Dagur - 10.06.1985, Qupperneq 1
STÚDENTA-
GJAFIR
í MIKLU
ÚRVALI
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
i Litmynda-
framköllun
FILMUnusm
AKUREYHl
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 10. júní 1985
62. tölublað
„Allir mjög
„Piaf“ í leikferð til borgarinnar
- Árni Tryggvason í aðalhlutverki í ævintýrasöngleik í haust
„Hitt leikhúsið bauð okkur að
koma suður með sýninguna á
Edith Piaf og við höfum
ákveðið að þiggja það boð, en
það er Hitt leikhúsið sem sér
algerlega um reksturinn á
Reykjavíkursýningunum,“
sagði Signý Pálsdóttir, leikhús-
stjóri hjá Leikfélagi Akureyr-
ar, í samtali við Dag.
Um næstu helgi verða síðustu
sýningar á Edith Piaf á Akureyri.
Að þeim loknum hefur þessi vin-
sæli söngleikur verið sýndur í 41
skipti, nær alltaf fyrir fullu húsi.
Hann hefur þó ekki slegið met
My Fair Lady, sem náði 55 sýn-
ingum, en hugsanlega slær „Piaf“
það met í Reykjavík, því mögu-
Íeiki er á 18 sýningum þar. Frum-
sýning verður í Gamla bíói laug-
ardaginn 22. júní, aðeins viku
eftir að sýningum lýkur á Akur-
eyri. Leikaraskipan verður
óbreytt, en nýir dansarar koma
í sýninguna syðra með nýja dansa
og skipt verður um marga hljóð-
færaleikara í hljómsveitinni.
Roar Kvam verður þó áfram
hljómsveitarstjóri og Edward
Frederiksen heldur sínu sæti við
píanóið. Það fer svo eftir aðsókn-
inni hvað sýningarnar verða
margar, en ef vel gengur verða
sýningar fimm daga vikunnar í
einn mánuð. Signý undirstrikaði
það í samtalinu við Dag, að þessi
Íeikför væri algjör undantekning,
en ekki upphafið að árlegum
leikferðum LA með söngleiki til
Reykjavíkur.
Að líkindum verða þrjú verk-
efni tekin fyrir hjá LA á næsta
leikári, en ekki fjögur eins og
venjan hefur verið. Pess í stað
verður meira lagt í þessi þrjú
verkefni. Að líkindum verður
byrjað á ævintýrasöngleik, sem
gerður er eftir jólaævintýri
Dickens. Það verður mjög viða-
mikil sýning, um 30-40 manns
koma þar fram, þar á meðal
barnakór. Árni Tryggvason verð-
ur í aðalhlutverkinu. Síðan verð-
ur sýnt nýtt íslenskt leikrit og
þriðja og síðasta verkefnið verður
nýr dramatískur breskur söng-
leikur. - GS
Læknislaust á Þórshöfn
-10 læknar hafa þjónað þar síðan í maí 1984
Slæmt ástand er í læknamálum fyrir það hafa læknar ekki síðri Að sögn héraðslæknisins á
Pórshafnarbúa. Segja má að laun í dreifbýlinu fyrir utan þau Vopnafirði, Jens Magnússonar,
þar hafi verið læknislaust af og fríðindi sem oft fylgja þessum er þetta óviðunandi ástand fyrir
ti| síðan í maí í fyrra. embættum úti á landi. Pórshafn- Þórshafnarbúa að lifa við þetta
arbúar verða því að leita læknis- óvissuástand, en „bót í máli“,
Er við ræddum við Stefán aðstoðar til héraðslæknisins á sagði hann „er að hjúkrunarfræð-
Jónsson sveitarstjóra á Þórshöfn, Vopnafirði. En hann kemur ingur er á Þórshöfn sem getur
sagði hann að þar hefðu verið 10 reglulega einu sinni í viku til sinnt því nauðsynlegasta sem upp
læknar síðan í rnaí á síðasta ári. Þórshafnar. Auk þess hefur hann kemur.“
„Það er eins og læknar vilji ekki þurft að fara eina til tvær ferðir í Engin lausn er í sjónmáli varð-
taka á sig þessa ábyrgð sem fylgir yjku aukalega þangað þegar andi þetta læknisleysi á Þórshöfn.
því að flytja í dreifbýlið. Þrátt læknislaust er á Þórshöfn. gej
Vaktþjónusta tveggja lækna
um kvöld, nætur og helgar er
um það bil 1.100 vaktstundir á
mánuði. Frá áramótum eru vakt-
stundirnar því að nálgast 6.000.
Þar af hefur ráðuneytið greitt 300
stundir fyrir janúar, en síðan
ekkert. -GS
„Aðgerðin
hefur tekist
__________
„Við erum búnir að Ieita til
margra aðila og allir hafa verið
mjög jákvæðir,“ sagði Harald-
ur Ingi Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri hundadagahá-
tíðarinnar, sem fram fer á Ak-
ureyri dagana 8.-14. júlí.
Framkvæmdanefndin hefur
nú opnað skrifstofu í Gamla
barnaskólanum við Hafnarstræti.
Þangað eru allir velkomnir á
venjulegum og óvenjulegum
tímum, að sögn Haraldar. Sím-
inn er 24889. -GS
Blaut lending. Sigurður Bjarklind fallhlífarstökkvari lendir hér í sundlaug- var atríði á mikilli hátíð við Sundlaug Akureyrar, þegar orkuvika hófst í
inni. Á eftir honum komu Ómar Eðvaldsson sem einnig lenti í lauginni, og gær. Mynd: KGA
Sigurður Baldursson, sem lenti á bakkanum - sennilega vatnshræddur. Þetta |
ustu, en þess í stað átti fjármála-
ráðuneytið að sjá um þessar
greiðslur. Eftir sem áður hafa
verið tveir læknar á vakt í heilsu-
gæsluumdæminu samtímis, enda
er svæðið stórt og slíkt því algjör-
lega nauðsynlegt.
Það er viðurkennt, að semja
skuli sérstaklega um vaktþjón-
ustu heilsugæslulækna í þéttbýli.
Þar til slíkir samningar hafa verið
gerðir, gerðú læknarnir þær
kröfur, að þeir fengju sambærileg
laun fyrir vaktirnar til bráða-
birgða, við það sem þeir höfðu
haft fyrir áramót. Fjármálaráðu-
neytið hefur hins vegar nær ekk-
ert greitt.
„Þetta eru erfiðar vaktir sem
við getum ekki staðið enda-
laust án þess að fá laun fyrir,“
sagði Hjálmar Freysteinsson
yfirlæknir Heilsugæslustöðvar-
innar á Akureyri, í samtali við
blaðið. Heilsugæslulæknar á
Akureyri hafa tilkynnt fjár-
málaráðuneytinu að þeir muni
hætta vaktþjónustu í heils-
ugæsluumdæmi Akureyrar frá
12. júní nk. Ástæðan er sú, að
greiðslur fyrir vaktþjónustu
læknanna hafa ekki borist frá
síðustu áramótum.
Fram að síðustu áramótum
skipulagði Sjúkrasamlag Akur-
eyrar og greiddi fyrir vaktþjón-
ustu á Akureyri, en fjármála-
ráðuneytið greiddi fyrir sveitirn-
ar. Þegar Heilsugæslustöð var
formlega stofnuð um síðustu ára-
mót, hætti Sjúkrasamlag Akur-
eyrar að greiða fyrir vaktþjón-
Heilsugæslulæknar hætta
nætur- og helgarvöktum
- Hafa nær engar greiðslur fengið fyrir vaktir síðan um áramót
Eins og greint var frá í blaðinu
er nú verið að lengja fót á ung-
um manni, Jóhanni Páli Ólafs-
syni, á Fjórðungssjúkrasinu á
Akureyri. Jóhanni líður vel,
að eigin sögn, segist stundum
fá pirringstilfinningu í fótinn,
en vildi að öðru leyti gera lítið
úr þessu. í blaðinu í dag er
stutt spjall við Jóhann.
- HJS
Bls. 9
jákvæðir"