Dagur - 10.06.1985, Page 8
8 - DAGUR - 10. júní 1985
Þú sparar
með
réttu vali á
Kynbótasýning og hestaíþróttir á Melgerðismelum um helgina:
„Það er vaxtarbroddur
í eyfirskri hrossarækt“
= HEÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA
„Það er sérstaklega ánægjulegt að
sjá, hvað hér eru margar fallegar
hryssur, sem sýnir að það er vaxt-
arbroddur í eyfirskri hrossarækt,“
sagði Þorkell Bjarnason, hrossa-
ræktunarráðunautur, þegar hann
kynnti kynbótahryssurnar á sýn-
ingu á Melgerðismelum á laugar-
daginn. Auk kynbótasýningarinn-
ar fór fram íþróttamót á melun-
um, en það voru hestamannafé-
lögin við Eyjafjörð sem stóðu að
mótinu.
Fjórar hryssur 6 vetra og eldri
náðu 1. einkunn, en alls náðu 34
hryssur skráningu í ættbók í þeim
flokki. Bestu einkunnina fékk Freyja
Orra Óttarssonar á Garðsá. Hún
fékk 8,24 í aðaleinkunn, en hún er
undan Frey og Kolskör. í öðru sæti
Hespugarnið er
komið í öllum litum.
Handprjónabúðin ENOSS
Hafnarstræti 88 ■ Sími 25914
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Ritarí óskast
Staða ritara við Verkmenntaskólann á Akureyri
er laus til umsóknar og veitist frá 1. ágúst 1985.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist Verkmenntaskólanum á Akureyri,
pósthólf 284, 602 Akureyri, eigi síðar en 21. júní
nk.
Upplýsingar um starfið veita skrifstofustjóri
VMA í síma 26810 og launafulltrúi Akureyrar-
bæjar í síma 21000. Skólameisfari.
varð Frigg Páls Alfreðssonar á Akur-
eyri, en hún er undan Herði frá
Kolkuósi og Blesu. í þriðja sæti varð
Freisting frá Hvassafelli í eigu Sigur-
björns Sveinssonar á Akureyri. Hún
er frá Hvassafelli, dóttir Skörungs og
Tvístjörnu.
Hind frá Hömrum stóð efst af 5
vetra hryssum, en hún er í eigu
Maríu Jóhannsdóttur á Naustum. í
öðru sæti varð Ýra hans Magna í
Árgerði, dóttir Stjarna og Snótar, en
Nótt frá Keldulandi í eigu Ólafs
Valssonar á Akureyri varð í þriðja
sæti.
Sunna frá Hóli í eigu Þorleifs
Karlssonar varð efst af 4ra vetra
hryssum. Hún er dóttir Fáfnis og
Blesu, en í öðru sæti varð Bandalags-
rauðka hans Andrésar á Kvíabekk,
dóttir Gorms og Kolku. Blika hans
Magna í Árgerði, dóttir Ófeigs og
Snældu, varð í þriðja sæti.
Fjórir stóðhestar voru sýndir. Sær
Birgis Árnasonar á Akureyri fékk
besta einkunn, 7,77 en hann er und-
an Hrafni frá Holtsmúla og Bylgju.
Næstur honum kom Röðull Vigfúsar
Björnssonar á Akureyri með 7,55, en
hann er undan Kristal og Rebekku.
í hestaíþróttunum var keppt í eldri
og yngri flokkum unglinga, fjórgangi
og tölti. í yngri flokknum sigraði Arn-
ar Grant í fjórgangi á Stuðli. í öðru
sæti varð Heiðdís Smáradóttir á
Drottningu og Þór Jónsteinsson á
Iðu varð í þriðja sæti. Heiðdís sigraði
síðan í töltinu, Eiður Matthíasson
varð 2. á Geisla og Sigurður Ólason
varð þriðji á Kraka.
í eldri flokknum sigraði Örn Óla-
son í tölti á Klúbb, en Sonja Grant á
Gantmi varð í öðru sæti og Margrét
Stefánsdóttir á Garpi varð í 3. sæti. í
fjórgangi sigraði Sonja, en Ólafur
Hermannsson varð í 2. sæti á Stjarna
og Margrét Stefánsdóttir varð þriðja.
Reynir Hjartarson og Tryggur stóðu efstir í fjórgangi.
Myndir: GS
Keppnin var jöfn hjá unglingunum,
enginn hafði yfirburði og það var
mjótt á munum þegar upp var staðið.
Ólafur Örn Þórðarson sigraði í
gæðingaskeiðinu á Garra. 1 öðru sæti
varð Matthías Eiðsson á Hrönn og
Jóhann Ólsen á Ölver varð þriðji.
Ólafur og Garri sigruðu einnig í
fimmgangi, en í öðru sæti urðu Gylfi
og Kristall. Þeir höfðu haft forystuna
eftir forkeppnina, en Ólafur og Garri
höfðu betur í úrslitunum. í þriðja
sæti í fimmganginum urðu Sindri og
Svanberg Þórðarson.
í töltkeppninni náði hins vegar
enginn að ógna veldi Kristals og
Gylfa Gunnarssonar. Kristall hefur
margsinnis sannað ágæti sitt og hann
tók marga gullfallega skeiðspretti vð
upphitunaræfingar á Melgerðismel-
um um helgina, en það er kostur sem
hann hefur ekki flaggað mikið til
þessa. Hins vegar var hann tregur til
kostanna í fimmgangskeppninni,
enda brautirnar á hringvellinum það
stuttar, að þær takmarka möguleika
á að leggja yfirferðarmikla gæðinga
á skeið. I öðru sæti í töltkeppninni
varð Ingólfur Sigþórsson á bráðefni-
legum 5 vetra klár frá Sigurði Snæ-
björnssyni á Höskuldsstöðum. Sverr-
ir Reynisson á Byl varð í 3. sæti.
í fjórgangi sigraði Reynir Hjartar-
son á Trygg, en í 2. sæti varð Jóhann
Ólsen á Herði og Ólafur Örn Þórðar-
son varð þriðji á Stjarna. - GS
Fjöldi frábærra
sniárétta
á boðstólum
Opið alla virka daga
frá 12-13.30 og 18-01
Um helgar til 03
| Veríð ávalll velkomin í Kjallarann.
Páll Alfreðsson tekur Frygg til kostanna, en hún stóð næst hæst af 6 vetra hryssum.