Dagur - 22.03.1985, Síða 16

Dagur - 22.03.1985, Síða 16
Akureyri, föstudagur 22. mars 1985 Slippstöðin með næg verkefni „Við höfum nægileg verkefni eins og er. Þar að auki eigum við í viðræðum við stjórnendur Ogurvíkur hf. um að breyta Freða í frystiskip og sams kon- ar brcytingar á togaranum Arinbirni eru fyrirhugaðar. Þar að auki erum við að skoða möguleika á að bjóða í endur- bætur á togaranum Bjarna Herjólfssyni, sem Útgerðar- Hvammstangi: Mikil fjölgun íbúa Mikil fjölgun íbúa varð á Iivammstanga á sl. ári, og sagði Þórður Skúlason sveitar- stjóri þar að Hvammstangi hefði orðið í 3. sæti sveitarfélaga í landinu hvað snerti fólksfjölg- un hlutfallslega, á eftir Bessa- staðahreppi og Mosfellshreppi. hreppi. tbúar á Hvammstanga voru um 650 um síðustu áramót. Þórður sagði að íbúafjölgunin hefði ver- ið mikil undanfarin ár. Þó hefði dregið úr henni 1982 og 1983 en síðan jókst íbúatalan verulega á síðasta ári. Mikið hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði. Sameinaðir verk- takar á Hvammstanga sem séð hafa um flestar byggingar þar síð- ustu árin hafa sótt um lóð fyrir fjölbýlishús og eru áform uppi um að hefja byggingarfram- kvæmdir við það í vor. í þessu húsi verða 7-8 íbúðir. gk-. félag Akureyringa hefur nú keypt.“ Þetta hafði Gunnar Ragnars að segja um verkefnastöðuna hjá Slippstöðinni um þessar mundir. En það er ekki nóg að hafa verk- efnin. „Vandamálið er að fjár- magna þessi verkefni, því Fisk- veiðasjóður hefur ekki afgreitt umsóknir á þeim forsendum, að lánsfjáráætlun liggi ekki fyrir. Það er náttúrlega óviðunandi að reka fyrirtæki við þessar aðstæð- ur. Það var komið á nokkurs kon- ar afurðalánakerfi í sambandi við nýsmíðarnar, en nú má ekki minnast á þær. Við höfum tekið tillit til þess og reynt að auka okkar verkefni í viðgerðum og endurbótum eftir föngum, en þá rekum við okkur á þennan vegg. Á síðasta ári var þessum málum bjargað með 150 m. kr. lánsfé, sem iðnaðarráðherra gekkst fyrir að veitt var um byggðasjóði. Það fer hrollur um mig þegar ég hugsa til þess hvernig farið hefði ef það hefði ekki komið til. Ég hef verið að gera mér vonir um að ráðamenn geri einhverja áætl- un um hvernig eigi að standa að fjármögnun á viðhaldi fiskveiði- flotans, í líkingu við afurðalána- kerfið vegna nýsmíðanna. En sú von mín hefur ekki ræst enn,“ sagði Gunnar Ragnars. -GS Eigum enn borð í Smiðju um' ' Nýir réttir á helgarseðlimun. Þorvaldur Hallgrímsson leikur fyrir matargesti. Á rólegum degi í Sandgerðisbót. Mynd: KGA Akureyri: Lausir hundar til vandræða - Það þýðir ekkert að horfa framhjá því að þetta er mikið vandamál hér í bænum og að- gerða er þörf, sagði Sigfríður Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi í samtali við Dag en hún fór þess nýlega á leit við bæjarráð að það tæki hundahald í bæn- um og reglugerðir þar að lút- andi til rækilegrar athugunar. Að sögn Sigfríðar er mjög mik- ið um það að hundar gangi lausir í bænum og talsvert væri um það að fólk yrði fyrir barðinu á þeim. Þetta ætti sérstaklega við um póstburðarfólk, blaðburðarbörn og þá sem lesa af mælum. - Það vantar alveg ákvæði um það hverjir eigi að hafa eftirlit með hundahaldinu. Annað hvort verðum við að ráða fólk til þess eða semja við lögreglustjóra um að lögreglan taki það verk að sér. Þá vantar skýrari reglur um ýmis- legt sem lýtur að hundahaldi. T.d. í hve löngu bandi hundurinn á að vera. Þá er spurning hvort ekki verði að hækka svokallað handsömunargjald til þess að hundaeigendur passi betur upp á hunda sína, sagði Sigfríður en hún sagðist myndi ýta á eftir þessu máli við bæjarráð og það væri von hennar að úrbóta væri ekki langt að bíða. -ESE Norðlæg átt verður ríkjandi á Norðurlandi um helgina. El geta orðið með köflum og veður fer kólnandi á morgun og sunnudag. Ekki beint óskaspá, en þetta eru upplýsingar Veðurstofunnar frá í morgun. Stórkostlegt úrval til fermingargjafa í herradeild. Tjöld, svefhpokar, bakpokar, íþróttatöskur og skór. Nýkonmar snyrtitöskur í iniklu úrvali. Lítið inn.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.