Dagur - 13.12.1985, Blaðsíða 5

Dagur - 13.12.1985, Blaðsíða 5
Jijátrú eða hvaðZ 13. desember 1985 - DAGUR - 5 Frá lesendum Lesendur eru farnir að taka við sér og er það gleðilegt. Það er því ástæða til að hvetja ykkur öll sem ætlið að hafa samband við þáttinn en hafið bara gleymt að póstleggja bréfið, að vera með. Einnig er hægt að hafa samband við mig símleiðis, og ekki þarf að taka fram að það er að sjálfsögðu gæfumerki að leggja þessum þætti lið. Utanáskrift þáttarins er: Dagur, Strandgötu 31, pósthólf 58, Akureyri. Hjátrú - eða hvað? Onyx Onyx steinn ljónsins er varasamur steinn. Á arabísku heitir hann el Jasa sem þýðir sorg. Sá sem vill bera onyx ætti að gæta þess að bera við hlið hans hinn appelsínugula sard- stein sem eyðir illum áhrifum hans. í Kína fornaldar var steinninn álit- inn svo ægilegur að erfitt var að fá menn til að vinna í námum þar sem líkur voru á að rekast á hann. Þeir sem báru onyx voru enn held- ur ekki álitnir með öllum mjalla, enda kölluðu þeir yfir sig, að áliti Kínverja, hræðilega drauma, efasemdir, deilur og lagaflækj- ur. Ekki eiga elskendur láni að fagna ef þeir bera onyx. Þó svo að steinninn sé óskaplega fallegur, settur svörtum og hvítum röndum, þá kælir hann allan ástarloga. Það er ef til vill vegna hinna skörpu andstæðna sem eru ósættanlegar, valda deilum og að lokum fullum viðskilnaði elskendanna. Sem betur fer er steinninn ekki alslæmur. Onyxinn getur haft heillavænleg áhrif fyrir ófrískar konur. í kirkju einni í Englandi var til hnefastór onyx-hnullungur og var hann notaður til að lána þeim konum sem áttu erfiða fæðingu í vændum og kom að góð- um notum samkvæmt samtíma heimildum. Krysolit Sólarsteinninn er steinn vogarinnar. Hann er gullinn að lit en sums staðar vottar fyrir grænni slikju. Áður fyrr var hann álitinn mjög verðmætur. Egyptar fundu fyrstir manna stóra krysolit-námu á „Slöngueyju“ í Rauða hafinu. Faraóarnir urðu yfir sig hrifnir af steininum og settu á hann konunglega einokun. Svo varir voru þeir um sig að öflugur hervörður var hafður á eynni og hinir konunglegu eðalsteinaslíparar máttu aðeins stunda vinnu sína um hábjartan dag og undir ströngn eftirliti. Krossfararnir höfðu mikla ágirnd á steininum og rændu oft staði þar sem hann var að finna. Þá leiðina hefur margur kryso- litinn farið ofaní fjárhirslur evrópskra kirkna og er enn í dag hægt að sjá nokkra úrvalssteina þannig fengna í dómkirkjunni í Köln. Fólki á miðöldum féll hinn sindrandi gullni litur krysolitsins vel í geð og trúði því að rétt eins og sóþn hefði hann mátt til að vinna bug á myrkraöflum. Hann var mjög öflugur verndargripur gegn nornaásókn, ef hann var greyptur í gull og geymdur í hægri hendi. Einnig gat hann losað fólk við hégómaskap og aðra vitleysu ef hann var bundinn með asnahári um vinstri úlnlið. Carnelian Mánaðarsteinn meyjunnar er hinn rauðbrúni carnelian. Það er gott hlutskipti því að steinninn er einhver sá elskulegasti sem um getur. Það er sagt að hann geri eiganda sinn ánægðan í hvívetna og það er einnig fullyrt að „sá sem ber carnelian þurfi ekki að óttast að neitt hrynji ofan á hann, t.d. hús eða veggur“. í Babyl- on og Grikklandi var því trúað að hann færði fólki heppni og hamingju. Carnelian steinninn er nátengdur Múhameðstrú. Spámaðurinn sjálfur bar hring með honum og sagði fylgismönnum sínum að sá sem bæri carnelian mundi njóta hamingju og blessunnar. Mú- hameðstrúarmenn trúa því enn að steinninn auki á jafnaðrgeð manna í erfiðum aðstæðunr, eins og heiftúðlegu rifrildi o.s.frv. Vinsældir carnelian sem happasteins voru ekki aðeins bundnar við austrið. Á nítjándu öld átti Napóleon III átthyrndan carneli- an stein sem festur var við úr hans. Hlutur sem honum var bölv- anlega við að skilja við sig. En þrátt fyrir þennan ágæta grip missti hann hásætið. Steininn gaf hann syni sínum sem gekk með hann um hálsinn að ósk föður síns. Prinsinn hlaut því iniður svipleg endalok. Hann var í reiðtúr í óbyggðum Suður-Afríku þar sem nokkrir Zulu stríðsmenn sendu hann yfir í annan heim. Aðdáendur carn- elian steina benda aftur á móti á að steinninn hafi aldrei fundist á líkinu og prinsinn því líklegast verið án hans á skapadægri sínu. K \ If / *** \ 1 1 fe w* 4 /' 1 V SJ. UL' ‘I 30% útborgun mjög hagstætt i/erð Verslun Iðnaðardeildar býður nú mokkaflíkur á mjög hagstæðu verði, með aðeins 30% útborgun og eftirstöðvar í þrennu lagi. Þetta er tækifæri sem enginn ætti að láta ganga sér úr greipum. Tökum við greiðslukortum. Einnig staðgreiðsluafsláttur. ^ VERSLUN IÐNAÐARDEILDAR SAMBANDSVERKSMIÐJUNUM GLERÁREYRUM OPIÐ 12-17 OPIÐ Á MORGUN LAUGARDAG FRÁ KL. 10-18. í dag föstudag bjóðum við tilboðsverð á nautavöðvum Kynningu á smákökum og jólaávaxtaköku frá Kristjáni Jónssyni. Kynningu á Bensdrop súkkulaði ★ A morgun laugardag verða kynningar á smákökum og jólaávaxtaköku frá Kristjáni Jonssyni og súkkulaði frá Bensdrop. Verið velkomin. Um fjögurleytið verða hinir síkátu jólasveinar á ferð. HAGKAUP Akureyri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.