Dagur - 12.08.1985, Qupperneq 7
6 - DAGUR - 12. ágúst 1985
12. ágúst 1985 - DAGUR - 7
„Ljúfur sigur“
- sagði Gústaf Baldvinsson þjálfari KA
„Þetta var Ijúfur sigur,“ sagði
Gústaf Baldvinsson þjálfari
KA eftir leikinn. „Stórgott að
vinna þetta. Við áttum mjög
góðan fyrri hálfleik og áttum
að gera út um leikinn þá.
Fengum þrjú eða fjögur
dauðafæri.“
Gústaf vildi ekki segja neitt
um það hvort Bjarni hafi verið
rangstæður þegar hann fékk
boltann og skoraði. „Ég var
ekki í aðstöðu til að sjá það.
Hins vegar fullyrðir línuvörður-
inn að Bjarni hafi verið réttum
megin er sendingin kom fram á
hann, og síðan hafi Bjarni kom-
ið á miklum hraða inn fyrir og
skorað."
- Hvað um Völsungsliðið?
„Það var eins og þeir hafi
ekki trú á því sem þeir eru að
gera, því þetta virkaði allt mjög
líflaust hjá þeim, sérstaklega í
fyrri hálfleik,“ sagði Gústaf
Baldvinsson.
„Betra liðið vann“
- sagði Sigurður Halldórsson þjálfari Völsungs
„Það er engum blöðum um
það að fletta að betra liðið
sigraði. Ég vil óska KA-
mönnum til hamingju með
sigurinn, þeir áttu hann fylli-
lega skilið. Hins vegar er
leiðinlegt að svona umdeilt
mark skuli ráða úrslitum,“
sagði Sigurður Halldórsson
leikmaður og þjálfari hjá liði
Völsungs.
„Þetta var mjög mikilvægur
leikur fyrir bæði liðin en þrátt
fyrir það voru mínir menn slakir
í fyrri hálfleik. Ég lagði áherslu
á að við byrjuðum vel því KA-
menn eru fljótir í gang. Þeir eru
líka með skemmtilegasta fram-
línupar á landinu. Það eru
menn sem ég vildi hafa mín
megin. Enda höfðu KA-menn
undirtökin strax og það er erfitt
að komast út úr slíku þrátt fyrir
að mörk hafi ekki verið skoruð.
Ég tel að KA sé með sterkasta
liðið í deildinni í ár. En ég er
ekki búinn að gefa upp alla von
hvað okkur snertir, því það er
mikið eftir af mótinu og við ætl-
um að standa okkur,“ sagði Sig-
urður Halldórsson.
Njáll í
- Steingrímur og
Það getur orðið erfiður róður
hjá KA í bikarleiknum annað
kvöld í Keflavík.
Fyrir utan að þurfa að kljást
við ÍBK eru stór skörð í raðir
KA-manna. Þeir Steingrímur
og Tryggvi meiddust báðir í
leiknum gegn Völsungi. Stein-
bann
Tryggvi meiddir
grímur fékk slæmt spark í rist,
og talið er að liðbönd hafi
skaddast í Tryggva, og er óvíst
hvort þeir félagar geta spilað í
Keflavík. Síðan er Njáll fyrirliði
Eiðsson í leikbanni svo það
verður erfitt fyrir KA annað
kvöld eins og fyrr sagði.
Dyggir stuðningsmenn Húsvikinga:
Fjölmenntu til Akureyrar
Það vakti athygli vallargesta á
leik KA og Völsungs hversu
margir stuðningsmenn Húsa-
víkurliðsins fylgja sínum
mönnum og hvetja þá hvað sem
á gengur. Völsungur átti undir
högg að sækja, sérstaklega í
fyrri hálfleik, en ekki var það til
að draga úr hvatningarhrópum
Erfið vika hjá
Það er erfið vika hjá KA-
mönnum frá föstudeginum síð-
asta fram á föstudaginn 16.
ágúst. Þeir leika þrjá mjög þýð-
ingarmikla leiki á þessum tíma.
Þeir léku við Völsung á föstu-
stuðningsmanna. Það hlýtur að
vera gott fyrir lið að hafa slíkan
hóp með sér í leikjunum. Enda
vildi Sigurður Halldórsson
þjálfari Völsungs taka fram að
hann væri þessu fólki ákaflega
þakklátur, og sagði að þetta
hefði mikil og góð áhrif á leik-
menn.
KA-mönnum
daginn var, bikarleikurinn við
Keflavík er annað kvöld og
mikilvægur leikur í 2. deild
verður næsta föstudag er
Breiðablik kemur að leika við
KA á Akureyri.
Firmakeppni KRA
Hin árlega firmakeppni KRA andi firmameistari er Útgerðar-
hefst 19. ágúst nk. og er þá að félag Akureyringa, sem hefur
vænta spennandi keppni. haldið þeim titli í tvö ár. Sjá
Leikið er með 11 manna lið- nánar auglýsingu annars staðar
um og ef að líkum lætur verða í blaðinu. - KGA
10-12 lið í keppninni. Núver-
Eitt af ótal dauðafærum KA í fyrri hálfleik, Tryggvi hefur skotið, markmaður Völsungs nær ekki í boltann - sem fór rétt frambjó.
Mynd: KGA
2. deild, KA-Völsungur 1:0:
Sigurmaríc á síðustu mínútu
- en var það rangstöðumark?
Það viðraði ekki gæfulega til
knattspyrnu er KA fékk Völs-
ung í heimsókn á föstudags-
kvöld. Hellirigning mestallan
leikinn, norðanátt og kuldi.
Þrátt fyrir það var töluverður
fjöldi áhorfenda á leiknum.
Einkurn fjölmenntu Húsvík-
ingar til Akureyrar að hvetja
sína menn. En það var ekki
nóg því KA sigraði í leiknum
skoraði eitt mark gegn engu.
Fyrirfram var búist við miklum
baráttuleik því sigur í þessum
leik var báðum liðum nauðsyn ef
möguleikar þeirra til að taka þátt
í baráttu efstu liða áttu að vera
mögulegir.
En það verður að segjast eins
og er að Völsungur var nánast
áhugalaust lið á að horfa. KA-
menn áttu fyrri hálfleikinn eins
og hann lagði sig, og áttu oft
hættulegar sóknir á mark
Völsungs. Hins vegar voru sóknir
Völsungs fáar og hættulitlar.
Á tíundu mínútu áttu KA-
menn hættulegt tækifæri en bolt-
inn fór rétt framhjá markinu.
Stuttu síðar átti Tryggvi skot í
stöng eftir góða sendingu frá Erl-
ingi. Þorvaldur Þorvaldsson átti
síðan gott skot að marki Völs-
ungs en rétt yfir. Steingrímur
komst í dauðafæri á 13. mín. eftir
góðan samleik en skotið fór rétt
utan stangar. Þorvaldur átti síðan
skot eftir mikla þvögu í mark- og
vítateig Völsungs, en Gunnar
Straumland markvörður varði.
Á 33. mín. átti Völsungur þokka-
lega sókn sem rann út í sandinn.
Þannig gekk þetta í fyrri hálfleik
og var eins og mark lægi í loftinu.
Steingrímur komst einn inn fyrir
vörn Völsungs en náði ekki að
skora. Rétt fyrir lok fyrri hálf-
leiks fékk Erlingur Kristjánsson
gult spjald hjá dómaranum, en
Sigurður Halldórsson fékk að líta
sama spjald fyrr í leiknum.
Steingrímur meiddist þegar tvær
mín. voru til hálfleiks og fór út
af. Sigurður Halldórsson átti svo
góðan skalla að marki KA á síð-
ustu mínútu en framhjá.
í síðari hálfleik komu Húsvík-
ingar betur inn í leikinn og jafn-
aðist hann nokkuð. KA átti góða
sókn á 5. mín. og Kristján Ol-
geirsson Völsungur átti gott skot
á 10. mín. sem Þorvaldur í KA-
markinu varði. Þorvaldur þurfti
að taka á honum stóra sínum
stuttu síðar er Jónas Hallgríms-
son átti hörkuskot að KA-marki
sem Þorvaldur sló yfir, Á 20.
mín. síðari hálfleiks var Tryggvi
Gunnarsson borinn af leikvelli
eftir meiðsli. í hans stað kom
Þorvaldur Örlygsson. Hinrik
Þórhallsson kom í stað Stein-
gríms sem fór einnig af velli
vegna meiðsla. Það þótti mörg-
um einkennilegur dómur hjá
Ólafi Sveinssyni er hann dæmdi
óbeina aukaspyrnu í vítateig KA.
En Völsungur nýtti sér það ekki.
Á 30. mínútu fékk Þorvaldur Ör-
lygsson gult spjald. En stuttu
áður komst Hinrik í mjög gott
færi sem ekki nýttist. Kristján
Olgeirsson komst einn í gott færi
en Þorvaldur í marki KA bjarg-
aði með góðu úthlaupi. Þannig
gekk síðari hálfleikur að miklu
leyti, nema KA virtist sterkari
aðilinn þrátt fyrir að tveir menn
þeirra fóru af velli vegna meiðsla.
Það voru flestir farnir að bóka
jafntefli í leiknum því venjulegur
leiktími var liðinn, og tími sem
dómarinn bætti við vegna tafa að
hefjast, þegar Bjarni Jónsson
skoraöi ágætt mark eftir snögga
sendingu frá Erlingi. Það voru
margir á þeirri skoðun að Bjarni
hafi verið rangstæður. En Bragi
Bergmann línuvörður virtist al-
veg öruggur í sinni ákvörðun og
markið var gilt. Um 4 mínútur
voru síðan eftir af viðbótartíman-
um og gerðist ekkert sem breytt
gat úrslitum leiksins.
Þessi sigur KA var mjög kær-
kominn í baráttunni um sæti í 1.
deild. En Völsungur og hans
menn virtust ekki hafa trú á því
sem þeir gerðu, eins og Gústaf
þjálfari KA segir á öðrum stað á
síðunni.
Eftir gangi leiksins voru þessi
úrslit sanngjörn, en hins vegar er
sigur eftir svo umdeilt mark ekki
eins skemmtilegur fyrir knatt-
spyrnulið eins og annars gæti
orðið.
Að margra mati var Njáll Eiðs-
son besti maður í liði KA en
varla er hægt að nefna einn
öðrum fremri í annars jöfnu liði
Völsungs.
veisia og goiimót
Golfklúbbur Akureyrar verður
50 ára næstkomandi mánudag,
þann 19. ágúst. En um næstu
helgi verður haldið afmælis-
mót á vegum klúbbsins, þar
Glaðir kylfingar á góðri stund.
dag.
sem spilaðar verða 36 holur í
öllum flokkum. Það verður
opið mót. Og á laugardags-
kvöldið verður afmælisveisla í
Golfskálanum.
Veislan hefst klukkan sjö með
fordrykk, síðan er matur. Ein-
hverjir munu halda ræður,
skemmtiatriði eru á dagskránni
og síðan verður dansað við undir-
leik hljómsveitar Rafns Sveins-
sonar.
Formaður afmælisnefndar
golfklúbbsins er Jónína Páls-
dóttir, sem hefur, ásamt öðrum
afmælisnefndarmönnum, veg og
vanda af mótinu og veislunni.
Veislustjóri í afmælishófinu verð-
ur Jón G. Sólnes. Þá verða í
fyrsta sinn útnefndir heiðursfé-
lagar í golfklúbbnum.
Jónína Pálsdóttir sagðist eiga
von á allt að 150 veislugestum að
Jaðri næstkomandi laugardags-
kvöld - „þetta verður glæsilegt og
umfram allt eftirminnilegt
kvöld,“ sagði Jónína.
Skráning þátttakenda fer fram
að Jaðri, og einnig er hægt að
hafa samband við Jónínu til að
komast á listann. - KGA
Það verður glæsileg veisia hjá þeim á laugar-
Opna KEA-mótið í golfi:
Akureyringar sigursælir
Opna KEA-mótið í golfi var
haldið á Jaðarsvelli um helg-
ina. Það var Golfklúbbur Ól-
afsfjarðar sem hélt mótið, en
sökum ills ástands golfvallarins
í Ólafsfirði héldu þeir mótið
hér. Það voru alls 63 kylfingar
sem tóku þátt, og mótið fór vel
fram að vísu rigndi duglega
báða dagana, en áhugasamir
kylfingar láta það ekki á sig fá.
Lítum þá á helstu úrslit. í
karlaflokki var keppt með og án
forgjafar, án forgjafar sigraði
Magnús Jónsson GS, fór 36 holur
á 150 höggum; í öðru sæti varð
Sverrir Þorvaldsson GA á 153
höggum; í þriðja sæti Axel Reyn-
isson GH á 154 höggum. Með
forgjöf sigraði Axel Reynisson á
140 höggum; í öðru sæti varð
Sverrir Þorvaldsson á 141 höggi;
í þriðja sæti varð Þórhallur Páls-
son GA á 142 höggum, ekki mik-
ill munur á þeim þrem.
í kvennaflokki sigraði án for-
gjafar Inga Magnúsdóttir á 168
höggum; í öðru sæti varð Jónína
Pálsdóttir á 181 höggi; í þriðja
sæti varð Erla Adolfsdóttir á 187
höggum. Þær eru allar í GA. Og
þær stöllurnar þrjár röðuðu sér
einnig í efstu sætin í keppni með
forgjöf. Þar varð Inga efst á 144
höggum; Erla í öðru sæti á 149
höggum og Jónína í þriðja sæti á
151 höggi.
í unglingaflokki án forgjafar
sigraði Kristján Gylfason á 160
höggum; í öðru sæti varð Ragnar
Þ. Ragnarsson GH á 163 höggum
og í þriðja sæti Magnús Karlsson
GA á 164 höggum. Með forgjöf
sigraði Vigfús Magnússon GA á
128 höggum; í öðru sæti Óli
Magnússon GA á 131 höggi og í
þriðja sæti Jón B. Árnason GA
á 135 höggum.
Tak hf. veitti aukaverðlaun
fyrir að vera næst holu á 18. braut
báða dagana. Fyrri daginn var
það Aðalbjörn Pálsson sem var
3,70 m frá stöng og síðari daginn
var Arnór Þorgeirsson 2,35 m
frá stöng. - KGA
Inga Magnúsdóttir sigraði í kvenna-
flokki.
KA-menn fagna innilega. Hvort sú verður raunin í Keflavík annað kvöld, veit enginn. Mynd: KGA
„Að sjálfsögðu
ætlum við að vinna“
-segir Erlingur fyrirliði KA um bikarleikinn
Seinni Ieikurinn í undanúrslit-
um Bikarkeppni KSÍ fer fram
í Keflavík á þriðjudagskvöldið.
Þar mætast IBK og KA og það
lið sem sigrar mætir svo Fram
í úrslitum á Laugardalsvelli
síðar í þessum mánuði.
„Ég vil nú helst litlu spá um úr-
slit í þessum leik en að sjálfsögðu
ætlum við að vinna Keflvíkinga
og svo Framara í úrslitum," sagði
Erlingur Kristjánsson í samtali
við Dag en hann verður fyrirliði
í þessum leik. Róðurinn verður
eflaust þungur fyrir KA-menn í
þessum leik en það er líka til
mikils að vinna því með sigri í
þessum leik gætu KA-menn
tryggt sér sæti í Evrópukeppni ef
Fram vinnur bæði deild og bikar.
Nú og hver veit nema KA vinni
bæði IBK og Fram. -yk.
Erlingur: Ætlum að vinna.
Þór-Víkingur í kvöld:
„Þessi leikur má
ekki tapast“
- segir Nói Björnsson
fyrirliði Þórs
í kvöld fer knattspyrnulið Þórs
suður til að leika gegn neðsta
liði deildarinnar, Víkingi á
Laugardalsvelli klukkan 19.00.
„Þetta er leikur sem má ekki
tapast í stöðunni eins og hún er í
dag,“ sagði Nói Björnsson fyrir-
liði Þórs í samtali við Dag. Þór er
í 5. sæti eins og er en með sigri í
kvöld kæmist liðið í baráttu efstu
liða í deildinni. Næsti heima-
leikur Þórs er gegn Fram og verð-
ur hann leikinn á fimmtudaginn.
-yk.
Nói: Verðum að vinna.
Tveim leikjum lokið
í úrslitum 4. deildar
- Vaskur-Sindri 6:1
- Reynir-Sindri 5:1
Tveim leikjum er nú Iokið í
úrslitakeppni 4. deildar. Þar
leika efstu lið úr d-, e- og f-riðli
en það eru Vaskur, Reynir Ár-
skógsströnd og Sindri frá
Hornafirði.
Sindri kom norður og lék tvo
leiki um helgina og tapaði
báðum, 1:6 fyrir Vask og 1:5 fyrir
Reyni. Leiknar verða tvær um-
ferðir í úrslitunum, heima og
heiman, og það lið sem verður
efst að þeim loknum fer upp í 3.
deild og leikur til úrslita við það
lið sem sigrar í úrslitakeppni a-,
b- og c-riðils um sigurinn í deild-
inni. Næsti leikur í úrslitunum
verður milli Vasks og Reynis og
fer leikurinn fram á Akureyri á
miðvikudaginn. Það verður ör-
ugglega spennandi leikur því
miðað við úrslit helgarinnar er
líklegt að keppnin um 3. deildar
sætið standi milli þessara tveggja
liða. yk.
Staðan
Staða efstu liða í 2. deild breyttist
lítið eftir leiki helgarinnar. Þrjú
efstu liðin sem mesta möguleika
eiga á sæti í 1. deild, eins og stað-
an er nú, unnu öll sína leiki. KA
sigraði Völsung 1-0 og Vest-
manneyingar gjörsigruðu
Skallagrím frá Borgarnesi 8-1.
Staðan er því þessi eftir 12 um-
ferðir:
Breiðablik 24
ÍBV 12 23
KA 12 23
Völsungur 12 18
KS 12 18
ÍBÍ 12 14
Skallagrímur 12 13
Njarðvík 12 13
Fylkir 12 9
Leiftur 12 8