Dagur - 16.12.1985, Page 6
6 - DAGUR - 16. desember 1985
Birna Björnsdóttir hin stórefnilega sund-
kona úr Óðni setti glæsilegt íslandsmet í 50
m skriðsundi á Desembermóti Óðins í gær.
Birna synti á 30,80 sek. en gamla metið var
31,00 sek. Nánar verður sagt frá mótinu í
blaðinu á morgun.
ísland
sigraði
Spán
- Stórleikur Kristjáns í markinu
í gærkvöld léku ísland og Spánn landsleik i
handbolta. Var það síðari viðureign liðanna í
undirbúningi fyrir HM í Sviss á næsta ári.
Leikið var í íþróttahúsi Digranesskóla og
lauk leiknum með sigri íslands 19:17.
Leikurinn var jafn í byrjun og staðan 2:2
eftir nokkrar mín. Þá kom góður kafli hjá ís-
lenska liðinu og þeir náðu góðri forystu. Sá-
ust tölur eins og 5:2, 7:3 og 9:4 fyrir ísland.
1 hálfleik var staðan 10:5 fyrir ísland.
Síðari hálfleikur var jafnari í heild en þó
náðu Spánverjar að minnka muninn niður í 2
mörk um miðjan hálfleikinn. Þegar tæplega
1 mín. var til leiksloka var staðan 18:16 og
þá tókst íslenska liðinu að skora sitt 19.
mark. En fyrir mikinn klaufaskap íslenska
liðsins tókst Spánverjum að skora 17. markið
um leið og leiktíminn rann út. Lokatölur því
ísland 19, Spánn 17.
Kristján Sigmundsson átti stórleik í marki
íslands í gærkvöld, einnig voru þeir Páll
Ólafsson og Þorgils Óttar góðir.
Mörk íslands: Sigurður Gunnarsson 5,
Þorgils Óttar 5, Páll 4, Guðmundur Guð-
mundsson 3 og Steinar Birgisson 2.
______________íþróttÍL___________
íslandsmótið 3. deild:
Fyrsti heimasigur
Völsunga staðreynd
„Að mínu áliti var það andinn
og baráttugleðin í liðinu sem
öðru fremur var á bak við
þennan sigur okkar í kvöld.
Einnig það, að menn höfðu
virkilega gaman af þessu,“
sagði Arnar Guðlaugsson
leikmaður Völsungs í hand-
bolta eftir frækilegan sigur á
UMFN í 3. deildinni á föstu-
dagskvöld.
Fyrri hálfleikur var hnífjafn
allan tíman en þó voru Njarðvík-
ingarnir ávallt fyrri til að skora. í
hálfleik var staðan 9:8 Njarðvík í
vil og komu 3 síðustu mörk hálf-
leiksins á síðustu 40 sekúndun-
um. Pálmi þjálfari Völsunga
gerði sig sekan um mikla fljót-
færni í fyrri hálfleik og skaut í
tíma og ótíma en flest skot hans
lentu í varnarvegg Njarðvíkinga.
Þegar um 10 mín. voru liðnar
af síðari hálfleik komust Völs-
ungar í fyrsta skipti yfir í leiknum
og náðu á tímabili 4ra marka for-
ystu. Þegar 1 mín. var eftir höfðu
Völsungar 3ja marka forystu
24:21 en þá tóku Njarðvíkingar
maður á mann og náðu að skora
2 mörk á síðustu mín. úr hraða-
upphlaupum. Völsungar voru þó
ekki á því að gefa eftir sinn fyrsta
heimasigur og sigruðu 24:23.
Bestir í liði Völsungs voru,
Birgir Skúlason sem átti stórleik
og skoraði mörg glæsileg mörk,
Sigmundur Hreiðarsson, Birgir
Micaelsson markvörður, Bjarni
Bogason og Pétur Pétursson þeg-
ar hann loks kom inn á.
í liði Njarðvíkur voru þeir Jó-
hann Gunnarsson markvörður og
Guðjón Hilmarsson bestir.
Mörk Völsungs: Bjarni Boga-
son 6, Sigmundur Hreiðarsson 5,
Birgir Skúlason 5, Pétur Péturs-
son 3, Arnar Guðlaugsson 3 og
þeir Sigurður Þrastarson og
Pálmi Pálmason 1 mark hvor.
Flest mörk UMFN skoruð
Guðjón Hilmarsson 6 og þeir
Snorri Jóhannesson og Arinbjörn
Þórhallson 5 mörk hvor.
Leikinn dæmdu þeir Stefán
Arnaldsson og Aðalsteinn Sig-
urgeirsson og gerðu það mjög
vel.
Kristján
með Geisla?
Dagur hefur fregnað að knatt-
spyrnudeild Geisla i Aðaldal
hafi beðið Kristján Olgeirsson
knattspyrnumann á Húsavík að
taka að sér þjálfun á liði félags-
ins. Er ætlun þeirra Geisla-
manna að taka þátt í 4. deild-
inni á næsta ári. Ef Kristján tek-
ur að sér að þjálfa liðið myndi
hann jafnframt leika með því.
Birgir Skúlason einn besti leikmaður
Krístjár
ísl
Það var ekki reisulegur leik-
ur sem leikmenn Islands og
Spánar buðu áhorfendum í
Laugardalshöll upp á á föstu-
dagskvöld. Sóknarleikur
beggja liða var þunglamalegur
og lítið var um fallegt spil. Þau
tilþrif sem sáust voru annað
hvort í vörn eða markvörslu.
íslenska liðið byrjaði leikinn
nokkuð vel og komst í 2:1 með
mörkum frá Páli Ólafssyni og
IS sigraði KA í
öllum leikjunum
A föstudagskvöld iéku lið KA
og ÍS í 1. deild kvenna í blaki í
íþróttahúsi Glerárskóla.
Leiknum lauk með öruggum
sigri ÍS 3:1. Hrinan sem KA-
stelpurnar unnu var sú fyrsta
sem þær vinna á þessu keppn-
istímabili.
Fyrstu hrinuna unnu ÍS-stelp-
urnar örugglega 15:4 en KA þá
næstu 15:12 og léku KA-stelp-
urnar mjög vel í þeirri hrinu, sem
og hinum þremur þrátt fyrir tap.
Þriðju hrinuna unnu IS-stelp-
urnar 15:4 og einnig þá fjórðu.
Daginn eftir léku þessi sömu
lið aftur og einnig þá fór ÍS með
sigur af hólmi, 3:0. í fyrstu hrin-
unni komust KA-stelpurnar í 4:0
en ÍS jafnaði, tók forystuna og
sigraði örugglega 15:6. í annarri
hrinunni tóku iS-stelpurnar for-
ystu strax en KA-stelpurnar
sýndu góða baráttu og voru ná-
- í blaki um helgina
lægt því að jafna. Það tókst þó
ekki og ÍS sigraði 15:12. Þriðja
hrinan stóð stutt og lauk með ör-
uggum sigri ÍS 15:3. Var í þeirri
hrinu mikið um misheppnaðar
uppgjafir hjá KA.
KA-liðið er nokkuð jafnt að
getu en í liði ÍS var Auður Aðal-
steinsdóttir best.
Á undan leik stelpnanna á
laugardag léku karlalið sömu fé-
laga og þar var sama upp á ten-
ingnum, öruggur ÍS sigur 3:1.
Fyrsta hrinan endaði 15:6 fyrir
ÍS. KA sigraði í annarri hrinunni
15:7 en þá sögðu ÍS-menn, hing-
að og ekki lengra og sigruðu í
tveimur síðustu hrinunum, 15:3
og 15:10.
Uppistaðan í liðum ÍS bæði í
karla- og kvennaflokki eru frá
liðum ÍMA og UMSE. Fólk sem
var við nám í MA fyrir nokkrum
árum.
Hrefna Brynjólfsdóttir „smassar“ með tilþrifum í lciknum gegn ÍS á laugar-
dag. Mynd: KGA
Körfubolti 1. deild:
Þórsarar úr
leik að sinni
- eftir tap gegn Fram
Á föstudagskvöld léku Þórsar-
ar fyrri leikinn við Fram í 1.
deildinni í körfubolta um helg-
ina. Leikið var í íþróttahöll-
inni á Akureyri og lauk leikn-
um með sigri Fram 85:72. Má
segja að þar hafi vonir Þórs um
sæti í Úrvalsdeild að ári endan-
lega slokknað.
I fyrri hálfleik var mikil barátta
í báðum liðum. Þórsarar höfðu
undirtökin til að byrja með og
náðu um tíma 10 stiga forystu
28:18. Þá breyttu Framarar um
varnaraðferð, úr maður á mann
vörn í svæðisvörn. Við það náðu
þeir betri tökum á leiknum og
söxuðu smám saman á forskotið.
í hálfleik var staðan 40:39 Þór í
vil og höfðu þeir Konráð og Jó-
hann farið á kostum í hálfleikn-
um og skorað bróðurpartinn af
stigum Þórs.
I síðari hálfleik var leikurinn
jafn fyrstu 10 mín. en þá náðu
Framarar góðum spretti og kom-
ust 10 stig yfir á næstu mín. og
staðan orðin 70:60. Munurinn
hélst svo til óbreyttur til loka
leiksins og staðan í leikslok,
85:72 Fram í vil.
Þórsarar lentu enn einu sinni í
villuvandræðum og þeir Konráð,
Jóhann, Björn og Eiríkur þurftu
að yfirgefa völlinn í síðari hálf-
leik með 5 villur.
Bestir Þórsara voru eins og
áður sagði þcir Konráð Óskars-
son og Jóhann Sigurðsson en að-
eins í fyrri hálfleik.
í liði Fram var Símon ólafsson
langbestur og einnig stigahæstur
með 28 stig, Þorvaldur Geirsson
skoraði 11 stig, aðrir minna.
Stig Þórs: Konráð 21, Jóhann
14, Hólmar Ástvaldsson 13; Ei-
ríkur Sigurðsson 9, Ólafur
Adolfsson 8, Björn Sveinsson 5
og Halldór Arnarson 2.
AE/Reykjavík