Dagur - 28.10.1985, Blaðsíða 7

Dagur - 28.10.1985, Blaðsíða 7
leild í fótbolta? skíptar lanir anna liðanna kring ættum við KA-menn möguleika á því að komast í 1. deild, þar sem við myndum keppa við Víking um annað sætið sem bættist við. Þannig að ef tillaga um þetta verður borin upp á þinginu, reikna ég með að fulltrúar KA myndu greiða henni atkvæði af þeirri ástæðu," sagði Stefán. f>á var komið að Karli Pálssyni formanni KS á Siglufirði og sagði hann þetta: „Mér hefur sýnst að toppliðin í 2. deild hafi alveg átt erindi í 1. deild, eins er með bestu liðin í 3. deild og 2. deild- ina. Þetta mun verða kostnaðar- auki, en liðin úti á landi hafa gert lítið af því að kvarta yfir honum. Þannig að ég tel það knattspyrn- unni til góðs að fjölga í deildun- um,“ sagði Karl. Að lokum var haft samband við Kára Arnór Kárason á Húsa- vík og sagði hann þetta um málið: „Ég tel það út í hött að fara að fjölga í 1. deild, þó að tvö Reykjavíkurlið hafi fallið í 2. deild.,Mótið eins og það er í dag er alveg nógu langt og erfitt. Aft- ur á móti ætti að endurskoða fyrirkomulagið á bikarkeppninni, þannig að bæði lið úr 1. og 2. deild kæmu inn í hana á sama tíma þ.e. í 32ja liða úrslitum," sagði Kári Arnór. Pað er því ljóst að það eru mjög skiptar skoðanir um þetta mál og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort tillaga um fjölgun verður borin upp í Eyjum, og þá hvaða meðferð hún fær. iigraði igglega Þór .og má þar nefna Þórsarana Nóa Björnsson, Júlíus Tryggva- son og Baldur Guðnason og úr liði KA Harald Haraldsson Þor- vald Jónsson og Þorvald Örlygs- son. Sigurinn yfir MA veitir VMA rétt til áframhaldandi þátt- töku og munu þeir fara suður í byrjun næsta mánaðar og spila við lið Háskóla íslands. I liði MA var langmest áber- andi Halldór Áskelsson úr Þór og var hann mjög góður í leiknum en það dugði ekki tii. ^MA. Mynd: KK Umsjón: Kristján Kristjánsson 28. október 1985 - DAGUR - 7 Haukur Eiríksson skíðagöngu- maður er nýlega kominn heim, eftir að hafa verið við æfingar í Austurríki, ásamt Einari Ól- afssyni frá ísafirði, sem nú er búsettur í Svíþjóð. Dagur átti stutt spjall við Hauk og var hann fyrst spurður um þessa æfingaferð til Austurríkis: „Við vorum þarna úti ásamt sænska skíðalandsliðinu, ég og Einar Ólafsson og æfðum við svo til eftir sama plani og þeir, en við vorum þjálfaralausir, en nutum góðs af nærveru Svíanna því þeir voru með sinn þjálfara með í för- inni. Við æfðum á Dachsteinjökli nálægt bænum Ramsau og þang- að koma landslið margra þjóða á sumrin og haustin til æfinga. Þá má geta þess að við förum aftur í æfingabúðir um áramótin og þá að öllum líkindum til einhvers Norðurlandanna og mun það verða 3ja vikna ferð. Þá stendur til að landsliðið fari í keppnisferð í febrúar til Skandinavíu." - Ertu þá í góðri æfingu um þessar mundir? „Já ég er það, ég er búinn að æfa á fullu í allt sumar. Þessi íþrótt krefst þess að æft sé svo til allt árið ef nást á árangur.“ - Hvenær hefst svo keppnis- tímabilið hjá þér hér heima? „Bikarmótið byrjar um miðjan janúar og stendur fram að lands- móti sem haldið verður í Bláfjöll- um um páskana. Ég kem til með að keppa í þremur 15 km göng- um og einni 30 km göngu í bikar- keppninni og gildir samanlagður árangur í þeim.“ - Hvernig hefur þér gengið á landsmótum hingað til? „Ég varð íslandsmeistari í 15 km göngu í piltaflokki á lands- mótinu sem haldið var á Akur- eyri og einnig vann ég bikarinn það ár í piltaflokki. Eg er nú á öðru ári í karlaflokki og nú síðast varð ég í þriðja sæti, á eftir þeim Einari Olafssyni og Gottlieb Konráðssyni,“ sagði Haukur að lokum. Þorvaldur til Leifturs - í fótbolta einnig hættur með KA í handbolta Þorvaldur Jónsson tnarkvörð- ur KA í handbolta og fótbolta, hefur ákveðið að ganga til liðs við sína gömlu félaga í Leiftri í Ólafsfirði og leika með þeim í þriðju deildinni í knattspyrnu á næsta ári. Þá er Þorvaldur hættur að æfa og keppa með KA í I. deildinni í handknatt- leik og er talið að það sé vegna ágrenings á milli hans og Ljubo Lazic þjálfara KA. Þá er nær öruggt að Hinrik Þórhallsson sem hefur verið einn besti knattspyrnumaður KA á undanförnum árum sé einnig hættur í KA og sé að flytja bú- ferlum til Reykjavíkur. Einnig er talið víst að Njáll Eiðsson sem hefur leikið með KA á undan- förnum árum spili ekki með næsta sumar. Njáll vinnur í Reykjavík í vetur og hefur æft með sínum gömlu félögum í Val. Og er talið víst að hann muni ganga til liðs Valsmenn fyrir komandi keppnistímabil. Þorvaldur hefur ekki verið ánægður í vetur og er hættur að æfa nieð KA í handbolta. Víkingur fer þrátt fyrir allt. ! Víkingur fer til Finnlands Vegna fyrirhugaðar ferðar Víkings Trausta- sonar á heimsnieistaramótið í kraftlyftingum sem haldið verður í Finnlandi í næsta mán- uði, hefur blaðinu borist eftirfarandi tilkynn- ing frá Sigurði Magnússyni framkvæmda- stjóra ÍSÍ. íþróttasambandi íslands hefur borist til- kynning frá finnska íþróttasambandiuu og finnsku lyfjaeftirlitsnefndinni þar sem skýrt er frá því aö í samræmi við uppkveðinn úr- skurð hinn 7. október s.l. um tveggja ára keppnisbann gagnvart lyftingamanninum Víkingi Traustasyni, Akureyri, fyrir að neita að mæta til lytjaprófunar á Norðurlanda- meistaramótinu í kraftlyftingum sein fram fór í Noregi, sé Víkingur Traustason einnig í keppnisbanni í Finnlandi og fái því ekki að taka þátt í heimsmeistaramótinu í kraftlyft- ingum sem fram fer í Finnlandi 7,-10. nóv- ember n.k. Tekið skal frant að umdræddtim lyftinga- ntanni svo og íþróttabandalagi Akureyrar og Lyftingasambandi íslands hefur verið til- kynnt þessi niðurstaöa," sagði Sigurður að lokunt. í Finnlandi tilheyrir kraftlyftingasamband- ið íþróttasambandi Finnlands, en hér á ís- landi er kraftlyftingasambandið íslenska utan við íþróttasamband íslands. Þrátt fyrir þessa tilkynningu frá íþrótta- santbandinu hefur blaðið fregnað að þetta konti ekki til með að breyta því að Víkingur fari til Finnlands og kcppi eins og til stóö, þar sem finnska íþróttasambandið hafi ekki lögsögu yfir Víkingi, vegna þess að íslenska Ikraftlyftingasambandið er ekki innan ÍSÍ. Þá má með sanni segja að þetta sé orðið flókið og leiðinlegt mál og vonar undirritað- ur að ferð Víkings til Finnlands megi verða til þess að leysa þetta mál í eitt skipti fyrir ■ öll. | Auðvitað vann mitt lið „Auðvitað vann ég og mitt lið,“ sagði Eirík- ur Sveinsson læknir eftir að Bændaglímu Golfklúbbs Akureyrar lauk á dögunum. Ei- ríkur var bóndi annars liðsins, en hinu stjórnaði hinn eldhressi Hörður Tuliníus körfuboltadómari með meiru. Eiríkur sagði að sigurinn hefði aldrei verið í hættu. Alls mættu 32 kylflngar til leiks og léku cinn gegn einuni holukeppni. LJrslitin ; urðu þannig að lið F.iríks sigraði 18:14, en bót var í máli fyrir Hörð bónda að honum | tókst að bera sigurorö af Eiríki.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.