Dagur - 22.03.1985, Side 7

Dagur - 22.03.1985, Side 7
22. mars 1985 - DAGUR - 7 „Ég kem þá bara hmgað norður aftur‘( - Kolbeinn Sigurbjömsson á línunni - Kolbeinn Sigurbjörnsson, ferðamálafrömuður með meiru, er hann á línunni? - Já, hann er hér. - Er það satt Kolbeinn, að þú sért að yfirgefa Akureyri? - Já. - Hvers vegna? - Mér bauðst spennandi starf, sem ég gat ekki hafnað. - Hvaða starf er það? - Ég verð sölustjóri innan- landsflugs hjá Flugleiðum. - Hvað felst í því? - Ég kem til með að stjórna farmiðasölu í innanlandsflug- inu. Inn í þetta kemur líka flug til Færeyja og hugsanlega Grænlands. 1 stuttu máli felst þetta í að selja sæti í Fokkerun- um. Ég kem líka til með að hafa tengsl við þá sem selja farmiða á umboðsskrifstofum Flugleiða erlendis, því þeir selja erlendum ferðamönnum farmiða í innan- landsflugi hér. - Er þetta spennandi starf? - Já, mjög svo, annars hefði ég ekki haft áhuga á því. Þetta er mjög fjölbreytt starf og lif- andi, það er alltaf eitthvað að gerast og starfið býður auk þess upp á samstarf við marga menn, karla sem konur. Auk þess fylg- ir þessu mikil ábyrgð; það dugir ekki annað en að standa sig. - Var þér farið að leiðast hér á Akureyri? - Nei, nei síður en svo. Ég er búinn að búa hér í ein fjórtán ár og lít á mig eins og heimamann, þó ég sé fæddur og uppalinn í Reykjavík; ég bjó þar fram að tvítugu. Þaðan fór ég til Egils- staða, reyndi mig þar við að reka prjónastofu í eitt ár. Þaðan kom ég til Akureyrar og byrjaði að starfa hjá Vélsmiðjunni Odda. Svo fór ég í flugið, náði meira að segja að starfa hjá Flugfélagi íslands og síðar hjá Flugleiðum. Við vorum með söluskrifstofu hér við Ráðhús- torgið, þar sem Almennar trygg- ingar eru núna. - Sú söluskrifstofa gekk síð- an inn í Ferðaskrifstofu Akur- eyrar, ekki rétt? - Jú, jú, og ég fylgdi með. En ég var ekki lengi þar, því ég tók að mér rekstur fyrir söluskrif- stofu Útsýnar, sem fyrst var til húsa í Bókvali hjá Aðalsteini, en síðar í Hafnarstræti 98. Loks sameinaðist Útsýnar-skrifstofan Ferðaskrifstofu Akureyrar fyrir stuttu - og aftur fylgdi ég með. Ég er því búinn að fara hringinn hérna í Miðbænum. - Var síðasti áfanginn þér erfiður; voru síðustu skrefin þung? - Nei, það get ég ekki sagt. Það var miklu erfiðara fannst mér að hugsa til sameiningar- innar heldur en raunin varð svo á. Ég hafði óneitanlega hugsað til þess með nokkrum kvíða, að þurfa að ganga þessi skref. En þau reyndust mér létt þegar til kom og sameiningin hefur geng- ið mjög liðugt fyrir sig í framkvæmd. Samstarfið hefur líka gengið vel eftir að ég kom hingað, þannig að ég hef ekki yfir neinu að kvarta. - Pað er þá ekki vegna sam- starfserfiðleika innan Ferða- skrifstofu Akureyrar, sem þú ert að stökkva suður? - Nei, því fer fjarri, en reyna ekki allir að sækja fram? Annað væri óeðlilegt. Mér býðst þarna starf sem er ábyrgðarmeira en það sem ég hef. Þetta er sem sé skref upp á við fyrir mig. Og starf hvers manns er nú einu sinni svo stór hluti af lífinu, að það er mikilsvert að vera ham- ingjusamur í starfi. - Hryllir þig ekkert við að fara þarna suður í súldina, rokið og rigninguna? - Nei, það get ég ekki sagt, mig hryllir ekki við því. Hinu get ég ekki neitað, að ég ber ákveðinn kvíða fyrir veðurfar- inu. Hér hefur verið sumar nær samfleitt í hátt í tvö ár, á sama tíma og mikið hefur rignt syðra. Vonandi verður þar breyting á í sumar. En ég kem til með að sakna Akureyrarveðursins. Svo getur vel farið svo, að ég nái ekki að skjóta rótum aftur í Reykjavík. Ég fer suður til reynslu, tek þar til starfa 20. apríl. Ég flyt hins vegar ekki með fjölskylduna strax, því fyrir það fyrsta verða börnin að ljúka sínum skóla. Og það er meira en bara að segja það, að flytja bú- ferlum landshorna á milli. Þess vegna vil ég vera viss um að starfið eigi við mig, áður en ég fer út í búferlaflutninga. - Koma Norðlendingar til með að eiga hauk í horni hjá Flugleiðum, þar sem þú ert? - Ef út í það er farið held ég að Norðlendingar eigi marga hauka í horni hjá Flugleiðum. Jú, mín reynsla af ferðamálum hér nyrðra kemur til með að koma mér verulega til góða í þessu nýja starfi - og væntan- lega Norðlendingum líka. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ferðamálum og ég er sannfærður um það, að á Norðurlandi er- uónýttir atvinnumöguleikar í ferðaþjónustu. Loksins núna virðast menn vera farnir að gera sér grein fyrir þessu, en mér finnst vakningin ganga allt of seint. Menn hafa gjarnan viljað líta á þetta sem tómstundastörf, en ekki atvinnugrein. Sann- leikurinn er hins vegar sá, að með aukinni ferðaþjónustu er hægt að skapa atvinnu fyrir fjölda manns. Og tekjumögu- leikarnir eru góðir - og stór hluti af þeim tekjum yrði í erlendum gjaldeyri. Ég vona að landsfeð- urnir fari að átta sig á þessu og ráðamenn á Norðurlandi ættu að beita sér fyrir uppbyggingu í ferðaþjónustu af krafti. Eða er ekki alltaf verið aö tala um at- vinnuskort. Af hverju þá að láta þennan kost liggja ónýttan? - Pakka þér fyrir spjallið Kolbeinn. Ég óska þér velfarn- aðar í nýju starfi og vona að ekki rigni óskaplega mikið á þig fyrir sunnan. - Þakka þér fyrir. Nú, ef það rignir látlaust, þá kem ég bara norður aftur. -GS Haínarstræ ti 98 - Akureyri ■ Simi (96) 22214 Konur í bæ 09 byggð Nú er vorjafndægur og vorvörurnar komnar. Sportfatnaður, blússur og kjólar. Slæður, belti og festar í nýju vorlitunum. Vel klædd er konan ánægð. HókuufetlLí úNEILA J$teL tnunnar un Siglufjörður: Blönduós: Ólafsfjörður: Hrísey: Dalvík: Grenivík: Húsavík: Mývatnssveit: Kópasker: Raufarhöfn: Matthías Jóhannesson, Aðalgötu 5, sími 71489. Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581 Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308. Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728. Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247. Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112. Hafliði Jósteinsson, Garðarsbraut 53, sími 41765. Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173. Sólveig Tryggvadóttir, Akurgerði 5, sími 52145. Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225. Sýndar verða 1985 árgerðirnar af: Honda Accord EX með öllu, Honda Civic Sedan sjálfskipur, Honda Civic 2ra dyra. Bifreiðaverkstæðið Þórshamar hf. v/Tryggvabraut, Akureyri, sími 22700. laugardag og sunnudag 23. og 24. mars frá kl. 13-17 báða dagana. Bílasýning

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.