kórsins er Michael J. Clarke, en hann mun jafnframt syngja einsöng á tónleikunum. Það skal tekið fram að hér er ekki um hina árlegu styrktárfélagatónleika að ræða. komnir í Sjallanum á sunnu- dag. Þá verður boðið upp á Duran Duran-hátíðina sem gert hefur það gott á skemmti- staðnum Traffic fyrir sunnan. Bandaríski píanóleikarinn Ruth Slenczynska heldur tón- leika á sal Tónlistarskólans á Akureyri, Hafnarstræti 81a, 4. hæð, þriðjudagskvöldið 5. febrúar nk. kl. 20.30. Hún hef- ur haldið um 3 000 tónleika víðs vegar um heim, leikið inn á hljómplötur jaínframt því sem hún er prófessor í píanó- leik við háskólann í Suður-Illi- nois í Bandaríkjunum. Hún er Fyrir þá sem ekki vita hvað Duran Duran er, skal upplýst að það er samnefnd bresk hljómsveit sem notið hefur mikilla vinsælda undanfarin fyrst bandarískra kvenpíanista til að halda upp á hálfrar aldar tónleikaferil. Á tónleikunum á þriðjudagskvöld leikur Slenczynska tilbrigði við stef Paganinis eftir Liszt, sónötu op. 10 nr. 3 eftir Beethoven. etýðu, vals og sónötuna í h- moll eftir Chopin, 6 prelúdíur eftir Rachmaninoff, sónötur eftir Scarlatti og Virgil Ruth Slenczynska er af ár, ekki síst í lesendadálkum íslenskra dagblaða. Ekki kem- ur þó hljómsveitin í eigin pers- ónu á þessa hátfð en þar verð- ur hins vegar boðið upp á það næstbesta, Ðuran Duran- tískusýningu, -danssýningu, -hársýningu, -videóhljómleika og toppurinn verður sennilega spurningakeppni um Duran Duran en auðvitað eru vegleg Duran Duran-verðlaun í boði. Allir þátttakendur fá auk þess bláar nærbuxur að hætti Simon le Bon, söngvara Duran Duran. Þessi uppákoma verður í tvennu lagi. Fyrst fyrir aðdá- endur Duran Duran í yngri aldursflokki, kl. 15-18, miða- verð er 200 krónur en kl. 21 verður síðan hátíð fyrir 16 ára og eldri og inn á hana kostar 280 kr. pólskum uppruna, en fædd í Ameríku. Hún var talin undrabarn í æsku og var korn- ung send til færustu píanó- kennara Evrópu, svo sem Rachmaninoff, Schnabel, Petri, Cortot og fleiri. Fimm ára gömul hélt hún sína fyrstu opinberu tónleika í Evrópu og þrem árum síðar í Nevv York. Hún fékk stórkostlegar við- tökur, var hampað sem mesta undrabarni allt frá dögum Mozarts og var látin leika fyrir æðstu þjóðhöfðingja og fyrir- menn. Þessi glæsiferill hélst til unglingsáranna. En þegarekki var lengur hægt að hampa henni sem undrabarni, þá fór áhugi fólks að dofna og gagn- rýnendur snéru við henni baki. Ruth Slenczynska flúði að heiman og hætti tónleikahaldi um tíu ára skeið. í bernsku- minningum sínurn sem gefnar voru út árið 1957, þá lýsti Slenczynska átakanlega öllu því harðræði sem hún hafði verið beitt sem barn, rekin áfram af auðgunarsjónarmiði föður síns, neydd til æfinga undir ógnun vandarins og að flestu leyti svipt því atlæti og uppeldi, sem börnum er talið mikilvægt. Leikmáti og túlkun Slenc- zynska þykir á ýmsan hátt óvenjulegur og umfram allt persónulegur. Hún ræður yfir geysilegri tækni og krafti, og túlkun hennar einkennist af miklum andstæðum. Hún hef- ur lagt mikla alúð við að kynna pólska tónlist, og þykir af- bragðs Chopin-túlkandi. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn, og verðið er kr. 200 almennt en kr. 100 fyr- ir skólafólk og börn. Varðberg jundar um ratsjár- stöððvar Laugardaginn 2. febrúar gengst Varðberg, félag um vestræna samvinnu, fyrir fundi í Mánasal Sjallans kl. 13.30. Þar mun Pétur Einarsson, flugmálastjóri, halda fyrirlest- ur um ratsjárstöðvarnar marg- umtöluðu, sem fyrirhugað er að setja upp á Norðaustur- landi og Vestfjörðum. Pétur mun ræða tilgang þessara stöðva með tilliti til flugörygg- is. Fundurinn er öllum opinn. Pétur Einarsson rœðir um Á laugardaginn verður hald- inn fundur um flugöryggismál í Lundarskóla og hefst hann kl. 17.00. Það eru flugáhuga- menn á Akureyri sem gangast fyrir þessum fundi, en hlið- stæðir fundir eru haldnir mán- aðarlega í Reykjavík. Á fund- inum á að kjósa í nefnd, serr. síðan er ætlað að sjá um fram- hald á fundarhöldum um ör- yggismál flugsins. Á fundinum á morgun verð- ur myndasýning, en síðan mun Pétur Einarsson, flugmála- stjóri, flytja ávarp. Að því loknu verða frjálsar umræður. Fundurinn er öllum opinn. Blakað umhelgina Það verður mikið blakað á Akureyri urn helgina, bæði í kvenna- og karlaflokki. í kvöld kl. 20.30 hefst viður- eign KA og Breiðabliks í kvennaflokki en strax á eftir þeim leik mætast karlalið sömu félaga í annarrar deild- ar keppninni. Þessar viður- eignir verða í Glerárskóla. Á laugardag mætast kvennaliðin að nýju en þá í íþróttahöllinni kl. 16. Hörku- leikir í Höllinni í kvöld í kvöld, föstudagskvöld, verð- ur kátt í höllinni, það er að segja íþróttahöllinni, því þá verða leiknir þar hvorki fleiri né færri en þrír handboltaleik- ir. Sá fyrsti er í 3. flokki karla á milli Þórs og Ármanns og að sjálfsögðu kallast hann for- leikur. Síðan kemur aðalrétt- urinn, en þar er um að ræða leik Þórs og Ármanns í 2. deild íslandsmótsins og sam- kvæmt staðfestum heimildum blaðsins hafa Þórsarar ákveðið að vinna þennan leik. Desert- inn er svo leikur Þórs og Frant í 1. deild kvenna og þar er sömu sögu að segja; Þórsstelp- urnar ætla að vinna þennan leik. Fyrsti leikurinn hefst klukkan átta. Söngtónleikar í Akureyrarkirkju Allirfá bláar nœrbuxur - á Duran-Duran-hátíðinni í Sjallanum

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.