Dagur - 16.12.1985, Page 8
8 - DAGUR - 16. desember 1985
__bækuc
mmmmmmmmmmmmm
Slökkvitæki
i miklu úrvali.
Eldvarnarteppi og
reykskynjarar.
Allt tilvaldar jólagjafir.
1M1 Eyfjörð
. .v!v Hjalteyrargotu 4 • sími 22275
Húsvíkmgar -
Þingeyingar
Dagur hefur fastráðið starfsmann á Húsavík. Pað er Ingibjörg
Magnúsdóttir, sem auk blaðamannsstarfa mun sjá um dreif-
ingu og auglýsingamóttöku fyrir blaðið.
Við hvetjum lesendur blaðsins til að hafa samband við Ingi-
björgu varðandi ábendingar um fréttir og efnisval.
Einnig bendum við lesendum á, að Ingibjörg tekur á móti smá
auglýsingum og tilkynningum í dagbók, t.d. varðandi stór-
afmæli og dánarfregnir (mynd má fylgja) svo eitthvað sé
nefnt. Sú þjónusta er lesendum að kostnaðarlausu.
Ingibjörg hefur aðsetur í Garðarsbraut 5, II hæð, sími 41225.
Fastur skrifstofutími kl. 9-11, en er auk þess við á skrifstof-
unni á öðrum tímum.
Heima: Sólbrekka 5, sími 41529.
BjOrn Sfuxðuon. Baldunbrekku 7. Slmar 41534 441666. Sórleyfuferöir. Hópferdir. Sactaferðir. Vöruflutningar
Húsavik - Reynihlíð - Laugar - Akureyri
SéRLEYFISFERÐIR: 10.12.85 - 07.01.86
Frá Frá
Húsvík flkureyri
Föst ud. 13. 12 85 •• 09. oo M 17. oo
Lauaard. 14. 12 85 •• 09. oo M 17. oo
Surtnud. 15. 12 85 - 18. oo H
Mánud. 16. 12 85 •• 09. oo H 17. oo
Þniá i ud. 17. 12 85 •• 09. oo M 17. oo
Miávikud. 18. 12 85 •• 09. oo H 17. oo
Fimnit ud. 19. 12 85 •• 09. oo " 17. oo
Föst ud. £0. 12. 85 •• 09. oo •• 17. oo
Lauaard. 21. 12 85 •• 09. oo •• 17. oo
Sunnud. ,Op 1 p 85 Enain ferá
Mánud. 23. 12. 85 •• 09. oo •• 17. oo
Þnic3 iud. £4.12. 85 Ena i n fer<3
Miávikud. 25.12. 85 Ena i n fer<3
♦Firnmt ud. 26. 12. 85 •• 18. oo •• •21-00
Föst ud. £7.12. 85 •• 09. oo •• 17. oo
Lauaard. £0.12. 85 Enq i n f er<3
Sunnud. £9.12. 85 Er«a in f er<3
Mánud. 30. 12. 85 •• 09. oo •• 17. oo
Þr i«3 i ud. 31.12. 85 Ena i n f er<3
M í <3v i kud. 01.01. 86 Ena i n f erá
F írnrnt ud. 02.01. 86 •• 09. oo " 16. oo
Föst usd. 03.01. 36 •• 09. oo " 17. oo
Lauaard. 04.01. 86 Ena i n fer<3
Sunnud. 05.01. 86 •• 18. oo " Sl.oo
Mánud. 06.01. 06 Ena i n ferá
Dr i«3 i ud. 07.01. 86 •• 09. oo 16. oo
* Ferdin £6.12.85 er bundin lágmarks >»átttöku, vicjsarnlega
panti«3 meá góáum fyrirvara i símum 41140 — £4442 e<3a 41534
fiTH. Vörur sern flytja á frá flkureyri berist fyrir kl. 14. oo
á afgreióslu ríkisskip viá Sjávargötu sími 23936
MYVfiTN - LfiUGflR - OKUREYRI
Frá Frá Frá
Myvatni Laugum flkureyri
Föst ud. 13.12.85 k 1. 08. oo k 1. 09. oo — k 1. 17. oo
Föst ud. 20.12.85 " 08. oo 09. oo 17. oo
Föst ud. £7.12.85 •• 08. oo •• 09. oo •• 17. oo
Föst ud. 03.01.86 " 08. oo •• 09. oo •• 17. oo
Siáan ekiá sarnkvæmt vet raráiet 1 un.
Sér leyf isbi freiáar' Björn Sigurdsscm
fikureyrar. Sér1eyfishaf i .
Það hemst
tilshilaíDegi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^ .
Guðlaugur Arason:
Sóla, Sóla
Mál og Menning.
Að skrifa ritdóm um bók eins og
þessa eftir einn hraðlestur væri
goðgá. Rithöfundur sem sveitist
blóði í tvö, þrjú ár við að skrifa
skáldverk virðist mega gera kröfu
til að gagnrýnandi eyði þrem vik-
um í að kynna sér hana áður en
dómur er felldur.
Aðalsöguhetjan, Hjálmar
Hjálmarsson rithöfundur segir
framtíðinni, í líki barns í móður-
kviði, sögu fortíðar og samtíma
síns. Gamla konan Sóla leggur
honum til efni úr fortíðinni, sjálf-
ur fræðir hann barnið um baksvið
þess í samtíðinni. Bæði tímabilin
eru undir oki hins svarta galdurs
er ræður sálarlífi manna á öllum
tímum svo og náttúrufari þessara
tröllabyggða sem við hrærumst í.
Seyður sá er lífi okkar er soðinn
á hverri öld fyrir sig er af mis-
munandi art, en við erum á valdi
hans. Við gerum það sem við vilj-
um ekki, hitt sem við viljum fer í
handaskolum. Líf okkar kviknar
og vex í heimi óskapa.
Ótrúlega þykir mér höfundi
takast vel að tvinna saman hinn
rauða, snúðharða þráð nútíma og
það loðband í sauðarlitum sem
fortíðin er í okkar hug. Og
tvennt þori ég að fullyrða: Bókin
verður mikið rædd og stíl sem
þenna, skrifar aðeins snillingur.
Emil Björnsson:
Minni og kynni,
frásagnir og viðtöl
Örn og Örlygur.
Hér ræðir séra Emil við menn og
skrifar um aðra, alls 12 persónur
öllum kunnar, lífs og liðnar. Þær
eru: Aðalbjörg Sigurðardóttir,
Brynjólfur Bjarnason, Guðlaug
Helga Þorgrímsdóttir, Gylfi Þ.
Gíslason, Halldór Laxness,
Hendrik Ottósson, Jóhanna Eg-
ilsdóttir, Jónas Jónsson (frá
Hriflu), María Maack, Ómar
Ragnarsson, Sigurður Nordal,
Vigfús Pórðarson.
Suma þessara þátta hefur áður
borið fyrir augu og eyru, aðra
ekki. Þátturinn um Laxness er að
því leyti bestur, hvað karlana
varðar, að Emil rekur af miklu
hispursleysi þær ávirðingar sem
fólk bar þessum margfræga höf-
undi á brýn allt fram að Nobels-
verðlaunum. Pá varð hann
góður.
En það er feitt á fleiri
stykkjum. Greinin um séra Vig-
fús í Heydölum, prestinn hans
Emils í æsku, er hlý og eftir lestur
hennar, skilur maður betur
snemmþroskað frjálslyndi hans
og víðsýni. Ætli margir prestar
núna myndu taka undir þessi um-
mæli Emils um séra Harald Ní-
elsson?: „Andríkasta kennimann
þjóðarinnar að fornu og nýju, að
meistara Jóni Vídalín undan-
skildum." Yfirleitt eru greinarnar
um menn betri en viðtölin við þá.
T.d. er kaflinn um Jónas Jónsson
meistaralega unninn, innblásinn
hrifningu, gallar þó greindir.
Höfundur óvílsamur. En best-
ur er Emil er hann ritar um
konur. Greinarnar um Guðlaugu
móður hans, Mariu Maack
og Jóhönnu Egilsdóttur, eru
ljómandi lesning. Pólitíkusarnir
Hriflu-Jónas og Brynjólfur
Bjarnason standa fyrir sínu hjá
þessum höfundi.
Þegar ég kynntist Emil Björns-
syni fyrst 1937 var hann skáld og
orti í anda Einars Ben. Nú er
hann hættur hjá sjónvarpinu og
ætti að fitja upp á bættum brag.
Nei annars, af eldri skáldum er
einskis að vænta, segja snillingar
nútíma.
Erlingur Davíðsson skráði:
Með reistan makka,
sögur af hestum
Skjaldborg.
Þetta er fimmta bindi af hinum
læsilegu bókum um þjóninn
þarfa, vininn góða. 14 hestamenn
segja frá hestum og ferðum með
þá. Allt gott og blessað eins og í
fyrri bindum.
En hér er þó eitt sem af ber:
Snældu-Blesi. Myndin af þessum
fræga hesti, nýfæddum undir
vanga móður sinnar, er ekki tek-
in á merkilega myndavél, en hún
sýnir fegurð og unað ástar milli
móður og barns betur en margt
annað. Og glæstur Blesi fullorð-
inn. En það er saga hans eftir hið
dularfulla slys, fótbrotið, sem
hrífur mann mest. Eigandi
Snældu-Blesa, Magni Kjartans-
son í Árgerði, er einstakur
maður, slíkra er guðsríkið. Um-
hyggja hans og þrek að bjarga
vini sínum á sér víst fá dæmi. Og
það sem best er: Tugir manna,
leikra og lærðra hafa hrifist með
hugsjóninni fögru, að bjarga lífi.
Að gera það sem mér hefur alltaf
verið sagt að ekki sé hægt: Að
græða brotið bein hrossa. Góð-
hugur Magna hefur vakið hið
sama afl í tugum sálna. Pessi
fyrsti þáttur bókarinnar hans Erl-
ings setur hana á stall með
djásnum. Hann má vera glaður
að hafa ritstýrt honum á bók.
Margar myndir prýða bók þessa
Kristján
frá Djúpalæk
skrifar
eins og hinar fyrri af mönnum og
hrossum. En ég man aðeins
Snældu-Blesa og eiganda hans.
Ella Dóra Ólafsdóttir:
TröIIagiI og fíeiri
ævintýri
Skjaldborg.
Mikið varð ég glaður, eins og
Sunnlendingar segja, er ég las
þessi hugljúfu ævintýri. Séu hugir
manna, einkum unglinga, orðnir
gruggugir af myndvarpsglápi, þar
sem ljótleikinn er yfirgnæfandi,
þá ætti tærleiki þessara daggar-
dropa að hreinsa þá ögn. Pað
þykir ekki nútímalegt að skrifa
bókmenntir sem þessar. En mik-
ill skelfinga misskilningur er það.
Ljótleikinn getur ekki fegrað
neitt því eðli hans er að lita allt í
sínum eigin lit. Fegurðin málar
sjálfa sig eins. Og hvort kjósa
menn? Eg vildi óska að ungir og
aldnir læsu þessa litlu bók. Þeir
myndu eiga léttari drauma nótt-
ina á eftir.
Ókunna kona, Ella Dóra,
blessuð skrifaðu meira af slíku!
Þú kannt mál, stíl og átt barnið
óspillt í brjóstkassanum. Við
þurfum á þeim að halda í heimi
bergþursa og bombukastara.
Engu barni má eyða. Ég missti af
því að sjá Halley-halastjörnuna
vegna lestrar hinna fögru ævin-
týra. En það gerir ekkert til. Ég
sé hana bara næst.
Bragi Sigurjónsson ritstýrir:
Göngur og réttir
þriöja bindi
Skjaldborg.
Þetta bindi spennir yfir Hnappa-
dalssýslu, Dali, Vestfirði, Strend-
ur og Húnavatnssýslur. Bragi
skrifar merkan kafla um selfarir í
upphafi og bókarauki er eftir
unga stúlku um Fljótsdalagöngur
fyrir nokkrum árum, og fróðleg-
ur kafli er um erfiðleika við smöl-
un 1963 á Eyvindarstaðaheiði og
eftirleitir. Alla fýsir í göngur og
betra að lesa um þær en ekki.
Myndir eru hér og mikill glaumur
rétta, mikill sviti og hrossamóða,
tilhlökkun og gleði en líka strit.
Og það besta er eftir: Okkar
sveitir.
högnL
Rétt og rangt skilið.
Fróðir menn fullyrða að það sé sínu á Pálmholt. Hún kom að hvor um sig hinn aðilann geggj-
slæmur skilningur þessi mis- máli við formann Pálmholts- aðan.
skilningur. Vissulega getur nefndar og bar upp vandræði Að sjálfsögðu upplýstist mál-
þetta verið svo, á stundum, en sín, - hún þyrfti svo nauðsyn- ið að lokum og höfðu allir
hreint ekki alltaf. Það getur lega að „koma honum Steina nokkra skemmtun af.
meira að segja hent, að mis- mínum á Pálmholt". Nema svo Og meira um skemmtilegan
skilningur sé blátt áfram vildi til að barna - barnið hét í misskilning: Um síðustu jól brá
skemmtilegur. Auðvitað er mis- höfuðið á afa sínum. Nefndar- heimasætu á fermingaraldri,
mikil ástæða fyrir misskilningi, formaðurinn vissi einungis um heldur betur í brún þegar hún
og stundum getur hann bók- afann, - hélt að um hann væri opnaði jólapakka. Innihaldið var
staflega verið „skiljanlegur". að ræða. Dró hann þá rökréttu bókin, Aldnir hafa orðið. Um
Þetta kom upp í hugann um ályktun, að þessi hugulsama sama leyti var amman, 87 ára
daginn, þegar ég heyrði sögu amma væri snarrugluð, að ætla gömul að opna annan pakka,
um svolítinn misskilning. að fara troða bónda sínum, hátt sem innihélt einnig bók: Fimmt-
Það var á fyrstu árum barna- á sextugs - aldri, á barnaheimili. án ára á föstu. í jóla - annríkinu
heimilisins „Pálmholt". Aðsókn- hafði gefandinn ruglast á inni-
in vargífurleg og komu færri en Af nærgætni og tillitssemi, haldi pakkanna.
vildu bömum sínum á þennan ræddi hann sem minnst við Vonandi hendir það engan í
eftirsótta staö. Ein félagskonan konuna, sem fannst aftur á móti jóla - annríkinu, að ruglast á
í félaginu, sem hrinti þessari framkoma nefndarformannsins innihaldi jólanna. Það væri
þarfa - stofnun af stað, vildi á þann veg, að hann hlyti að dæmi um alvarlegan misskiln-
gjarnan koma barna - barni vera eitthvað skrítinn. Hélt svo ing. Högni.