Dagur - 28.10.1985, Blaðsíða 11

Dagur - 28.10.1985, Blaðsíða 11
28. október 1985 - DAGUR - 11 Minning: T Jóhann Skaptason Fæddur 6. febrúar 1904 - Dáinn 17. október 1985 Jóhann Skaptason fyrrverandi sýslumaður Þingeyjarsýslu og bæjarfógeti Húsavíkur andaðist að heimili sínu þann 17. október sl. Nokkur ár eru liðin frá því að hann hætti embættisstörfum, en þau hjónin Sigríður og Jóhann nutu efri áranna á sínu myndar- lega heimili Túni Húsavík, tóku þar með rausn á móti vinum og, ættingjum, nutu haustdaga lífsins við minningar um fjölbreytt og litríkt ævistarf. Par sem Fnjóskáin brýst í gegnum Dalsmynnið vestur til Eyjafjarðar er sérkennilegt og fagurt landslag, spilar þar saman áin, brattar hlíðar fjallanna og birkiskógurinn. í þessu umhverfi var og er frændgarður Jóhanns Skaptasonar. Á Skarði í Dals- mynni bjó afi hans Jóhann Bessa- son og Sigurlaug Einarsdóttir, þau merku hjón, og á bökkum Fnjóskár, þar sem hún steypist fram úr gljúfrunum stendur bær- inn Litlagerði. Par bjuggu upp úr aldamótunum foreldrar Jóhanns, Skapti Jóhannsson og Bergljót Sigurðardóttir, ættuð frá Kolla- staðagerði á Völlum. í Litlagerði fæddist Jóhann 6. febrúar 1904 og var eini drengur- inn í systkinahópnum. Þaðan minntist hann oft fyrstu æskudag- anna í litríku landslagi heima hjá foreldrum og systkinum. En dvölin var þar stutt og glöðu æskudagarnir fengu skjótan enda. Þegar Jóhann var aðeins þriggja ára dó faðir hans frá sjö ungum börnum og var það hinum unga dreng og fjölskyldunni mik- il raun. Móðir hans reyndi að halda barnahópnum saman, en lífsbar- áttan var erfið, möguleikarnir takmarkaðir, svo að flestum barnanna varð að koma í fóstur. Eitt sinn sagði Jóhann mér að hann hefði stöðugt gengið með þann ótta í brjósti að móðir hans mundi ætla að koma sér í fóstur til vandalausra, en það gat hann ekki hugsað sér að skilja við móður sína. í þessu sambandi sagði hann mér frá því að eitt sinn þegar hann var um 5 ára gamall, hafi móðir hans tekið hann með sér til að heimsækja frændfólk sem þau áttu á Seyðis- firði. Þessi ferð varð Jóhanni eftirminnileg, því hann var hræddur um að hún færi frá Seyð- isfirði án þess að hann vissi og mundi skilja hann eftir í fóstri þarna til langframa. Eitt sinn tapaði litli drengurinn af móðurinni, líklega vegna þess að hún hafi brugðið sér í næsta hús. En þá varð Jóhann óttasleg- inn og hélt að hún væri farin norður, en hann einn eftir hjá vandalausum. Þá tók litli dreng- urinn til sinna ráða og ætlaði að strjúka norður til heimahaganna í Dalsmynni, og stefndi hröðum skrefum upp á Fjarðarheiði. Þeg- ar drengurinn var týndur var haf- in af mörgum mikil leit og fannst hann neðarlega á Fjarðarheiðinni á leiðinni heim. Ef til vill hefur þetta atvik orðið til þess að aldrei síðar var um það talað að hann þyrfti að yfirgefa móður sína, nema sem sumardrengur í sveit. Ég segi frá þessari bernsku- sögu hér vegna þess að ég veit að föðurmissirinn og erfiðleikar fjöl- skyldu hans og hin mikla ást Jó- hanns til móðurinnar, settu þegar í upphafi varanlegt svipmót á skaphöfn hans og lífsstíl allan. En þó að fátækt og erfiðleika bæru að garði fjölskyldunnar, var Jóhann Skaptason fæddur inn í hóp aldamótakynslóðarinnar. Þegar á æskuárum, eignaðist hann sína drauma um skóla- göngu og að verða þátttakandi í að byggja upp betra mannlíf í landi okkar. Jóhann hóf skólagönguna á Akureyri, en þá var fjölskyldan flutt þangað, en tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1927 og lögfræðipróf frá Há- skóla íslands 1932, hann var um tíma við framhaldsnám erlendis. Um þetta leyti, eða árið 1930 giftist Jóhann Sigríði Víðis Jóns- dóttur, ættaðri frá Þverá í Lax- árdal, mikilli mannkostakonu og góðum lífsförunaut. Nú voru bjartir dagar fram- undan, og ungu hjónin trúðu á lífið og framtíðina. Fyrir Jóhann voru erfiðleikar æskudaganna að líða hjá og þau fylgdu hinum stóra ötula hópi aldamótafólksins á vit nýrra og mikilla verkefna. Þegar Jóhann Skaptason var 31 árs gamall er hann skipaður sýslumaður Barðastrandarsýslu, segja má því að þegar Jóhann og Sigríður flytja til Patreksfjarðar byrji lífsstarfið fyrir alvöru. Auk embættisstarfa kom Jóhann mjög við sögu um framfarir og fé- agsmál. Hann var í stjórn Eyrar- iparisjóðsins, stóð að uppbygg- mgu hraðfrystihússins og hafði forystu um byggingu sjúkrahúss- ins, svo að nokkuð sé nefnt. Hann ritaði fyrir Ferðafélag íslands, Árbók um Barðastrand- arsýslu og náttúrufar hennar, enda var hann orðinn vel kunn- ugur héraðinu, því marga ferðina voru þau hjónin búin að fara á hestunum sínum um sveitirnar allar og áttu vinum að mæta. Þau hjónin töluðu oft um dvölina fyr- ir vestan, en þar voru þau í tutt- ugu og eitt ár. Þar voru hnýtt vinabönd sem ekki slitnuðu. Árið 1956 rættist leyndur gam- all draumur Jóhanns Skaptason- ar. Þá var hann skipaður sýslu- maður Þingeyjarsýslu og bæjar- fógeti Húsavíkur, hann var þá 52 ára. Jóhann var mikill Þingeying- ur, sveitamaður í húð og hár, og málsvari þeirrar menningar sem hér hefur ríkt, með sterkar rætur meðal frænda og vina frá æsku- dögunum. Það var honum því mikil hamingja að fá tækifæri til að vinna með þessu fólki sem byggði héraðið og vera aftur kominn heim. Sigríður átti líka upphaflegu ræturnar í Laxárdaln- um, svo að heimkoman til Húsa- víkur, var heimkoma þeirra beggja. Þegar Jóhann Skaptason tók við sýslumannsembættinu í Þing- eyjarsýslu flutti hann með sér mikla starfsreynslu sem reglu- samur embættismaður af gamla skólanum og lagði mikla og ná- kvæma vinnu í skyldustörfin, og svo tók hann til óspilltra mála að sinna áhugamálum sínum, sem urðu að iokum stór þáttur af ævi- starfi hans. Hann kom með með sér full- mótaðar teikningar að stóru og vönduðu íbúðarhúsi og viðbygg- ingu fyrir embættið, hann kom þessu upp á stuttum tíma og nefndi Tún, stór lóð var umhverf- is þar sem nú er mikill trjágróð- ur. Jóhann var merkur náttúru- fræðingur, þeirrar þekkingar afl- aði hann sér með lestri bóka um þau efni, hann bar með sér mikla ást til íslenskrar náttúru, ferðað- ist töluvert um landið, safnaði stöðugt steinum, fuglum, ýmsu úr jarðfræði og þekkti vel til flóru íslands. Af öllu þessu kom hann með allmikið að vestan frá Patreksfirði, og varð það síðar uppistaðan að söfnunum, sem hann stóð fyrir að koma upp á Húsavík. Jóhann Skaptason hafði mik- inn áhuga á að efla þingeyska menningu, og hann var ekki lengi að framkvæma þær hugsjónir sínar. Hann stóð fyrir þeirri merkilegu framkvæmd, sem er bygging Safnahússins á Húsavík. Hann fékk stóra lóð í miðbænum sem rúmar fleiri stórbyggingar, svona var bjartsýni hans, áhugi og reisn. Bygging Safnahússins hófst 1967 og stóð yfir í 12 ár. Jóhann var formaður byggingarnefndar allan tímann og það er skoðun allra að án hans dugnaðar hefði ekki orðið af þessum fram- kvæmdum. Hann fékk til liðs við sig um 170 einstaklinga, sem allir lögðu fé til byggingarinnar, sumir stórfé. Á vígsludegi Safnahússins 24. maí 1980 þegar söfnin voru opn- uð almenningi afhenti Jóhann eignaraðilum, S.-Þingeyjarsýslu og Húsavík, Safnahúsið skuld- laust með öllu, en innistæðu á byggingarreikningi, þessi saga er eins og ævintýri. Á þessum degi voru þau glöð Jóhann og Sigríður, mikill draumur hafði ræst. Þingeyingar fjölmenntu og þökkuðu þeim af heilum hug, glæsilega forystu um byggingu Safnahússins, sem fyrst og fremst er þeirra verk. Þegar Jóhann skilaði af sér þessum framkvæmdum hafði hann skipulagt í aðalatriðum náttúrugripasafnið. byggðasafnið og að nokkru leyti skjalasafnið. Bókasafnið var tekið í notkun fyrr. Þetta stóra verk þeirra sýslumannshjónanna, og sam- starfsfólks þeirra er mikill og veg- legur minnisvarði, sem setur svip á héraðið allt og eflir þingeyska menningu. Jóhann ritaði um þetta leyti Árbók F.í. um S.-Þingeyjarsýslu austan Skjálfandafljóts. Árið 1958 stóð hann fyrir að gefa út nýtt tímarit, Árbók Þing- eyinga, ritaði hann upphafsorð og lýsti því að þetta ætti að vera rit sem geymir ýmis menningar- mál, atburði og hvers konar sögulegar heimildir sem snerta Suður- og Norður-Þingeyjar- sýslu. Þetta rit hefur komið út ár- lega og er eitt útbreiddasta átt- hagarit sem gefið er út á landinu. Sjálfur skrifaði Jóhann töluvert í Arbókina, var lengi í ritstjórn- inni og sá um allar fjárreiður til 1979. Þegar sýslumannshjónin hættu störfum gáfu Þingeyingar þeim fagurt málverk frá æskubyggð Jó- hanns Dalsmynninu. Þar sést Fnjóskáin liðast, silfurtær í hinu fallega umhverfi, gjöfinni fylgdu þakkir fyrir merkileg menningar- störf í þessari byggð. Hjá frændfólkinu í Skarði fékk hann land undir sumarbústað, sem hann byggði og nefndi Skaptahlíð. Þar var hans uppá- halds gróðurreitur, þar kunni hann við sig, í sambýli við skóginn, blómin og fuglana, enda lágu þar hin léttu spor smala- drengsins. Þarna var gott að dvelja í önn dagsins. Ég hefi áður sagt að Jóhann nefndi íbúðarhús þeirra hjóna Tún. Það fór vel á því, hann var ræktunarmaður mikill, vann tölu- vert að skógræktarmálum og kom sér upp stórum trjágarði við íbúðarhúsið. Grenitrén skarta að sjálfsögðu fagurgræn en núna á síðustu haustdögunum, þegar laufin eru nær öll að falla af al- askaöspinni í garðinum þeirra hjóna, féll þessi sterki stofn Jó- hann Skaptason. hann var allur, hann skildi eftir sig menningar- sögu, sem Þingeyingar gleyma ekki og þakka honum. í fölva haustlitanna leggur hann nú á heiðina í átt til landa- mæranna eilífu til móts við móð- ur sína og föður. sem hann unni svo mjög. Við hjónin þökkum Jóhanni Skaptasyni fvrir vináttu og sam- starf og sendum Sigríði Víðis samúðarkveðjur og óskum henni blessunar í skjóli góðra frænda og vina. Finnur kristjánsson. Nauðungaruppboð Nauðungaruppboð SPENNUM BELTIN sjálfra okkar vegna! Listmálun Olíulitir, vatnslitir í túpum, pastellitir. Vatnslitapappír í blokkum og örkum. Málverkastrigi, blindrammar. Penslar - Fixativ. A-B búðin Kaupangi sími 25020. sem auglýst var í 81., 83. og 87. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á fasteigninni Ásabyggð 4, vesturenda, Akureyri, þingl. eign Árna Vals Viggóssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnun- ar ríkisins, veðdeildar Landsbanka Islands, Gunnars Sólnes hrl., Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Ragnars Steinbergssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 1. nóvtínber 1985 kl. 16.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 73., 80. og 84. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Helgamagrastræti 7 hluta, Akureyri, þingl. eign Péturs Helgasonar og Ásu Ásbergsdóttur, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 1. nóvember 1985 kl. 13.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 73., 80. og 84. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Kambsmýri 8, Akureyri, talin eign Magnúsar Stefánssonar, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka Islands, Reykjavík, Gunnars Guðmundssonar hdl., Péturs Guðmunds- sonar hdl. og Brunabótafélags islands, Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 1. nóvember 1985 kl. 14.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. sem auglýst var í 1., 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Frostagötu 3C, A-hluta, Akureyri, þingl. eign Eikarinnar hf., fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs, bæjarajaldker- ans á Akureyri, innheimtumanns ríkissjóðs, Ólafs B. Árnason- ar hdl. og Brunabótafélags íslands, Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 1. nóvember 1985 kl. 16.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 73., 80. og 84. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Móasiðu 3A, Akureyri, talin eign Haraldar Ó. Haraldssonar, fer fram eftir kröfu Iðnaðarbanka Islands, Akur- eyri á eigninni sjálfri föstudaginn 1. nóvember 1985 kl. 14.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 5., 9. og 13. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983 á fasteigninni Grenilundi 7, Akureyri, þingl. eign Tryggva Páls- sonar, fer fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands, Gunnars Sólnes hrl., bæjargjaldkerans á Akureyri og Bruna- bótafélags íslands, Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 1. nóvember 1985 kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.