Dagur - 12.08.1985, Page 9
12. ágúst 1985 - DAGUR - 9
KA-liðin sem kepptu til úrslita. í fremri röð er b-liðið og í aftari röð a-liðið.
Myndir: KGA
Fulltrúi KEA, Áskell Þórisson afhendir pollunum verðlauu.
Pollamót KEA:
KA sigraöi og KA tapaði úrslitaleiknum
- Tíu lið kepptu í pollamótinu
Pollamót KEA fór fram á
Þórsvelli á laugardaginn í
norðanátt og rigningu. Reynd-
ar svo mikilli að gárungarnir
margfrægu vildu kalla mótið
po/famót (harður framburð-
ur). AIls voru það tíu lið sem
tóku þátt í mótinu, en íþrótta-
félagið Þór sá um allan undir-
búning.
Akureyrarliðin KA og Þór
sendu A og B lið til keppni, KS
sendi einnig tvö lið, A og B.
Reynir, Leiftur, Magni og Dal-
víkingar sendu eitt lið hver.
Til úrslita kepptu A og B lið
KA og er skemmst frá því að
segja að A liðið vann 10:0.
Áskell Þórisson blaðafulltrúi
KEA afhenti verðlaunin.
Það var mikið líf og fjör á
Þórsvellinum þrátt fyrir nepjuna
og börðust piltar og stúlkur
hetjulegri baráttu um boltann.
Létu rigninguna á engan hátt á
sig fá.
Liðin voru blönduð og var ekki
að sjá á þeim liðum er blaða-
menn Dags sáu til að stúlkurnar
gæfu piltunum neitt eftir. En það
er sama gamla sagan, myndirnar
tala sínu máli. - mþþ/HJS
'' ■■■■ ■' *
■ ■■•■
' ' :' ■■■'■'
Ihugull þjálfari.
-
*
Þaö rigndi, en þeir félagar voru forsjálir og regnhlífin var með.
Allir fengu pylsur eins og þeir gátu í sig trpðiö. í hádeginu varlíka kjúklingaveisla