Dagur - 01.02.1985, Qupperneq 16
M©ii,
Þorrínn er byrjaður.
Afgreiðum þorramat í trogum alla daga.
Akureyri, föstudagur 1. febrúar 1985
BAUTINN.
Uppboðshamarinn
reiddur til höggs!
Kolbeinsey ÞH 10.
Uppboðsbeiðnir vegna hinna
svokölluðu skuldaskipa sem
ekki áttu veð fyrir skuldbreyt-
ingu, voru sendar út frá Fisk-
veiðasjóði íslands sl. föstudag.
Meðal skipanna á listanum er
Kolbeinsey ÞH 10 þinglýst
eign Höfða hf. á Húsavík.
- Uppboðsbeiðnin kom hing-
að á þriðjudag en það er upp-
boðshaldara að ákveða hvenær
skipið verður boðið upp. Sýslu-
maður tekur ákvörðun um það
þegar hann kemur frá Reykjavík,
sagði Sigurður Briem, aðalfull-
trúi hjá sýslumannsembættinu á
Húsavík í samtali við Dag.
Eigendur Sigurbjargar ÓF 1
sluppu fyrir horn og af skulda-
skipalistanum þegar ákveðið var
framleitt
á Blönduósi
„Þetta kálfafóður hefur verið
reynt á Möðruvöllum og á
nokkrum bæjum í Húna-
vatnssýslum og það hefur
reynst mjög vel,“ sagði Páll
Svavarsson, samlagsstjóri
hjá Mjólkursamlagi Hún-
vetninga á Blönduósi, í sam-
tali við Dag.
Mjólkursamlag Húnvetninga
hefur hafið framleiðstu á kálfa-
fóðri, sem er ætlað kálfum á
fyrstu vikum æviskeiðsins.
Kálfafóðrið samanstendur af
valsþurrkuðu undanrennudufti,
tólg og nauðsynlegum bætiefn-
um. Það er svipað og svonefnt
T-mjöl frá Mjólkurbúi Flóa-
manna á Selfossi, nema hvað
önnur vinnsluaðferð gerir fóðr-
ið frá Blönduósi grófgerðara.
Einnig inniheldur Blönduós-
fóðrið meiri fitu, sem gerir það
orkumeira. Osta- og smjörsalan
sf. annast sölu og dreifingu á
kálfafóðrinu frá Blönduósi.
- GS
að veita þeim 117 millj. kr. lán til
að greiða upp eldri skuldir og
vaxtakostnað. Forsendurnar eru
þær að skipinu verði breytt í
frystitogara en það verk mun
senniiega kosta um eða yfir 30
millj. kr. Aðeins ríkisstjórnin á
nú eftir að leggja blessun sína yfir
þessa lánveitingu en í samtali við
Dag sagðist Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra búast við
að það yrði gert einhvern næstu
daga.
í sjónvarpsþætti á þriðjudags-
kvöld lýsti ráðherra því yfir að
hann væri fylgjandi því að stjórn-
völd héldu að sér höndum varð-
andi leyfisveitingar til breytinga
á togurum í frystitogara. Dagur
spurði Halldór hvort það ætti
ekki einnig við um Sigurbjörgu.
- Ég er þeirrar skoðunar að
það sé mjög varasamt að fara út
í að fjármagna slíkar breytingar
með lánsfé, en ég get alveg skilið
að menn skuli grípa til þessara
ráða til að bjarga skipum sínum,
sagði ráðherra. Er Halldór var
spurður hvort hann teldi ekki vá
fyrir dyrum ef aðrir eigendur
skuldaskipa gripu til sömu ráða,
sagðist hann ekki telja að aðrir
færu þessa leið. Það væri tak-
markað pláss fyrir afurðir frysti-
togara á þeim mörkuðum sem
nú væri selt á. Halldór Ásgríms-
son ítrekaði einnig þá skoðun
sína að það væri óæskilegt að
menn færu út í frystitogaraútgerð
án þess að hugsa um afleiðing-
arnar í landi.
Dagur spurði að endingu
Valtý Sigurbjarnarson, bæjar-
stjóra í Ólafsfirði, hvort ekki
væri bagalegt að missa Sigur-
björgu úr hráefnisöfluninni fyrir
frystihúsið með tillitil til atvinnu-
ástandsins í Ólafsfirði. - ESE
Raðsmíðabátamir „enn í salti“
Vinna við raðsmíðabátana hefur iegið niðri að mestu að undanfömu vegna mikilla anna í Slippstöðinni.
Mynd: ESE
„Eg er hvergi smeykur“
- segir Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar
- Ég hef trú á að þetta mál
skýrist á næstunni. Það er
áhugi á þessum skipum, þau
eru fjölhæf og verðið ætti ekki
að fæla neinn frá.
Þetta sagði Gunnar Ragnars,
forstjóri Slippstöðvarinnar er
hann var spurður hvernig gengi
að selja raðsmíðabátana svo-
kölluðu. Sem kunnugt er var
búið að ráðstafa báðum bátunum
en þar sem kaupendurnir fengu
ekki fyrirgreiðslu hjá Fiskveiða-
sjóði féllu kaupin niður.
I samtali sem blaðamaður
Dags átti við Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra, kom
fram að honum væri ekki kunn-
ugt um að nein hreyfing væri á
þessu máli. Enginn hefði a.m.k.
gert sér grein fyrir rekstrargrund-
velli slíkra báta eða sýnt fram á
að þeir gætu borið sig. Pá væri
ljóst að engum nýjum skipum
yrði bætt við flotann.
- Ég er ekkert smeykur vegna
þessara raðsmíðabáta og hef
aldrei verið. Flotinn úreldist og
sóknargeta gömlu skipanna
minnkar. Miðað við þann áhuga
sem komið hefur fram á þessum
uppboðstogurum, er ljóst að það
er greinilega mikil þörf fvrir ný
skip, sagði Gunnar Ragnars.
- ESE.
Er kominn nægur snjór í Hlíðarfjall,
spurði Eyjólfur Þorbjörnsson,
veðurfræðingur, þegar haft var sam-
band við Veðurstofuna í morgun.
Ekki þorðum við að fullyrða það,
enda ætlar Eyjólfur að bæta um
betur. Hann spáir áframhaldandi
norðanátt og éljagangi í dag og á
morgun með R-15 stiga frosti. Á
sunnudaginn minnkar frostið hugs-
anlega eitthvað, en þá má jafnframt
búast við aukinni snjókomu. „Ég sé
ekki fyrir endann á þessu veður-
fari,“ sagði Eyjólfur.
Nýkomið
glæsilegt úrval af efnum t.d. í
samkvæmisklæðnað og dömusmókinga.
Einnig efni í kápur, jakka og dragtir.
Svart leðurlíki.
Stretchefni:
Svart, fánablátt, hárautt og mintgrænt.
Póstsendum.