Dagur - 22.03.1985, Side 3

Dagur - 22.03.1985, Side 3
22. mars 1985 - DAGUR - 3 Félagsheimilin verða sérhæfð, eitt fyrir dans, annað fyrir leiksýningar og það þriðja fyrir kvikmyndasýningar, söngleiki eða óperur . . . Verður hjónaband úr því? Nú standa yfir umræður um hugsan- lega sameiningu hreppanna innan Akureyrar, Öngulsstaðahrepps, Hrafnagilshrepps og Saurbæjar- hrepps. Hér er á ferðinni mikið til- finningamál og sýnist hreppabúum ýmislegt í þessum efnum. I megin- dráttum skiptast menn - og þar með taldar konur - í þrjá hópa. Sumir vilja óbreytt ástand. Aðrir vilja auk- ið samstarf, en án formlegrar sam- einingar, fyrr en þá eftir einhverja áratugi, þegar formleg sameining hreppanna í eitt sveitarfélag verður ekki annað en að setja punktinn yfir i-ið, eins og einn af gildari bændum Öngulsstaðahrepps orðaði það um árið. Hann mun hins vegar hafa snú- ist á sveif með þriðja hópnum núna, sem sé þeim sem vilja sameina hreppana í einum grænum hvelli. Hefur þá komið til tals, samkvæmt ábyggilegum heimildum blaðsins, að afkvæmið verði látið heita „Saurgils- staðahreppur"!!! Þessum þrem stigum hefur verið líkt við samband karls og konu. Fyrsta stiginu er þá líkt við ástlaust samband, öðru stiginu við óvígða sambúð og þriðja stiginu við hjóna- band. Míkið tiljnwmga- nú áferðinrú Hér er um mikið tilfinningamál Framfirðinga að ræða. Það er ekki óeðlilegt, því það gerir það enginn sér til gamans, að leggja niður sveit- ina sína og gerast íbúi í nýju sveitar- Kvenfélögin hafa verið sameinuð. félagi. Það hefur líka löngum verið nokkur metnaður milli h'reppanna. Öngulsstaðahreppsmenn telja sinn hrepp eðlilega bestan, fallegastan og ríkastan af þessum sveitarfélögum! Þess vegna hafa sumir þeirra viljað líkja því við þróunaraðstoð, að sameina hreppana, þar sem það hljóti eingöngu að koma hinum til góða. Sérstaklega höfða þeir þá til Saurbæjarhrepps, þar sem margir þeirra telja hann hreppa fátækastan. Nú, auðvitað hugsa þeir í Hrafnagils- hreppi og Saurbæjarhreppi eitthvað svipað. Þeir telja sig eflaust ekkert hafa að sækja til þeirra í Önguls- staðahreppi, enda þykir flestum sinn fugl fagur. Svo hafa Öngulsstaða- hreppsmenn líka haft um það orð, að þeir séu gáfaðastir af Framfirðing- um. Þar komast þeir að líkindum næst sannleikanum í þessum efnum!!! Margs konar vangaveltur Á dögunum var haldinn um þetta málefni fundur í Öngulsstaðahreppi. Þar bar ýmislegt á góma, ýmist í gamni eða alvöru. Menn „pældu“ svolítið í því, hvað þeir græddu við sameininguna, en sá gróði var ekki alveg borðleggjandi. Menn sáu til dæmis ekki tilganginn í því að opna sameiginlega skrifstofu fyrir hrepp- ana, ef áfram yrðu þrír oddvitar og enginn þeirra til staðar á skrifstof- unni. Þar með héldi ónæðið á odd- vitaheimilunum áfram á öllum tím- um sólarhringsins. í því sambandi hafði Birgir oddviti Þórðarson um það orð, að oddviti Saurbæjarhrepps hefði eitt sinn auglýst viðtalstíma á ákveðnum dögum. Árangurinn var sá, að hreppsbúar í Saurbæjarhreppi leituðu til oddvita síns á öllum öðrum tímum, en létu helst ekki sjá sig þegar viðtalstíminn var. Að þess- um upplýsingum fengnum taldi Kristján á Rifkelsstöðum aldeilis ómögulegt að sameinast Saurbæing- um í sveitarfélagi, þar sem þeir kynnu greinilega ekki á klukku. Það kom líka fram á fundinum, að víst væri togstreita um staðsetningu sameiginlegrar skrifstofu fyrir hrepp- ana þrjá. Eðlilegasta lausnin var talin flotprammi á miðri Eyjafjarðará inn hjá Torfum! Þar mætast hrepparnir þrír. Þó var ekki talið útilokað, að pramminn gæti verið eitthvað neðar, t.d. við brúna hjá Hrafnagili og Laugalandi, því þó það væri nokkurn spöl frá Saurbæjarhreppi, þá væri þó víst að megnið af vatninu í ánni kæmi frá Saurbæingum. Hvað á að gera við rusB? í Öngulsstaðahreppi er fyrirmyndar- þjónusta við íbúana, sem ekki fyrir- finnst í hinum hreppunum. Hún felst í því, að Ragnar Bollason á Bjargi safnar saman sorpi frá hreppsbúum vikulega - og ekur því eðlilega til Akureyrar! Svo sér hreppurinn um að hreinsa snjó af heimreiðum en það er eðlilega háð því skilyrði, að snjór sé til staðar! Hvorki sorp né snjór er hreinsað á vegum Saurbæj- arhrepps eða Hrafnagilshrepps; þar verða menn einfaldlega að sjá um þessa hluti sjálfir. Þetta kom til um- ræðu á fundinum hjá Öngulsstaða- hreppsmönnum. Sumir mikluðufyrir sér flókið vegakerfi í Saurbæjar- hreppi, það yrði dýrt að safna sorp- inu þeirra saman. Aðrir töldu slíka samhjálp sjálfsagða. Einhver kom líka fram með þá einföldu lausn, að fleyta bara ruslinu niður eftir ánni! Vildi sá hinn sami meina, að Saurbæ- ingar gerðu það nú þegar margir hverjir!! Svo voru það félagsheimilin; hvað á að gera við þau? Eftir sameiningu verður tæpast ástæða til að halda þeim öllum í gangi með núverandi hætti. Fram hefur komið sú hug- mynd, að Freyvangi verði breytt í leikhús, Sólgarður verði áfram til dansleikjahalds, en Laugaborg verði breytt í kvikmyndahús. Einhver hafði um það orð, að myndböndin sæju til þess, að rekstur kvikmynda- húss væri vonlaus. - Þá gerum við Laugaborg bara að kvikmyndahúsi, söngleikjahúsi eða þá óperu, sagði hugmyndasmiðurinn. Engin vand- ræði með það. Framfirðingar hafa því um nóg að ræða þessa dagana og ég er vís til að fjalla um þetta mál af nokkurn al- vöru í Degi á næstunni!! Bach í meirihluta Býsna „skrýtinn" minnihluti, sem ég vil gjarnan „púkka upp á“, lét frá sér fara skrif í les- endahorn Dags 20. mars sl. Þessi nafnlausi lesandi sá mikl- um ofsjónum yfir því að grein nm Bach fengi rúm í Degi á 300 ára fresti. Þolinmæði þessa lesanda virðist harla lítil miðað við þann mælikvarða sem hann leggur á hálfrar síðu skrif, sem hann kallar lang- loku. Dómgreind takmörkuð, ef marka má þá hleypidóma að kalla fróðlega grein um eitt virtasta og vinsælasta tónskáld heimsins „menningarkjaft- æði“. Umburðarlyndi gagn- vart lestrarefni fyrir „skrýtinn minnihluta", sýnist undra rýrt, sér í lagi þar sem fjöldi tónlist- aráhugafólks í bænum er mjög mikill. Skilgreining þessa lesanda á orðinu menning er afar þröng, a.m.k. ef hann ætlar að draga markalínuna á milli þeirra Soffíu og Reynis, því ég fæ ekki betur séð en skrif Reynis Antonssonar séu í hæsta máta menningarleg. Sjálfsagt hefur Reynir ekki hugsað sér að útiloka tónlist Bachs frá þeim „sómasamlega tónleikasal“, sem hann minnt- ist á að þyrfti að byggja hér í bæ (sjá Dag 8. mars ’85). Vonandi eigum við eftir að lesa margar greinar eftir Reyni í þessu blaði, og vonandi á margt áhugasamt fólk eftir að fræða okkur um tónlist á síð- um blaðsins, því ég veit að Dags-menn vilja gjarnan fá meira að heyra úr þeirri átt- inni og ýmsir lesendur einnig. Ég vil þó benda Dags- mönnum á, að hugsanlega sé stóra letrið á óskinni um „Mennngarsnauðan Dag“ heldur óheppilegt í annars góðri viðleitni blaðsins að gegna menningarlegu hlut- verki á ýmsa lund. Jón Hlöðver Áskelsson. Húsmæður munið sýrðan rjóma nú þegar fermingar og páskar fara í hönd. ábötn osaSsáí

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.