Dagur - 16.12.1985, Side 1

Dagur - 16.12.1985, Side 1
68. árgangur Akureyri, mánudagur 16. desember 1985 164. tölublað „Munum gera það sem við getum“ - tii að liðka fyrir vatnsútflutningi AKVA segir Freyr Ófeigsson formaður vatnsveitustjórnar „Stjórn Vatnsveitu Akureyrar vill á allan hátt aðstoða Akva h.f. við að koma vatnspökkun- inni í framkvæmd og mun gera það sem í hennar valdi stendur til að liðka fyrir því máli á allan hátt,“ sagði Freyr Ófeigsson formaður vatnsveitustjórnar í samtali við Dag. Á fimmtudag var haldinn fund- ur í vatnsveitustjórn og þar var fyrirhugaður útflutningur Akva h.f. á neysluvatni til umræðu. Svo virðist sem forsendur fyrir vatnsútflutningnum séu örlítið breyttar að því leyti að Akva h.f. vill nú eingöngu fá vatn úr einni tiltekinni lind Vatnsveitunnar, svo kölluðum Heisivallalindum. Fyrsta vatnssendingin fer á Danmerkurmarkað og ákvæði í dönskum tollalögum gera það að verkum, að nauðsynlegt er að til- greina nafn vatnslindar á umbúð- um, því ella fer varan í margfalt hærri tollaflokk. „Ég lít þannig á að Akva h.f. hafi ekki þurft að sækja um leyfi til Vatnsveitunnar þegar þeir ætl- 8 árekstrar Alls urðu 8 bifreiðaárekstrar á Akureyri á föstudag og laugar- dag. 5 á föstudaginn og 3 á laugardag. Flestir árekstranna voru vægir og engin meiðsl urðu á fólki. Þó var einn áreksturinn á laug- ardaginn nokkuð harður og skemmdust báðir bílar nokkuð mikið. Hann atvikaðist þannig að bíll sem var að koma af vestustu Eyjafjarðarárbrúnni skall á öðr- um sem var á leið upp á brúna. -yk. uðu sér að nota þetta venjulega veituvatn beint úr krananum. Hins vegar þarfnast það sérstakr- ar athugunar ef þeir þurfa vatn úr ákveðinni lind. Um það verður að sækja sérstaklega til Vatns- veitunnar, því búst má við að gera þurfi einhverjar tilfæringar til þess að slíkt verði fram- kvæmanlegt," sagði Freyr. í þessari viku munu fara fram viðræður milli Akva og Vatns- veitu Akureyrar en Freyr ítrek- aði að Vatnsveitan mundi gera það sem hún gæti til þess að leysa þessi mál á farsælan hátt. BB. Bæjarstarfs- menn lögðu niður vinnu! Fimmtudaginn 5. desember s.l. lögðu félagar í Starfs- mannafélagi Siglufjarðar nið- ur störf hjá Siglufjarðarbæ þar sem þeir höfðu ekki feng- ið greidd þau laun sem þeir áttu að fá um mánaðamót. Að sögn Óttars Proppé, bæjarstjóra á Siglufirði, var þetta mál leyst samdægurs og fengu starfsmenn bæjarins sín laun daginn eftir. Óttar sagði að greiðslustaða Siglufjarðarbæjar væri mjög erfið og hefði verið svo um margra ára skeið. Ekki væri gott að sjá vænlegar leiðir út úr vandanum því erfitt væri að fá lánum breytt og auk þess væri það ekki sérlega hagstætt miðað við þann fjármagns- kostnað sem það hefði f för með sér. „Pegar greiðslustaða er svona erfið má ekkert út af bera hjá bæjarsjóði til að hann ráði ekki við þær greiðslur sem hon- um ber að standa skil á,“ sagði Óttar. Enn á bæjarsjóður töluvert útistandandi af ógreiddum gjöldum hjá einstaklingum og þó sérstaklega fyrirtækjum. T.d. sagði Óttar að þeir ættu eftir að fá óvenju mikið af fast- eignagjöldum sem voru öll gjaldfallin 15. maí í vor. Hann taldi að þetta endurspeglaði ástandið í undirstöðuatvinnu- vegum þjóðarinnar, þó að hann ætlaði ekki að fara að afsaka vanskilamenn. -yk. Margraddaður söngur ómaði í göngugötunni í gær. Jólasveinarnir voru mættir og tóku lagið. Ahorfendur fjölmargir tóku hressilega undir, flestir af yngri kynslóðinni. Mynd: KGA „Leiðrétta þarf gengið“ - en koma í veg fyrir verðbólguholskeflu, segir Valur Arnþórsson, um kröfurnar um gengisfellingu vegna taprekstrar fiskiðnaðarins „Að mínum skilningi þarf ekki að fella gengið, hcldur að leið- rétta skráningu gengisins til samræmis við þær staðreyndir sem við okkur blasa,“ sagði Valur Arnþórsson, kaupfélags- stjóri, þegar hann var inntur álits á þeim kröfum nær allra aðila í fiskiðnaöi að gengið verði fellt til þess að bregðast við því tapi sem nú blasir við í grunngreinunum. „Þessar staðreyndir eru þær, að fiskiðnaðurinn er rekinn með halla, ríkissjóður er rekinn með bullandi halla og það er halli á viðskiptunum við útlönd, sem hlýtur þá að leiða til aukinnar skuldasöfnunar við útlönd og versnandi lífskjara í framtíðinni. Pað þarf því að leiðrétta gengið til samræmis við þær staðreyndir sem orðnar eru. Hins vegar stendur það enn óbreytt sem ég sagði í haust, að það verður mikið áfall fyrir atvinnuvegina ef hér fer í gang ný verðbólguholskefla. Það verður því með samræmdum aðgerðum allra aðila, stjórnvalda, fyrir- tækja og stéttasamtaka, að koma í veg fyrir það að ný verðbólgu- holskefla verði. í þessu sambandi vil ég gjarnan leggja áherslu á þá gífurlegu nauðsyn sem er á því að leiðrétta rekstursgrundvöll grundvallaratvinnuveganna, þann- ig að þeir geti tryggt áframhald- andi bærileg lífskjör í landinu. Það geta þeir ekki ef þeir eru blóðmjólkaðir eins og núna er, að meðaltali fyrir landið. í þessu sambandi vil ég vísa í orð Bjarna Einarssonar, aðstoðarforstjóra Byggðastofnunar, sem hann sagði í viðtali við Dag, að hag- vöxturinn verði ekki til í Austur- stræti, heldur í framleiðslu atvinnugreinunum út um landið." „Gæti þetta ekki leitt til þess að gengið yrði ennþá nær launþegum í landinu?" „Nei, það þarf ekki að ganga nær launþegum í landinu heldur en búið er að gera, sannarlega ekki, en það þarf að taka mið af þessum staðreyndum í komandi kjarasamningum," sagði Valur Arnþórsson. Hann sagði enn- fremur að athuga þyrfti injög al- varlega peningapólitíkina. Það væri t.d. mikil þensla samfara því hvernig ríkið tekur til sín fjár- magn og með hvaða hætti, þ.e. með því að yfirbjóða peninga- markaðinn. Með því væri stuðlað að allsherjar vaxtahækkun í land- inu. HS Kröflu- eldum lokíð? „Það þorir nú enginn að af- skrifa Kröfluelda alveg, en mér flnnst flest benda til þess að þeim sé nú lokið, a.m.k. í bili,“ sagði Armann Pétursson á skjálftavaktinni í Mývatns- sveit í samtali við Dag. Lítil sem engin hreyfing hefur komið fram á skjálftamælum í langan tíma og land hefur ekkert risið frá því í vor. Þá reis það ör- lítið en seig svo aftur. Strax eftir að síðasta gosi lauk reis landið nokkuð skarpt í nokkurn tíma en náði þó ekki þeirri hæð sem það var í þegar gaus og nú er sem sagt allt með kyrrum kjörum í Mý- vatnssveit og hefur verið það óvenjulengi. -yk. Mikil ölvun: Meiðsli og rifin föt Mikil ölvun var á Akureyri um helgina og þurfti löreglan af þeim sökum að hafa margvís- Ieg afskipti af fólki. Mest bar þar á slagsmálum og eftirmál- um þeirra. Á föstudagskvöldið þurfti tvisvar að flytja mann á sjúkra- hús úr H-100 til að láta gera að meiðslum sem þeir hlutu í slags- málum. Annar þeirra fékk að fara strax heim en hinn var lagð- ur inn. Þegar Dagur hafði sam- band við lögreglu í gær var ekki vitað hvort maðurinn reyndist al- varlega meiddur en þó var talið að svo væri ekki. Þrir rnenn kornu á lögreglu- stöðina, einn á föstudagskvöld og tveir á laugardagskvöld, með föt sent rifnað höfðu í átökum og til- kynntu að þeir hyggðust leggja frant kærur vegna fataskemmd- anna. Á laugardagskvöldið var brot- inn upp stöðumælir á Ráðhús- torgi og stolið úr honurn þeim peningum sem þar voru. Það upplýstist fljótt hverjir voru að verki og vísuðu þeir lögreglunni á peningana sem þeir höfðu falið. -yk.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.