Dagur - 22.03.1985, Side 15
22. mars 1985 - DAGUR - 15
IMrefmr
Éreið-
mmskeiðs
Hestamannafélagið Léttir efn-
ir til reiðnámskeiðs, sem hefst
í Lundarskóla laugardaginn
30. mars kl. 13.30. Kennt
verður í flokkum unglinga,
byrjenda og þeirra sem lengra
eru komnir. Einnig stendur til
að vera með flokk fyrir sýn-
endur, ef óskir koma þar um.
Kennari á námskeiðinu verður
Bjarni E. Sigurðsson, reið-
kennari. Stefán Bjarnason,
Gunnar Egilson, Guðrún
Hallgrímsdóttir og Jón Ó. Sig-
fússon gefa nánari upplýsingar
um námskeiðið. Væntanlegum
þátttakendum er bent á að
hafa hesta sína nú í góðri
þjálfun, því góður hestur
tryggir betri árangur.
Áán
sigrará
Húsavík
Um síðustu helgi frumsýndi
Leikfélag Húsavíkur gaman-
leikinn „Ástin sigrar" eftir
Ólaf Hauk Símonarson undir
leikstjórn Þórhalls Sigurðsson-
ar. Leiknum var frábærlega
vel tekið, eða eins og einn
frumsýningargestanna sagði í
samtali við Dag: „Það var
hlegið látlaust frá fyrstu mín-
útu til þeirrar síðustu." Þannig
eiga gamanleikir að vera.
Næsta sýning er í kvöld, eða
öllur heldur í nótt, því hún
hefst kl. 23.30. Næstu sýningar
eru síðan á mánudag og
þriðjudag kl. 20.30. Athygli
skal vakin á því, að sætaferðir
eru frá Akureyri. Upplýsingar
um þær er að fá hjá Óndvegi í
síma 24442.
SMðagöngu-
ferðá
Porvaldsdal
Á morgun, laugardag, efnir
Ferðafélag Akureyrar til
skíðagönguferðar um Þor-
valdsdal, ef veður og færi
leyfa. Upplýsingar um ferðina
er að fá á skrifstofu Ferðafé-
lagsins í dag frá 17.30-19.00.
Síminn er 22720.
m-»g
skemmíiferð
LMsmanm
Á morgun, laugardag, efnir
Hestamannafélagið Léttir á
Akureyri til kaffi- og skemmti-
ferðar. Lagt verður af stað frá
Bæjarréttinni kl. 13.30 og rið-
ið fram að Hrafnagili. Þar fá
menn sér hressingu - og hross-
in líka, en síðan verður riðið í
bæinn aftur. Vakin skal athygli
á því, að ætlast er til þess að
menn teymi hrossin sín, þann-
ig að hægt sé að komast hjá
rekstri.
Morgunverður
í rúmið
Nk. laugardagskvöld frumsýn-
ir Ungmennafélag Möðru-
vallasóknar gamanleikinn
„Morgunverður í rúmið“ eftir
Jack Popplewell, í þýðingu
Halldórs Ólafssonar.
Leikstjóri er Ari H. Jósa-
vinsson en leiðbeinandi við
uppsetningu, leikmynd og
förðun er Þráinn Karlsson.
Leikendur eru alls 9.
Leikhópurinn hefur æft leik-
inn í félagsheimilinu Freyju-
lundi og þar verða flestar sýn-
ingarnar, en ráðgert er að sýna
leikinn á nokkrum stöðum hér
í grenndinni.
Önnur sýning á „Morgun-
verður í rúmið“ verður á
sunnudagskvöldið 24. mars kl.
21 í Freyjulundi og þriðja sýn-
ing á sama stað kl. 21 þriðju-
daginn 26. mars. Miðapantan-
ir verða teknar í síma 25305
frá kl. 18 sýningardagana.
EFTIR
Jack Popplev/e))
Forseta-
heimsókn
á Dalvík
Leikfélag Ólafsfjarðar sýnir
gamanleikinn Forsetaheim-
sóknina eftir Régo og Bruneau
í samkomuhúsi Dalvíkinga
laugardagskvöldið 23. mars kl.
21 og í samkomuhúsinu í Hrís-
ey sunnudaginn 24. mars kl.
16. Leikstjóri er Grétar Magn-
ússon.
KA með
kökubasar
Handknattleiksdeild KA
gengst fyrir kökubasar í and-
dyri Iþróttahallarinnar á
morgun, laugardag, og hefst
basarinn kl. 16.
Þar verður hægt að kaupa
kökur og tertur af öllum
mögulegum gerðum og stærð-
um á hagstæðu verði, og er
skorað á velunnara félagsins
að mæta á staðinn, styrkja
handboltadeildina og gera góð
kaup.
Badminton
álands-
mœlikvarða
Allir bestu badmintonleikarar
landsins verða samankomnir
á Akureyri um helgina en þá
verður haldið opið mót TBÁ í
A-flokki og meistaraflokki.
Um 60 keppendur eru
skráðir til leiks en þar fer
fremstur Broddi Kristjánsson,
margfaldur íslandsmeistari.
Keppendur verða frá TBA,
TBR, Hafnarfirði, Akranesi
og Siglufirði.
Keppnin hefst kl. 10 á laug-
ardag í Höllinni og kl. 9 á
sunnudag. Úrslitaleikirnir
hefjast um kl. 11 á sunnudag.
Keppt verður í einliða- og tví-
liðaleik karla og kvenna og
tvenndarkeppni.
Hondur
sýndará
Þórshamri
Um helgina efnir bifreiðaverk-
stæðið Þórshamar til bílasýn-
ingar í húsnæði sínu við
Tryggvabraut. Sýndar verða
1985 árgerðirnar af Honda
Accord EX með öllu, Honda
Civic Sedan sjálfskiptum og
Honda Civic tvennra dyra.
Sýningin er á morgun og
sunnudaginn og er opin frá kl.
13-17 báða dagana.
Skátaball í
Gagganum
Skátaball verður í Gagnfræða-
skóla Akureyrar kl. 21 í kvöld.
Miðaverð er kr. 100.
Hvítir
flugið
Stórmyndin Hvítir máfar verð-
ur frumsýnd á Akureyri í
Borgarbíói kl. 18 á laugardag.
Myndin var nýlega frumsýnd
á Seyðisfirði og hefur verið
sýnd í u.þ.b. viku í Reykjavík.
Hvítir máfar er kvikmynd
sem hlotið hefur verðskuidaða
athygli. Myndin var tekin á
Austurlandi og Austfjörðum
sl. haust og sögusviðið er fært
25 ár aftur í tímann til þess
tíma er verið var að finna las-
er-geislann upp og er þá sjálf
kjarnorkubomban meðtalin.
- Við gefum okkur að hluti
þessa vopns hafi verið fundinn
upp hér á Islandi. Allt annað í
myndinni á sér stoð í raun-
veruleikanum en við færum
auðvitað í stílinn eftir því sem
við á, sagði Jakob Magnússon,
Stuðmaður og eínn aðstand-
enda myndarinnar í samtali
við Dag.
Að sögn Jakobs er Hvítir
máfar mjög óvenjuleg og fynd-
in kvikmynd.
- Við þverbrjótum öll
lögmál vísvitandi. Við höfum
komist upp með þetta á
plötum okkar og gerum það í
kvikmyndinni líka. Myndin cr
krydduð með ýmiss konar
kryddum og ég get t.d. nefnt
máfar taka
á Ákureyri
að við erum með magnað engi-
sprettusuð á einum stað, þó að
mér vitandi hafi þau kvikindi
enn ekki borist til Seyðisfjarð-
ar.
Aðalleikarar í myndinni eru
Ragnhildur Gísladóttir, Egill
Ólafsson, Tinna Gunnlaugs-
dóttir og eins eru Rúrik Har-
aldsson, Flosi Ólafsson og
Þórhallur Sigurðsson (Laddi)
í stórum hlutverkum. Aðrir
sem koma við sögu eru t.d.
bandarískur leikari Tyrone
Troupe og Pamela Brement,
sendiherrafrú.
Að sögn Jakobs Magnús-
sonar koma þó nokkuð margir
við sögu sem ættir eiga að
rekja til Akureyrar. Má þar
fyrst telja hann sjálfan, Egil
Eðvarðsson, upptökustjóra,
Sigurveigu Jónsdóttur sem
leikur í myndinni, Ágúst Bald-
ursson sem kvikmyndar og
klippir og búningameistarann
Önnu Ringsted. Þá leikur Pét-
ur Eggerz í myndinni en hann
fer með hlutverk í leikritinu
um Sólon.
Sýningar verða í Borgarbíói
kl. 18 og 21 og eins er í ráði að
hafa afsláttarsýningar fyrir
ungt fólk kl. 15 á sunnu-
dögum.