Dagur - 12.08.1985, Page 8

Dagur - 12.08.1985, Page 8
8 - DAGUR - 12. ágúst 1985 Við vorum snemma á ferðinni á sólbjörtum sumardegi í Mývatnssveit og því tilvalið að hefja daginn hjá yngstu kynslóðinni, nánar tiltekið i leikskóla þeirra Mývetninga. Klukkan var ekki orðin níu og aðeins örfá börn mœtt, en Þóra Fríður Björnsdóttir starfsmaður leikskólans sagði að börnin yrðuflest komin um 9.30. María Ketilsdóttir, forstöðukona spjallaði við okkur meðan börnunum fjölgaði. „Við erum tvær sem vinnum hér. Leikskólinn er rekinn þann- ig að á sumrin er opið fyrir há- degi, frá 8.40-12.10. Á veturna er hins vegar opið eftir hádegi, frá 12.50-16.20.“ María sagði að það væru 17 börn á skrá, en þau mættu sjaldan öll. Á sumrin eru 2-6 ára börn, en 3-6 ára á vet- urna. Að þessu sinni voru þau óvenju ung, flest 2-3ja ára. Aðspurð um aðstöðuna sagði María, að þær hefðu eina stofu og hol í barnaskólanum. „Að- staðan er auðvitað ekkert sam- bærileg við fínu, nýju barnaheim- ilin. En það er hlutur sem ekki þýðir að setja fyrir sig ef starf- semin á að ganga. Samstarfið við kennarana er alveg frábært og það hafa engir árekstrar orðið.“ Ekki er hægt að ganga beint af leikvellinum inn í húsið og það þarf því að fylgja börnunum á milli. „Þetta þýðir aukna ábyrgð okkar á börnunum. Þetta er hugsað sem svo að leikur barn- anna trufli ekki starfsemina í skólanum,“ sagði María. María er lærð fóstra. Hún er Bárðdælingur, en fluttist í Mý- vatnssveit fyrir 11 árum. Hún hefur starfað við leikskólann síð- an hún fluttist í sveitina, að undanskildu tveimur og hálfu ári. „Við vorum tvær sem komum þessu af stað fyrir 11 árum. Þá var þetta nýtt í sveitinni og við þurftum að vinna þetta upp. Það var mikil vinna. Allt byrjenda- starf er erfitt á hverjum stað. Við þurftum að vinna þessu fylgi og breyta hugsunarhætti.“ - En þær sem eru útivinnandi og hafa börn sín á leikskólanum, er ekkert slæmt fyrir þær að hann skuli bara vera opinn hálfan daginn? „Ég hejd að þær séu yfirleitt ekkert í vandræðum. Hótelvinn- an er vaktavinria og þær sem „Hvað er konan að gera, má maður ekki leika sér í rörunum í friði?“ iSkemmtilegt starf og alltaf lifandr vinna í kaupfélaginu hafa barn- fóstru hálfan daginn eða fá pössun hjá vinum og vanda- mönnum.“ - Stendur eitthvað til bóta með húsnæðið? „Það er áætlað að byggja barnaskóla og þá stendur til að við fáum það húsnæði sem skól- inn er nú í. En þetta verður ekk- ert alveg á næstunni. En við setj- um það ekkert fyrir okkur. Þetta er skemmtilegt starf og alltaf lif- andi og það er það góða við það. En ég viðurkenni alveg að það er erfitt.“ Börnin tíndust inn á leikvöll- inn, eitt af öðru og það var orðið öllu líflegra á svæðinu. Þar sem veðrið var mjög gott settu þær María og Þóra vatn í plastkassa og síðan létu börnin stór og smá skip sigla á vatninu. En það virt- ist ekki renna sjómannsblóð í æðum allra, því tveir litlir guttar sátu sem fastast í sandkassanum við mokstur og húsagerð. „Ég heiti Haukur Birkisson,“ sagði annar þeirra, og kvaðst vera 3ja ára gamall. „Eg er að byggja hús handa Sigurjónu. Það á að vera stórt.“ En æ, æ, það voru einhver vandræði með húsið, það vildi hrynja, enda hef- ur sandur víst aldrei þótt traust byggingarefni. Haukur kvaðst koma í leikskólann á hverjum degi og það væri alveg ofsalega gaman. Það voru allir komnir á kaf í leik og bátarnir í vatnið, svo við töfðum ekki lengur en kvöddum þessa hressu Mývetninga. Þá sem erfa skulu landið. - segir María Ketilsdóttir, forstöðukona í leikskólanum Reykjahlíð í Mývatnssveit „Ég ætla sko að verða gröfu- maður,“ gæti þessi snáði verið að hugsa. Kannski var hann að hugsa eitthvað allt annað. Mokað af hjartans lyst. Sandkassinn alltaf jafn vinsæll. Vatn komið í kassana og bátamir famir að sigla. María og Þóra hjálpa börnunum með bátana. | TEXTI: HJS - MYNDIR: mþþ|

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.