Dagur - 16.12.1985, Síða 11
bækuL
16. desember 1985 - DAGUR - 11
VISNA
r .
GATUR
fyrir fulloröna
eftlr SIGURKARL STEFÁNSSON
Vísnagátur
eftir Sigurkarl Stefánsson
fyrrum menntaskólakennara
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út bókina Vísnagátur
eftir Sigurkarl Stefánsson fyrrum
menntaskólakennara. Á bókar-
kápu segir: Fyrr og síðar hefur
það verið vinsæl dægradvöl hjá
Islendingum að ráða gátur í
bundnu máli.
Þessi bók verður án efa mörg-
um kærkomin þar sem lengi hef-
ur verið mikil vöntun á slíku efni.
Þetta er skemmtileg bók sem
þroskar mál og hugsun og svo er
einnig til nokkurs að vinna, því
verðlaun eru í boði fyrir réttar
ráðningar á tíu gátum af þeim
157 sem í bókinni eru.
Svo sem að framan segir þá er
höfundur bókarinnar Sigurkarl
Stefánsson fyrrum menntaskóla-
kennari. Allir þeir mörgu sem
þekkja Sigurkarl vita að frá hon-
um er aðeins að vænta þess besta.
Bókin Vísnagátur er sett og
prentuð í prentstofu G. Bene-
diktssonar en bundin í Arnarfelli
hf. Kápu teiknaði Sigurþór Jak-
obsson.
Framhaldslíf
fömmanns
- Endurminningar Hannesar
Sigfússonar skálds
Út er komin hjá Iðunni bókin
Framhaldslíf förumanns eftir
Hannes Sigfússon. Höfundur
segir hér frá ævi sinni frá því að
hann heldur til Svíþjóðar haustið
1945, ungt skáld og óráðið, og
allt til þess að hann tekur að leiða
hugann að eigin æsku, roskinn
maður í Noregi. Þar á milli eru
meira en þrír áratugir sem ein-
kennast mest af eirðarlausri leit
skáldsins að staðfestu í lífi sínu.
Hannes segir hér margt af
skáldbræðrum sínum og vinum.
Hann bregður upp eftirminnileg-
um myndum af Steini Steinarr
sem var áhrifamesti lærimeistaTi
hans cins og fleiri ungra skálda
um miðbik aldarinnar. Meðal
annarra sem hér koma við sögu
eru Magnús Ásgeirsson og Jón úr
Vör. - Hannes lýsir utanferðum
sínum, flökti úr einum aðset-
ursstað í annan, þátttöku í
stjórnmálum, og umfram allt
skáldskapariðju sinni.
í kynningu forlagsins segir
m.a.: „Frá allri þessari marg-
brotnu reynslu segir Hannes af
hreinskilni og hispursleysi. Frá-
sögnin er jafnan lipur og lifandi.
Gildi hennar ræðst ekki síst af
því hvern hlut höfundurinn átti í
róttækustu umsköpun íslensks
skáldskapar á öldinni. Sá nýi
Ijóðstíll er sprottinn upp í því
andrúmslofti sem varð til eftir
stríð þegar kalda stríðið geysaði.
Hannes Sigfússon varð mjög
snortinn af sviptingum í alþjóða-
stjórnmálum á þessum árum.
Mestu skiptir að honum tókst að
vinna úr þeim hugmyndum per-
sónulegan og leiftrandi skáldskap
sem að myndauðgi og málgáfu
tekur fram flestu í skáldskap
samtíðarinnar.“
Iöunn hefur áður gefið út
æskusögu Hannesar, Flökkulíf,
svo og Ljóðasafn hans. Fram-
haldslíf förumanns er prentað í
Odda hf. Kápan er hönnuð á
auglýsingastofunni Octavo.
Ekki kjafta frá
- Ný unglingabók eftir
Helgu Ágústsdóttur
Komin er út hjá Iðunni bók eftir
Helgu Ágústsdóttur útvarps-
mann. Nefnist hún Ekki kjafta
frá og er kynnt á þessa leið á
kápubaki: „Hvernig er að vera
hrifin af þeim sem vill mann ekki
eða uppgötva leyndarmál for-
eldra sinna? Hvað gerist í skólan-
um, frítímum og forboðnum
partíum? Hvernig upplifa ungl-
ingarnir foreldra sína og hverjar
eru leyndustu hugsanir þeirra?
Hvernig á að bregðast við ást-
inni? Höfundurinn, Helga
Ágústsdóttir, leiðir lesandann
inn í heim reykvískra unglinga í
dag. Atburðarásin er hröð og
spennandi frá upphafi til enda.
Varpað er nýju Ijósi á heim ungl-
inganna, þeim er fylgt eftir í sorg-
um og gleði þegar átökin við lífið
eru að hefjast."
Oddi hf. prentaði. Auglýsinga-
stofan Octavo hannaði kápu.
Það kemst
tilskilaíDegi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^
Fómareldur
Glæsilegir
barnagallar
frá Patrick.
3 gerðir.
Vesti,
bakpokar.
JOLAGIAFIRNAR I
SPORTHUSINU
HAFNARSTRÆTI 94 SIMI 24350
wr'Tirrgj
eftir Mary Stewart
Fórnareldur nefnist ellefta bókin
sem út kemur á íslensku eftir
Mary Stewart en henni er einkar
lagið að skrifa bæði rómantískar
og spennandi sögur með óvænt-
um endi.
Á kápubaki bókarinnar segir
m.a.: „Gianetta, fyrrverandi
ljósmyndafyrirsæta, kýs að eyða
sumarleyfi sínu á friðsælum stað,
Þokueyjunni. En á fjallahótel-
inu, Gamasunay, hittir hún fyrr-
verandi eiginmann sinn, rithöf-
undinn Nicholas Drury.
Er það tilviljun eða hefur hann
fylgst með henni og ætlar að ná
ástum hennar á nýjan leik?
Magnað andrúmsloft eyjarinnar
hefur djúp áhrif á þau bæði en
Gianetta er ekki viss um tilfinn-
ingar sínar. En það loga eldar í
hlíðum Bláa fjallsins, teygja sig
upp í náttmyrkrið og kalla ógn
yfir Þokueyjuna er lík ungrar
stúlku finnst við bálköstinn og
skartgripum raðað í kring. Líkt
og eldur læsir skelfing sig um
friðsæla fjallabyggðina og Gian-
etta spyr sig hvort einhver hótel-
gesta hafi framið þennan dular-
fulla glæp og hvers vegna óhugn-
anleg tákn finnast innan veggja
hótelsins. Hefur eitthvað það
gerst er útilokar að ást þeirra geti
kviknað á ný?
Iðunn gefur út. Elísa Björg
Þorsteinsdóttir þýddi. Kápa er
hönnuð á auglýsingastofunni
Octavo. Oddi hf. prentaði.
fyjfátöTV
Kökuform
03 skreytingar
Sprautusettin
eru komin.
Borðapantanir í síma 22970.
Staðfestingar óskast
fyrir fasta nýársgesti.
(>eisla{>olu 14
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
á Norðurlandi eystra
Óskum að ráða nú þegar
eða frá áramótum
starfsmann í sérverkefni.
Æskilegt er aö viðkomandi hafi reynslu af vinnu meö
þroskaheftum, geti unniö nokkuð sjálfstætt og hafa
bíl til umráða.
Nánari upplýsingar á skrifstofu svæöisstjórnar Stór-
holti 1 eöa í síma 26960 milli kl. 10 og 16.
Framsóknarmenn
Akureyri
Einnig aukastútar
og fleira.
Grýta ji
Sunnuhlíð 12
sími 26920.
Framsóknarfélag Akureyrar
Fundur mánudaginn 16. desember kl. 20.30 í
Eiðsvallagötu 6.
Rætt verður um fjárhagsáætlun bæjarsjóös fyrir
árið 1986.
Áríðandi að sem flestir mæti!